Morgunblaðið - 24.09.2002, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
VATNAJÖKULL þynntist að með-
altali um 37 cm á því jökulári sem nú
er að ljúka, eða frá síðasta hausti,
sem er besta afkoma jökulsins frá
árinu 1996. Jökullinn hefur verið að
þynnast samfellt frá árinu 1995, á
því tímabili hefur jökullinn alls rýrn-
að um 1%.
Jöklafræðingar fá lánuð orð úr
hagfræðinni til að lýsa breytingum á
jöklum. Þannig er úrkoman, þ.e. það
sem bætist í jökulinn, kölluð tekjur
og bráðnunin tap. Breytingin á jökl-
inum yfir árið, þegar bráðnunin hef-
ur verið dregin frá því sem bættist í
jökulinn, er kallað afkoma. Síðasta
jökulár bættust 1,52 metrar á jökul-
inn en bráðnunin nam -1,9 metrum,
þannig var afkoma jökulsins þetta
árið -37 cm. Árið þar á undan var af-
koman um -60 cm, sem skýrist af því
að minna bættist í jökulinn yfir vet-
urinn, en bráðnunin yfir sumartím-
ann var mjög svipuð og nú.
Finnur Pálsson, jöklamælinga-
maður á Jarðeðlisfræðistofu Raun-
vísindastofnunar Háskóla Íslands,
segir að frá árinu 1995 hafi Vatna-
jökull tapað um 5 metrum að með-
altali, mælt í vatni. Þar sem rúmmál
íss, hjarns og nýfallins snjós sé
meira en vatns geti það þýtt að jök-
ullinn sé um 8 metrum þynnri nú en
árið 1995 að meðaltali. Ef allur síð-
asti áratugur er skoðaður kemur í
ljós að jökullinn er 2,7 metrum
þynnri nú en árið 1992, mælt í ígildi
vatns. Segir Finnur því enga ástæðu
til að hafa áhyggjur af bráðnun jök-
ulsins, alltaf séu einhverjar sveiflur í
stærð jökla.
Mikil bráðnun eftir gos
„Í grófum dráttum var jafnmikil
bráðnun síðasta sumar og hefur ver-
ið að jafnaði frá árinu 1996. Á þessu
tímabili hafa tvö sumur skorið sig
úr, það eru sumrin 1997 og 2000.“
Finnur segir að árið 1997 hafi bráðn-
unin verið mjög mikil vegna gossins
í Gjálp árið áður. Mikil aska hafi
dreifst um jökulinn sem flýtti fyrir
bráðnun. „Þegar jökullinn er skít-
ugur sogar hann meira í sig sólar-
ljósið. Árið 2000 var sumarið hins
vegar mjög hlýtt og sólríkt.“
Þá hafi vetrarúrkoman aukist
smám saman frá vetrinum 1997 þeg-
ar mjög lítið snjóaði. Vetrarúrkoman
nú sé að komast í svipað horf og á
árabilinu 1993–1996. Finnur bætir
við að því minna sem snjói því meiri
verði leysingarnar á sumrin. Hvítur
snjór endurvarpi sólarljósinu en
þegar snjóalagið er þunnt bráðnar
það fyrr og þá koma ísinn og hjarnið
í ljós sem eru skítug og sjúga í sig
sólarljósið. Þannig geti snjókoma á
miðju sumri dregið mjög úr bráðn-
un.
Óveruleg áhrif á hæð
tinda í jöklinum
Finnur segir að þessar breytingar
hafi óveruleg áhrif á hæð tinda í
jöklinum.
„Enda er breytingin minnst efst á
jöklinum þar sem hitastigið er
lægra. Það bætist jafnvel á jökulinn
yfir sumarið á Bárðarbungu og
Öræfajökli.“ Jafnvægislína sé mæld
í jöklinum, það er þar sem jafnmikið
bætist í jökulinn og bráðnar af hon-
um. Hún sé yfirleitt í um 1.000–1.400
metra hæð. „Í ár var hún heldur
lægri en síðustu ár. Það endurspegl-
ast í því að afkoman er heldur já-
kvæðari,“ segir Finnur.
Afkoma Vatnajökuls á síðasta ári var sú besta frá árinu 1996
Þynntist um 37 cm á ári
8(. 8(, 8(5 8(4 8++ 8+.
.3-
.3+
&3-
&3+
+3-
+3+
+3-
&3+
&3-
.3+
.3-
%3+
7
!" #
$" #
%"
# MIKILL áhugi er á nýrri íslenskri
keppni sem kölluð er Hörkutól, en
hún er í anda sjónvarpsþáttarins
Fear Factor sem hefur verið sýnd-
ur á Stöð 2. Í gærkvöldi höfðu um
150 manns skráð sig í keppnina, en
sex þátttakendur verða valdir úr
hópnum.
Keppnin verður haldin í
tengslum við bikarmót Kraftlyft-
ingasambands Íslands 2. nóvem-
ber og er það félagið Skrýmir sem
stendur að keppninni en þar eru
Styrmir Bolli Kristjánsson og Jens
A. Fylkisson í forsvari. Skráning
fer fram á vefslóðinni kraft.is og
kemur þar fram að verið sé að leita
að þremur strákum og þremur
stelpum í keppnina. Keppendur
verða að vera vel á sig komnir lík-
amlega og til í hvað sem er.
Jens segir að miðað sé við ald-
urinn 18 til 39 ára, en flestir sem
hafi skráð sig séu á aldrinum 20 til
25 ára. Hann segir að áhuginn á
þátttöku hafi farið langt fram úr
björtustu vonum og erfitt verði að
velja. „Það hafa um 150 manns
skráð sig, sem er fáránleg aðsókn,“
segir hann.
Keppnin verður byggð upp eins
og í sjónvarpsþáttunum og verður
keppt í þremur greinum, en ein
þeirra felst í að borða „eitthvað
ógeðslegt“ eins og Jens segir.
Hann bætir við að lærður áhættu-
leikstjóri hafi yfirumsjón með
þrautunum auk þess sem björgun-
arsveit Garðabæjar verði til taks.
Allir keppendur fá íþróttagalla en
sigurvegarinn fær 25.000 kr. í verð-
laun.
Margir telja sig
vera hörkutól
Cunningham
vill tónlist
Sigur Rósar
DANSHÖFUNDURINN Merce
Cunningham, sem staddur er hér á
landi og samnefndur dansflokkur
flytur tvö verk eftir í Borgarleik-
húsinu í kvöld, vonast til að ís-
lenska hljómsveitin Sigur Rós
muni semja tónlist við eitt verka
sinna á næstunni. Þetta kemur
fram í viðtali Morgunblaðsins við
Cunningham í dag.
„Við vonumst til að geta komið á
samstarfi við Sigur Rós og Radio-
head fyrir frumsýningu sem á að
vera í New York í október 2003.
Síðan er gert ráð fyrir að við ferð-
umst um með verkið,“ segir Trev-
or Carlson, upplýsingafulltrúi
Merce Cunningham-dansflokksins.
Cunningham er margverðlaun-
aður danshöfundur sem hafði
einna mest áhrif á þróun nútíma-
dans á síðustu öld. Þrátt fyrir að
vera kominn á níræðisaldur er
hann enn stöðugt að vinna.
Áttum saman/24
EINSTAKT náttúrufyrirbrigði
blasti við Gísla Rafni Jónssyni við
Drekagil á dögunum. Í óveðrinu
sem geisaði á landinu fyrir um
þremur vikum hafði allt að 40 cm
þykkt vikurlag límst áveðurs á
steina í landslaginu, á um 10 km
breiðu svæði. Gísli Rafn hefur
síðustu 19 ár ekið allt að 30 sinn-
um á sumri inn að Öskju í áætl-
unarferðum og hefur aldrei séð
annað eins. „Þarna hafa skapast
einstakar aðstæður. Raki hefur
komið í fína vikurinn úr Öskju-
gosinu 1875 og hann sest á stein-
ana. Á vikurlaginu má sjá hvern-
ig vindurinn hefur blásið um
steinana.“ Ljósmynd/Gísli Rafn Jónsson
Vindblásin
eyðimerk-
urblóm í
Ódáðahrauni
Morgunblaðið/Kristján
FRAMKVÆMDIR standa yfir í Jóla-
garðinum í Eyjafjarðarsveit, en þar
ætla eigendur að reisa viðbyggingu.
Benedikt Grétarsson, sem ásamt
eiginkonu sinni Ragnheiði Hreið-
arsdóttir á Jólagarðinn, var önnum
kafinn ásamt félaga sínum Herði
Snorrasyni í Hvammi í grunni við-
byggingarinnar í gærdag. Hann
sagði að fyrirhugað væri að byggja
um 110 fermetra kjallara við litla
jólahúsið og verður gengið úr því
niður í kjallarann.
Nú á nýliðnu sumri heimsóttu um
40 þúsund gestir Jólagarðinn og var
oft þröng á þingi. Á meðal gesta
voru farþegar af fimm skemmti-
ferðaskipum sem komu til Akureyr-
ar í sumar. „Það er oft ansi þröngt í
jólahúsinu þegar koma svona marg-
ir í einu, þannig að það verður fínt
þegar við fáum meira rými,“ sagði
Benedikt. Stefnt er að því að ljúka
framkvæmdum 31. maí á næsta ári.
Jólagarðurinn er lokaður í þessari
viku vegna framkvæmdanna, enda
stendur húsið nánast á stultum.
Jólagarður
á stultum
Ókunnugur
maður sat á
rúmstokknum
KONA í Hafnarfirði vaknaði við
það aðfaranótt sunnudags að
ókunnugur maður, sem hafði brot-
ist inn í húsið með því að spenna
upp glugga, sat á rúmstokknum á
hjónarúminu og strauk hendi eftir
fótlegg hennar. Hann hafði sig á
brott þegar hann sá að hún var
vöknuð en var handtekinn í ná-
grenninu stuttu síðar.
Konunni var að vonum brugðið
þegar hún sá manninn. Þegar hann
var farinn út úr herberginu vakti
hún eiginmann sinn, sem hafði ekki
vaknað við umganginn, og þau
hringdu síðan á lögreglu.
Að sögn lögreglunnar í Hafnar-
firði var maðurinn mjög ölvaður og
hafði ráfað um hverfið í nokkurn
tíma þegar hann var handtekinn.
Ekki var ljóst hvað vakti fyrir hon-
um með innbrotinu en engu var
stolið. Við yfirheyrslu bar hann við
minnisleysi um atburði næturinnar
og var sleppt að því loknu. Málið er
í rannsókn.
♦ ♦ ♦