Morgunblaðið - 19.10.2002, Page 10

Morgunblaðið - 19.10.2002, Page 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞORGERÐUR K. Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er fyrsti flutningsmaður þingsályktun- artillögu, sem lögð hefur verið fram á Alþingi, um að samgönguráðherra verði falið að gera úttekt á jarðganga- kostum, mögulegum brúarmann- virkjum og öðrum stórframkvæmd- um sem ráðast þyrfti í á næstum árum í vegagerð á höfuðborgarsvæð- inu. Meðflutningsmenn eru Ásta Möller, Katrín Fjeldsted og Lára Margrét Ragnarsdóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Í tillögunni seg- ir einnig að ráðherra skuli í samráði við sveitarfélög á höfuðborgarsvæð- inu gera tillögu að forgangsröðun þessara verkefna. „Úttektin ásamt tillögu um forgangsröðun verkefna verði lögð fyrir Alþingi í síðasta lagi 1. nóvember 2003.“ Í greinargerð þingsályktunartillög- unnar segir m.a. að megintilgangur hennar sé að stuðla að því að ráðist verði í vinnu sem nauðsynleg er til að unnt verði að öðlast heildarsýn yfir nauðsynlegar stórframkvæmdir í vegagerð á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum og áratugum. „Mikilvægi greiðra samgangna á þessu svæði er öllum ljóst. Sú vinna sem tillagan ger- ir ráð fyrir er forsenda þess að unnt sé að móta skýra stefnu um fram- kvæmdir í vegagerð á svæðinu.“ Þá er m.a. bent á að betri samgöngumann- virkjum fylgi aukið umferðaröryggi. Úttekt verði gerð á vegamálum í höfuðborginni ÞRIÐJA þingvikan á þessulöggjafarþingi er liðin. Erég ekki frá því að hún hafiverið með rólegasta móti; að minnsta kosti sé tekið mið af því sem gerðist eða gerðist ekki í sjálfum þingsalnum. Umræður voru oft helst til bragðdaufar, að mínu mati, og þeg- ar forvitinn þingfréttamaður læddist út á þingpallana til að líta yfir salinn kom skýringin í ljós. Fáir ef þá nokkrir voru í þingsalnum fyrir utan ræðumanninn sjálfan, þingforsetann og þingvörðinn. Þingmaðurinn í pontu þrumaði því yfir nánast tómum salnum. Nær væri því að kalla þing- ræðuna hans einræðu eða eintal. Ég hugsa að óáhugavert umfjöll- unarefni þingmannanna sé ekki skýr- ing einræðnanna. Ástæðuna má miklu fremur rekja til þess hve marg- ir þingmenn eru um þessar mundir að undirbúa prófkjör. Þeir hafa því væntanlega um ýmislegt annað að hugsa en þingræður … eða eigum við að segja einræður á þingi. (Eflaust hafa þó margir þingmenn fylgst með ræðunum í sjónvarpi í þing- herbergjum sínum. Að því leyti er kannski ekki alveg sanngjarnt að tala um einræður.)    En talandi um prófkjör. Það hef-ur verið áhugavert að fylgjastmeð því undanfarin misseri hvernig þingmenn hafa smám saman lagað sig að nýju kjördæmaskipaninni. Eins og alkunna er verður kosið sam- kvæmt henni í næstu alþingiskosn- ingum, hinn 10. maí nk. Kjördæmi landsins verða með öðrum orðum sex í stað átta; þrjú stór landsbyggð- arkjördæmi og þrjú kjördæmi á suð- vesturhorni landsins. Þingmenn hafa vafalaust nýtt tím- ann vel síðustu mánuði og jafnvel ár til að setja sig inn í málefni nýrra kjördæma. Ekki síst landsbyggð- arþingmenn, þ.e. þeir sem ekki til- heyra Reykjavíkurkjördæmunum, þar sem þeir munu tilheyra stærri kjördæmum en áður. Og í umræðum á Alþingi og með nýjum þingmálum reyna þeir, að sjálfsögðu, að höfða til nýrra kjósenda í breyttum kjör- dæmum. Þannig verður æ algengara að heyra þingmenn úr Vesturlands- kjördæmi, svo dæmi sé tekið, tjá sig um mál í Vestfjarðakjördæmi (og öf- ugt) enda mun hið svokallaða Norð- vesturkjördæmi samanstanda af Vesturlandi, Vestfjörðum og Norður- landi vestra, án Siglufjarðar. Í vik- unni var t.d. rætt um Orkubú Vest- fjarða og hugsanlegan flutning höfuðstöðva þess, í fyrirspurnartíma á Alþingi. Þar tóku ekki einungis Vestfjarðaþingmenn til máls, en fyr- irhuguð breyting á rekstri Orkubús- ins er afar umdeild á Vestfjörðum, heldur fóru einnig í pontu þingmaður Vesturlands, Jóhann Ársælsson, og þingmaður Norðurlands vestra, Jón Bjarnason. (Ég er þó ekki með þessu dæmi að segja að þingmenn geti ekki haft áhuga á öðrum málefnum en þeim sem tengjast þeirra eigin kjör- dæmum en óneitanlega vekur það at- hygli oft og á tíðum hve þingmenn einbeita sér mikið að sínum eigin kjördæmum.)    Og þar sem ég er farin að fjallaum kjördæmi er ekki úr vegiað geta þess að svokölluð kjördæmavika verður á Alþingi næstu vikuna. Þing kemur því ekki aftur saman fyrr en þriðjudaginn 29. október nk. Kjördæmavika er haldin einu sinni á ári, venjulega síðustu vik- una í októbermánuði. Þá viku eiga þingmenn að nýta til að fara í kjör- dæmin sín og hitta þar sveit- arstjórnir, fulltrúa fyrirtækja og kjósendur almennt. Ég geri ráð fyrir því að þingmenn noti þetta tækifæri vel til að kynna sig í sínu gamla og nýja kjördæmi, ekki síst í ljósi próf- kjörsbaráttunnar sem nú fer í hönd. En auðvitað er kjördæmavikan sem og kosningaveturinn allur einstakt tækifæri fyrir kjósendur líka; nú er góður tími fyrir kjósendur að koma sínum málum á framfæri við þing- menn og aðra frambjóðendur. Við skulum reyna að fanga athygli stjórn- málamannanna á meðan einræðurnar fara fram á þingi!      Einræður á þingi EFTIR ÖRNU SCHRAM ÞINGFRÉTTAMANN arna@mbl.is RÓLEGT var yfir þinghaldinu í vik- unni og oft mátti sjá nánast tóman þingsal eins og á myndinni, en þar er Steingrímur J. Sigfússon, þing- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, í pontu. Sennilega er þetta þó bara lognið á undan storminum enda kosningar næsta vor. Í næstu viku verður svokölluð kjördæmavika og síðan tekur við Norðurlandaráðsþing. Næsti þing- fundur hefur því ekki verið boð- aður fyrr en 29. október nk. Morgunblaðið/Sverrir Lognið á undan storminum? ÖSSUR Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutn- ingsmaður lagafrumvarps sem lagt hefur verið fram á Alþingi um að fé- lagsgjöld sem launþegar greiða til stéttarfélaga verði frádráttarbær frá skatti. Meðflutningsmenn eru Mar- grét Frímannsdóttir, Jóhanna Sig- urðardóttir og Sigríður Jóhannes- dóttir, þingmenn Samfylkingar- innar. Í greinargerð frumvarpsins segir að yfirskattanefnd hafi markað þá stefnu að félagsgjöld sem fyrirtæki greiði til samtaka atvinnurekenda megi draga frá tekjuskattsstofni. „Félagsgjöld sem launþegar greiða til stéttarfélaga sinna hafa hins veg- ar ekki verið frádráttarbær frá skatti fram að þessu. Flutningsmenn telja engin rök fyrir því misræmi. Það felur í sér ranglæti, jafnt gegn launamönnum sem verkalýðshreyf- ingunni og stenst varla jafnræðis- reglu.“ Félagsgjöld verði frá- dráttarbær frá skatti MARGRÉT Frímannsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, vakti at- hygli á því í fyrirspurnartíma á Al- þingi í vikunni að það væri vaxandi vandamál á sjúkrahúsum landsins að fólk í harðri fíkniefnaneyslu væri lagt inn á almennar deildir vegna annarra sjúkdóma. „Ekki er langt síðan kalla þurfti til lögreglu vegna þess að fíkniefna- neytandi sem var á almennri deild á sjúkrahúsi hafði gert atlögu að lyfja- skáp sjúkrahússins,“ sagði hún. Beindi hún þeirri fyrirspurn til Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra hvort hann myndi beita sér fyrir því að öryggisgæsla á sjúkrahúsum yrði hert. Jón Kristjánsson sagði að fyrir- spurn Margrétar varpaði ljósi á þær áhyggjur sem margir hefðu nú um stundir af fjölgun innbrota og þjófn- aða á sjúkrastofnunum. „Þetta eru aðstæður sem nauðsynlegt er að koma í veg fyrir eins og framast er unnt og hafa þessi mál verið rædd við stjórnendur stofnananna,“ sagði hann. Ráðherra fór yfir öryggisráð- stafanir á einstökum sjúkrastofnun- um á landinu og tók fram að þær væru misjafnar. „Ekki eru jafnmikl- ar öryggisráðstafanir á öllum stofn- unum en víða er þó verið að efla margs konar eftirlit.“ Hann sagðist að lokum styðja áform um aukna ör- yggisgæslu á sjúkrastofnunum í samræmi við vaxandi þörf en ákvarðanir um hvernig slíkt yrði gert lægju ekki fyrir. Áhyggjur af fjölg- un innbrota á sjúkrastofnunum KATRÍN Fjeldsted, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mælti í vikunni fyrir tillögu til þingsályktunar um neysluvatn. Í meginefni tillögunnar er lagt til að því verði beint til rík- isstjórnarinnar að neysluvatn verði í fyrsta lagi skilgreint sem auðlind í lögum, að málefni þess verði í öðru lagi vistuð á einum stað í stjórnsýsl- unni og í þriðja lagi að stuðlað verði að útflutningi á fersku neysluvatni í sam- starfi við vatnsútflutningsfyrirtæki og sveitarfélög. Í greinargerð tillögunnar segir að sú merka auðlind sem felist í fersku lindarvatni sé ekki öllum ljós. „Þó er vitað að við Íslendingar eigum yfir að ráða mun meira vatni en við þurfum sjálf á að halda þótt vatnsskorts geti gætt á einstaka stað á landinu. Samt er það svo að auðlindin er munaðar- laus og hvergi vistuð í stjórnsýslunni þar sem engin ein stofnun fer með markvissa ráðgjöf eða heldur utan um málefni hennar.“ Síðan segir: „Mikilvægt er að um- gangast þessa auðlind þannig að kom- andi kynslóðir eigi aðgang að fersku neysluvatni í framtíðinni því þrátt fyr- ir gnægð þess núna er ferskt vatn á Íslandi ekki ótakmörkuð auðlind.“ Neysluvatn verði skil- greint sem auðlind í lögum ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.