Morgunblaðið - 24.09.2002, Page 14
AKUREYRI
14 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www.islandia.is/~heilsuhorn
Ein með öllu
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Multi-vítamin og steinefnablanda
ásamt spirulínu, lecithini,
Aloe vera o.fl. fæðubótarefnum
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
Til leigu
Til leigu er 130 fm húsnæði á besta stað við
Glerárgötu 36, Akureyri, (á móti Glerártorgi).
Húsnæðið hentar vel fyrir verslun eða þjónustu
og er með góðu aðgengi. Laust strax.
Uppl. í s. 897 7878 og 860 9980
FYRSTU tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands voru haldnir í
Glerárkirkju sl. sunnudag undir
stjórn Guðmundar Óla Gunnarsson-
ar.
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
söng einsöng með hljómsveitinni,
þar sem íslensk sönglög og ítalskar
óperuaríur voru fyrirferðarmikil.
Einnig flutti hljómsveitin forleik að
óperunni La gazza ladra eftir
Gioacchino Rossini og L’Arlésienne
svítu eftir Georges Bizet. Íslensku
sönglögin sem flutt voru á tónleik-
unum eru vel þekkt og í uppáhaldi
hjá mörgum, lög eins og Þú ert, Ég
lít í anda liðna tíð, Í fjarlægð og Sjá
dagar koma. Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands hóf sitt tíunda starfsár
fyrr í mánuðinum með tónleikaferð
til Grænlands, þar sem haldnir voru
sjö tónleikar en þetta var í fyrsta
skipti sem hjómsveitin fer utan. Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands hélt
sína fyrstu tónleika 24. október 1993
en hún er arftaki Kammerhljóm-
sveitar Akureyrar, sem hafði starfað
frá haustinu 1986 og haldið yfir 30
tónleika. Guðmundur Óli Gunnars-
son hefur verið aðalhljómsveitar-
stjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar frá
stofnun hennar.
Tíunda starfs-
árið hafið
Morgunblaðið/Kristján
Jóhann Friðgeir Valdimarsson söng einsöng með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á tónleikum í Glerárkirkju.
Tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands
BORUN rannsóknarholu á háhita-
svæðinu á Þeistareykjum er lokið.
Þess er nú beðið að mögulegt verði
að setja þar upp búnað svo hægt
verði að opna fyrir holuna og fá
þannig upplýsingar um endanlegt
hitastig hennar og orkumagn.
Franz Árnason, framkvæmda-
stjóri Norðurorku og stjórnarmað-
ur í Þeistareykjum ehf., sagði að
gert væri ráð fyrir því að hægt
yrði að opna holuna upp úr
miðjum næsta mánuði. Holan
verður svo látin blása í einhvern
tíma „en framundan er spennandi
biðtími“. Borað var niður á um
1.950 metra dýpi og var Sleipnir,
bor Jarðborana, notaður til verks-
ins.
Franz Árnason sagði að bráða-
birgðaniðurstöður lofuðu góðu.
„Borverkið tók að sönnu lengri
tíma en gert var ráð fyrir, vegna
vandamála í byrjun, en síðari hluti
þess gekk alveg afburða vel,“
sagði Franz.
Heildarkostnaður við verkið er
um 160–170 milljónir króna og þar
af er borkostnaðurinn rúmar 130
milljónir króna.
Morgunblaðið/Kristján
Starfsfólk Norðurorku, makar og börn, alls um 60 manns, heimsóttu
Þeistareyki á dögunum og kynntu sér stöðu mála þar. Hér er hluti hóps-
ins að snæða hádegisverð við gangnamannakofann.
Spennandi bið-
tími framundan
Bráðabirgðaniðurstöður
á Þeistareykjum lofa góðu
Andlegt
ferðalag í
Glerárkirkju
GLERÁRKIRKJA býður upp á þá
nýbreytni í starfi í vetur að efna til
námskeiðsins „12 sporin – andlegt
ferðalag“.
Kynning á 12 spora starfinu
verður í kirkjunni í kvöld, þriðju-
dagskvöld, kl. 19.30. Í 12 spora
vinnunni er farið í gegnum bókin 12
sporin – andlegt ferðalag. Bókin
byggist á kristinni trú og kenningar
Biblíunnar eru lagðar til grundvall-
ar vinnunni. Margrét Eggertsdótt-
ir, sem þýddi bókina, og Helga
Hróbjartsdóttir verða á kynning-
arkvöldinu og hefst það með léttum
málsverði.
Þessi 12 spora vinna er hópastarf
sem hentar öllum þeim sem í ein-
lægni vilja vinna í tilfinningum sín-
um og öðlast betri líðan og meiri
lífsfyllingu, segir í frétt um nám-
skeiðið.
Equus – K.
Jensen í nýtt
húsnæði
NÚ nýlega opnaði hestavöruversl-
unin Equus – K. Jensen nýja og
glæsilega verslun í Viðjulundi 1 á
Akureyri. Í versluninni bjóðast
mun fleiri möguleikar en í því hús-
næði sem hún áður var í. Má í því
sambandi nefna inniaðstöðu til
námskeiðahalds í járningum og
fleira.
Verslunin sérhæfir sig í vörum
fyrir hestamenn og hesta en selur
einnig útivistarfatnað af ýmsu tagi
og vörur fyrir ketti og hunda.
Nýja verslunin er á besta stað
hvað varðar aðgengi fyrir hesta-
menn og þangað er jafnvel hægt
að fara ríðandi úr báðum hest-
húsahverfum Akureyrar.
Námskeið um
hálendi Íslands
GUÐMUNDUR Páll Ólafsson nátt-
úrufræðingur heldur námskeið hjá
Símenntun Háskólans á Akureyri í
lok októbermánaðar.
Guðmundur helgar sig vísinda-
störfum í vetur og því hefur hann að
eigin sögn neitað öllum öðrum um
fyrirlestrahald. Hann mun kynna á
námskeiðinu nokkuð af nýju efni
sem ekki hefur verið kynnt áður. Á
námskeiðinu verður almenn kynning
á hálendi Íslands.
Fjallað verður um staðhætti og
náttúrufar í máli og myndum eins og
fornar þjóðleiðir og gróðurfar á há-
lendinu. Þá verður rætt um sambúð-
ina við öræfin og nýtingu hálendisins
til frambúðar án þess að spilla því.
Einnig verða þjóðgarðar á hálendinu
og fræðileg ferðaþjónusta tekin til
umræðu.
Guðmundur Páll Ólafsson er höf-
undur bókarinnar Hálendið í náttúru
Íslands. Námskeiðið verður haldið
dagana 28., 29. og 31. október og 1.
nóvember frá kl. 20 til 22 í stofu L101
á Sólborg og kostar það 12.500 kr.
Skráning fer fram á skrifstofu Sí-
menntunar Háskólans á Akureyri og
á simennt@unak.is.
♦ ♦ ♦
Aðalfundur
AÐALFUNDUR Minningarsjóðs
Jóns Júlíusar Þorsteinssonar kenn-
ara sem stofnaður var 28. september
1982 verður haldinn í dag, þriðjudag-
inn 24. september, í Furulundi 6-r á
Akureyri og hefst hann kl. 15.30.
Stofnfélagar eru boðnir velkomnir á
fundinn.
♦ ♦ ♦
UNNIÐ hefur verið að endurbótum á
veginum upp að Skíðastöðum í Hlíð-
arfjalli nú í sumar. Vegurinn hefur
verið lagaður að öllu leyti, breikkaður
og lagður bundnu slitlagi. Verktakar
hafa nú þegar klárað veginn frá
Skíðahótelinu niður að rimlahliði að
því er fram kemur í frétt á heimasíðu
Akureyrarbæjar. Stefnt er að því að
ljúka við kaflann niður að Hlíðarenda
fyrir 1. október næstkomandi.
Nú er einnig verið að bjóða út gerð
nýrra og stærri bílastæða við Skíða-
staði og er gert ráð fyrir að fram-
kvæmdir hefjist innan tíðar. Nýi veg-
urinn gerir aðkomu að svæðinu betri,
en í hlýindum og sólbráð hefur veg-
urinn átt til að breytast í drullusvað.
Ný bílastæði munu einnig bæta að-
stöðuna við hótelið til muna því þau
hafa verið alltof fá um langt árabil og
oft myndast þar mikil örtröð.
Nýr vegur að Skíðastöðum