Morgunblaðið - 19.10.2002, Side 20

Morgunblaðið - 19.10.2002, Side 20
SUÐURNES 20 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ TILBOÐSDAGAR Ármúla 21, 108 Reykjavík Sími 533 2020 Fax 533 2022 www.vatnsvirkinn.is FERBOX HORN OG HURÐAR EINNARHANDATÆKI KLUDI - FELIU - HUBER WC INDUSA OG IFÖ HANDLAUGAR INDUSA OG IFÖ HITASTILLITÆKI HUBER - KLUDI - MORA Sturtuhorn frá kr. 17.614 Sturtuhurðar frá kr. 13.334 Baðkarshurðar frá kr. 6,934 Handlaugatæki kr. 4.975 Eldhústæki frá kr. 6.046 Indusa með setu kr. 14.713 Ifö með setu kr. 23.601 Sturtutæki frá kr. 9.206 Baðtæki frá kr. 10.510 Á vegg frá kr. 2.221 Í borð frá kr. 7.048 „ÉG sem formaður nemendaráðs þarf að læra að stjórna hópnum, vita hvernig á að gera hlutina,“ sagði Lilja Karen Steinþórsdóttir úr Keflavík, þátttakandi á ung- mennanámskeiði sem Samtök fé- lagsmiðstöðva á Suðurnesjum hélt í félagsheimilinu Glaðheimum í Vogum í gær. Námskeiðið er ætlað fyrir full- trúa í nemendaráðum grunnskól- anna og unglingaráðum fé- lagsmiðstöðvanna á Suðurnesjum. Tilgangurinn er að aðstoða ung- lingana við að takast á við verk- efni sín í vetur. Alls sóttu hátt í 80 manns námskeiðið í gær, nem- endur og leiðbeinendur af öllum Suðurnesjum. Hóparnir kynna starfið í sínu félagi, fyrirlesarar fjalla um ýmsa þætti starfs nem- endaráðanna og þátttakendur bera saman bækur sínar. Lilja Karen er 15 ára, formaður nemendaráðs Heiðarskóla og for- maður unglingaráðs félagsmið- stöðvarinnar Fjörheima í Reykja- nesbæ. Hún segist hafa boðið sig fram til formennsku í nem- endaráðinu og náð kosningu. Því embætti fylgi seta í unglingaráði Fjörheima og þar hafi hún síðan verið kosin formaður. Það er því mikið að gera hjá Lilju í vetur. Hún segist hafa mikinn áhuga á félagsmálum, og bætir við að hún sé kannski að feta í fótspor föður síns í því efni. Þess má geta að Lilja er dóttir Steinþórs Jóns- sonar hótelstjóra sem hefur beitt sér fyrir ýmsum framfaramálum á Suðurnesjum. Lilja Karen segir að auk fé- lagsstarfsins hafi hún áhuga á að auka vellíðan krakkanna í skól- anum, auka samstarf og gera góðan bæ betri. Hún segir að fulltrúar í nemendaráðinu séu opnir fyrir hugmyndum krakk- anna í skólanum og reyni að framkvæma það sem þau hafi áhuga á. Óskar Pétursson er 13 ára, gjaldkeri nemendaráðs Grunn- skóla Grindavíkur sem gegnir jafnframt hlutverki unglingaráðs félagsmiðstöðvarinnar Þrumunn- ar. „Ég bauð mig fram, langaði að prófa hvernig væri að starfa í nemendaráðinu. Það er mjög gaman,“ segir Óskar. Hann segir að embættinu fylgi töluvert starf. Nefnir að þau hafi verið að mála uppi í Þrumu og svo þurfi að gefa út fréttabréf og fleira. Óskar segir að hópurinn úr Grindavík sé kominn á nám- skeiðið til að kynna starf sitt og til að læra hvernig eigi að starfa á fundum og skipuleggja uppá- komur. Hann segir að gaman sé að vera á námskeiði af þessu tagi. Þátttakendur fylgjast með kynningu á ungmennanámskeiði SamSuð í Vogum. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Lilja Karen Steinþórsdóttir og Óskar Pétursson úti í sólinni. Þarf að læra að stjórna hópnum Vogar LITBOLTAFÉLAG Suðurnesja hefur fengið leyfi bæjarráðs Reykjanesbæjar til að nota land á Njarðvíkurheiði til að stunda íþrótt sína. Vonast forráðamenn félagsins til að önnur nauðsynleg leyfi fáist í vetur þannig að unnt verði að hefja starfsemi þar í vor. Litbolti (e. paintball) snýst um að þátttakendur skjóta á mótherja sína með merkibyssum sem hlaðn- ar eru málningarkúlum. Iðkendum íþróttarinnar hefur fjölgað mjög hér á landi en þeir hafa haft að- stöðu hjá fyrirtæki í Kópavogi. Svæðið sem Litboltafélag Suð- urnesja hefur fengið til umráða er nálægt vegamótum Grindavík- urvegar, fyrir ofan Seltjörn. Þar eru rústir bandarísks hersjúkra- húss. Félagið fær landið í kringum rústirnar og segir Bjarni Ein- arsson, einn af forystumönnum fé- lagsins, að litboltavellir verði sett- ir upp í móanum og hugsanlega verði rústirnar einnig notaðar. Hann telur að í framhaldinu verði reynt að koma upp annarri að- stöðu, svo sem salernum og við- gerðaraðstöðu, en það bíði betri tíma. Rúmlega 200 félagar eru í Lit- boltafélagi Suðurnesja, ekki ein- ungis fólk af Suðurnesjum heldur af höfuðborgarsvæðinu og víðar. Telur Bjarni að eigin aðstaða fé- lagsins verði íþróttinni mjög til framdráttar. Morgunblaðið/Ómar Áhlaup að hefjast í litboltakeppni. Slík aðstaða verður á Njarðvíkurheiði. Litboltamenn fá aðstöðu fyrir keppnisvelli Njarðvíkurheiði SAMKOMULAG hefur náðst milli Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar, Gerðahrepps og Vatnsleysustrand- arhrepps um samstarf um meðferð barnaverndarmála. Kosin verður sameiginleg barnaverndarnefnd. Vegna nýrra laga hafa sveitar- félög með færri en 1.500 íbúa ekki heimildir til að starfrækja eigin barnaverndarnefndir. Sveitarfélögin þrjú á Suðurnesjum sem ekki ná til- skyldum lágmarksfjölda íbúa, Sand- gerðisbær, Gerðahreppur og Vatns- leysustrandarhreppur, óskuðu eftir samvinnu við bæjarstjórn Reykja- nesbæjar um málið. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að kosin verði sameiginleg sjö manna barnaverndarnefnd. Reykja- nesbær skipi fimm fulltrúa og jafn- marga til vara, Sandgerði einn og annan varamann, Gerðahreppur einn aðalfulltrúa og Vatnsleysu- strandarhreppur varafulltrúa hans. Frá því er gengið að fulltrúi Vatns- leysustrandarhrepps taki sæti í nefndinni þegar málefni er snerta það byggðarlag eru á dagskrá funda nefndarinnar. Ef mál sem varða öll sveitarfélögin eru á dagskrá víkur einn fulltrúi Reykjanesbæjar. Hvert sveitarfélag ber kostnað af sínum nefndarmanni. Þá greiða sveitarfélögin kostnað við mál er þau varða, samkvæmt reikningi fjöl- skyldu- og félagsþjónustu Reykja- nesbæjar. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, telur að með þessu samkomulagi sé fundin farsæl lausn á viðkvæmu máli. Hann segir að búið sé að senda samningsdrögin til stað- festingar félagsmálaráðuneytis en bæjarráð Reykjanesbæjar sam- þykkti þau fyrir sitt leyti, með fyr- irvara um samþykki ráðuneytisins. Kosin sameiginleg barna- verndarnefnd fjögurra bæja Suðurnes Skífuþeytarinn Tommi White mun skemmta gestum Bláa lónsins frá kl. 14 til 16 í dag, laugardag. Tónlistaratriðið verður utandyra og geta baðgestir því notið tónlistar- innar meðan þeir slaka á í hlýju lón- inu. Atriðið er hluti af Airwaves- tónlistarhátíðinni. Strengjamóti því sem nú stendur yfir í Reykjanesbæ lýkur með mót- stónleikum í Íþróttahúsinu við Sunnubraut í Keflavík, kl. 14 á sunnudag. Mótið sem haldið er á vegum Tónlistarskóla Reykjanes- bæjar og foreldra nemenda sem læra á strengjahljóðfæri hófst í gær. Það sækja um 160 nemendur frá 9 tónlistarskólum. Í DAG ÓHAPPIÐ sem varð við Kúagerði síðastliðinn miðvikudag þegar fær- anlegt sjúkrahús Björgunarsveitar- innar Suðurnesja fór út af Reykja- nesbrautinni verður tekið til gagngerrar skoðunar hjá björgunar- sveitinni með það í huga að reyna að koma í veg fyrir að slíkt geti gerst aftur. Fram kemur í tilkynningu upplýs- ingafulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar að kerran hafi verið innan við ársgömul og með öllum þeim öryggisbúnaði sem krafist er, meðal annars með bremsur á hjólum og öryggisvír í bíl. Bremsurnar hafi virkað en vírinn slitnað með þeim af- leiðingum að kerran fór strax yfir á öfugan vegarhelming og út af veg- inum. Í kerrunni var færanlegt sjúkra- hús, það eina sinnar tegundar hér á landi. Kerran er talin ónýt en tækin að mestu óskemmd. Tækin að mestu óskemmd Reykjanesbraut KENNSLA er að hefjast á nýjan leik í endurhæfingarsambýli Byrg- isins í Rockville í samvinnu við Fjöl- brautaskóla Suðurnesja í Keflavík. Skólastarfið hófst í Rockville í jan- úar með kennslu í einum áfanga á vorönn, lífsleikni 103. Um var að ræða nokkurs konar tilraunaverk- efni sem átta nemendur tóku þátt í, og þrír þeirra útskrifuðust svo í maí s.l. Á haustönn 2002 eru 18 nemendur í endurhæfingarmeðferð skráðir í námið og verða kenndir 3-4 áfangar, íslenska, enska, stærðfræði og sam- félagsfræði. Skólinn er mikilvægur hluti af endurhæfingu skjólstæðing- anna, segir í fréttatilkynningu frá Byrginu, en flestir þeirra eru án framhaldsmenntunar og um 20% hafa ekki lokið grunnskólaprófi. Samkvæmt upplýsingum Byrgis- ins hefur fíkniefnaneysla ungmenna aukist mjög mikið á þessu ári. For- ráðamenn sambýlisins telja nauð- synlegt að grípa inn í þetta ferli með því að veita unga fólkinu uppbyggi- legt og áhugavert meðferðarúrræði og að námið sé áhrifaríkur þáttur í því að þroska einstaklinginn fé- lagslega, þjálfa samskipti og tján- ingu og byggja upp sjálfsvirðingu. 70 einstaklingar dvelja nú í með- ferðarheimili Byrgisins í Rockville. Mikil eftirspurn er eftir meðferð og er stefnt að því að meðferðarpláss verði allt að 100 – 120 talsins um næstu áramót, að því er fram kemur. Átján skráð- ir í nám í Byrginu Rockville

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.