Morgunblaðið - 24.09.2002, Side 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 7
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók
í fyrrinótt karlmann sem er grun-
aður um að hafa reynt að brjótast inn
í skrifstofur Fangelsismálastofnun-
ar við Borgartún. Hann hafði sig á
brott þegar þjófavarnarkerfi fór í
gang.
Lögreglumenn höfðu uppi á
manninum á Laugavegi stuttu síðar
en hann hafði þá tölvu í fórum sínum
sem reyndist vera góss úr öðru inn-
broti. Maðurinn hefur verið hand-
tekinn af og til síðustu daga og vikur,
m.a. vegna innbrots í Biskupsstofu.
Reyndi að
brjótast inn
hjá Fangelsis-
málastofnun
ERLEND kona var flutt á slysadeild
eftir slys um borð í skipinu Atlas í
Reykjavíkurhöfn í fyrrinótt. Ekki
var hún þó talin vera alvarlega slös-
uð. Í fyrstu var talið að ráðist hefði
verið á hana um borð í skipinu og var
karlmaður handtekinn vegna máls-
ins. Í ljós kom að ekki var um árás að
ræða heldur slys, sem ekki er rann-
sakað sem sakamál. Hafði konan
verið í heimsókn á skipinu og lent í
óhappi með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Slasaðist í
skipaheimsókn
BETUR fór en á horfðist þegar
loft lak úr uppblásinni rennibraut í
Vetrargarðinum í verslunarmið-
stöðinni Smáralind síðdegis á
sunnudag.
Um 10 börn voru í rennibraut-
inni þegar atburðurinn átti sér
stað. Pálmi Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Smáralindar, segir
að tvö börn hafi vankast þegar þau
rákust saman, en þau hafi þó ekki
slasast.
Hræðsla greip um sig
Talsverð hræðsla gerði vart við
sig þegar loftið fór að leka úr
rennibrautinni en hægt var að
koma börnunum, sem voru í 2–3
metra hæð, til bjargar áður en hún
féll saman. Hámarksfjöldi í renni-
brautinni er 10 börn. Pálmi segir
að eftir rannsókn á myndum úr
eftirlitsmyndavélakerfi hússins
hafi komið í ljós að loftblásari hafi
færst til og því komið hlykkur á
loftbarka að rennibrautinni með
þeim afleiðingum að loft hætti að
streyma í brautina. Þetta hafi síð-
an valdið því að rennibrautin seig
hægt og rólega saman en um ein
klukkustund leið frá því að loftið
hætti að streyma í brautina og þar
til menn urðu varir við að eitthvað
óvenjulegt var að gerast. „Við er-
um ánægð að ekki fór verr og höf-
um í framhaldi farið yfir örygg-
iskerfi verslunarmiðstöðvarinnar.
Það voru í kringum 30–40 þúsund
manns hér um síðustu helgi en alls
hafa tæplega 4,3 milljónir gesta
heimsótt Smáralind frá opnun í
október í fyrra. Við höfum verið
lánsöm að engin stórslys hafa orð-
ið hér frá opnun, en við höfum lagt
mikla áherslu á öryggismál frá
byggingu verslunarmiðstöðvarinn-
ar og varið töluverðum fjármunum
og vinnu í þann málaflokk. Við er-
um sífellt að fara yfir öryggismál í
Smáralind og munum draga lær-
dóm af því sem gerðist,“ segir
hann.
Loft lak úr upp-
blásinni renni-
braut í Smáralind
Börnum bjargað úr 2–3 metra hæð
ÖKUMAÐUR slapp lítið meiddur
þegar bíll hans fór út af veginum við
Hólma í Reyðarfirði, skammt frá
Illukeldu, upp úr hádegi í gær.
Bíllinn fór niður bratta vegaröxl
og staðnæmdist loks í mýri um 100
metrum frá veginum. Á leiðinni fór
bíllinn yfir þúfur og aðrar ójöfnur og
er mikið skemmdur, jafnvel ónýtur.
Ökumaðurinn var marinn eftir bíl-
beltin en hlaut ekki aðra áverka.
Fór út af
við Illukeldu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
STJÓRN fulltrúaráðs Samfylking-
arinnar í Reykjavík leggur til við
fulltrúaráð flokksins að við val á
framboðslista fyrir kosningar til Al-
þingis næsta vor verði haldið sam-
eiginlegt prófkjör í Reykjavíkur-
kjördæmunum tveimur, Reykjavík
norður og suður. Lagt er til að þegar
úrslit liggi fyrir skuli frambjóðend-
urnir sjálfir ákveða í hvoru kjör-
dæmanna þeir bjóði sig fram, þannig
byrjar sá sem flest atkvæði hlýtur á
að velja sér kjördæmi og sæti á
framboðslista og síðan sá sem næst
flest atkvæði hlýtur og þannig koll af
kolli.
Fulltrúaráð Samfylkingarinnar í
Reykjavík mun þann 30. september
greiða atkvæði um hvaða aðferð
verði notuð við val á framboðslista
flokksins. Stjórn leggur einnig til við
fulltrúaráð að valið verði milli
tveggja kosta um hverjir hafi at-
kvæðisrétt. Annars vegar að flokks-
félagar einir og þeir sem sækja um
inngöngu í flokkinn fyrir lok kjör-
fundar geti kosið og hins vegar að
kosningarétt hafi flokksfélagar og
þeir sem eru á kjörskrá í Reykjavík
og lýsa yfir stuðningi við flokkinn. Þá
er lagt til að framboðsfrestur renni
út þann 12. október og kjörfundur
fari fram þann 9. nóvember.
Leggur til
sameiginlegt
prófkjör
Stjórn fulltrúaráðs
Samfylkingarinnar
í Reykjavík
♦ ♦ ♦