Morgunblaðið - 19.10.2002, Side 22

Morgunblaðið - 19.10.2002, Side 22
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Krásarmenn á Selfossi, frá vinstri, Anton Hartmannsson, Sigurfinnur Garðarsson, Guðmundur Geirmundsson og Björn Ingi Björnsson. „VIÐ höfum haldið okkar striki, fé- lagarnir, erum ekki á höfuðborg- armarkaðnum með okkar vörur og stöndum ekki í verðstríði í versl- unum,“ sagði Björn Ingi Björnsson hjá Krás ehf. sem er kjötvinnsla á Selfossi þar sem starfa fimm kjöt- iðnaðarmenn. Krás er eina al- menna kjötvinnslan á Selfossi með almenna vinnslu en utan Ölfusár er Sláturfélag Suðurlands með slátur- hús og vinnslu, niðurskurð og úr- beiningu og pökkun á kjöti. Segja má að Krás hafi haldið velli á mikl- um umbrotatímum síðustu ára í kjötvinnslumálum á Selfossi. „Það má segja að það sé fjöl- breytnin sem heldur okkur gang- andi, það er eins og þeir smæstu og stærstu haldi velli,“ segir Björn og vitnar til þess að kjötvinnsla Hafn- ar og kjötvinnsla KÁ hafi verið lagðar niður á síðustu árum en starfsmenn Krásar störfuðu allir í kjötvinnslu Hafnar á sínum tíma. Núna standi þeir eftir ásamt SS. Að vonum sjá þeir félagar eftir hinni miklu gósku sem var í kjöt- vinnslu á Selfossi og þeirri vinnu sem það veitti í samfélagið þegar allar vinnslustöðvarnar voru í full- um gangi og tvö sláturhús á svæð- inu. „Við seljum í verslanir á Selfossi, nema Bónus, og líka mötuneyti og veitingahús á Suðurlandi. Svo vinnum við töluvert fyrir einstak- linga og tökum gjarnan svína- skrokka og hlutum þá niður að ósk fólks þannig að kjötið er tilbúið í kistuna og þaðan beint í elda- mennskuna. Þetta kann fólk að meta. Svo reykjum við lambakjöt og líka fisk. Þetta er alveg passleg eining hjá okkur þar sem við skiptum verkum á milli okkar, það hefur verið stöð- ug vinna, svona með gusum á köfl- um svo sem þegar Höfn hætti,“ segir Björn sem er í fyrirsvari fyrir þá félaga. Þeir segja hann hafa tit- ilinn sendiherra enda fái hann að keyra út kjötið á sendibílnum. Krás ehf. á Selfossi lifði af umbrotatíma í kjötvinnslumálum Fjölbreytnin heldur okkur gangandi Selfoss ÁRBORGARSVÆÐIÐ 22 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Uppskeru- hátíð íþróttafólks Ungmennafélag Stokkseyrar hélt nýlega uppskeruhátíð þar sem saman voru komnir yngri flokkar félagsins í knattspyrnu og þátttak- endur í Strandahlaupinu. Í því eru hlaupnir 800 metrar fjórum sinn- um og þarf að hlaupa minnst þrisv- ar sinnum til að hljóta viðurkenn- ingu. Einnig eru veitt verðlaun fyrir besta tíma karla og kvenna. Fram kom að félagið var með 2 flokka í knattspyrnu í sumar, 5. og 6. flokk. Tók hvor flokkur fyrir sig þátt í Borgarnesmótinu. Lenti 6. flokkur í 2. sæti á báðum mótum og 5. flokkur náði viðunandi árangri. Veitt voru verðlaun fyrir mestu framfarir í sumar, prúðmennsku og efnilegustu leikmenninrnir voru valdir. Að verðlaunaafhendingu lokinni bauð félagið öllum upp á pitsur og gos. Einnig voru þeim, sem voru duglegir að mæta á fótboltaæfing- ar í sumar, gefnir fótboltar. Nú fer vetrarstarfið af stað með æfingum í knattspyrnu, leikjanámskeiði fyr- ir yngstu börnin, ásamt mörgu fleiru. Stokkseyri „ÉG hef séð fátæktina og það pirrar mig að sjá fólk fá þessi lágu laun af því að ég veit hvernig er að lifa af þeim, en meðal þessa fólks er mikil rausn. Ég veit um ellilífeyrisþega sem fær 70 þúsund á mánuði og hann réttir öðrum 5 þúsund krónur af því sá er aðeins með 50 þúsund á mánuði. Þetta horfir maður á,“ seg- ir Jósep Helgason á Selfossi, sem um árabil hefur verið málsvari þeirra sem hafa lægstu launin í þjóðfélaginu og þeirra sem eiga við áfengisvandamál að stríða. Jósep er þekktur í samfélaginu á Selfossi en á hverjum degi nýtir hann reiðhjólið sitt til líkamsræktar og hjólar umhverfis bæinn tvisvar á dag. Á þeirri leið hittir hann marga og tekur gjarnan spjall við sam- ferðamenn sína í samfélaginu og liggur ekki á skoðunum sínum, enda margfróður um aðstæður þeirra sem minna mega sín. „Það er dýrmætt að finna góðleikann þegar manni er heilsað og svo eru svo margir tilbúnir að staldra við og spjalla,“ segir Jósep og minnir á nauðsyn nálægðar í samfélaginu. „Ég er núna fyrst og fremst að hugsa um heilsuna, að hafa hana góða. Maður verður að læra að við- urkenna að maður er ekki 100% og svo að nota það sem maður hefur til að láta sér líða vel. Geti maður það ekki er hætt við að falla í þunglyndi og erfiðleika á sálinni. Þú ferð nefnilega ekki út í búð til að kaupa þér hamingju, hana verður maður að skapa sjálfur og sætta sig við líf- ið. En það gerir það enginn einn. Ég hef verið giftur í 50 ár, konu minni Þuríði Blöku, og það er stórkostlegt sem makinn gerir fyrir mann. Mað- ur gerir hlutina nefnilega aldrei einn, maður þarf alltaf að leita til annarra,“ segir Jósep. Á skrifborði Jóseps liggja alltaf fjórar bækur, sú elsta er frá 1942. Í þessar bækur hefur hann skráð alla þá peninga sem hann hefur aflað. Segja má að þetta séu hans sögu- bækur. Á fyrstu blaðsíðunni er skrá yfir laun hans þegar hann var 18 ára á Þingeyri, alls kr. 3.398. Hann skráir einnig allan kostnað heimilis- ins, rafmagn, hita og símakostnað. „Ég er að þessu af því að mér finnst þetta svo gaman. Þetta er eins kon- ar safn sem mér finnst gaman að glugga í og þá rifjast upp þessir tímar sem ég dett inn á í bókunum. Svo á ég líka öll skattframtölin mín sem ég kíki í af og til og rifja upp tímana. Þegar ég hætti drykkjuskap átti ég erfitt með svefn á nóttunni. Þá fór ég í ferðalög í huganum um staði sem ég þekki, inn á hvert heimili á Þingeyri eins og þau voru 1942. Þetta hjálpaði mér með svefn og gerir enn en núna er bara verst að ég kemst svo fjandi stutt, er bara sofnaður strax. Svo gerði ég það að gamni mínu að lesa þetta hugarflug inn á segulband og spila fyrir systk- ini mín og þeim fannst stórkostlegt að hlusta á þetta,“ segir Jósep. Hann var einn af stofnendum SÁÁ og hefur mikið komið að þeim málum og lagt mörgum manninum lið í þeirri baráttu. „Ég þekki þetta af eigin raun og við sem erum þann- ig viljum og getum hjálpað fólki. Ég fæ svo mikið þakklæti þegar ég heyri að einhver er að taka á sínum málum því þá veit ég að Guð almátt- ugur hefur ýtt við honum. Trúin er alls staðar og hún verður að vera til staðar á hverju sem gengur. Menn verða að hafa trú á því sem þeir gera. Menn eignast ekki trúna nema með bæninni og því að læra að nota hana. Honum, sem leysir úr bæn- inni, er sama hvar þú ert staddur, hann gerir ekki greinarmun á því. Ef þig langar til að eignast líf án kvaða þarftu að nota það að tala við þann sem þú trúir á. Það trúa ekki allir á það sama en ég vil að við get- um lifað saman burtséð frá því hvað hver og einn trúir á, en ef ég veit að þú trúir þá líður mér vel. Við eigum að nota bænina alls staðar, til dæm- is í umferðinni, og ég segi við fólk: Farðu aldrei inn í bílinn án þess að leggja verk þín í hendur almætt- isins. Ég hef gert þetta og það gefst vel,“ segir Jósep Helgason, verka- maður og eldri borgari á Selfossi. Menn verða að hafa trú á því sem þeir gera Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Selfoss Jósep Helgason gluggar í „sögubækurnar“ við eldhúsborðið heima hjá sér. Margt um að vera á skóla- afmæli BARNASKÓLINN á Eyrarbakka og Stokkseyri (BES) verður 150 ára 25. október nk. Hann er elsti starfandi grunnskólinn í landinu. Af þessu tilefni hafa verið í und- irbúningi ýmsir atburðir. Hafin er ritun sögu Barnaskól- ans á Eyrarbakka og Stokkseyri, Árni Daníel Júlíusson sagnfræðing- ur ritar söguna og er áætlað að hún komi út vorið 2003. Árið 1952 kom út 100 ára saga skólans sem skrifuð var af Árelíusi Níelssyni. Skipulögð hefur verið fyrirlestraröð um fræðslu og menningu og verður fyrsti fyrirlesturinn haldinn fimmtudagskvöldið 24. október. Opnuð verður sýning á gömlum skólamunum og ljósmyndum í Óð- inshúsi (Pakkhúsinu) á Eyrar- bakka. Sýningin stendur frá 24. október til 3. nóvember. Veitinga- staðirnir Rauða húsið á Eyrar- bakka og Við fjöruborðið á Stokks- eyri munu verða með sýningar í tilefni afmælisins og verða þær opnar á sama tíma og veitingahús- in. Minningarskilti og hátíðardagskrá á föstudag Þemavika verður í skólunum dagana 21.–25. október. Þar verða ýmis verkefni unnin af nemendum og starfsfólki skólanna og mun hluti afrakstursins verða til sýnis í tengslum við afmælishátíðina hinn 25. október. Auk þess hefur afmæl- is skólans verið minnst á ýmsan hátt í skólunum þetta skólaár. Föstudaginn 25. október verða afhjúpuð skilti með myndum og sögu skólanna við skólahúsin á Eyrarbakka og Stokkseyri, kl.12 á Stokkseyri og kl. 16 á Eyrarbakka. Kl. 16.20 verður farin skrúðganga frá skólunum að samkomuhúsinu Stað en þar verður hátíðardagskrá frá kl.17 og kaffiveitingar í boði Sveitarfélagsins Árborgar. Forseti Íslands, biskup Íslands og mennta- málaráðherra verða meðal gesta. Allir íbúar Sveitarfélagsins Ár- borgar, sérstaklega nemendur skólanna fyrr og nú og fjölskyldur þeirra eru velkomin, segir í frétta- tilkynningu. Eyrarbakki/Stokkseyri Mótmæla lok- un pósthúss BÁRAN, stéttarfélag á Selfossi, hef- ur sent frá sér eftirfarandi áskorun: „Stjórnarfundur haldinn í Bár- unni, stéttarfélagi, 15. október 2002, skorar hér með á Íslandspóst hf. að draga til baka ákvörðun um að leggja niður afgreiðslustaði sína á Eyrarbakka og Stokkseyri, um næstkomandi áramót. Enda finnst stjórn Bárunnar nóg komið af þeirri niðurlægingu sem íbúum strandar- innar hefur verið sýnd á undanförn- um mánuðum eins og að leggja niður bæði verslunar- og bankaþjónustu þar.“ Árborg GUNNAR Gränz alþýðulistamaður á Selfossi heldur um þessar mundir sýningu á nokkrum mynda sinna í Galleríi Garði að Austurvegi 4 á Sel- fossi. Um er að ræða vatns- litamyndir og myndir unnar með öðrum aðferðum. Myndefnið sækir Gunnar meðal annars í landslagið í Árnessýslu. Gunnar hefur haldið fjölda einka- sýninga og tekið þátt í mörgum samsýningum á undanförnum árum. Sýning Gunnars sem er sölusýning er opin á afgreiðslutíma verslana í Miðgarði, húsinu að Austurvegi 4. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Nokkrar myndir á sýningunni. Alþýðulista- maður með sýningu Selfoss ♦ ♦ ♦ FOSSRAF ehf. á Selfossi afhenti Ungmennafélagi Selfoss að gjöf þjófavarnarkerfi til að setja upp í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, en brotist var inn í félagsheimilið í lok ágúst og þaðan stolið verðmætum og skemmdir unnar fyrir um hálfa millj- ón króna. Tækin sem þjófarnir höfðu á brott með sér voru stórt sjónvarpstæki fyrir samkomusali, hljómflutnings- tæki og myndbandstæki, allt gjafir sem félagið fékk að gjöf þegar fé- lagsheimilið var tekið í notkun. Inn- brotið hefur ekki verið upplýst. Fossraf hefur um árabil stutt íþróttastarf félagsins og sagðist Magnús Gíslason, framkvæmda- stjóri Fossrafs, vonast til að gjöfin kæmi sér vel, hún myndi örugglega fæla innbrotsþjófa frá húsinu ásamt því að það fé, sem annars hefði þurft að nota til að kaupa þennan búnað, nýttist til íþrótta- og félagsstarfsem- innar á Selfossi. Fengu þjófavarnarkerfi að gjöf Selfoss

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.