Morgunblaðið - 19.10.2002, Page 2

Morgunblaðið - 19.10.2002, Page 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isSigurður Jónsson íhugar til- boð frá ÍBV og Víkingum / B1 Haukar réttu úr kútnum gegn Stjörnunni / B3 4 SÍÐUR16 SÍÐUR Sérblöð í dag Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r19. o k t ó b e r ˜ 2 0 0 2 NORRÆNU Carnegie-verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur – Hafn- arhúsi í gær. Um leið var sýn- ingin Carnegie Art Award 2002 opnuð í safninu en þar eru sýnd verk eftir 25 norræna listamenn, sem valdir hafa verið til sýning- arinnar af norrænni dómnefnd. Þetta er í fyrsta sinn sem verð- launin eru afhent á Íslandi. Það voru þeir Davíð Oddsson forsætis- ráðherra og Lars Nittve, safn- stjóri Moderna-safnsins í Stokk- hólmi, sem afhentu verðlaunin. Þrír íslenskir fulltrúar á sýningunni Fyrstu verðlaun að upphæð 500.000 sænskar krónur, jafnvirði nær 5 milljóna íslenskra króna, féllu í skaut danska listamann- inum Troels Wörsel. Önnur verð- laun sem nema 300.000 sænskum krónum hlaut Svíinn Lena Cron- qvist og þriðju verðlaun að upp- hæð 200.000 sænskar krónur, hlaut danski myndlistarmaðurinn Tal R. Carnegie-styrkinn að upp- hæð 50.000 krónur, sem veittur er listamanni af yngri kynslóð, hlaut David Svensson frá Svíþjóð. Íslensku þátttakendurnir í Carn- egie Art Award-sýningunni eru Georg Guðni, Kristín Gunnlaugs- dóttir og Katrín Sigurðardóttir. Á myndinni afhendir Davíð Oddsson forsætisráðherra Lenu Cronqvist verðlaun sín. Carnegie- verðlaun- in afhent hérlendis  Lesbók/13–15 Morgunblaðið/Kristinn BÆÐI forsætis- og utanríkisráðu- neytið brugðust fljótt við vegna frétta um að ESB muni fara fram á stóraukin framlög af hálfu EFTA- ríkjanna við endurnýjun EES-samn- ingsins. Davíð Oddsson forsætisráð- herra hafði samband við Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, vegna málsins en norskir fjölmiðlar hafa staðhæft að Bondevik hafi gefið í skyn við framkvæmda- stjórn ESB að Norðmenn væru til- búnir að greiða meira en þeir gera nú. Þá tók utanríkisráðherra, Hall- dór Ásgrímsson, orðróm um aukin framlög alvarlega og staðfestir utan- ríkisráðuneytið íslenska að hann hafi rætt við Per Stig Møller, utanríkis- ráðherra Danmerkur, en Danir eru nú í forsæti fyrir ESB, vegna máls- ins og ítrekaði að Íslendingar mundu ekki ganga að samningaborði að gefnum ákveðnum kostum. Davíð Oddsson játar því að það hafi verið allmikill vilji í norska stjórnkerfinu að borga það sem ESB setji upp. Ástæðan sé m.a. sú að þeg- ar spurningin um ESB-aðild Noregs komi upp á ný sé hægt að segja að menn greiði þetta hvort eð er og fjár- útlát skipti því litlu máli þegar horft sé til aðildar. „Þetta er ekki það sem íslensk stjórnvöld vilja viðhafa í mál- inu. Við höfum sagt að í öllum slíkum viðræðum við ESB yrðu aðrar for- sendur einnig að koma til eins og frí- verslun með fisk og þ.h.“ Davíð seg- ist hafa átt ágætt samtal við Kjell Magne Bondevik. „Mér fannst hann hafa fullan skilning á því að þessi mál, framlög og verslun með fisk, yrði að ræða í samhengi.“ Davíð bendir á að Íslendingar greiði nú þegar meira en þeim beri að gera þar sem Evrópusambandið hafi ekki staðið við þá samninga sem það gerði við EFTA-ríkin á sínum tíma. „Það er auðvitað erfitt að tala um að gera samninga, búa til samn- ingsgrundvöll og samningsforsend- ur við aðila sem stendur síðan ekki við gerða samninga. Það er alvarlegt mál. Við borguðum í fimm ár í þróun- arsjóðinn samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið en síðan kröfðust Spánverjar áfram- haldandi framlaga og fylgdu því eftir með hótunum um að beita þrýstingi á öðrum sviðum, sem komu málinu ekkert við, og þó eru til dæmis mörg héruð á Spáni mjög rík. Það var ákveðið að láta eftir í þessum efnum um sinn.“ Davíð telur að kröfur ESB á hend- ur Íslendingum segi mönnum ein- faldlega það að stækkun Evrópu- sambandsins og kostnaðurinn við hana, sem menn hafi þó gert lítið úr, sé það stórbrotinn að þetta mál sé einungis lítill angi af því. „Það er nýbyrjað að tala um þann ofboðslega kostnað sem fylgja mun stækkun ESB. Það er að koma inn gríðarlegur fjöldi af nýju fólki og nýjum ríkjum án þess að efnahagur Evrópusambandsins aukist sem neinu nemur þannig að nettókostn- aðurinn er náttúrlega gríðarlegur.“ Forsætisráðherra um kröfur um aukin framlög í þróunarsjóð EFTA Kostnaður vegna stækk- unar ESB er gríðarlegur  Fleiri fátækari/12 ,,TIL að sátt skapist um fiskveiði- stjórnunarkerfið krefst Starfsgreina- sambandið þess, að útgerðum verði gert að skila yfirráðaréttinum yfir auðlindinni í áföngum. Þannig verði snúið við þeirri óeðlilegu eignatil- færslu með tilheyrandi búseturöskun sem orðið hefur á síðustu áratugum og tryggð á ný eðlileg endurnýjun í atvinnugreininni,“ segir í ályktun um fiskvinnslu- og sjávarútvegsstefnu sambandsins sem samþykkt var á ársfundi sambandsins í gær. Er þetta í fyrsta sinn sem Starfs- greinasambandið markar sér sér- staka stefnu í þessum málaflokki skv. upplýsingum Aðalsteins Á. Baldurs- sonar, formanns matvælasviðs SGS. ,,Það er mjög ánægjulegt að okkur skuli hafa tekist að samþykkja þetta. Það er búið að taka sambandið og gamla Verkamannasambandið nokk- uð langan tíma að skila þessu af sér. Það hafa margar nefndir unnið að þessu en mönnum tókst ekki að ljúka þessu vegna þess að það hafa verið skiptar skoðanir. Þetta er því stór dagur í sögu okkar að í dag skuli hafa verið gengið frá þessari ályktun um stefnu sambandsins í þessum mála- flokki. Hún var samþykkt sam- hljóða,“ segir Aðalsteinn. Í þeim hluta ályktunarinnar sem fjallar um fiskveiðistjórnkerfið segir einnig að það stjórnkerfi sem við bú- um við verði að taka mið af lífríki hafs- ins, sem og lífsafkomu þeirra sem vinna við greinina. ,,Reka þarf ábyrga fiskveiðistefnu sem miðar í senn að uppbyggingu fiskistofna og nýtingu þeirra sem leiðir til hámarksafrakst- urs. Ljóst er að engin sátt er um nú- verandi kvótakerfi í fiskveiðum og nauðsynlegt er að ná sameiginlegri niðurstöðu um skipulag veiðanna, þar sem tekið verður tillit til allra hags- munaaðila. Sambandið er þeirrar skoðunar að núgildandi fiskveiði- stjórnunarkerfi þarfnist gagngerrar endurskoðunar.“ Sambandið vill að tekjur sem skap- ast af auðlindagjaldi verði notaðar til að kosta rannsóknir á lífríki hafsins og atvinnuuppbyggingar. Fiskvinnslu- og sjávarútvegsstefna samþykkt á ársfundi SGS Útgerðir skili fiskveiði- réttindum í áföngum  Halldór/12 GERÐ hefur verið tillaga til Alþingis um 50 milljóna króna aukafjárveit- ingu til sýslumannsembættisins á Selfossi við afgreiðslu frumvarps til aukafjárlaga fyrir yfirstandandi ár. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu- maður á Selfossi, fagnar þessu í sam- tali við Morgunblaðið og segir fjár- veitinguna hafa mikla þýðingu fyrir allan rekstur embættisins, ekki síst löggæsluna í umdæminu. Bendir hann á að gert sé ráð fyrir að upp- safnaður fjárlagahalli verði leystur, sem hafi mikla breytingu í för með sér. ,,Þetta sýnir vilja og hug dóms- málaráðuneytisins til þess að starf- semin hér gangi vel og greiðlega fyrir sig,“ segir hann. ,,Dómsmálaráð- herra og ráðuneyti hans eiga þakkir skilið fyrir þetta og sérstaklega gott samstarf í hvívetna varðandi rekstur embættis sýslumannsins á Selfossi,“ segir Ólafur Helgi. 50 millj. kr. fjárveiting til sýslumanns- ins á Selfossi HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða dæmdi í gær karlmann á fimmtugs- aldri í 120 þúsund króna sekt og svipti hann ökuréttindum í eitt ár, fyrir að aka bifreið undir áhrifum áfengis ut- an vegar á grasi á tjaldstæðinu við íþróttamiðstöð Þingeyrar í sumar. Ákærði festi bifreiðina á steypustöpli þar skammt frá og reyndi að aka burt þegar lögreglumenn komu að honum. Við mælingu kom í ljós að áfengis- magn í blóði var 3,07 prómill. Dómurinn taldi sök ákærða sann- aða og dæmdi hann til greiðslu sak- arkostnaðar auk sektarinnar og öku- leyfissviptingarinnar. Erlingur Sig- tryggsson dómstjóri kvað upp dóminn. 120 þús. í sekt fyrir ölvun- arakstur ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.