Morgunblaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 26
LISTIR 26 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ AÐRIR tónleikar UNM-hátíðar- viku fóru fram í Salnum, bæjarprýði hins hlustandi Kópavogsbúa. Aðsókn var trauðla minni en í Iðnó kvöldið áður, en náði þó ekki að fylla þrefalt stærra húsið. Á umbrotaárum 20. aldar komu fram ný viðhorf um markmið tónlist- ar. Hún átti ekki lengur að vera eink- um til hugarhægðar og hreystingar, heldur einnig spegla hranalegri hlið- ar tilverunnar. Margir módernistar settu hið síðara á oddinn, til illbæt- anlegs tjóns fyrir samband almennra hlustenda og höfunda. Að ekki sé tal- að um hinn undirliggjandi strúktúr, þar sem tónlistin varð að ofhugsaðri „cerebral“ heilamúsík. Í listinni, sem að áliti Mozarts ætti að höfða jafnt til höfuðs, heyrnar og hjarta, varð heil- inn einn eftir. Og meginástæður þess arna voru þrjár: tilkoma tónlistarhá- skóla, sérhæfðra flytjenda og opin- berra styrkja. Lokaðrar hringrásar, þar sem listin, frekar en að þróast hægt og eðlilega, var látin taka stökkbreytingum. Ekki ósvipað og í líffræðirannsóknarstofum síðari ára þar sem búnar eru til sjálflýsandi kanínur. Í slíku ferli mætir hinn óbreytti hlustandi vitanlega algjör- um afgangi. Tilraunirnar eru jú á framfæri hins opinbera. Þessi sjúkdómsgreining kann að vera einhliða og ósanngjörn þegar á heildina er litið. En hún endurspegl- ar engu að síður útbreidd viðhorf tónlistarunnenda í dag, sem eftir hálfrar aldar linnulausa tilrauna- starfsemi hafa löngu misst þolin- mæðina gagnvart einangraða fram- tíðarskröltinu úr klaustrum ný- skólaspekinnar. Alltjent kom sú hugsun fljótlega upp í undirrituðum á ofangreindum tónleikum, því mið- að við vænlegu fyrstu UNM-uppá- komuna í Iðnó á mánudag urðu þriðjudagstónleikarnir honum mikil vonbrigði. Það tíðkast ekki að púa norðan Alpafjalla, enda voru undir- tektir prýðilegar og jafnvel bravóað. En ef svara á fyrir eigin hönd, þá langaði mann stundum að fylgja for- dæmi litla snáðans í ævintýrinu sem kunni sig ekki og kallaði upphátt: „Hann er ekki í neinu!“ Eða einfald- lega troða töppum í eyrun. Báðar langanir hafa að vísu stundum bært á sér áður, en sjaldan eins ómót- stæðilega og í þetta sinn. Þetta var ekki stjórnanda og flytj- endum að kenna. Bernharður Wilk- insson stýrði skýrt og mynduglega, og flutningur Caput-sveitarinnar, sem hefur iðulega áður kippt hálf- slöppu verki í upphæðir, var í góðu samræmi við háan staðal hópsins. Fyrrgreind vonbrigði verða alfarið skrifuð á höfundana, sem áttu sér helzt til vorkunnar að vera ungir og flestir enn við nám. Látum vera að lítt mótuð tónskáld noti tækifærið til að hlaupa af sér hornin í því skjólinu, enda ekki nema eðlilegt. Öllu verri var sú tilfinning manns hvað sköp- unarþráin virtist hamin frekar en örvuð af dauðri hönd elítískrar tízku og miðstýringu kennara, enda hljómaði „módernismi“ meirihluta verkanna – þótt fráleitt skorti krass- andi uppátæki – undarlega gamal- dags. Eins og dagblaðsforsíða frá í fyrra, eða nánar tiltekið sem erind- islaus vindhögg úr sér gengins fram- úrstefnuakademisma. E.t.v. hafa sumar skýringar höf- unda í tónleikaskrá stuðlað að því. Ein þeirra var torskilin huglæg bollalegging, önnur tilvitnun í senn úreltar kenningar T.W. Adornos, og gerðu báðar líklega meiri skaða en gagn. Hið óþarflega langa „Praes- ens“ (um fjórtán mínútur) fyrir 14 manna hljómsveit eftir Danann Sim- on Steen-Andersen (f. 1976) var dæmigert effektaverk út í gegn og bar, kannski að meðtöldum Saxófón- konsert Steingríms Rohloffs í lokin, hvað sterkastan keim af áðurtöldum framúrstefnuakademisma. Þó hefði því e.t.v. mátt bjarga fyrir horn frá sjónarmiði hlustenda með óvæginni grisjun. „Voices to Voices – Lip to Lip“ (um 7 mín.) fyrir tólf spilara var í raun ekki marktækt framlag hins norska Lars Petter Hagen (f. 1975), þar eð Caput hefði, að manni skildist af vandheyranlegri kynningu tón- skáldsins, fengið rangar nótur send- ar frá forlaginu, nefnilega uppkasts- skissu en ekki fullgert verkið. Skissan reyndist samt alláheyrileg og ber því aðeins að harma þessa óvæntu handvömm. „Things you see are yet to come“ (um 9 mín.) fyrir einleikstúbu og raf- hljóð eftir Svíann Mattias Svensson (f. 1971) var ljósasti punktur tón- leikanna. Þó síður framan af, þar sem hljóðfærið, að meðtöldu fótas- tappi og meðsöng flytjandans, lét eins og E-pilluær útgáfa af Tobba trúð. Í seinni hluta, eftir að tónband- ið (eða geisladiskurinn) bættist við með rafhljóðum og konkretupptök- um af túbunni og ýmsu klingi og fuglatísti, var aftur á móti slegið á skáldlegri strengi með áhrifamiklu andstæðusamspili á milli útmarka há- og lágtíðnisviða. Eftir hlé kom fyrst verk fyrir blandaðan oktett, „Verewigter Duft ist Paradox“ (9½’) eftir Norðmann- inn Knut Olaf Sunde, og fannst hvorki stafur um höfund né verk í skránni. Áhöfnin – píanó, tvö slag- verk, gítar, harpa og selesta auk flautu og sellós – réð miklu um hljómsvip verksins sem skiptist á milli dropaklingjandi sveimhuga astralplans annars vegar og svarr- andi stálsmiðju hins vegar, ekki sízt fyrir atgangshart slagverkið. Líkt og „Praesens“ var það gegnsýrt effekt- um í sífelldri röð rísandi og hnígandi styrk-„linsa“ og var nánast fyrir- varalaust lokið, hangandi í lausu lofti. Síðasta og jafnframt ágengasta verk kvöldsins (og er þá mikið sagt) var Saxófónkonsert hins þýzk-ís- lenzka Steingríms Rohloff, m.a. fyrr- um nemanda franska spektralistans Gérards Griseys. Ólíkt hefðbundn- um einleikskonsertum var einleikar- inn hér varla einu sinni fremstur meðal jafningja, heldur hurfu ýmist niðurkæfðu eða tvíhljóma tuðhljóðin úr altsax Rolf-Eriks Nystrøms að mestu í mergðinni. Þótt effektar væru sízt ómældari en í fyrri verkum dagskrár var fjölbreytni í áferð samt töluverð, en því miður lengst af á of smágerðum skala þannig að heildar- áhrifin koðnuðu smám saman niður í allt of kunnuglegan gráan graut. Eini samtengjandi formþáttur sem undirritaður náði að greina við fyrstu heyrn var tónlaust loftkennt soghljóð sem hólfaði verkið af í nokkra innbyrðis keimlíka þætti. Tónsmíðinni var tekið með kostum og kynjum, og kom það undirrituð- um satt að segja mest á óvart. Ríkarður Ö. Pálsson Hjartalausir höfuðtónarTÓNLISTSalurinn Simon Steen-Andersen: Praesens. Lars Petter Hagen: Voices to Voices – Lip to Lip. Mattias Svensson: Things you see are yet to come. Knut Olaf Sunde: Vere- wigter Duft ist Paradox. Steingrímur Rohloff: Saxófónkonsert. Mattias Jo- hansson túba, Rolf-Erik Nystrøm alt- saxófónn og CAPUT-kammersveitin. Stjórnandi: Bernharður Wilkinson. Þriðju- daginn 3. september kl. 20:30. UNG NORDISK MUSIK ÁRIÐ 1998 tóku gildi lög um list- skreytingar opinberra nýbygginga þar sem segir í 1. grein að verja skuli 1% af heildarbyggingarkostn- aði byggingarinnar til listskreyt- ingar. Einnig segir í 3. grein að fé á fjárlögum skuli veitt ár hvert í listskreytingasjóð til listskreytinga opinberra bygginga sem þegar eru fullbyggðar við gildistöku laganna. Í ár var framlag til listskreytinga- sjóðs ríkisins 8 milljónir króna. Samkeppni Landsbókasafnsins er sú fimmta sem haldin er í ár. Hinar voru fyrir Borgarholtsskóla, Landsvirkjun, Orkuveituna og Al- þingishúsið. Í öllum tilfellum var farið eftir samkeppnisreglum SÍM (Samband íslenskra myndlistar- manna). Tvö form eru á slíkum keppnum. Þ.e. almenn samkeppni og lokuð samkeppni. Í lokaðri keppni er hópur listamanna nefnd- ur af forvalsnefnd SÍM til að gera tillögur að listskreytingu. Fjöldi þátttakenda fer eftir umfangi sam- keppninnar, og fá þeir greiddar um 200.000 – 250.000 hver fyrir til- lögur sínar. Dómnefnd skipuð af fulltrúum frá SÍM og útboðsaðilum velur svo eina eða fleiri tillögur til útfærslu. Fá sigurvegararnir greidda verðlaunafjárhæð með hliðsjón af umfangi og eðli við- fangsefnisins. Helstu kostirnir við slíka samkeppni eru þeir að fag- mennska er höfð í fyrirrúmi og all- ir fá greitt fyrir vinnu sína. Ókost- irnir eru að fámennur hópur myndlistarmanna kann að einoka markaðinn svo nýir listamenn komast síður að. Einnig er sam- keppnisformið mjög kostnaðar- samt, en fyrir utan listamennina þarf að greiða forvalsnefnd, dóm- nefnd, ritara og trúnaðarmanni laun fyrir störf sín ásamt þóknun til SÍM sem miðast við 10% af verðlaunafé. Í lokaðri samkeppni um staðbundið listaverk fyrir nýja byggingu þjónustuskála við Al- þingishúsið voru tillögur Hafdísar Helgadóttur og Ólafar Nordal valdar til útfærslu af 4 keppend- um. Kostnaðurinn við keppnina var meiri en búist var við og til þess að standast kostnaðaráætlun var ákveðið að listaverk Ólafar Nordal yrði minna en vilji listakonunnar var í upphafi. Fyrir lokaða sam- keppni um listskreytingu við Hrauneyjafossstöð hjá Landsvirkj- un spreyttu 6 listamenn sig á til- lögum. Tvær urðu fyrir valinu, „Tíðni“ eftir Finnboga Pétursson og „Móðir jörð“ eftir Gjörninga- klúbbinn. Orkuveitan greiddi 9 listamönnum fyrir hugmyndavinnu á listaverkum fyrir höfuðstöðvar sínar. Fjórar urðu fyrir valinu, „Kristall“ eftir Hrein Friðfinnsson, „Lyftuverk“ eftir Þór Vigfússon, „Uppspretta“ eftir Svövu Björns- dóttur og „Hringur“ eftir Finn- boga Pétursson. Almenn samkeppni er opin öll- um. Hún er auglýst í fjölmiðlum þannig að útboðsaðilar óska eftir tillögum að listskreytingu. Tillög- urnar eru sendar undir dulnefni og þegar dómnefnd hefur valið sig- urverkið opna þeir umslag þar sem greinir frekar frá höfundi þess. Kostirnir við slíka samkeppni eru að þeir sem ekki hafa fengið að spreyta sig í lokaðri samkeppni hafa þá tækifæri til að sanna sig. Að auki er keppnin ekki eins kostnaðarsöm. Ókostirnir eru þeir að myndlistarmenn sem taka þátt fá ekki greitt fyrir vinnu sína, en ásamt hugmyndavinnu er mikið til- stand í því að gera kostnaðaráætl- un fyrir efni og uppsetningu á listaverki. Ekkert eftirlit er með fagmennsku þátttakenda og af 58 tillögum undir dulnefni getur verið að fáar þeirra séu eftir metnaðar- fulla fagmenn. Almenn samkeppni um útilista- verk við Borgarholtsskóla var haldin í vor og var tillaga Gjörn- ingaklúbbsins, „Dýrmæti“, valin til útfærslu. Voru innsendar tillögur til sýnis í skólanum ásamt grein- argerð dómnefndar um hvert verk. Hvort tillögur fyrir Landsbóka- safnið hafa verið lakari en fyrir Borgarholtsskóla veit almenningur ekki þar sem þær eru ekki til sýnis í Þjóðarbókhlöðunni. Þarf Lands- bókasafn nú að efna til nýrrar samkeppni, eflaust lokaðrar, vilji það halda settu marki um list- skreytingu, en þar sem ekki er um nýbyggingu að ræða er safnið ekki bundið 1. lagagrein, heldur styrkir listskreytingasjóður ríkisins safnið að gerð listskreytingar líkt og Borgarholtsskóla. Nokkuð hefur verið deilt meðal myndlistarmanna um ágæti sam- keppnisformanna tveggja, þ. á m. á síðasta aðalfundi SÍM. Þykja bæði formin ófullkomin þótt meiri ósætti séu um almenna samkeppn- isformið. Til að allir séu sáttir þarf samkeppni að bjóða upp á gott eft- irlit með fagmennsku þar sem flestum er gefið tækifæri á að spreyta sig á tillögum gegn greiðslu en kostnaði samt haldið niðri. Hvernig það er hægt er auð- vitað spurning sem ósvarað er. Hið ófullkomna form Yfirlýsing fimm manna dómnefndar sem fór yfir tillögur í sam- keppni vegna list- skreytingar fyrir Landsbókasafn Íslands hefur vakið athygli á síðustu dögum. Hafn- aði nefndin einróma öllum 58 innsendum til- lögum um staðbundið listaverk við byggingu Þjóðarbókhlöðunnar. Jón B.K. Ransu fjallar um málið. Morgunblaðið/ÁsdísÓlöf Nordal og Hafdís Helgadóttir taka við verðlaunum eftir að hafa sigrað samkeppni um listskreytingu í ný- byggingu við Alþingishúsið. Með þeim á myndinni eru Sigurður Einarsson og Halldór Blöndal. Höfundur er listamaður og gagnrýnandi. EINI ljósi puntkurinn í þessari gamanmynd er leikarinn Mathew Perry, sem býr yfir óendanlegum hæfileikum til þess að spinna og vera fyndinn án þess að hafa neitt fyrir því. Leikarinn sá, sem flestir þekkja úr gamanþáttunum Vinum, hefur hins vegar ratað í einstak- lega vont samsafn kvikmynda. Svo virðist sem framleiðendur mynd- anna sem honum er boðið að leika í treysti á það, að nærvera Perrys í viðkomandi mynd nægi til að hala inn slatta af áhorfendum og er því lítil áhersla lögð á að kvikmynd- irnar séu áhugaverðar sem slíkar. „Serving Sara“ er skýrt dæmi um svona vinnubrögð, þar er Perry fenginn til að leika aðalhlutverkið í hundslappri gamanmynd og breska „beibinu“ Elizabeth Hurley skellt með í pakkann. Framvindan er lögfræðitengd flétta þar sem lögmaðurinn Perry fer í kapp við starfsbróður sinn um að birta rík- um nautgripabónda í Texas skiln- aðarstefnu. Hefur eiginkonan Sara (Hureley) lofað honum stóran hluta skilnaðarágóðans nái hann að verða á undan öðrum lögfræð- ingi sem vill verða fyrri til að birta Söru stefnuna. Þessi gamanflétta er síðan spiluð út í fremur slöppu handriti, þar sem lokaatriðið nær miklu hámarki í heimskulegheit- um. En athyglinni heldur áhorf- andinn þó út í gegn, þökk sé Matthew Perry sem gerir sitt besta miðað við aðstæður. Þetta er því kvikmynd hugsuð fyrir ákveðnar tegundir áhorfenda: Þá sem fara að sjá myndina til að sjá Matthew Perry, þá sem fara til að sjá Elizabeth Hurley í létt- klæddu hlutverki sínu, áhorfendur sem fara til að sjá báðar stjörn- urnar og að lokum þá sem fara í bíó einfaldlega til þess að sjá eitt- hvað litríkt hreyfast á tjaldinu. Perry í vanda KVIKMYNDIR Sambíóin Kringlunni, Álfabakka og Akureyri Leikstjóri: Reginald Hudlin. Aðal- hlutverk: Matthew Perry, Elizabeth Hur- ely, Vincent Pastore. 98 mín. Bandaríkin. Paramount Pictures, 2002. SERVING SARA / AÐ BIRTA SÖRU  Heiða Jóhannsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.