Morgunblaðið - 19.10.2002, Side 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SÚ mynd sem dregin er upp af Sik-
iley í kvikmyndunum um Guðföð-
urinn bendir til að þar ríði mafíósar
um héruð og geri upp fjöl-
skyldudeilur í blóðugum orrustum.
Sú mynd sem dregin er upp af Sikil-
ey í nýrri auglýsingaherferð bendir
til að eyjan sé Miðjarðarhafsparadís
þar sem strendurnar eru engu lík-
ar, grísk hof eru frá fimmtu öld og
appelsínur vaxa á trjánum.
Það er erfitt að átta sig á því hvar
skilin eru á milli ímyndar og raun-
veruleika á Sikiley, sem hefur
gegnum söguna verið aðskilin frá
„il continente“, eins og Sikileyingar
kalla meginland Ítalíu, bæði í hug-
um íbúanna og á landakortinu. En
ítölsk yfirvöld ætla nú að fara að
reyna að breyta því orði sem fer af
eynni sem kjörlendi mafíunnar með
því að leggja áherslu á að Sikiley sé
góður staður fyrir bæði ferðamenn
og kaupsýslumenn.
Í þessu augnamiði hafa stjórn-
völd hafið auglýsingaherferð og
veitt leyfi fyrir því að hrint verði í
framkvæmd þeirri gömlu hugmynd
að byggja brú á milli Sikileyjar og
meginlandsins. Segja stjórnvöld að
ferðamenn og viðskiptajöfrar muni
streyma yfir brúna og til eyj-
arinnar. En verður hægt að komast
hjá því að mafían láti líka til sín
taka?
Ýmsir óttast að útboð og bygging
brúarinnar muni spillast vegna
áhrifa mafíósanna sem hafa löngum
haft tögl og hagldir í öllum bygg-
ingaframkvæmdum á eynni. „Ef
maður setur fimm milljónir evra í
svona framkvæmd mun Mafían
hagnast gífurlega,“ sagði Gian-
franco Pasquinio, fyrrverandi öld-
ungadeildarþingmaður og fulltrúi í
opinberri nefnd sem barðist gegn
áhrifum mafíunnar á níunda og tí-
unda áratugnum.
Lofa að engin spilling verði
„Það er engin leið til að ítölsk
stjórnvöld geti ráðið þarna nokkru
um,“ sagði Pasquino í viðtali. „Þau
geta fundið heiðvirðan verktaka, en
mafían getur beitt hann fjárkúg-
unum.“ Embættismenn hafa lofað
því að fylgst verði með því að tilboð
og byggingaframkvæmdir fari
fram á heiðarlegan hátt. Pietro
Ciucci, framkvæmdastjóri ríkisfyr-
irtækisins Stretto di Messina, sem
stjórnar verkefninu, sagði að fyllsta
gegnsæis yrði gætt til að koma í veg
fyrir spillingu.
Mafían hefur að nokkru leyti
misst tökin á Sikiley undanfarinn
áratug, og hafa helstu forkólfar
hennar verið settir á bak við lás og
slá og yfirvöld hafa gert upptækar
eignir að verðmæti um 43 millj-
arðar króna, að sögn lögreglu. Að-
gerðirnar gegn mafíunni hófust eft-
ir að hún myrti tvo saksóknara sem
barist höfðu gegn henni 1992.
Morðin urðu til þess að almenn-
ingur lét í ljós svo mikla reiði í garð
mafíunnar að stjórnvöld sáu sitt
óvænna og hófu aðgerðir.
Nú, tíu árum síðar, er mafían
ekki með öllu horfin og ýmislegt
bendir til að forkólfar hennar séu
tibúnir til að láta til skarar skríða á
ný. Mafíósar sem sitja í fangelsum
hófu mótmælaaðgerðir í júlí og
kvörtuðu undan slæmum aðbúnaði í
fangelsunum, þ. á m. einangr-
unarklefum og ströngum takmörk-
unum við heimsóknum og símtölum.
Dagblaðið La Repubblica kvaðst í
síðasta mánuði hafa heimildir fyrir
því að mafían væri að undirbúa
„nýja vertíð“ blóðsúthellinga til
þess að tekið yrði eftir óánægju
mafíósanna og myndi einnig beina
spjótum sínum gegn stjórn-
málamönnum sem ekki hefðu staðið
við loforð sem þeir hefðu gefið
mafíunni.
Auglýsingaherferðin er skipu-
lögð af auglýsingaskrifstofunni
Saatchi & Saatchi og eru notaðar
myndir af baðströndum, forn-
leifauppgreftri og snævi þöktum
tindi eldfjallsins Etnu, og á hverri
mynd er falin lítil mynd af bikiní-
klæddri konu. „Sikiley er svo falleg
að við þurfum ekki að beita blekk-
ingum til að laða þig að,“ segir í
texta á myndunum.
„Ný vertíð“
á Sikiley?
Ráðist í auglýsingaherferð til að laða
að ferðafólk og kaupsýslumenn
Palermo. AP.
AP
Giuseppe Pisanu (t.h.), innanríkisráðherra Ítalíu, og framkvæmdastjóri
fyrirtækisins Stretto di Messina, Giuseppe Zamberletti, virða fyrir sér
módel af fyrirhugaðri brú á milli Sikileyjar og meginlands Ítalíu.
’ Það er engin leiðtil að ítölsk stjórn-
völd geti ráðið þarna
nokkru um. ‘
DÓMSTÓLL í Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum dæmdi á
fimmtudag Ira Einhorn, fyrr-
verandi
flóttamann
og hippaleið-
toga, sekan
um að hafa
myrt unn-
ustu sína,
Holly Madd-
ux, árið
1977. Lík-
legt þykir að
Einhorn verði dæmdur í lífstíð-
arfangelsi þar eð yfirvöld í
Pennsylvaníu samþykktu að úti-
loka þann möguleika að hann
yrði dæmdur til dauða að kröfu
franskra yfirvalda sem fram-
seldu hann í júlí 2001.
Einhorn, sem er 62 ára, hélt
fram sakleysi sínu og ætlar að
áfrýja dómnum.
Ríkisstjóri
myrtur
STJÓRNMÁLALEIÐTOGAR
í Rússlandi gagnrýndu í gær
lögregluna í Moskvu fyrir
slæma frammistöðu í baráttunni
gegn glæpum eftir að ríkisstjóri
Magadan, Valentín Tsvetkov,
var myrtur á fjölfarinni götu í
borginni. Tsvetkov var skotinn
til bana þegar hann steig út úr
bíl við opinbera byggingu þar
sem hann var með skrifstofu.
Talið er að morðið tengist deil-
um um gullnámur í Magadan.
Rússneskur þingmaður,
Vladimír Golovlev, var ráðinn af
dögum nálægt heimili sínu í
Moskvu 21. ágúst og morðið
kynti undir kröfum um róttæk-
ar breytingar á lögreglunni.
Dómsrann-
sókn hætt
ÞÝSKIR saksóknarar tilkynntu
í gær að þeir hefðu hætt rann-
sókn á ásökunum á hendur Leni
Riefenstahl,
sem var
helsti kvik-
myndagerð-
armaður
Adolfs Hitl-
ers, um að
hún hefði af-
neitað hel-
förinni.
Rannsóknin
var hafin vegna kvartana frá
samtökum sígauna.
Riefenstahl, sem er hundrað
ára, notaði sígauna úr þýskum
fangabúðum sem aukaleikara í
kvikmynd sinni, Tiefland, árið
1940. Samtökin segja hana ljúga
því að engir sígaunanna hafi
verið myrtir í kjölfarið og hún
hafi hitt þá flesta eftir að stríð-
inu lauk.
Hóta að lýsa
yfir sjálfstæði
MIKIL spenna var við landa-
mæri Nígeríu að Kamerún í gær
eftir að stjórnmálaleiðtogar
Bakassi-skaga hótuðu að lýsa
yfir sjálfstæði. Alþjóðadómstóll-
inn í Haag úrskurðaði í vikunni
sem leið að Bakassi tilheyrði
Kamerún. Helstu höfðingjar
Bakassi hótuðu hins vegar í gær
að lýsa yfir sjálfstæði færi stjórn
Nígeríu eftir úrskurðinum. Bak-
assi er um 1.000 ferkm og auð-
ugt að olíu og fiskimiðum.
STUTT
Einhorn
fundinn
sekur
Ira Einhorn
Leni Riefenstahl
MEGAWATI Sukarnoputri, forseti
Indónesíu, lýsti því í gær yfir að
indónesísk lög væru engan veginn
þannig úr garði gerð að hægt væri
með góðu móti að sporna við
hryðjuverkum. Sukarnoputri sat
fund með stjórn sinni í gær en þar
var samþykkt tilskipun sem gefur
yfirvöldum auknar heimildir til að-
gerða, m.a. að fella dauðadóm yfir
þeim sem fundnir eru sekir um
hryðjuverk og að festa menn, sem
grunaðir eru um aðild að hryðju-
verkum, í varðhald um ótiltekinn
tíma án þess að dómsúrskurður
liggi fyrir.
Greint var frá því að Abu Bakar
Bashir, múslimaklerkurinn sem
hafði verið kallaður til yfirheyrslu
vegna grunsemda um að hann
tengdist hryðjuverkinu á Balí um
síðustu helgi, hefði verið lagður inn
á sjúkrahús. Þótti því ólíklegt að
hann yrði yfirheyrður í dag, laug-
ardag, eins og að hafði verið stefnt.
Bashir er talinn vera leiðtogi
samtakanna Jemaah Islamiyah,
róttæks félagsskapar múslima sem
talinn er hafa tengsl við al-Qaeda
hryðjuverkasamtökin. Hafa Banda-
ríkjamenn, auk annarra, lengi
nauðað í indónesískum stjórnvöld-
um að handtaka Bashir. Raunar
hafa stjórnvöld í Jakarta lengi legið
undir ámæli fyrir að beita sér ekki
nægilega gegn meintum hryðju-
verkahópum, sem taldir eru starfa í
Indónesíu.
John Howard, forsætisráðherra
Ástralíu, heimsótti í gær vettvang
tilræðisins á Balí en 180 manns
a.m.k. biðu bana í hryðjuverkinu.
Sagði hann að Indónesar og Ástr-
alar myndu í sameiningu reyna að
hafa uppi á sökudólgunum.
Indónesíu-
stjórn bregst
við tilræðinu
á Balí
Jakarta. AFP.
!
"#$
%
&6777
%
& .
& 8#!
#
! #25 !
# ! 9 2!
%
& :
! !
#
& . '
; <== /# 1
& .
4
!
3
%! 9 2! # 3 % ' > 3
553
()8 2! " !
*+,,-(%.,(/,-
%
& <===
3
> #
3
55
.
& ? @ ' "
> ! - ! .! # .#
!
# .,%0,1*2-,3
'4()
%
& 6776
.
& . . ?
677A # >
2 2
' B ?
'
;
<===
& .
! ! ! # 3 % % & 3#
5#
4 ! C# !
2
<===' # D=
# , 5%,//,'6%,780(9
%
& 677E
.
& ) . ) . .F '
; G= A=
& .
35 !
2 #
4
!
!
% & !
! ##
66
5
#
5# ! %! H "
# IF -
0)B5 4 1:9+(
,.,%2,
(93;9+%2,
'(.(44%+/*,1
%(9<,4=1+
7>.,93
?
E==
# % B "
?
@
A
" ? @
@
@
?
?
B
??
A
C
C B
D+77D,9<51%7,1'%+(99,1
!"#$%&& '&( %
& <===
.
& % 8FJ
'
&K== /# 1
- & ) ! 9 2! <=== <==<