Morgunblaðið - 07.08.2002, Side 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hátt uppi
(Hi Life)
Gamanmynd
Bandaríkin 1998. Myndform VHS. (82
mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn og
handrit Roger Hedden. Aðalhlutverk Eric
Stoltz, Campell Scott, Moira Kelly, Daryl
Hannah.
ÞAÐ ætti að vera viss vísbending
fyrir þá sem fylgst hafa reglulega
með myndbandaútgáfu síðustu árin
ef ég segi þessa eina af þessum Eric
Stoltz-og-vinir-hans-í-tilvistar-og-
ástarkreppu-mynd. Til nánari
glöggvunar get ég meira að segja
nefnt nokkrar; Mr. Jelousy, Kicking
and Screaming Naked in New York,
Sleep With Me og
Bodies, Rest and
Motion en svo
„skemmtilega“ vill
til að handritshöf-
undur tveggja síð-
astnefndu, Roger
Hedden, skrifaði
einmitt þessa líka
og ekki nóg með
það heldur er hér
frumraun hans í leikstjórastólnum.
Myndin er mannleg, það vantar
ekki, og sumum þykir hún eflaust
rómantísk og skemmtileg einnig. En
ég, sem séð hef allar ofannefndar, er
eiginlega orðinn svolítið þreyttur á
þessum Stoltz-rómönum. Lái mér
hver sem vill!
Leikarahópurinn er samt góður,
Scott á að fá miklu bitastæðara að
gera og Kelly ætti einnig að sjást oft-
ar. Hvað frumraun Hedden í stjóra-
stólnum varðar, þá verður þessi leik-
húsmaður að upplagi að laga sig
betur að nýju formi, því hér er alltof
mikill leikhúsbragur á, sögusviðið
svo þröngt, allir að rekast á alla á
sömu götu í hinni risavöxnu New
York. Skarphéðinn Guðmundsson
Leiðindalíf
LIAM Gallagher, söngvari
bresku hljómsveitarinnar
Oasis, varð að yfirgefa sviðið
á hljómleikum í Fort Lauder-
dale í Flórída á föstudag eftir
að hljómsveitin hafði flutt
fjögur lög. Söngvarinn sagð-
ist hafa fengið hálsbólgu og
varð Noel bróðir Liams að
syngja lögin sem hljómsveitin
flutti það sem eftir var af
hljómleikunum.
Oasis var að hefja hljóm-
leikaferð um Bandaríkin til að
kynna nýja plötu sína en eftir
að hafa sungið lagið „Go Let
It Out“ henti Liam tambúrín-
unni frá sér og sagði áhorf-
endum að hann gæti ekki
sungið meira þar sem honum
væri illt í hálsinum. Noel
bróðir hans bað áhorfendur
afsökunar á því að hann syngi
ekki eins vel og Liam en hann
hljóp síðan í skarðið.
Talsmaður hljómsveitar-
innar segir að hálsbólga Li-
ams hafi stafað af þreytu eftir
langa flugferð til Flórída.
Þegar Oasis fór í hljóm-
leikaferð um Bandaríkin árið
1996 sinnaðist bræðrunum og
Noel fór heim fyrr en áætlað
var.
Reuters
Liam og Noel Gallagher.
Hætti vegna hálsbólgu
Auggie Rose
(Auggie Rose/Beyond
Suspicion)
Drama
Bandaríkin 2000. Myndform VHS. (109
mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn og
handrit Matthew Tabak. Aðalhlutverk
Jeff Goldblum, Anne Heche, Nancy Trav-
is.
AUGGIE Rose er fyrrverandi
fangi, starfar í áfengisverslun og er
myrtur af búðarhnuplurum. John
Nolan er vansæll tryggingasali sem
verður vitni að morðinu, kennir sjálf-
um sér um og fylgir Rose á spítal-
ann. Nolan líður illa þegar enginn
vitjar Rose á spítalanum, enginn sér
ástæðu til þess að kveðja hann og
syrgja. Hann ákveður því að reyna
að finna einhvern
sem var annt um
Rose, einhvern
sem mun sakna
hans. Brátt
kemst hann að
því að hann átti
pennavinkonu, að
þau felldu hugi
saman er Rose
var enn í fangelsi
og að fyrsti fundur þeirra er í þann
mund að eiga sér stað. Fyrir ein-
hverjar undarlegar sakir ákveður
Nolan að þykjast vera Rose en þegar
hann hittir stúlkuna fellur hann fyrir
henni og dregur á langinn að segja
sannleikann. Fyrr en varir veit hann
ekki hvor hann er eða vill vera; Nol-
an eða Rose, en hugsanlega hefur
hann ekkert val lengur.
Það er skemmst frá því að segja að
myndin er ein af þessum óvæntu
gersemum á myndbandaleigunum.
Handritið er frumlegt, leikstjórnin
vönduð og leikurinn fyrsta flokks.
Djúp og dægileg mynd sem skilur
heilmikið eftir sig. Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Annað líf