Morgunblaðið - 19.10.2002, Síða 40

Morgunblaðið - 19.10.2002, Síða 40
ÚR VESTURHEIMI 40 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ SNORRAVERKEFNIÐ í Nýja Ís- landi, „Snorri West“, hófst í fyrra með þátttöku tveggja stúlkna frá Íslandi, en tilgangurinn með þessu verkefni er að gefa íslenskum ung- mennum tækifæri til að kynnast menningu og sögu Kanadamanna af íslenskum ættum. Íslensku þátt- takendurnir búa í um sex vikur hjá fjölskyldum í Manitoba og taka þátt í daglegu lífi, en eigi þeir ættinga á svæðinu gefst þeim tækifæri til að hitta þá og treysta böndin. Skemmtilegt Verkefnið er á vegum nefndar í Manitoba og er Eric Stefanson, fyrrverandi fjármálaráðherra og síðar heilbrigðismálaráðherra Manitoba, formaður nefndarinnar, en sérstakir tengiliðir eru Penny Sigmundson í Gimli og Wanda And- erson í Riverton (www.snorri- west.ca). Sambærilegt verkefni hef- ur verið í gangi á Íslandi undanfarin fjögur ár á vegum Þjóð- ræknisfélags Íslendinga og Nor- ræna félagsins, en síðan 1999 hafa 60 ungmenni frá Bandaríkjunum og Kanada tekið þátt í því hér á landi. Íslensku þátttakendurnir í sum- ar, Íris Björg Þorvaldsdóttir, Ást- rós Una Jóhannesdóttir og Erla Dögg Ólafsdóttir, kunnu mjög vel við sig í Kanada og hældu verkefn- inu í hástert. „Þetta hefur verið mjög skemmtilegt, frábært,“ sagði Íris Björg við Morgunblaðið. „Ég hafði skapað mér ákveðna ímynd af Norður-Ameríku eftir að hafa horft mikið á bíómyndir og það var furðulegt að upplifa nánast það sama og ég hafði séð. Kanada var bara eins og ég hafði séð í bíómynd- unum.“ Ástrós Una tók í sama streng. „Þetta var geðveikt gaman,“ sagði hún og bætti við að hún hafi í raun ekki gert sér grein fyrir hverju hún hafi átt von á. „Þetta var ofsalega skemmtilegt,“ sagði Erla Dögg. „Ég hafði ekki gert mér neinar von- ir áður en ég fór til Kanada en tím- inn var frábær.“ Íris Björg bjó hjá Pat og Victor Eyolfson í Árborg. Ástrós Una var líka hjá þeim síðustu vikuna en fram að því hjá Rosalind og Einari Vigfusson í Árborg. Erla Dögg var hins vegar í Gimli hjá Rut og Ro- bert Arnason. Íris Björg er 18 ára og er á 5. önn við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, en hún býr á Kalastöðum, skammt frá Akranesi. Hún segist hafa verið að leita að upplýsingum um nám við erlenda skóla og hafi þá fundið bækling um Snorraverk- efnið í Kanada. Hún hafi lesið hann en í fyrstu hafi efnið ekki vakið sér- lega mikinn áhuga hjá sér og hún talið að þátttaka í verkefninu væri óskaplega dýr. „En mamma og pabbi tóku vel í þetta, vildu endi- lega að ég færi, ég fór og sé ekki eftir því.“ Skagastúlkan Ástrós Una er 17 ára og er á 3. önn við Fjölbrauta- skóla Vesturlands. Hún segir að Ír- is Björg hafi bent sér á þennan möguleika og hann hafi fallið í góð- an jarðveg heima. „Pabbi hefur lengi átt pennavini í Kanada og vildi að ég færi.“ Erla Dögg er tvítug Reykjavík- urmær og varð stúdent frá Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti í vor. Spurð hvers vegna hún hafi sótt um að taka þátt í verkefninu segir hún að sig hafi alltaf langað til Kanada og hafi gripið tækifærið þegar það hafi boðist. „Amma mín sá grein um verkefnið í Morgunblaðinu, lét mig vita um hana, ég aflaði mér nánari upplýsinga á Netinu og ákvað að skella mér í þetta.“ Ætla aftur Verkefnið felst í fjölbreyttri dag- skrá í sex vikur og segja stelpurnar að hver dagur hafi nánast verið sem ævintýri. „Ég hef alltaf haft rosalega mikinn áhuga á Kanada og það var gaman að sjá hvernig landið, sem ég hafði lesið um og séð í bíómyndum, er í raun og veru, landslagið og fólkið,“ segir Íris Björg og leggur áherslu á að sér- staklega hafi verið gaman að fara í tívólí og á sæþotu. Ástrós Una er á sama máli og segir að skemmtilegt hafi verið að fara á sæþotu og í út- sýnisflug en það hafi líka verið mjög gaman að kynnast nýju fólki og nýjum siðum. Erla Dögg tekur undir þetta og bætir við að sér hafi komið mest á óvart hvað margir, einkum á meðal þeirra eldri, tali ís- lensku. „Það er ótrúlegt að heyra svona margt fólk tala íslensku, jafn- vel fólk sem hefur aldrei komið til Íslands.“ Stelpurnar heilluðust svo af landi og þjóð að þær hafa hug á að fara í háskóla í Winnipeg. Íris Björg og Ástrós Una eru ákveðnar í að stefna að því strax eftir stúdents- próf en Erla Dögg segist ætla að hefja háskólanám á Íslandi að ári og sjá svo til. Spurðar hvað hafi haft þessi áhrif segja þær einum rómi að umhverfið sé þess eðlis. „Það er allt miklu afslappaðra í Kanada en heima,“ segja Íris Björg og Ástrós Una einum rómi. „Ég hvet krakka eindregið til að kynna sér þetta verkefni,“ segir Ástrós Una og Íris Björg segist ætla að gera sitt til að vekja nánari athygli á því. „Ég ætla að hanna heimasíðu um það á næstunni.“ Snorraverkefninu í Manitoba vel tekið af íslensku þátttakendunum Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Íslensku þátttakendurnir í Gimli með Eric Stefanson, formanni Snorraverkefnisins í Nýja Íslandi. Frá vinstri: Erla Dögg Ólafsdóttir, Ástrós Una Jóhannesdóttir, Íris Björg Þorvaldsdóttir og Eric. Kanada eins og í bíó- myndunum Snorraverkefnið í Nýja Íslandi virðist hafa fest sig í sessi, en það hefur nú verið starfrækt í tvö ár í röð. Steinþór Guð- bjartsson fann á íslensku þátttakend- unum að verkefnið er tilvalin leið til að efla samskiptin og treysta böndin. steg@mbl.is GERT er ráð fyrir að Íslenska opna golfmótið, The Icelandic Open, skili vikublaðinu Lögbergi- Heimskringlu um 12.000 til 13.000 kanadískum dollurum í aðra hönd, en styrktarmótið fór fram á Sandy Hook-golfvellinum skammt fyrir sunnan Gimli í Manitoba fyrir skömmu og heppnaðist mjög vel. Fyrir tveimur árum stóðu Connie Magnusson-Shimnowski og Don Johnson fyrir fjölskyldudegi í golfi til styrktar Menningarmið- stöðinni í Gimli, The Waterfront Centre, og gaf keppnin af sér um 5.000 kanadíska dollara auk þess sem þátttakendur skemmtu sér konunglega, að sögn Dons John- sons. Í kjölfarið ákváðu skipu- leggjendur keppninnar, sem jafn- framt voru í forsvari fyrir fjáröflunarnefndina Sameinað ís- lenskt átak, The United Icelandic Appeal, ásamt stjórn Lögbergs- Heimskringlu að koma á golfmóti til styrktar blaðinu og fór fyrsta Íslenska opna golfmótið fram á Sandy Hook-golfvellinum í fyrra- sumar, en stjórn og starfsmenn blaðins unnu við keppnina með skipuleggjendunum, Dan Johnson, þáverandi formanni UIA, og Marno Olafson, formanni móts- stjórnar. Árið 2000 voru 12 fjög- urra manna lið eða 48 keppendur en í fyrra voru 36 fjögurra manna lið eða 144 keppendur og þá söfn- uðust um 8.000 dollarar. Nú tókst enn betur til og er gert ráð fyrir um 12.000 til 13.000 dollara hagn- aði. Keppnin í fyrra tókst mjög vel og var ákveðið að halda sama fyr- irkomulagi í ár, það er 36 fjögurra manna liðum. Færri komust að en vildu en Drew Stefanson var fyrst- ur til að skrá sig og á verðlaunahá- tíðinni að kvöldi keppnisdags fékk hann boðskort í keppnina að ári fyrir að hafa brugðist svo skjótt við. Reyndar voru allir keppendur leystir út með gjöfum og höfðu margir á orði að sættu menn sig ekki við annað en fá verðlaun í keppni væri þetta rétti vettvang- urinn. Viðburðurinn er allur á léttu nótunum og jafnvel eru ýmsar óvenjulegar uppákomur á sumum teigum. „Ég er mikill keppnismað- ur og þar sem ég tel mig ekki vera nógu góðan í golfi er ég ekki mjög ötull við að keppa en þetta mót er sérstakt, þetta er bara gleði og gaman,“ segir Keith Sigmundson, geðlæknir í Vancouver, og fleiri taka í sama streng. Eric Sigur- dson, forstjóri í St. Louis og einn af helstu styrktarmönnum móts- ins, segir að þátttaka í keppninni sé jafnframt kærkomið tækifæri til að hitta ættingja og vini, og Eric Olafson, frumkvöðull í Salt Lake City, er sammála frænda sínum. Kris Stefanson, fylkisdómari í Manitoba, er jákvæður sem fyrr og segir að það sé alltaf gaman að hitta þessa frændur sína sem og annað gott fólk. „Aðalatriðið er að skemmta sér.“ Íslenska opna golfmótið í Manitoba mikill styrkur fyrir Lögberg-Heimskringlu Marno Olafson, formaður mótsnefndar, hefur haft í nógu að snúast vegna Íslenska opna golfmótsins. Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Frændurnir Eric Olafson, frumkvöðull í Salt Lake City, Eric Sigurdson, forstjóri í St. Louis, og Kris Stefanson, fylkisdómari í Manitoba, hittust á golfvellinum og höfðu um nóg að spjalla á meðan þeir kýldu vömbina. Uppákomur og skemmtun í góðra vina hópi Ljósmynd/Don Gislason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.