Morgunblaðið - 24.09.2002, Síða 18

Morgunblaðið - 24.09.2002, Síða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 18 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ EITT mikilvægasta verkefnið sem framundan er í sjávarútvegi Chile er að koma kvótakerfi á í fiskveiðum fyr- ir fullt og fast. Þetta segir Felipe Sandoval, sjávarútvegsráðherra Chile, en hann var staddur hér á landi fyrir skömmu í boði Árna M. Mathie- sen sjávarútvegsráðherra. Sandoval segir að Chilemenn geti tekið sér margt úr íslenskum sjávarútvegi til fyrirmyndar en eins geti Íslendingar lært ýmislegt af Chilemönnum. Ráð- herrarnir undirrituðu meðal annars viljayfirlýsingu um aukið samstarf þjóðanna á sviðum fiskveiðistjórnun- ar, tækni, visinda og rannsókna. Stjórnkerfi fiskveiða í Chile hefur verið í gagngerri endurskoðun und- anfarin misseri. Veiðunum var stjórn- að með sóknarstýringu á 10. áratugn- um en í upphafi ársins 2001 var tekið upp kvótakerfi til bráðabirgða í tvö ár til að draga úr ofveiði á ýmsum fiski- stofnum. Felipe Sandoval sem tók við embætti sjávarútvegsráðherra fyrir um einu ári hefur nú lagt frumvarp fyrir chileska þingið um að kvótakerfi verði komið varanlega á við fiskveiði- stjórn landsins. Hann segist vongóð- ur um að frumvarpið verði samþykkt, enda ríði á að koma á skynsamlegri fiskveiðistjórn í landinu. Óánægja meðal strandveiðimanna Skipta má fiskveiðum í Chile í tvo flokka, annars vegar eru strandveiðar og hins vegar úthafsveiðar og um þessar veiðar gilda ólíkar reglur. Annars vegar fær strandveiðiflot- inn, eða bátar sem eru minni en 18 metrar, úthlutað einstaklingsbundn- um kvóta en veiðunum er engu að síð- ur stýrt að mestu leyti með svæða- skiptingum. Hins vegar fá stórútgerðir eða fyrirtæki sem stunda úthafsveiðar úthlutað ákveðn- um hluta heildarkvótans í hverri teg- und. „Það hefur ríkt ágæt sátt um kvóta- kerfið í Chile þó að vissulega sé úti- lokað að allir verði nokkurn tímann ánægðir. Innan stórútgerðarinnar og landvinnslunnar ríkir mikil ánægja með þessa skipan mála en strand- veiðimenn hafa margir hverjir mót- mælt kerfinu. En það er engu að síður staðreynd að stór hluti almennings í Chile hefur ekki myndað sér skoðun á kvótakerfinu, enda er það nokkuð flókið. En strandveiðimenn hafa hald- ið neikvæðu þáttum kerfisins mjög á lofti með mjög einhliða málflutningi og haft þannig áhrif á fólk. Mín skoð- un er hins vegar sú að við eigum ekki annan kost en að taka upp kvótastýr- ingu í fiskveiðunum og ég tel að þrátt fyrir allt geri fólk sér almennt grein fyrir því að grípa verður til aðgerða til verndar fiskistofnunum. Nokkrar nytjategundir eru þegar ofveiddar og frjáls sókn myndi án nokkurs vafa gera endanlega út af við þessar tegundir. Við höfum beitt ýms- um aðgerðum til verndar þessum stofnum, meðal annars svæðalokun- um, og síðan notum við kvótakerfið til að draga úr sókn. Um 90% nytja- stofna við Chile eru nú undir kvóta og við teljum að uppbyggingarstarfið gangi vel. Stærsta verkefnið á kom- andi árum er að viðhalda kvóta- kerfinu, því það er nauðsynlegt að vernda fiskistofnana með slíkum hætti. Við horfum mjög til þess hvernig Íslendingar hafa þróað fisk- veiðistjórnunarkerfi sitt og við getum eflaust tekið margt úr því til fyrir- myndar við uppbyggingu kvótakerf- isins í Chile.“ Verðum stærstir í laxeldinu Sjávarafurðir eru um 12% af heild- arútflutningi Chile og er þriðja stærsta útflutningsgrein landsins en helsta útflutningsvara Chile er kopar. Heildarfiskafli Chilemanna var á síð- asta ári um 4,6 millónir tonna, þar af var fiskeldisframleiðslan um 500 þús- und tonn. Hagvöxtur í Chile var mjög mikill á 10. áratugnum en á honum hægðist í lok áratugarins vegna efna- hagskreppunar Asíu í kringum árið 1998. Sandoval segir að fiskeldi hafi aukist mjög hratt samfara þessari efnahagsþróun, vaxið úr því að vera nánast ekkert í upphafi áratugarins að vera næstmesta fiskeldi í heimi, á eftir Noregi. „Íslendingar gætu ef- laust horft til Chile ef þeir vilja byggja upp nýjan iðnað með þessum hætti. Fiskeldið í Chile var byggt upp á ótrúlega skömmum tíma, árið 1980 höfðu fáir í Chile heyrt talað um lax- eldi, hvað þá meir. Núna er Chile ann- ar stærsti laxeldisframleiðandi í heimi og greinin stendur afar traust- um fótum. Eldið vex nú um 9% á ári og það er aðeins tímaspursmál hve- nær við verðum stærstir í laxeldinu,“ segir Felipe Sandoval. Morgunblaðið/Þorkell Felipe Sandoval og Árni M. Mathiesen undirrituðu á dögunum vilja- yfirlýsingu um samstarf Chile og Íslands á sviði sjávarútvegs. Kvótakerfi er eini kosturinn í Chile UPPTAKA evrunnar stappar nærri því að vera fár á mörkuðum fyrir sjávarafurðir og hefur mjög sett mark sitt á starf dótturfélaga Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna á meginlandi Evrópu. Margir, sérstak- lega aðilar í þjónustugeiranum, hafa notað tækifærið við innleiðingu evr- unnar og hækkað verð á vörum sín- um sem aftur veldur því að dregið hefur úr neyslu. Þetta kom m.a. fram á markaðsfundi SH sem haldinn var í síðustu viku þar sem framkvæmda- stjórar dótturfélaga SH fóru yfir stöðu á mörkuðum og áherslu í starf- semi. Þar var einnig rætt um áhrif fiskeldis á markaði fyrir sjávarafurð- ir. Sturlaugur Daðason, fram- kvæmdastjóri Icelandic Germany, dótturfélags SH í Þýskalandi, sagði á fundinum að myntbreytingin úr þýskum mörkum í evru hafi haft af- gerandi áhrif á þýska sjávarafurða- markaðinn á þessu ári. Svo virtist sem breytingin hafi verið nýtt til al- mennra verðhækkana, þar sem verð- tilfinning neytenda með tilkomu hinnar nýju myntar hafi verið tak- mörkuð fyrst í stað. Fljótlega í byrj- un árs hafi farið að bera á umræðu um verulegar verðhækkanir á þjón- ustu og á veitingahúsum. Viðbrögðin hafi ekki látið á sér standa, talið sé að velta veitingahúsa hafi dregist sam- an um 15–20%. Markaðurinn hafi hinsvegar heldur rétt sig af á síðustu mánuðum og menn vonist eftir meiri jöfnuði það sem eftir lifir ársins. Árið einkennst af öfgum Hjörleifur Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri Icelandic Iberica, dótturfélags SH á Spáni, sagði sjáv- arafurðamarkaði í Suður-Evrópu hafa einkennst af mikilum öfgum undanfarna 12 mánuði. Kúariðufárið hafi leitt af sér miklar verðhækkanir en í kjölfar atburðanna 11. septem- ber í fyrra hafi orðið niðursveifla og verð lækkað á ný. En þó hafi tilkoma evrunnar haft hvað mest áhrif á rekstrarumhverfi Icelandic Iberica á undanförnum mánuðum. Myntbreyt- ingin hafi reynst spænskum neyt- endum mjög erfið, enda verðskyn neytenda ekki það sama og áður. Þrátt fyrir fögur fyrirheit stjórn- valda hafi verðlag hækkað og verð- bólga aukist. Myntbreytingin hafi þannig leitt til minni neyslu og meiri sparnaðar á Spáni. Hjörleifur sagði að verulegur sam- dráttur í ferðaþjónustu, um 20%, hafi einnig dregið dilk á eftir sér, enda vegi hann þungt í hagkerfi Spánar. Þessa gæti meðal annars í fisksölu. Magnús Scheving Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Icelandic France, dótturfélags SH í Frakklandi, sagði að á þessu ári hafi ríkt óvissuástand á franska sjávarafurðamarkaðnum og niðursveifla orðið í kjölfarið, einkum í veitingahúsageiranum þar sem rætt sé um allt upp í 30% samdrátt. Menn vilji almennt kenna um hækkandi verðlagi í kjölfar gildistöku evrunn- ar. Magnús taldi hinsvegar að nei- kvæð áhrif evrunnar færu dvínandi og jákvæð áhrif myntbreytingarinn- ar færu senn að koma í ljós. Um fjórðungur heildarneyslu sjávarafurða í Frakklandi er alinn fiskur. Magnús gerði ráð fyrir að hlutafall eldisfisks héldist óbreytt, uns fram kæmu nýjar tegundir, svo sem þorskur og beitarfiskur (tilapia). Hann vitnaði í könnun sem gerð var um viðhorf franskra neytenda til fiskeldis, sem gerð var fyrr á þessu ári. Könnunin leiddi í ljós að hinn al- menni neytandi gerir ekki skýran greinarmun á eldisfiski og veiddum fiski. Samkvæmt könnuninni telja um 33% Frakka að lax sá sem finna má í Frakklandi sé villt afurð á með- an raunin er sú að 90% lax á mark- aðnum kemur úr eldi. Á hinn bóginn svöruðu um 38% aðspurðra að þorsk- ur kæmi úr eldi en allur þorskur á markaðnum er villtur. Þorskeldi ýtir undir þorskneyslu Í máli Helga Antons Eiríkssonar innkaupastjóra Coldwater UK, dótt- urfélags SH í Bretlandi, kom fram að eldisafurðir eru mjög lítill hluti af breska sjávarafurðamarkaðnum. Umræðan nú snerist aðallega um þorskeldi, enda Bretland heimsins stærsti þorskmarkaður og heildar- neyslan talin vera um 112 þúsund tonn á ári. Aðeins voru seld um 40 tonn af eldisþorski í Bretlandi á síð- asta ári og sagði Helgi Anton því óljóst hver viðbrögð markaðarins yrðu í raun og veru. Þó sé vitað að margir breskir neytendur telji þorsk í útrýmingarhættu, vegna hruns hefðbundinna þorskstofna í kringum Bretland, og því hafi eldisþorskur já- kvæða og umhverfisvæna ímynd í huga þeirra. Eldisþorskur væri auk þess talinn geta jafnað framboðs- sveiflur og tryggt jafnara verð en verið hefur undanfarin ár. Helgi Ant- on sagði að ef framboð á eldisþorski aukist líkt og áætlanir geri ráð fyrir, muni þorskurinn mæta sömu gagn- rýni og nú er á eldislax, svo sem varð- andi notkun aukaefna og sýklalyfja, sjúkdóma, díoxínmengun, hættu á blöndun við villta stofna, mengun frá eldisstöðvum og ónáttúrulegar að- ferðir til að flýta vexti. Hinsvegar beri á að líta að þessi gagnrýni virðist ekki hafa hamlað vexti í laxeldi. Magnús Gústafsson, forstjóri Ice- landic USA, dótturfélags SH í Bandaríkjunum, sagði að neysla á eldistegundum hefði aukist mjög í Bandaríkjunum á undanförnum ára- tug, svo sem á rækju, laxi, leirgeddu og beitarfiski en á sama tíma hafi neysla á villtum fiski, svo sem alaska- ufsa og þorski, dregist umtalsvert saman. Í máli Yasu Arai, hjá Icelandic Japan, kom fram að tækni í fiskeldi hefur þróast ört á undanförnum ár- um og nefndi hann sem dæmi að sl. sumar hefði í fyrsta sinn heppnast klak í túnfiskeldi í Japan. Hann sagði að Japanir treystu mjög á aukið framboð úr fiskeldi á komandi árum, enda borði þeir mikið af hráum fiski og því sé ferskleiki mikilvægur þátt- ur. Hann tók fram að villtur fiskur hefði engu að síður ákveðið forskot á eldisfiskinn, enda væri í fiskeldi allt- af hætta á sjúkdómum og mengun. Þess vegna væru Japanir tilbúnir til að greiða hærra verð fyrir villtan fisk. Evrufárið að fjara út Evran hefur haft veruleg áhrif á sjávarafurðamarkaðinn í Evrópu Morgunblaðið/Sverrir Í tengslum við markaðsfundinn var boðið upp á úrval sjávarafurða. Fyrrverandi forstjóri Debenhams sagður vilja kaupa Top Shop TERRY Green, fyrrverandi for- stjóri verslananna Bhs og Deben- hams, er sagður hafa mikinn áhuga á að semja við kaupsýslumanninn Philip Green um kaup á hluta af vörumerkjum Arcadia samstæðunn- ar, en Philip Green festi nýlega kaup á Arcadia fyrir 850 milljónir sterlingspunda, eða 115,6 milljarða íslenskra króna. Samkvæmt vefútgáfu breska blaðsins Independent er Terry Green sagður hafa áhuga á sömu vörumerkjum og Baugur hafði áhuga á að kaupa, eða Top Shop og Top Man, en Terry stjórnaði þess- um verslunum þegar hann var for- stjóri Burton Group. Í blaðinu er þó tekið fram að lík- lega hafi ekki enn farið fram form- legar viðræður milli Greens og Greens vegna málsins. Áfall fyrir Baug Í Independent er áhugi Terry Greens sagður áfall fyrir Baug sem hafði augastað á Top Shop, Top Man og Miss Selfridge þegar lög- reglurannsókn truflaði áform þeirra um kaup á merkjunum, eins og seg- ir í blaðinu. Terry Green hætti störfum fyrir Bhs fyrr á þessu ári og hefur síðan þá verið orðaður við ýmis fyrirtæki í Bretlandi í sama geira. Hann varð forstjóri Bhs árið 2000 en var þar áður forstjóri Deben- hams. Þar áður starfaði hann hjá Burton Group sem yfirmaður Deb- enhams og Top Shop.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.