Morgunblaðið - 24.09.2002, Síða 47

Morgunblaðið - 24.09.2002, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 47 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake Afmælisbörn dagsins: Þú hefur frábært ímynd- unarafl og býrð yfir örlæti. Þú hefur unun af ferða- lögum. Á næstu mánuðum lendir þú í ýmsum skemmti- legum ævintýrum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú freistast til að eyða of miklum peningum í dag. Reyndu að forðast að kaupa einhvern óþarfa því þú kannt að sjá eftir því síðar. Naut (20. apríl - 20. maí)  Samband þitt við fjölskylduna er kærleiksríkt og gott í dag. Þú munt taka eftir því að vin- gjarnlegt viðhorf þitt hefur áhrif á aðra sem gjalda þér í sömu mynt. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Dagurinn í dag gæti orðið sér- staklega skemmtilegur í vinnunni. Samstarfsmenn hafa gaman að félagsskap þín- um því þú hefur gamanmál á hraðbergi. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Í dag er heppilegt að gera fjármálasamninga eða verja fé til skemmtunar. Reyndu að gefa þér tíma til að lyfta þér upp. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Reyndu að láta ekki undan löngun til að eyða peningum í dag. Stjörnumerki þitt er ör- látt og í dag er auðvelt að fara yfir strikið í þeim efnum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Hamingjan er þér hliðholl í dag. Þú metur vel hvað þú hefur og hver þú ert og vegna þessa fyllist þú bjartsýni og sjálfstrausti. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú skalt þiggja gjafir og greiða frá vinum þínum í dag. Þú átt auðvelt með að um- gangast fólk og aðrir vilja sýna þér að þeir kunna að meta þig. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú gætir komið yfirmönnum þínum eða öðru mikilvægu fólki á óvart í dag. Það kemur í ljós að hugmyndir þínar og áætlanir eru framkvæman- legar og raunhæfar. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Dagurinn er heppilegur fyrir ferðaáætlanir. Þú skalt reyna að framkvæma skyndihug- dettur því þú hefur yfir að ráða nægilegu sjálfstrausti til að ná þeim fram. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Aðrir vilja styðja þig í dag. Þú skalt þiggja aðstoð þeirra því það er eina leiðin til að tryggja áframhaldandi örlæti þeirra. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Yfirmenn þínir taka mark á því sem þú hefur fram að færa í dag. Framlag þitt til hóp- vinnu mun vekja á þér at- hygli. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Sjálfstraust þitt hefur jákvæð áhrif á aðra og þú getur veitt fólki í kring um þig hvatningu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. VOG LJÓÐABROT JESÚS KRISTUR OG ÉG Hér sit ég einn, með sjálfstraustið mitt veika, á svörtum kletti, er aldan leikur við. Á milli skýja tifar tunglið bleika, og trillubátar róa fram á mið. Af synd og fleiru sál mín virðist brunnin. Ó, sestu hjá mér, góði Jesú, nú, því bæði ertu af æðstu ættum runninn og enginn þekkir betur Guð en þú. - - Og um það mál við aldrei megum kvarta, því uppi á himnum slíkt er kallað suð, en ósköp skrýtið er að eiga hjarta, sem ekki fær að tala við sinn Guð. Hver síðastur þú sagðir að yrði fyrstur, en svona varð nú endirinn með þig. Og úr því að þeir krossfestu þig, Kristur, hvað gera þeir við ræfil eins og mig? Vilhjálmur frá Skáholti MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Árnað heilla BRIDSFÉLÖGIN eru nú óðum að taka til starfa eftir sumarhlé og hófst spila- mennska hjá Bridsfélagi Reykjavíkur í síðustu viku með þriggja kvölda tví- menningi. Þátttaka er góð, eða 37 pör, en efstir eftir fyrsta kvöldið eru ungu mennirnir Bjarni Einarsson og Sigurbjörn Haraldsson. Þeir félagar fundu fallega vörn í þessu spili: Norður gefur; AV á hættu. Norður ♠ KG5 ♥ 98 ♦ 1032 ♣106543 Vestur Austur ♠ 8 ♠ 1032 ♥ G1063 ♥ 7542 ♦ KDG874 ♦ Á95 ♣ÁK ♣987 Suður ♠ ÁD9764 ♥ ÁKD ♦ 6 ♣DG2 Vestur Norður Austur Suður – Pass Pass 1 spaði 2 tíglar 2 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Bjarni var með spil vest- urs og kom út með laufkóng, eins og venjan er með ÁK blankt. Sigurbjörn lét níuna í slaginn, sem er frávísun í laufi, samkvæmt þeirra að- ferðum. Bjarni tók næst á laufás og nú fylgdi Sigur- björn lit með sjöunni – lægra spilinu – til að vísa á tígul, frekar en hjarta. Þá spilaði Bjarni tígulgosa, Sig- urbjörn drap með ás og gaf Bjarna stungu í laufi. Einn niður og ÖLL stigin í pott- inum! Fjórir spaðar voru spilaðir úti um allan sal, en ekkert annað par fann þessa vörn. Sem segir kannski ekki góða sögu um „stand- ardinn“ hjá BR, en máls- bætur eru þó þær að flestir komu út með tígulkóng og þá er oft seint að sækja lauf- stunguna. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 a6 6. Be2 d6 7. Be3 Rf6 8. 0-0 Be7 9. f4 Bd7 10. Bf3 0–0 11. Rb3 b5 12. g4 h6 13. a4 bxa4 14. Rxa4 Hb8 15. Rc3 a5 16. Hf2 Hb4 17. Hd2 Dc7 18. h4 h5 19. g5 Rg4 20. Bxg4 hxg4 21. Dxg4 a4 22. Rc1 Hxb2 23. R1e2 Hb4 24. h5 f5 25. gxf6 Hxf6 26. Hxa4 Hxa4 27. Rxa4 Be8 28. Rb6 Bf8 29. Rg3 Ra5 30. De2 Dc3 31. Dd3 Dc6 32. f5 Bf7 33. e5 dxe5 34. Rd7 Rc4 35. Rxf6+ gxf6 36. Hg2 Rxe3 37. Dxe3 Kh8 38. Kh2 Dc4 39. fxe6 Dh4+ 40. Kg1 Bxe6 41. Db6 Bd5 42. Dd8 Dd4+ 43. Hf2 Kg8 44. h6 Dd1+ 45. Kh2 Dd4 46. Dxf6 Bxh6 47. Dg6+ Bg7 Staðan kom upp í keppni heimsins gegn Rússlandi sem lauk fyrir skömmu í Moskvu. Vishy An- and (2.755) hafði hvítt í stöðunni gegn Vadim Zvag- insev (2673). 48. Dxg7+! Kxg7 49. Rf5+ Kg6 50. Rxd4 exd4 51. Hf4 og svartur gafst upp. Heimurinn vann 52-48 en það vakti mikla athygli að Garry Kasparov fékk minna en helming vinninga eða 4 af 10. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. 50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 24. september, er fimmtugur Daníel Gunnarsson, skóla- stjóri Ölduselsskóla. Hann er að heiman á afmælisdag- inn. Í tilefni afmælisins taka Daníel og Kristrún, kona hans, á móti gestum í Fé- lagsheimili Hestamanna- félagsins Gusts, Glaðheim- um, Kópavogi, föstudaginn 27. september frá kl. 17–20. 90 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 24. september, er níræður Sig- urfinnur Ólafsson hús- gagnasmíðameistari. Af því tilefni tekur hann tekur á móti ættingjum og vinum á heimili sínu á Skjólbraut 1a í Kópavogi milli kl. 15 og 18. Morgunblaðið/Sverrir Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr. 3.101 til styrktar Kristínu Ingu Brynjarsdóttur, sem slasaðist í bílslysi. Þær heita Telma Björk og Ásdís Huld. Mörkinni 6, sími 588 5518 Stórútsala Opið virka daga kl. 9-18. Laugardaga kl. 10-15 Regnkápur - Stuttkápur - Vindjakkar - Úlpur - Hattar - Húfur Kanínuskinn kr. 2.900 Allt á 50% afslætti Síðustu dagar Innifalið1 stækkun, 30x40 cm í ramma, aðrar stækkanir að eigin vali, með allt að 50% afslætti Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207. Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020. Barnamyndatökur - Tilboð í september kr. 6.000. Snorrabraut 38, sími 562 4362 Stórrýmingarsala 30-50% afsláttur Rýmum fyrir nýjum vörum Kápur frá 2.000 kr. ÚTSALA Silkidamask og bómullarsatín í metratali Dúkadamask í metratali o.fl. o.fl. á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050 VINNU- SÁLFRÆÐI Samskipti á v innustað Upplýsingar og skráning í síma Sálfræðistöðvarinnar, 562 3075, á milli kl. 11 og 12. Fax 552 1110. Á flestum vinnustöðum eru samskipti flókin og oft vandasöm. Á námskeiðinu verður kennt samskiptalíkan til að auka samstarfshæfni og þjálfa viðbrögð sem leysa ágreining og auka vinnugleði. Leiðbeinendur og höfundar námskeiðs eru sálfræð- ingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. Hlutavelta Smælki VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Brúðhjón A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r Ég fer bara og sef úti í bílskúr! Er hægt að freista herr- ans með einhverjum af þessum? Eða er hann kannski bara sáttur við þann sem hann hefur?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.