Morgunblaðið - 24.09.2002, Page 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 43
Skútuvogi 12a s. 594 6000
www.merkur.is
Gerið
góð
kaup!
Hjóladagar
AÐEINS hefur verið að rofa til á
Iðu að undanförnu, þannig veiddust
14 laxar þar á einum degi um miðja
síðustu viku. Síðan hefur verið
þokkalega líflegt. Laxinn er þó að
mestu smár, 5 til 6 punda, en 10 til
12 punda fiskar á stangli.
Einn 20 punda lax var í veiðibók-
inni við Iðubrú í síðustu viku og
samkvæmt bókinni aðeins milli 70
og 80 laxar komnir á land. Miðað við
gang mála er líklegt að talan sé nú
nær 100 og þar eð annar hópur, sem
skráir ekki veiði, er yfirleitt með
annað eins, má tala um 200 laxa á
Iðu í sumar.
Dauft fyrir austan
Enn er rólegt á sjóbirtingsslóðum
og litlu skotin sem komu upp úr
vatnavöxtum 10. september að fjara
út. Nýlegt holl í Geirlandsá var t.d.
með aðeins fimm fiska, þar af tvo
laxa og í Hörgsá á Síðu hafa varla
veiðst nema fiskar á stangli síðan í
umræddum vatnavöxtum. Menn
sem voru þar um helgina veiddu
ekkert og sáu ekkert kvikt.
302 laxa bati
Í pistli sem okkur barst frá Ragn-
ari Gunnlaugssyni formanni Veiði-
félags Víðidalsár kemur fram að
lokatala úr Víðidalsá hafi verið 884
laxar, 302 löxum meira en í fyrra.
Smálaxar, 7,5 pund og smærri, hafi
verið 723 og stórlaxar 161. Tveir 20
punda voru stærstir. Alls veiddust
400 laxar í Fitjá.
„Laxinn var óvanalega vel dreifð-
ur um árnar og varla er sá veiði-
staður til sem ekki veiddist lax í og
gerir það gott vatn í ánum,“ bætti
Ragnar við.
Hann sagði og að bleikjuveiði
hefði verið frekar slök í sumar, mest
vænn fiskur, en að undanförnu hafa
verið góð skot, upp á 50 fiska á dag
með talsverðu af smærri fiski í bland
sem lofaði góðu fyrir næstu sumur.
Ekki bólusettir
Vegna athugasemdar um hugsan-
legar „skítapestir“ sem bólusettir
regnbogasilungar gætu borið í villta
laxa og silunga í Elliðaánum, þar
sem þeir hafa verið að veiðast að
undanförnu, sagði Gísli Jónsson
fisksjúkdómafræðingur, að regn-
bogasilungar væru einu laxfiskarnir
í eldi sem ekki þyrfti að bólusetja
fyrir hinum ýmsu pestum. Gísli
sagði lax bólusettan fyrir 4-5 pestum
og bleikju fyrir einni, en regnboginn
væri svo harðgerður að hann stæði
af sér alla þá kvilla. Gísli sagði það
umhugsunarefni hvaðan regnboga-
silungarnir í Elliðaánum væru
komnir, því ekkert sjókvíaeldi á
regnboga hefði verið í allmörg ár
sunnanlands- og vestan. „Það var
eldi fyrir þremur árum í Hraunsfirði
og þá slapp eitthvað af fiski, þetta
gætu verið leifar af þeim fiski. Þá er
það einnig staðreynd að menn hafa
orðið varir við regnbogann í nátt-
úrunni, t.d. í Varmá og Hlíðarvatni.
Spurning hvort hann er að koma
upp villtum stofnum,“ bætti Gísli
við.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Morgunblaðið/Guðmundur Guðjónsson
Bjarki Sigurmundsson veiddi
sinn maríulax á Iðu í síðustu
viku, 6 punda hæng, og hér bítur
hann veiðiuggann af laxinum.
Glæðist
loks á Iðu
Bjarki bætti svo um betur og
náði öðrum 12 punda á sama
tíma og fullorðna fólkinu gekk
ekki allt of vel …
VSF Verkefnastjórnunarfélag Ís-
lands stendur fyrir alþjóðlegri ráð-
stefnu um verkefnastjórnun á Hótel
Loftleiðum dagana 26.–27. septem-
ber nk. Meginmarkmið ráðstefn-
unnar eru að kynna innlendar og
erlendar nýjungar á sviði verkefna-
stjórnunar og að skapa vettvang
sem stuðlar að faglegri umræðu og
skoðanaskiptum. Fimm lykilfyrir-
lesarar flytja erindi á ráðstefnunni.
Robert Paterson hjá Pricewater-
houseCoopers fjallar um einkavæð-
ingu og stjórnun hennar. Roland
Randefelt, Norræna fjárfestingar-
bankanum, fjallar um nýjar
áherslur við mat á lánshæfi verk-
efna á alþjóðlegum vettvangi. Sten
Mortensen hjá Hewlett-Packard
fjallar um samruna HP og Compaq
og Alexander K. Guðmundsson, Ís-
landsbanka, fjallar um fjármögnun
verkefna. Höfuðstöðvar Íslenskrar
erfðagreiningar verða einnig sóttar
heim. Þar mun Freyr Þórarinsson
flytja erindi um verklag og kröfur
við þróun hugbúnaðar fyrir fyrir-
tæki í rannsóknar- og vísindagrein-
um. Fjöldi annarra erlendra og inn-
lendra fyrirlesara mun flytja erindi
á ráðstefnunni.
Frekari upplýsingar um ráðstefn-
una og dagskrá hennar má finna á
heimasíðu ráðstefnunnar, www.-
vsf.is/nordnet2002.
Ráðstefna um
verkefnastjórn-
un í Reykjavík
ALLS voru 37 ökumenn
teknir fyrir hraðakstur
um helgina. Fjórir voru
grunaðir um ölvun og
tveir voru stöðvaðir fyrir að aka yfir
á rauðu ljósi. Ökumaður var stöðv-
aður vegna gruns um ölvun við akst-
ur en styðja þurfti manninn út úr bif-
reiðinni og reyndist hann vera
sviptur ökuréttindum ævilangt.
Tilkynnt var um 29 umferðar-
óhöpp þar sem eignatjón átti sér
stað. Talið er að gæsahópur hafi
valdið þriggja bíla árekstri á Sæ-
braut á föstudag. Ekki urðu alvarleg
meiðsl á fólki. Aðfaranótt laugar-
dags var ökumaður stöðvaður í mið-
borginni þar sem ólögleg ljós voru á
vélarhlíf bifreiðarinnar. Sá hinn sami
gat ekki ekki framvísað ökuskírteini
og í ljós kom að bifreiðina átti að
færa í endurskoðun í ágúst síðast-
liðnum. Um kvöldmatarleytið á
föstudag var tilkynnt um ökumann á
sendibifreið sem talinn var ölvaður
með fjögurra ára gamalt barn í bif-
reiðinni. Aðfaranótt sunnudags var
tilkynnt um mann sem gekk ber-
serksgang og var að skemma bíla í
Vesturbænum. Reyndist maðurinn
hafa skemmt tvær bifreiðar og var
hann fluttur á lögreglustöð og vist-
aður þar.
Handrukkarar reyndu
að komast inn
Tilkynnt var um 18 innbrot um
helgina. Strax á föstudagsmorgni
var tilkynnt um innbrot í miðborg-
inni en farið hafði verið inn um
glugga og heyrnartólum með inn-
byggðu úrvarpi stolið. Frá skóla í
austurhluta borgarinnar var tilkynnt
um að skjávarpa að andvirði um 250
þúsund krónum hefði verið stolið úr.
Um svipað leyti var tilkynnt um inn-
brot í fyrirtæki skammt frá þar sem
innbrotsmaður hafði komist inn um
glugga á þriðju hæð en vinnupallar
eru utan á húsinu. Rótað hafði verið í
skrifstofunni en engu var stolið. Um
helgina var einnig nokkuð um inn-
brot í bifreiðar og eins og fyrr þá er
mikið verið að stela geislaspilurum,
geisladiskum og fleira verðmætu
sem er í bifreiðum.
Á laugardagskvöldi var tilkynnt
um handrukkara sem voru að reyna
að komast inn í íbúð en þeir voru
farnir er lögregla kom á vettvang.
Um svipað leyti var tilkynnt um
grunsamlega pilta í Grafarvoginum
sem voru úti í garði með grímur og
vasaljós. Við nánari athugun reynd-
ist aðeins vera um krakka að ræða
sem voru að leika sér.
Um níuleytið á sunnudag var til-
kynnt um þjófnað í Grafarvoginum.
Þarna hafði verið farið inn um ólæst-
ar útidyr og inn í eldhús þar sem
veski húsmóður var stolið. Í því voru
skilríki, greiðslukort, reiðufé og lyf-
seðlar. Einnig var rótað í lyfjaskáp.
Tilkynnandi gerði viðeigandi ráð-
stafanir og lét loka kortunum.
Greiðslakortafyrirtækið sá að kortið
hafði verið notað nýlega í söluturni í
Vesturbænum. Haft var þá samband
við starfsmann sem mundi eftir pilt-
unum og gaf ítarlega lýsingu á þeim.
Málið er í rannsókn.
Eftirlitslaus unglinga-
samkvæmi
Talsverð ölvun var í miðborginni á
föstudagskvöld og fram eftir nóttu
en skemmtanalífið gekk ágætlega
fyrir sig á heildina litið. Nokkuð var
um að lögreglu bærist tilkynningar
um meðvitundarlítið fólk sem reynd-
ist síðan svo ofurölvi að erfitt var að
greina í sundur hvort um sjúkleika-
ástand væri að ræða eða ölvunar-
ástand. Í sumum tilfellum var þetta
fólk flutt á lögreglustöð og vistað í
fangageymslu en í öðrum þurfti að
flytja fólk á slysadeild.
Haft var sérstakt eftirlit með úti-
vistartíma barna og unglinga. Farið
var um miðborgina og í úthverfin og
ástandið kannað. Dæmi voru um
unglinga sem voru undir áhrifum
áfengis og voru foreldrar í þeim til-
fellum beðnir um að sækja börnin og
fara með þau heim. Um helgina fór
lögregla í 12 hávaðaútköll, þar á
meðal var nokkuð kvartað undan há-
vaða í heimahúsum þar sem ungling-
ar voru að skemmta sér. Í einu slíku
tilfelli var hringt og beðið um aðstoð
lögreglu vegna unglinga sem voru að
brjótast inn í húsið. Þarna voru ung-
lingar að skemmta sér og höfðu fleiri
frétt af skemmtuninni og reyndu að
komast inn. Rétt er að benda for-
ráðamönnum á að þegar unglingar
halda foreldralaus partí er alltaf
hætta á því að slíkt fréttist í viðkom-
andi hverfi þannig að fleiri unglingar
streymi að. Í slíkum tilfellum er allt-
af hætta á að skemmtunin fari úr
böndunum og jafnvel verði slys á
fólki eða verulegar skemmdir innan-
húss.
Aðfaranótt sunnudags var til-
kynnt um konu sem hafði verið ráð-
ist á og blæddi konunni. Lögregla og
sjúkralið komu á vettvang. Þarna
hafði komið til átaka milli sambýlis-
fólks og hafði maðurinn hrint kon-
unni þannig að hún hlaut skurð á
hnakka. Konan beið lögreglu á gang-
inum en maðurinn var í íbúðinni og
vildi ekki hleypa lögreglu inn. Málið
leystist, þar sem maðurinn ætlaði að
leita sér gistingar annars staðar og
konan var flutt á slysadeild, en þau
voru bæði ölvuð.
Úr dagbók lögreglu – 20.–23. september
Þurftu að styðja ölvaðan
ökumann út úr bílnum
SAUTJÁNDA landsþing Sambands
íslenskra sveitarfélaga verður hald-
ið á Akureyri dagana 25. til 27.
september næstkomandi. Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson, formaður sam-
bandsins, setur þingið klukkan 10 á
morgun, miðvikudag, og Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra flytur
ávarp.
Þá munu Jóna Valgerður Krist-
jánsdóttir, sveitarstjóri Reykhóla-
hrepps, Ejgil W. Rasmussen, for-
maður danska sveitarfélaga-
sambandsins, og Styrmir Gunnars-
son, ritstjóri Morgunblaðsins, flytja
erindi um hlutverk og framtíð sveit-
arstjórna.
Landsþing sambandsins er haldið
fjórða hvert ár og fer með æðsta
vald í málefnum þess og kýs stjórn
og fulltrúaráð. Sveitarfélögin 105
sem aðild eiga að sambandinu kjósa
fulltrúa á landsþingið og eiga 178
fulltrúar þar seturétt. Yfirskrift
þingsins er búseta, lífsgæði, lýðræði
og verða á landsþinginu mótuð þau
meginmarkmið sem sambandið á að
vinna að næstu fjögur árin. Hefur
verið tekið saman rit með heiti yf-
irskriftar þingsins sem verða mun
umræðugrundvöllur fyrir stefnu-
mörkunina árin 2002 til 2006. Einn-
ig liggja fyrir þinginu tillögur að
breytingum á lögum sambandsins
og samþykktum fyrir launanefnd
sveitarfélaga.
Rætt verður um búsetu,
lífsgæði og lýðræði
Landsþing Sambands íslenskra
sveitarfélaga sett á morgun
NÆSTKOMANDI fimmtudag, 26.
september, verður rabbfundur á
vegum Rannsóknastofu í kvenna-
fræðum. Herdís Friðriksdóttir
skógræktarráðunautur flytur erind-
ið „Staða kvenna innan skógrækt-
arnefnda í Nepal“.
Rabbið fer fram í stofu 101 í
Lögbergi kl. 12–13 og er öllum op-
ið.
„Herdís segir frá rannsókn sinni
á hlut kvenna í landnýtingu í Nepal.
Þar í landi eru svokallaðar skóg-
ræktarnefndir ráðandi um nýtingu
skóga en í þeim sitja nær eingöngu
karlar. Erfitt hefur verið að fá kon-
ur til starfa innan nefndanna, m.a.
vegna menningarhefða. Herdís hef-
ur skoðað hvort svokallaðir kvenna-
hópar geti hjálpað konum til áhrifa
innan þessara nefnda þannig að
þær hafi eitthvað að segja um nýt-
ingu þess lands sem þær og fjöl-
skyldur þeirra lifa af,“ segir m.a. í
fréttatilkynningu.
Rabbfundur
Rannsóknastofu
í kvennafræðum
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Neyðarnótin Hjálp
Kristján Magnússon, Kjarrvegi
13 í Reykjavík, hringdi vegna
myndatexta með greininni Æfingar
auka öryggi, sem birtist á bls. 20 í
Morgunblaðinu sl. sunnudag. Þar
sjást menn hífðir úr sjó í neyðarnót-
inni Hjálp, en ekki Markúsarnetinu
eins og skilja mátti af myndatexta.
Kristján er hönnuður og framleið-
andi neyðarnótarinnar Hjálpar og
eru hann og lesendur beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Stundaði nám
í þrjú ár
Ónákvæmni gætti í dánarfregn
um Pétur Friðrik Sigurðsson list-
málara. Pétur stundaði nám við
Konunglega listaháskólann í Dan-
mörku 1945-48 og lauk þaðan fulln-
aðarprófi eftir þriggja ára nám. Ár-
ið 1949 kynnti hann sér listsköpun í
Frakklandi.
LEIÐRÉTT
NORRÆNT höfuðborgamót fer
fram í Reykjavík dagana 26. til 29.
september en höfuðborgirnar á
Norðurlöndum eiga með sér vina-
bæjasamskipti. Norræna félagið í
Reykjavík fagnar um þessar
mundir 80 ára afmæli sínu og býð-
ur til mótsins í samstarfi við
Norrænt höf-
uðborgamót í
vikulokin
Reykjavíkurborg. Í frétt frá Nor-
ræna félaginu segir að vinabæja-
samstarf sé mikilvægur þáttur í
starfi félaganna og til séu margar
virkar norrænar vinabæjakeðjur
sem eigi í fjölbreyttu samstarfi.
Væntanlegir eru ríflega 50 erlend-
ir gestir til höfuðborgamótsins nú,
frá öllum Norðurlöndunum og
Litháen. Yfirskrift mótsins er
Orka 2002. Á dagskrá verður m.a.
söngur og ljóðalestur í Vesturbæj-
arsundlauginni, heimsókn á Al-
þingi, leikhúsferð á Veisluna, ferð í
Svartsengi, Ljósafoss, Sólheima,
Nesjavelli og á safn Orkuveitu
Reykjavíkur í Elliðaárdal.