Morgunblaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ANNIE WINTHER- HALTER SCHWEITZ HELGASON ✝ Annie Wintherhalter SchweitzHelgason fæddist í Kaupmanna- höfn 13. janúar 1929. Hún andaðist á Landspítalanum 1. september síð- astliðinn og fór útför hennar fram í kyrrþey að ósk hennar. arstofnun sem starfað hefur í hart- nær öld er mikilvægt að eiga samastað bæði fyrir æfingar, fundi og samkomur af ýmsu tagi. En ekki síst fyrir alla þá sögu sem kórinn geymir og er í raun með elstu samfelldu tón- listarsögum landsins. Kórinn hafði starfað í tæpa hálfa öld þegar félagið eignaðist fyrst þak yfir höfuðið. Þar var grettistaki lyft með ómetanlegu framtaki og þrotlausri sjálfboða- vinnu. Það er ekki hægt að minnast bygg- Karlakórinn Fóstbræður er öflugt félag sem stendur á traustum grunni. Við sem störfum í félaginu í dag búum að því mikla starfi sem fyrirrennarar okkar hafa unnið fyrir félagið í gegn- um tíðina. Fyrir svo öfluga menning- ingarsögu hússins öðru vísi en að þar komi til einnig hlutur Fóstbræðra- kvenna sem lögðu á sig gríðarlegt starf við fjáröflun til styrktar bygg- ingu Fóstbræðraheimilisins með margvíslegum og tímafrekum fjáröfl- unarstörfum, enda hafa eiginkonur Fóstbræðra í gegnum tíðina staðið þétt við bakið á mönnum sínum jafnt sem félaginu. Þannig á Karlakórinn Fóstbræður stóra þökk að gjalda þeirri heiðurs- konu sem hér skal kvödd, Annie Helgason. Líf hennar hefur í hálfa öld verið samofið Fóstbræðrum. Hún vann öt- ullega að framgangi félagsins á allan þann máta sem hún hafði á sínu valdi. Þær eru ófáar þær stundir sem hún hefur lagt kórnum til auk þess sem hún sinnti trúnaðarstörfum fyrir fé- lag Fóstbræðrakvenna. Áhugi hennar fyrir velferð félagsins duldist engum. Þá studdi hún mann sinn, Þorstein Helgason, í hans mikla starfi allt frá árinu 1954 er hann gekk til liðs við Fóstbræður. Tími Þorsteins var einn- ig tími Anniar. Þau hjón voru afar samrýmd og samhent í því sem þau tóku sér fyrir hendur. Þorsteinn hefur ekki aðeins verið einn þeirra sem lagt hafa hvað mest af mörkum í garð Fóstbræðra, heldur einnig fyrir karlakóramenn- ingu í landinu í gegnum störf sín fyrir Samband íslenskra karlakóra í formi stjórnar-, trúnaðar- og útgáfustarfa. Hans miklu starfa hefði vart notið við ef ekki hefði verið fyrir hans góðu konu. Þó Annie hafi glímt við erfið veik- indi lét hún það ekki aftra sér frá að líta við í Fóstbræðraheimilinu með manni sínum í sumar og skoða þá end- urnýjun sem þar hefur átt sér stað. Svo skemmtilega vildi til að ég var þar staddur og átti þar með þeim góða samræðustund yfir kaffibolla og var greinilegur áhugi hennar fyrir félags- ins sannur og einlægur. Annie var af- ar glaðsinna, einlæg og hreinskilin. Skoðanir sínar lét hún jafnan í ljósi vafningalaust. Karlakórinn Fóstbræður stendur í mikilli þakkarskuld við Annie Helga- son. Með þessum fátæklegu orðum skal henni þakkað allt það góða starf sem hún hefur lagt félaginu til, og ekki síst áhugi hennar fyrir fram- gangi félagsins. Minning svo ötulla velgjörðarmanna birtist í umgjörð og öflugu starfi Fóstbræðra. Guð blessi minningu Anniar Helga- son. F.h. Karlakórsins Fóstbræðra, Eyþór Eðvarðsson. AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R Góðir tekjumöguleikar Stórt fyrirtæki óskar eftir fólki í aukavinnu eða fullt starf, 20 ára og eldra. Upplýsingar í síma 659 2107 og 661 2495 eða Eli@tal.is . Gullsmíðanemi Gullsmíðameistari auglýsir eftir nema á samn- ing. Reyklaus vinnustaður. Umsóknir ásamt starfsferilsskrá sendist á aug- lýsingadeild Mbl. eða á box@mbl.is merktar: „Gullsmíðanemi — 12774“ fyrir 27. september. Þjónustufulltrúi Félag íslenskra bifreiðaeigenda óskar eftir starfsmanni til fjölbreyttra þjónustustarfa í þágu félagsmanna. Óskað er eftir drífandi og þjónustuliprum einstaklingi til starfa með sam- hentum hópi. Umsóknir sendist til FÍB eða á nina@fib.is . Félag íslenskra bifreiðaeigenda, Borgartúni 33, 105 Reykjavík Frá Hjallaskóla Umsjónarkennara vantar á miðstig í 100% stöðu. Launakjör samkvæmt kjarasamningum KÍ og Launanefndar sveitarfélaga. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um stöðuna. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 554 2033. Starfsmannastjóri KÓPAVOGSBÆR Ritari óskast Ritari óskast á skrifstofu Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Vinnutími er frá kl. 10:00 til 15:00 virka daga. Laun samkvæmt kjarasamningum SFR. Upplýsingar gefur Erla Gísladóttir skrifstofu- stjóri í síma 570 5600. Umsóknarfrestur er til 3. október nk. Skólameistari. ⓦ á Freyjugötu Upplýsingar gefur Ólöf Engilbertsdóttir í síma 569 1376. FRÁ SMÁRASKÓLA þar sem „menntun og mannrækt“ fara saman Smáraskóli er framsækinn skóli, sem byggir á gömlum gildum. Í daglegu starfi skólans er virðing, vöxtur, vizka og víðsýni höfð að leiðarljósi. Í skólastarfinu reynir á faglegt frumkvæði, gleði, hugmyndaauðgi, sveigjan- leika og velvilja. Við skólann starfa metnaðar- fullir og traustir starfsmenn sem vilja að börnin í skólanum nái framúrskarandi árangri á öllum sviðum mannlífsins. Vegna forfalla vantar kennara skólaárið 2002 – 2003 • í fullt starf til vors. Um er að ræða almenna kennslu í 7. bekk og enskukennslu í 9., 7. og 5. bekk (ein bekkjardeild í hverjum árgangi). Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ. og Launa- nefndar sveitarfélaga. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans. Umsóknarfrestur er til 9. október. Nánari upplýsingar veita: Valgerður Snæland Jónsdóttir, skólastjóri og Elín Heiðberg Lýðsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 554 6100. Sjá upplýsingar um skólann á heimasíðu skólans: www.skolatorg.is/kerfi.smaraskoli Starfsmannastjóri KÓPAVOGSBÆR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.