Morgunblaðið - 24.09.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isKvennalandsliðið í
knattspyrnu úr leik á HM / B11
Örlög körfunnar hjá Þór
ráðast ́í kvöld / B1
16 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Morgun-
blaðinu í dag
fylgir Stúd-
entablaðið.
Blaðinu verður
dreift um allt
land.
LANDSVIRKJUN á í viðræðum við
eigendur jarðarinnar Laugavalla á
Norður-Héraði, sem eiga land vest-
an megin Jökulsár á Brú ofan Kára-
hnjúka þar sem smíða þarf brú
vegna framkvæmda við Kára-
hnjúkavirkjun. Landeigendurnir
hafa ekki viljað gefa samþykki sitt
þar sem ekki hefur m.a. samist um
gjald fyrir efnistöku til stíflugerðar
en stíflustæðið tilheyrir einnig
Laugavöllum. Austan árinnar hafa
eigendur jarðarinnar Valþjófs-
staðar veitt sitt samþykki.
Að sögn Þorsteins Hilmarssonar,
upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar,
kemur til eignarnáms ef samningar
takast ekki en reyna á til þrautar
næstu daga að semja við landeig-
endurna. Landsvirkjun hefur heim-
ild í lögum til að taka land eign-
arnámi krefjist almannahagsmunir
þess.
Undirbúningsframkvæmdir
vegna virkjunarinnar ganga að
öðru leyti vel, að sögn Þorsteins.
Starfsmenn Ístaks vinna nú að
lagningu vegar frá Laugarfelli sem
liggja á að stíflustæðinu við
Fremri-Kárahnjúk og umræddri
brú, sem mun standa uppi á fram-
kvæmdatíma. Vegaframkvæmdir
eru einnig í fullum gangi á vegum
Héraðsverks en starfsmenn þess
vinna þessa dagana við lagningu
vegar á vesturhluta leiðarinnar.
Smíði brúar yfir Jökulsá á Brú við Kárahnjúka er ekki enn hafin
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Framkvæmdum miðar vel við lagningu vegar vegna Kárahnjúkavirkjunar. Hér eru stórvirkar vinnuvélar verktakafyrirtækisins Héraðsverks við
vegaframkvæmdir í Dragamótum, en verktakafyrirtækið annast lagningu vestari hluta vegarins að Kárahnjúkum.
Ósamið við land-
eigendur vestan
megin árinnar
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Samfylkingarinnar hefur sam-
þykkt orðalag spurningar, sem
lögð verður fyrir félaga í Sam-
fylkingunni í póstkosningu um
Evrópumál í lok október næst-
komandi.
Spurningin verður eftirfar-
andi: „Á það að vera stefna
Samfylkingarinnar að Íslend-
ingar skilgreini samningsmark-
mið sín, fari fram á viðræður
um aðild að Evrópusamband-
inu og að hugsanlegur samn-
ingur verði síðan lagður fyrir
þjóðina til samþykktar eða
synjunar?“ Stefán Jón Haf-
stein, formaður framkvæmda-
stjórnar Samfylkingarinnar,
staðfesti þetta í samtali við
Morgunblaðið í gær, en á lands-
fundi Samfylkingarinnar í nóv-
ember 2001 var tekin ákvörðun
um það að fara út í póstkosn-
ingu varðandi Evrópumálin.
Stefán Jón segir að spurn-
ingin sé í raun þríhlaðin, eins og
hann orðar það. Í fyrsta lagi sé
spurt hvort Íslendingar eigi að
skilgreina samningsmarkmið
sín. Í öðru lagi hvort fara eigi
fram á viðræður um aðild að
Evrópusambandinu og í þriðja
lagi hvort leggja eigi hugsan-
legan samning fyrir þjóðina til
samþykktar eða synjunar.
Hann segir að nei þýði í raun að
ekki eigi að vera á stefnuskrá
Samfylkingarinnar að hugsa
meira um aðildarumsókn að
Evrópusambandinu. Já þýði að
opnað verði á ESB og að sett
verði í gang ferli sem endi með
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Að sögn Stefáns Jóns er
stefnt að því að senda spurning-
arnar út til um 10.000 félaga í
Samfylkingunni í lok október
næstkomandi. Talning hefjist
um leið og svör berist og nið-
urstöður verði birtar um hæl.
Samfylkingin boðar til op-
inna borgarafunda um Evrópu-
mál um allt land á næstu vikum
og voru fyrstu fundirnir haldnir
um helgina.
Póstkosning um
Evrópumál hjá
Samfylkingunni
Orðalag
spurning-
ar ákveðið
FINNUR Ingólfsson seðlabanka-
stjóri verður næsti forstjóri VÍS
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, en til-
kynnt verður
um ráðninguna
í dag.
Boðað hefur
verið til starfs-
mannafundar
hjá VÍS í dag
kl. 10 þar sem
greina á frá nið-
urstöðu stjórn-
arfundar í gær
þar sem rætt
var um ráðningu nýs forstjóra.
Finnur Ingólfsson hefur gegnt
starfi bankastjóra Seðlabanka Ís-
lands síðan í ársbyrjun árið 2000
en þar áður var hann viðskipta- og
iðnaðarráðherra.
Finnur, sem er 48 ára gamall,
tekur við starfi forstjóra VÍS af
Axel Gíslasyni sem sagði starfi
sínu lausu frá og með 1. október
nk. en hann hefur verið forstjóri
félagsins frá stofnun þess árið
1989.
Samstaða í stjórninni
Þórólfur Gíslason, stjórnarfor-
maður VÍS, sagði í samtali við
Morgunblaðið að mjög góð sam-
staða væri í stjórninni um þá nið-
urstöðu sem hún vænti að tilkynnt
yrði í dag, eins og hann orðaði það
eftir stjórnarfundinn í gær.
Í síðasta mánuði urðu breyting-
ar á eignarhaldi VÍS þegar Lands-
banki Íslands seldi 27% hlut í fé-
laginu en bankinn átti 41% fyrir
söluna. Kaupendur voru aðrir eig-
endur í VÍS, þ.e. Ker, áður Olíufé-
lagið, Samvinnutryggingar, Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn og Andvaka.
Ker er nú stærsti hluthafi í VÍS
með 29% hlutafjár. Samvinnu-
tryggingar eiga 26%, Landsbanki
Íslands 14%, Samvinnulífeyrissjóð-
urinn 9% og Eignarhaldsfélagið
Andvaka 6%.
Finnur Ingólfs-
son verður
forstjóri VÍS
Finnur
Ingólfsson
STANGVEIÐIFÉLAGIÐ Lax-á
ehf., veiðifélag í eigu Árna Baldurs-
sonar, hefur tekið Laxá á Ásum á
leigu til þriggja ára. Meirihluti land-
eigenda í Veiðifélagi Laxár á Ásum
samþykkti samkomulagið við Lax-á
ehf. á fundi sl. sunnudag.
Páll Þórðarson á Sauðanesi, for-
maður Veiðifélags Laxár, segir að
samningur sem gerður hefur verið
við Lax-á hafi verið staðfestur á
fundinum. Skoðanir hafi verið skipt-
ar um hvort rétt væri að leigja alla
ána með þessum hætti en þetta hafi
orðið niðurstaðan. ,,Við höfum ekki
farið þessa leið lengi en við ætlum að
prófa þetta í þrjú ár og meta svo
stöðuna þegar þau eru liðin,“ segir
hann.
Hann segir að eldra fyrirkomulag
við sölu veiðileyfa hafi verið flókið og
stirt í vöfum. ,,Við viljum fara að ein-
falda þetta og gera viðskiptavinunum
auðveldara fyrir. Það verður miklu
auðveldara fyrir þá að ná saman á
nokkrum dögum með þessum hætti
en áður var, því þá skiptu menn dög-
unum á milli sín og var þetta allt
sundurskorið. Ef einhver vildi fá sér
kannski fimm eða tíu veiðidaga í einu,
þá þurfti hann að tala við marga
veiðiréttareigendur og það gat orðið
flókið mál að púsla svoleiðis pökkum
saman,“ segir hann.
Gert að skilyrði að
eingöngu verði veitt á flugu
Lax-á ehf. mun leigja ána á tíma-
bilinu frá 15. júní til 1. september
næstu þrjú sumur og er leigusamn-
ingurinn bundinn því skilyrði að ein-
göngu verði veitt á flugu í ánni á
leigutímanum, líkt og gert var sl.
sumar en þá var ákveðið að leyfa að-
eins veiðar á flugu í ánni auk þess
sem veiðitíminn var styttur frá því
sem áður var.
Alls veiddust 560 laxar í Laxá á Ás-
um á nýliðnu sumri og er það ámóta
veiði og sumarið 2001. ,,Við erum
sæmilega sáttir við það. Þetta er jú
styttri tími og enginn maðkur. Það er
líka eins og árnar hérna í kringum
okkur séu heldur upp á við og það er
aðeins bjartara hljóð í mönnum,“
segir Páll Þórðarson.
Laxá á Ásum leigð Lax-á ehf. í þrjú ár