Morgunblaðið - 19.10.2002, Page 47

Morgunblaðið - 19.10.2002, Page 47
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 47 Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Glæsilegar skrifstofur, jarðhæðin í þessu glæsilega húsi. Framhús ásamt bakhúsi samtals ca. 800 fm. (Áður höfuðstöðvar Landsbréfa.) Sanngjörn leiga fyrir rétta aðila. TIL LEIGU Suðurlandsbraut Uppl. veitir Magnús Gunnarsson s. 588 4477 eða 822 8242. Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. 250 fm skrifstofur, 5 hæð. Einstakt tækifæri. Glæsilegar fullbúnar skrifstofur við Reykjavíkurhöfn. Frábært útsýni, allt nýtt. nýtt parket, eldhús, gardínur, tölvulagnir og fl. Laust nú fljótlega. TIL LEIGU Tryggvagata - 101 Rvík Uppl. veitir Magnús Gunnarsson s. 588 4477 eða 822 8242. Sími 586 8080 - Fax: 586 8081 - www.fastmos.is Fallegt 143 fm bjálkahús á tveimur hæðum með fallegu útsýni til hafs og fjalla á Kjalarnesi. Ýmiss frágangur eftir. Myndir og teikningar á www.tonaflod/bjalkahus. Húsið er til sýnis í dag á milli kl. 14 og 16. Uppl. gefur Heiðar í síma 696 6705. Verð kr. 14,3 m. Áhv. 11,9 m. JÖRFAGRUND 19 - Kjalarnesi Opið hús í Fannafold 137! Milli kl. 14,00 og 16,00 laugardag og sunnudag. Fallegt 125m² parhús+ 24m² bílskúr Mjög ítarlegar upplýsingar á slóðinni: www.mmedia.is/steinar/fannafold BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg heldur námskeiðið „Litið í Lúkasar- guðspjall“ mánudagskvöldin 21. og 28. október kl. 20–22 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg, gegnt Langholtsskóla. Á námskeiðinu verður uppbygging og tilurð guð- spjallsins skoðuð. Fjallað verður um sérstöðu Lúkasar miðað við hin guðspjöllin, áherslur hans og lykil- hugtök. Lesnir verða valdir kaflar úr ritinu og þeir útskýrðir. Boðið verður upp á fyrirspurnir og um- ræður. Leiðbeinandi verður Skúli Svav- arsson kristniboði. Námskeiðsgjald er kr. 800 og boðið verður upp á kaffi og te í hléi. Skráning er í síma 588 8899 og á tölvupóstfanginu skrifstofa@krist.is fram að hádegi á mánudag. Kvöldguðsþjónusta í Seljakirkju Kvöldguðsþjónusta verður í Selja- kirkju sunnudaginn 20. október kl. 20.00 Guðsþjónustan er tileinkuð AA starfinu og AA félagi mun tala. Sr. Bolli Pétur Bollason þjónar fyr- ir altari. Þorvaldur Halldórsson leiðir við- stadda í söng. Verið velkomin í Seljakirkju. Fjölskyldumessa í Dómkirkjunni Á SUNNUDAGINN verður mikið um dýrðir í Dómkirkjunni. Boðið er til fjölskyldumessu þar sem hinir ýmsu þættir í kirkjulífi Dómkirkj- unnar koma saman í guðsþjónust- unni. Börn og unglingar ásamt fjöl- skyldum sínum eru sérstaklega boðin til messunnar. Barnastundin verður nú ekki á kirkjuloftinu held- ur í kirkjunni og fermingarbörnin og fjölskyldur þeirra eru einnig sérstakir boðsgestir. Verður þeim afhent „Kirkjubókin“ við komuna til kirkjunnar. Barnakórar Dóm- kirkjunnar syngja undir stjórn Kristínar Valsdóttur. Undirleikari er Marteinn H. Friðriksson. Gunnar Jóhannesson guðfræð- ingur flytur hugleiðingu. María Ell- ingsen annast leikþátt með aðstoð úr dýraríkinu. Sr. Hjálmar Jónsson hefur prestsþjónustuna á hendi. Verið velkomin í Dómkirkjuna kl. 11. Æðruleysismessa í Dómkirkjunni HIN mánaðarlega æðruleysismessa verður að kvöldi sunnudagsins 17. október og er nú hafinn fimmti vet- ur þessa vinsæla guðsþjónustu- forms. Æðruleysismessan hefur fengið góðan hljómgrunn þar sem fólki fellur vel hið óþvingaða form þar sem léttleiki og djúp trúarein- lægni fara saman. Einkum hefur messan verið sniðin að þörfum þeirra sem leita sér hjálpar gegn- um 12 spora kerfi AA-samtakanna. Hún er samt sem áður ekki ein- skorðuð við þann hluta þjóðarinn- ar. Fyrst og fremst er hún nútíma- legt messuform með fögru inni- haldi glaðra sálmasöngva, Guðs orðs og bæna. Í messulok er síðan boðið til þess að ganga inn í kór kirkjunnar, krjúpa við altarið og þiggja sérstaka fyrirbæn. Bræð- urnir Hörður og Birgir Bragasynir leika á píanó, fiðlu og kontrabassa. Söngstjóri er Anna Sigríður Helga- dóttir. Sr. Hjálmar Jónsson predik- ar, sr. Karl V. Matthíasson leiðir messuna og sr. Jakob Á. Hjálmars- son fer fyrir í bæn. Stríð og friður í Hafnarfjarðarkirkju ÞEMA guðsþjónustunnar í Hafnar- fjarðarkirkju næstkomandi sunnu- dag er „Stríð og friður“. Eins og allir vita þá hefur ríkt hernaðarástand í heiminum allt frá árásinni á Bandaríkin þann 11. september árið 2001. Nú vofir yfir enn ein stórstyrjöldin í austurlönd- um sem vel gæti orðið kveikjan að óslökkvandi báli milli kristinna Vesturlanda og islamskra landa. Í guðsþjónustunni munum við velta fyrir okkur stríði almennt út frá kristnum forsendum. Hvað seg- ir kristin trú um stríð? Er það ein- hverntíma réttlætanlegt eða er það algerlega andstætt kenningu Jesú? Og hvert er það stríð sem kristnum manni er ætlað að heyja í heim- inum? Prestur guðsþjónustunnar, sem mun velta upp þessum spurn- ingum, er sr.Þórhallur Heimisson, sóknarprestur Hafnarfjarðar- kirkju. Kór kirkjunnar syngur und- ir stjórn Antoniu Hevesi. Eftir guðsþjónustuna gefst ráðrúm til að spjalla um þema dagsins yfir kaffi- bolla í safnaðarheimilinu. Guðs- þjónustan hefst kl.11. 12 spora kynning í Egilsstaðakirkju SUNNUDAGINN 20. okt. kl. 17 verður starfsemi sjálfshjálparhópa sem byggja á 12 spora kerfinu kynnt en slíkir hópar hafa starfað í kirkjunni undanfarna vetur. Þetta er þroskaleið og hagnýtt tæki til að takast á við afleiðingar áfalla sem fáir sleppa við á lífsleiðinni. Fólk er hvatt til að kynna sér þennan möguleika en fjórir fyrstu fund- irnir verða opnir og án skuldbind- inga. Gestur okkar nú er Margrét Eggertsdóttir. Allir velkomnir Sóknarprestar á Héraði. Kvöldmessa í Grensáskirkju SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 20. okt. kl. 20 verður kvöldmessa í Grensás- kirkju. Kvöldmessurnar hafa að jafnaði verið þriðja sunnudag hvers mán- aðar yfir vetrartímann. Þær byggj- ast á einföldu formi og léttum söngvum við píanóundirleik en töl- uðu orði stillt í hóf. Leitast er við að laða fram andrúmsloft kyrrðar og gleði sem hæfir fagnaðarerindi kristinnar trúar. Bænakertin eru á sínum stað enda fyrirbænin ríkur þáttur í messunni. Sjálf messan er innan við klukku- stund að lengd og að henni lokinni er á boðstólum kaffi, djús og kex. Samvera eldri borgara í Seljakirkju ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 22. okt verður samvera fyrir eldri borgara í Seljakirkju kl. 18. Jón Böðvarsson flytur erindi um Breiðholt og sögu þess. Signý Sæmundsdóttir syngur og kvartettinn „fjórar klassískar“ einnig. Samverunni lýkur á léttum málsverði, sem kostar 300 kr. Vin- samlegast tilkynnið þátttöku til kirkjunnar í síma 5670110 Verið velkomin. „Litlir lærisveinar“ og slökkviliðið í heimsókn í Grafarvogskirkju SUNNUDAGINN 20. október kl. 11:00 verður barna- og fjölskyldu- guðsþjónusta í Grafarvogskirkju Barnakórinn „Litlir lærisveinar“ úr Landakirkju í Vestmannaeyjum kemur í heimsókn. Stjórnandi: Guðrún Helga Bjarnadóttir. Auk þess koma slökkviliðsmenn úr Slökkviliði höf- uðborgarsvæðisins í heimsókn og ræða við börnin um brunavarnir og sýna þeim búninga sína. Slökkvibifreið verður til sýnis fyrir utan kirkjuna. Barna- og unglingakór Grafar- vogskirkju og Krakkakór Grafar- vogskirkju syngja. Stjórnandi: Oddný Þorsteins- dóttir. Organisti: Hörður Bragason. Séra Bjarni Þór Bjarnason og séra Vigfús Þór Árnason þjóna ásamt Sigurvini og Sigríði Rún sunnu- dagaskólakennurum. Sunnudagaskóli verður í Engja- skóla kl.13:00 og munu Litlir læri- sveinar einnig syngja þar. Hvernig á að túlka Biblíuna? GETUR nútímamaður nýtt Biblíuna sér til gagns? Er hún eitthvað ann- að en úrelt ritasafn? Hvert er gildi Biblíunnar og hvernig getur vís- indameðvitað nútímafólk nálgast þessi fornu rit? Hvernig breytir gagnrýnin hugsun lestri Biblíunn- ar? Þessar spurningar verða rædd- ar á fræðslumorgni í Hallgríms- kirkju sunnudaginn 20. október. Samveran hefst kl. 10 og mun dr. Sigurður Árni Þórðarson flytja fyr- irlestur um biblíusýn og síðan verða umræður á eftir. Fræðslu- morgnar Hallgrímskirkju eru öll- um opnir. Hallgrímskirkja Kvöldguðsþjónusta í Lágafellskirkju NÆSTKOMANDI sunnudag 20 október kl. 20.30 verður fyrsta kvöldguðsþjónusta vetrarins í Lágafellskirkju. Tvær slíkar guðs- þjónustur verða í kirkjunni fyrir jól og aðrar tvær frá áramótum til vors. Þetta form guðsþjónustu hefur unnið sér fastan sess í safnaðar- starfi næstliðin ár og hafa þær frá því fyrsta verið mjög vel sóttar. Á sunnudagskvöldið fær org- anistinn Jónas Þórir þekkt listafólk til liðs við sig; Gunnar K. Hrafns- son, kontrabassaleikara, Sigurð Flosason, saxafónleikara og Sig- nýju Sæmundsdóttur, sópran. Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir safnaðarsöng. Sóknarprestur þjónar fyrir alt- ari. Hljóðfæraleikararnir leika létta tónlist af fingrum fram áður en guðsþjónustan hefst. Fjölskyldufræðsla Neskirkju SUNNUDAGINN kl. 20 koma fé- lagsráðgjafarnir, Helga Þórðar- dóttir, forstöðumaður og Kristín Guðmundsdóttir starfsmaður. Fjöl- skylduþjónustunnar Lausnar sem Félagsþjónustan í Reykjavík rekur og kynna þá hugmyndafræði sem þær vinna eftir í störfum sínum með fjölskyldum. Í stuttu máli má segja að um sé að ræða nálgun sem horfir einkum á jákvæða þætti sam- skipta í stað þess að brjóta vanda- mál stöðugt til mergjar eins og algengt er víða í fjölskyldumeðferð. Fjöldi hjóna og sambýlisfólks hefur á liðnum árum sótt slík um- ræðukvöld og eru öll þau sem vilja bæta samskipti sín og færni í lífi og leik velkomin. Þær stöllur sem fyrr voru nefndar kynna mál sitt í u.þ.b. 45 mínútur, þá verða veitingar í boði og loks umræður. Samverunni lýkur með stuttri helgistund sem séra Örn Bárður Jónsson leiðir. Alfa III á undan messu Fræðslu um Fjallræðuna sem hófst fyrir hálfum mánuði verður framhaldið í safnaðarheimili Nes- kirkju kl. 10 en ekki kl. 12.30 eins og áður. Þessi fræðsla er ætluð fólki sem áður hefur sótt Alfa- námskeið en er þó öllum opin sem vilja fræðast um kristna trú og grundvallaratriði hennar. Séra Örn Bárður Jónsson annast fræðsluna. Námskeið um Lúkasar- guðspjall Morgunblaðið/Ómar Egilsstaðakirkja Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9, Kópavogi. Samkoma í dag kl. 11– 12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédik- un og biblíufræðsla þar sem ákveð- ið efni er tekið fyrir, spurt og svarað. Á laugardögum starfa barna- og ung- lingadeildir. Létt hressing eftir sam- komuna. Allir hjartanlega velkomnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. KFUM og KFUK Holtavegi 28. Haustátak. Samkoma kl. 20.30. Ole Lilleheim talar. Fjölbreytt dag- skrá. Allir velkomnir Safnaðarstarf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.