Morgunblaðið - 19.10.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FORMAÐUR Samtaka gegn fátækt,
Sigrún Ármanns Reynisdóttir, segir
að ákvörðun félagsmálaráðs Reykja-
víkurborgar um að jafna leiguverð
íbúða Félagsbústaða komi sér í flest-
um tilvikum illa fyrir fólk. Leigan
muni hækka og það auki þjáningar
fólks sem hafi þó verið nægar fyrir.
Vanskil eigi eftir að aukast enn meir.
Samtökin mótmæli þessari ákvörðun
harðlega og Sigrún segir félagsmála-
ráð greinilega ekki hafa hlustað á
hennar rödd. Hún hafi fundað með
formanni ráðsins áður en ákvörðunin
hafi verið tekin og komið sjónarmið-
um leigutaka á framfæri.
Félagsbústaðir hf. eru með um
1.400 íbúðir á sínum vegum. Frá 1.
desember nk. á að tengja leiguverðið
fasteignamati, í stað kaupverðs áður,
með þeim afleiðingum að leiga á 900
íbúðum mun hækka en lækka á hin-
um 500. Síðan hefur verið ákveðið að
leiguverð allra íbúðanna hækki um
12% í mars á næsta ári.
Sigrún segist hafa tekið á móti
fjölda símtala í gær frá leigutökum í
félagsbústaðakerfi borgarinnar eftir
að ákvörðun félagsmálaráðs var tí-
unduð í fjölmiðlum. Margir hafi borið
sig illa, einkum einstæðar mæður
með börn. Fréttirnar hafi komið
þeim í opna skjöldu og margir viti
ekki hve leigan muni hækka mikið.
„Ein þeirra einstæðra mæðra sem
hringdu í mig í gær sagðist vera ör-
yrki og með börn á framfæri sínu.
Hún sagðist vera skuldum vafin,
varla eiga nóg fyrir mat, hvað þá
hafa efni á að greiða hærri húsaleigu.
Hágrátandi sagðist hún óttast að
þurfa að leysa heimilið upp,“ segir
Sigrún.
Sigrún segir „kerfið“ lítinn sem
engan áhuga hafa á að heyra raddir
fátækra. Margir vilji ekki heyra
minnst á orðið fátækt og vandamálið
sé því falið. Hún hafi talað við for-
mann félagsmálaráðs, sem hafi bent
á Félagsþjónustuna og sagt hana
ætla að aðstoða þá sem verst fari út
úr leiguverðsbreytingunum. Sigrún
segir Félagsþjónustuna hafa þröng
viðmiðunarmörk á sinni aðstoð og í æ
ríkara mæli bendi starfsmenn Fé-
lagsþjónustunnar fólki á að leita til
hjálparstofnana og félagasamtaka.
Formaður Samtaka gegn fátækt um breytt leiguverð
Eykur þjáningar fólks
sem eru nægar fyrir
GUÐNI Ágústsson, kallinn sem
sagði „obbobbobb, bíðiði nú við“,
eins og hann kynnti sig sjálfur,
snæddi lambakjöt með nemendum
Háteigsskóla í hádeginu í gær.
Matsveinn skólans bauð landbún-
aðarráðherranum í heimsókn til að
leggja áherslu á mikilvægi þess að
borða lambakjöt, þar sem sala á
lambakjöti hafi dregist saman und-
anfarin ár og börnin séu neyt-
endur framtíðarinnar.
„Ég er hingað kominn til að sjá
hvort þið séuð ekki að borða góðan
og hollan íslenskan mat. Undir-
staðan, til að vera góð í fótbolt-
anum, söngnum, öllum íþróttum og
til að sigra, er góður matur,“ sagði
ráðherra og spurði hvort krakk-
arnir væru ekki öll úr sveit. Þau
kepptust við að kalla til hans hvert
þau ættu ættir að rekja, norður,
austur og vestur á land. „Þið þekk-
ið marga bændur og þeir eru að
framleiða góða vöru, kjötið og
kartöflurnar. Það er óskaplega
mikilvægt að borða góðan mat til
að verða stór og sterkur og geta
lært mikið í framtíðinni.“
Sagðist Guðni hafa svolitlar
áhyggjur af því að krakkar borð-
uðu ekki nógu hollan mat og sagði
að leitað væri leiða til að kenna
börnum að borða kjöt, ost og
drekka mjólk, sem sé gott fyrir
beinin. „Við úr landbúnaðarráðu-
neytinu erum komin til ykkar til að
borða með ykkur eina máltíð. Ég
er kominn til að læra af ykkur. Þið
eigið að segja mér hvað ykkur
finnst að. Er þetta ekki góður mat-
ur?“ spurði ráðherrann. „Ég fæ
mér lambakjöt í staðinn fyrir laug-
ardagsnammi!“ kallaði einn nem-
enda úr salnum. Var ráðherra
ánægður að heyra þetta, sagði að
hann ætti eftir að enda í landslið-
inu þessi.
Alltaf mikil eftirvænting
þegar kjöt er á boðstólum
Krakkarnir sem blaðamaður
ræddi við sögðu að lambakjöt væri
gott á bragðið. Uppáhalds-
maturinn væri pizza, lambakjöt,
hamborgari, kjúklingur, grjóna-
og hafragrautur. „Allt nema fisk-
urinn heima hjá mömmu!“ sagði
einn nemendanna þegar hann var
spurður um hvaða matur væri í
uppáhaldi. Einn sagðist heldur
vilja laugardagsnammi en lamba-
kjöt og sagði annar að hann fengi
hvort tveggja.
Það var að frumkvæði Þrastar
Harðarsonar, matsveins skólans,
sem landbúnaðarráðherra var boð-
ið í mat í mötuneyti Háteigsskóla.
„Ég hef aðeins verið í sambandi
við framkvæmdastjóra Lands-
sambands sauðfjárbænda um bæði
að reyna að fá lambakjöt á lægra
verði inn í skólana og fá betri hluta
af kjötinu. Síðan hefur verið í um-
ræðunni undanfarin ár að lamba-
kjötsneysla hafi minnkað á síðustu
20 árum úr um 45 kg á mann á ári
niður í 25 kg. Hérna er ég að
kynna ráðherra hvernig yngstu
börn skólanna, sem eru lamba-
kjötsneytendur framtíðarinnar,
taka lambakjötinu og hvað þau eru
að borða. Þau eru mjög hrifin, það
er mikil eftirvænting alltaf á föstu-
dögum en þá býð ég upp á ein-
hvers konar steik, lamb, svín eða
kjúkling,“ segir Þröstur.
Hann segir mikilvægt að börnin
fái holla og undirstöðugóða máltíð,
ef börnin eru velstemmd og þeim
líði vel nái þau betri árangri.
Morgunblaðið/Sverrir
Börnunum í Háteigsskóla fannst gaman að fá ráðherra í heimsókn, vildu ólm fá eiginhandaráritun og tala við hann.
Kallinn sem sagði „obbobbobb“ snæddi lambakjöt með nemendum Háteigsskóla
Vill frekar fá lambakjöt
en laugardagsnammi
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands
dæmdi í gær 19 ára pilt í eins árs
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
þremur börnum, þar af tveimur
frænkum sínum, í fyrra og hittifyrra.
Börnin voru þriggja til fimm ára er
brotin voru framin.
Ákærði játaði brotin og einnig að
hafa stolið bifhjóli og að hafa ekið bif-
reið ölvaður án ökuleyfis. Fangels-
isrefsing ákærða var skilorðsbundin,
en auk hennar var ákærði dæmdur
til að greiða tveimur barnanna 900
þúsund krónur í miskabætur auk 450
þúsund króna í sakarkostnað og
þóknun réttargæslumanna þeirra.
Ákærði sem er greindarskertur
var talinn sakhæfur og iðraðist hann
gerða sinna. Var hann samvinnuþýð-
ur við alla meðferð málsins og tók
dómurinn tillit til þess.
Dómurinn var fjölskipaður þrem-
ur dómendum, þeim Ingveldi Ein-
arsdóttur héraðsdómara og með-
dómendunum Tómasi Zoëga
geðlækni og Rögnu Ólafsdóttur sál-
fræðingi.
Verjandi ákærða var Sigurður
Sveinsson hdl. Málið sótti Ragnheið-
ur Harðardóttir saksóknari hjá rík-
issaksóknara.
Eins árs
fangelsi fyr-
ir kynferð-
isbrot gegn
börnum
ÖKUMAÐUR var fluttur á slysa-
deild Landspítalans eftir árekstur
tveggja bifreiða á Miklubraut klukk-
an 15 í gær. Meiðsl hans munu ekki
hafa verið alvarlegs eðlis.
Við áreksturinn þeyttist bifreið
mannsins upp á umferðareyju og
valt. Hin bifreiðin þeyttist í gegnum
girðingu milli akgreina og fyrir bíla
sem komu úr gagnstæðri átt. Þykir
mildi að hún skyldi ekki lenda á bif-
reiðum sem þar voru á ferð. Öku-
maður hennar slapp ómeiddur.
Litlar umferðartafir urðu á meðan
lögregla og sjúkralið unnu á vett-
vangi.
Bílvelta á
Miklubraut
♦ ♦ ♦