Morgunblaðið - 24.09.2002, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 25
ÞAU eru ófá listaverkin sem gerð
hafa verið gegnum aldirnar og sýna
móður og barn, guðsmóðurina með
barnið – eða konu listamannsins með
son eða dóttur, gjarnan sem ímynd
heimilisfriðar og hamingju. Það voru
oftast karlmenn sem gerðu þessar
myndir, alla vega eru það myndir
þeirra sem frekar hafa verið varð-
veittar og skráðar, sem hin eina
sanna listasaga.
Nú sýnir Ólöf Björg Björnsdóttir
verk sín hjá Sævari Karli í Hafnar-
stræti, viðfangsefni hennar er einnig
móðir og barn. Ólöf er nýútskrifuð
með gráðu í málun frá Listaháskóla
Íslands, hún hefur einnig numið kín-
verska blekteikningu og unnið á
textílverkstæði í Seoul í Kóreu. Hún
virðist hafa verið ötul við að taka þátt
í ýmsum samsýningum frá útskrift-
inni og hefur haldið þrjár einkasýn-
ingar. Þetta er þá sú fjórða. Á ein-
blöðungi þeim sem fylgir sýningunni
kallar hún sýningu sína innsetningu
um lífið og tekur jafnframt fram að
hún sé nýorðin móðir; þessi þáttaskil
sem nýverið hafa orðið í lífi hennar
virðast helsta tilefni sýningarinnar.
Í sýningarsal Sævars Karls sýnir
Ólöf Björg m.a. átta stærri málverk
og fleiri minni. Málverkin eru sterk-
asti hluti sýningarinnar en einnig
eru sýnd leikföng í hrúgu á gólfi,
dúkka á strauborði, kústur upp við
vegg, kvenmynd úr álpappír, ókenni-
legir hlutir sitja fastir í svörtum
netadræsum, á stöpli eru krúsir með
ilmefnum ásamt lárviðarlaufum og
salti og fleira. Úti í horni sá ég út-
varp/kasettutæki en ekki heyrðist
neitt í því. Áhugaverðustu verkin á
sýningunni eru málverkin, þau bera
vott um ástríðu og hæfileika en gætu
verið markvissari. Ólöf kýs að mála
myndir sínar í dálítið flöktandi stíl,
sumar myndanna minna á skreytilist
eða kitch, aðrar eru raunsæjar að
hluta til, enn aðrar minna á verk
franskra málara í lok 19. aldar.
Skreytilist virðist í hávegum höfð í
sumum þeirra en í öðrum örlar á
djúpri alvöru. Þessi ólíku stílbrögð
verða til þess að myndirnar verða
ekki eins samtaka og ella. Sterkust
fannst mér mynd númer fjögur sem
sýnir konu með barn á hnjánum,
barnið kemur skýrt fram en konan
er í upplausn. Þarna kemur fram að
einhverju leyti hvað tilfinningar
konu geta verið í mikilli upplausn
eftir fæðingu barns. Fjöldi málverk-
anna á sýningunni og krafturinn sem
í þeim býr ber vott um ástríðu og
sköpunargleði, frjóan jarðveg sem
þarf að fara vel með og vinna vand-
lega úr. Ég er ekki frá því að kannski
hefði mátt sleppa einhverjum verk-
anna sem þarna voru sýnd. Mark-
vissari vinnubrögð hefðu án efa get-
að skapað sterkari heild og á það
bæði við um sýninguna í heild sem og
málverkin út af fyrir sig.
Ólöf virðist velta fyrir sér ýmsum
hugmyndum um stöðu kvenna og því
hvaða breytingar það mun hafa í för
með sér fyrir hana að vera komin í
þetta nýja hlutverk, kannski því
hvort kústurinn og strauborðið verði
nú oftar í höndum hennar en áður?
Umönnun ungbarns er eitt af því
sem kemur listakonum sterklega í
kynni við það hversu erfitt það getur
verið að sætta annir hversdagsins og
listsköpun. Eins eru
það ekki síst tilfinning-
ar kvenna sem breytast
við barneignir. Þeim að
óvörum hrapar listin og
starfsframinn kannski
niður um nokkur sæti á
forgangslistanum þeg-
ar börnin koma. Slík
hugarfarsbreyting er
nokkuð sem ekki er í
samræmi við breytta
stöðu kvenna í nútíma-
samfélagi, nokkuð sem
veldur eilífri stogstreitu
í lífi ótal kvenna dag
hvern.
Kvenmyndir Ólafar
og ljóðræn nálgun
hennar við hversdags-
lega hluti eru að sumu
leyti í anda kvenna sem
kenndar voru við súr-
realisma á fyrri hluta
20. aldar eins og t.d.
Dorothea Tanning,
Toyen, Leonor Fini,
Frida Kahlo og Leon-
ora Carrington. Þó að
stíllinn sé annar eru
viðfangsefnin ekki
ósvipuð. Við konur og
sjálfsmynd okkar er sí-
gilt og verðugt við-
fangsefni listamanna
og -kvenna, hver kyn-
slóð kemur fram með
ný viðhorf en staðfestir
stundum líka gamlan
sannleik. Sýning Ólafar
gefur til kynna að sumt
í þessu lífi breytist
minna en af er látið.
Í viðjum ástarinnar
Málverk á sýningu
Ólafar Bjargar
Björnsdóttur.
MYNDLIST
Gallerí Sævars Karls
Til 26. september, sýningin er opin á
verslunartíma.
BLÖNDUÐ TÆKNI, ÓLÖF BJÖRG
BJÖRNSDÓTTIR
Ragna Sigurðardóttir
ÞRIÐJU tónleikar hinna árlegu
Septembertónleika Selfosskirkju
verða í kvöld, þriðjudagskvöld, kl.
20.30. Þá mun
Jón Ólafur Sig-
urðsson organisti
í Hjallakirkju
leika verk eftir
m.a. Buxtehude,
Brahms, Jón Þór-
arinsson og Jón
Ásgeirsson. Auk
þess mun Jón
Ólafur flytja
verkið Boðafall
eftir Pálmar Þ. Eyjólfsson frá
Stokkseyri. Verkið samdi hann fyrir
u.þ.b. 30 árum er mannskætt sjóslys
átti sér stað.
Ranghermt var í blaðinu á sunnu-
dag að þeir Gunnar Björnsson og
Haukur Guðlaugsson leiki á tónleik-
unum í kvöld. En tónleikar þeirra
verða 1. október. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Organisti Hjalla-
kirkju á Selfossi
Jón Ólafur
Sigurðsson
Í EDEN, Hveragerði, stendur nú yf-
ir sýning á vatnslitamyndum eftir
listakonuna Áslaugu Hallgríms.
Verkin eru öll unnin á þessu ári.
Áslaug stundaði nám í MHÍ 1962–’63
og aftur 1980–’83 og í Myndlistar-
skóla Reykjavíkur árið 2000. Hún
hefur tekið þátt í samsýningum og
haldið einkasýningar á Íslandi og í
Bandaríkjunum.
Sýningin stendur til 7. október.
Áslaug
Hallgríms sýnir
í Eden
♦ ♦ ♦