Morgunblaðið - 24.09.2002, Side 52
Galgopinn Brad
Garrett bregður á
leik en hann vann
Emmy sem besti
aukaleikari,
bróðir Ray-
monds í Allir
elska Raymond.
Vinirnir tóku allir saman á móti fyrstu Emmy-verðlaunum sem þættinum hefur hlotnast.
drykkfelldur bróðir Daphne í
Frasier – sýndur í Sjónvarpinu.
Vesturálman (The West Wing) –
sýndur í Sjónvarpinu – hafði Und-
ir grænni torfu (Six Feet Under)
– sýndur á Stöð 2 – í flokki
dramaþátta og var hinn fyrrnefndi
valinn besti þátturinn auk þess
sem Allison Janney og John
Spencer voru í annað sinn valin
besta leikkona í aðalhlutverki og
besti leikari í aukahlutverki. Það
kom hins vegar skemmtilega flatt
upp á viðstadda er Michael Chikl-
is, aðalleikari í lögguþáttunum
umdeildu The Shield, var valinn
besti karlleikari í dramaþætti.
Enginn var þó meira undrandi en
Chiklis sjálfur sem var alveg orð-
laus er hann veitti verðlaununum
viðtöku en íslenskir sjónvarps-
áhorfendur muna eflaust margir
hverjir eftir honum í hlutverki
Scali lögreglustjóra í þáttunum
The Commish.
Besta leikkonan í aukahlutverki
dramaþáttar var valin Stockard
Channing úr Vesturálmunni en
það voru ekki einu verðlaunin sem
henni voru veitt því hún var einn-
ig valin besta leikkonan í sjón-
varpsmynd í fullri lengd. Það var
fyrir hlutverk hennar í The
Matthew Shepard Story, mynd
sem byggð er á sönnum atburðum
um hrottafengið morð á samkyn-
hneigðum unglingi.
Það var Albert gamli Finney
sem fékk hins vegar verðlaun fyr-
ir besta karlleik í aðalhlutverki
sjónvarpsmyndar. Það var fyrir
túlkun hans á Winston Churchill í
myndinni The Gathering Storm en
sú mynd, sem Ridley Scott fram-
leiddi, var einnig valin besta sjón-
varpsmyndin.
Besta sjónvarpsmyndaröðin var
hins vegar valin seinni Band of
Brothers sem Tom Hanks og
Steven Spielberg framleiddu í
sameiningu.
Enn staðfestist vegsemd gam-
anþáttanna Everybody Loves
Raymond sem sýndir hafa verið á
Skjá einum undanfarin ár við
miklar vinsældir. Þátturinn hlaut
þrenn leikaraverðlaun. Höfundur
þeirra, Ray Romano, fékk sín
fyrstu Emmy-verðlaun er hann
var valinn besti karlleikarinn í að-
alhlutverki gamanþáttar, sem og
Brad Garrett, sem fékk verðlaunin
sem besti aukaleikari fyrir túlkun
sína á sérlunduðum bróður Ray-
monds. Doris Roberts, sem leikur
móður þeirra bræðra, vann hins
vegar önnur Emmy-verðlaunin í
röð.
David Letterman vann síðan
hina hörðu rimmu spjallþátta-
stjóra og lagði þar með erkifjanda
sinn, Jay Leno, enn eina ferðina.
Að venju var Letterman þó fjarri
góðu gamni.
Það skiptist á gamanið og alvar-
an á hátíðinni að þessu sinni.
Kynnirinn Conan O’Brian var
beittur að vanda en þótti heldur of
rætinn í gamanmáli sínu. Fórn-
arlamba hryðjuverkanna 11. sept-
ember var síðan minnst sér-
staklega og minningarþátturinn
sem stóru sjónvarpsstöðvarnar
héldu saman var valinn besti tón-
listar- og magasínþáttur.
Emmy-sjónvarpsverðlaunin voru veitt um helgina
Besti vinurinn: Jennifer Aniston
var hrærð er hún tók við verð-
launum sínum.
EFTIR átta mögur
verðlaunaár vann
gamanþátturinn
Friends loksins til
helstu verðlauna á
Emmy-hátíðinni þar sem
frambærilegasta sjónvarpsefni
hverju sinni er verðlaunað.
Þrátt fyrir að vera eitthvert vin-
sælasta sjónvarpsefni sem sögur
fara af og hafa hlotið lof gagnrýn-
enda höfðu Vinirnir – sýndur á
Stöð 2 – aldrei fyrr náð að heilla
akademíuna sem velur Emmy-
verðlaunahafana. Þátturinn var í
fyrsta sinn valinn besta gam-
anþáttaröðin og ekki nóg með það,
heldur var Jennifer Aniston, sem
leikur Rachel í þáttunum, valin
besta gamanleikkonan í aðal-
hlutverki en þetta var í fyrsta sinn
sem sexmenningarnir sem fara
með hlutverk Vinanna voru gjald-
gengir í flokk aðalleikara en fram
að því hafði framlag þeirra verið
metið sem aukahlutverk og þeir
oftar en ekki verið tilnefndir í
þeim flokki.
Brad Pitt, eiginmaður Aniston,
var með henni á hátíðinni, enda
ætlaði hann sér sjálfur að næla í
eins og eina styttu, sem besti
gestaleikari í gamanþætti fyrir
hlutverk sitt í Vinum. Honum varð
þó ekki kápan úr því klæðinu því
Anthony LaPaglia fékk verðlaunin
fyrir gestahlutverk sitt sem
Osbourne-fjölskyldan var valin
besti veruleikaþátturinn. Mæðg-
urnar Sharon og Kelly í skýjunum.
Spjallþáttastjór-
inn Larry King
fékk hvítar hveiti-
kveðjur í gam-
anatriði sem boðið
var upp á í minn-
ingu Miltons
Berles.
Loksins
sigruðu Vinir
52 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
DV
Kvikmyndir.com
1/2
SK.RadioX
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 16.
1/2
HI.Mbl
/
I l
SK.RadioX
HK DV
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8. B.i. 12 ára. Sýnd kl.6. Ísl tal.
Andie Macdowell
Sýnd kl. 10. B. i. 12.
SV Mbl SG. DV
ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 5.45 og 10.15 með enskum texta. B.i. 16.
Hér kemur ein
vinsælasta,
athyglisverðasta
, magnaðasta
og umtalaðasta
kvikmynd
Japana.
i
i l
li
l
i
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14.
Tímamótaverk í
íslenskri
kvikmyndasögu
HJ Mbl
Gunnar og Herdís leiða eftirminnilegan leikarahóp sem á þátt í að gera
Hafið að einni bestu íslensku kvikmyndinni 1/2 HK DV
1/2 Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12.
M A T T D A M O N E R J A S O N B O U R N E
„Þetta er
fyrsta flokks
hasarmynd.“
Þ.B.
Fréttablaðið.HANN VAR HIÐ
FULLKOMNA VOPN
ÞAR TIL HANN VARÐ
SKOTMARKIÐ
Hér er á ferðinni frumlegasti
njósnatryllir ársins.
Byggð á metsölubók
Roberts Ludlum.
r r f r i i fr l i
j r llir r i .
l
r l .
GH Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 3.40, 5.45 8, 9.05 og 10.15 . Vit 433
Mathew Perry (Friends) og Elizabeth Hurley fara á
kostum í þessari sprenghlægilegu gamanmynd sem
kemur verulega á óvart.
Það eina sem getur
leitt þau saman er
HEFND
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Vit 435
Tímamótaverk í
íslenskri
kvikmyndasögu
HJ Mbl
Gunnar og Herdís
leiða eftirminnilegan leikarahóp sem á þátt í að gera Hafið að einni
bestu íslensku kvikmyndinni 1/2 HK DV
1/2 Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 7. Vit 426Sýnd kl. 4 og 5. Ísl tal. Vit 429
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
MBL
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4507-4500-0030-3021
4507-4500-0030-6776
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.