Morgunblaðið - 19.10.2002, Page 39
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 39
FYRIR nokkru voru listasetrinu
Kirkjuhvoli á Akranesi færðar að
gjöf frá Berki og Þorsteini Jónsson-
um teikningar sr. Jóns M. Guðjóns-
sonar af torfbæjum sunnan Skarðs-
heiðar. Af því tilefni verður opnuð
sýning á myndunum í Listasetrinu
kl. 15 í dag.
Um er að ræða þrjátíu myndir,
bæði í svart-hvítu formi líkt og frum-
myndirnar og einnig nokkrar hand-
litaðar teikningar sem Ásta Páls-
dóttir myndlistarmaður vann.
Teikningar þessar voru áður
sýndar árið 1990 og þá í tilefni af út-
gáfu teikningasafns sr. Jóns M. Guð-
jónssonar, að útgáfunni stóðu
Byggðasafn Akraness og nærsveita
og Íslandsmyndir.
Sr. Jón teiknaði nálega áttatíu
torfbæi og eru frummyndir þeirra í
Byggðasafninu í Görðum. Hann lést
árið 1994 og er Listasetrið Kirkju-
hvoll í eigu og rekið af minningar-
sjóði um hann.
Sýningin stendur til 3. nóvember
og er opin alla daga nema mánudaga
kl. 15–18
Ein teikninga sr. Jóns M. Guðjóns-
sonar af torfbæ.
Sýning á
teikningum af
torfbæjum
TVÆR sýningar verða opnaðar í Galleríi Fold,
Rauðarárstíg 14–16, í dag kl. 15. Í Baksal sýnir
Bjarni Sigurðsson keramiklágmyndir og nefnir
hann sýninguna Kakklamyndir – hughrif úr ís-
lenskri náttúru. Í Ljósafold sýnir Marisa Nav-
arro Arason ljósmyndir og nefnir hún sýninguna
„Quo Vadis?“
„Orðið „kakkli“ er bein þýðing á danska orð-
inu „kakkel“, sem þýðir vegg- eða gólfflís úr
brenndum leir og vísar til þeirrar árþúsunda
gömlu hefðar mannskepnunnar að skreyta híbýli
sín með litríkum steinflísum,“ segir Bjarni um
titil sýningarinnar. „Árhundruðum fyrir okkar
tímatal sköpuðu íbúar Mesópótamíu þannig t.d.
fagurlega skreyttar veggmyndir úr gljábrennd-
um leir. Kakklamyndir mínar má því líta á sem
nútímaútfærslu á ævafornri hefð.“
Bjarni fæddist árið 1965, stundaði nám við
Myndlistaskóla Reykjavíkur, Forskólann við
Aarhus Kunstakademi og leirlistarnám við Aar-
hus Kunstakademi. Bjarni hefur starfað við list
sína í Danmörku og tekið þátt í ýmsum sýn-
ingum þar. Hann hélt fyrr á þessu ári sína fyrstu
einkasýningu í Hafnarborg.
Marisa Navarro Arason er fædd í Barcelona á
Spáni 1954. Hún stundaði nám hjá Agrupació
Fotografica de Catalunya 1981–82 og Institut
d’Estudis Fotográfics de Catalunya 1982–85.
Hér á landi hefur hún unnið við ýmis verkefni,
m.a. með Leifi Þorsteinssyni og Guðmundi Ing-
ólfssyni svo og hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Marisa hefur haldið fjölda sýninga bæði hér-
lendis og á Spáni.
Gallerí Fold er opið daglega frá kl. 10 til 18,
laugardaga frá kl. 10 til 17 og sunnudaga frá kl.
14 til 17.
Sýningunum lýkur 3. nóvember.
Ævaforn
hefð í nútíma-
útfærslu
Verk eftir Bjarna Sigurðsson í Galleríi Fold.
10 rósir
799 kr.
Reykjavík • Akureyri • Reykjanesbæ•Selfossi
www.blomaval.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
1
90
84
10
/2
00
2