Morgunblaðið - 19.10.2002, Blaðsíða 58
DAGBÓK
58 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Faxi
kemur í dag. Lómur og
Ryoan Maru no 8 fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Florinda kom í gær, Ottó
fer í dag.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Morgun-
gangan kl. 10 frá Hraun-
seli, á mánudag púttað í
Hraunseli kl. 10.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: Kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kórs eldri
borgara í Damos. Laug-
ard.: Kl. 10–12 bókband,
línudans kl. 11. Nám-
skeið í postulínsmálun
byrjar 18. nóv. Skráning í
s. 586 8014 e.h.
Korpúlfarnir, eldri borg-
arar í Grafarvogi.
Fimmtud.: Kl. 10 aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Félagsstarf
aldraðra í Garðabæ.
Vetrarfagnaðurinn verð-
ur í Tónlistarskólanum í
Garðabæ 24. október kl.
20. Fjölbreytt dagskrá.
Allir velkomnir. Mánud.:
Kl. 9.30, 10.15 og 11.10
leikfimi, kl. 12 leirvinnsla,
kl. 13 námskeið í skyndi-
hjálp. Þriðjud.: Kl. 9 gler-
vinnsla, kl. 10.30 boccia,
kl. 11.40 leikfimi karla, kl.
13 málun, kl. 13.30 tré-
skurður. Miðvikud.: Kl.
9.30, 10.15 og 11.10 leik-
fimi, kl. 13.30 trésmíði
nýtt og notað, kl. 14
handavinnuhornið, kynn-
ing á þrívíddarmyndum
(klippimyndum).
Fimmtud.: Kl. 10.30
boccia, kl. 13 leikfimi
karla, málun og búta-
saumur. Föstud.: Kl. 11
námskeið í skyndihjálp,
kl. 14.15 spænska.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
lokuð vegna breytinga í
Glæsibæ. Sunnud.: Dans-
leikur kl. 20, Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Mánud.: Brids kl. 13,
danskennsla, framhald
kl. 19 og byrjendur kl.
20.30. Þriðjud.: Skák kl.
13 og alkort spilað kl.
13.30. Miðvikud.: Göngu-
hrólfar fara í göngu kl. 10
frá Ásgarði, söngfélag
FEB, kóræfing kl. 17.
Línudanskennsla Sig-
valda kl. 19.15. Söngvaka
kl. 20.45, stjórnandi Sig-
urrós Ottósdóttir. Heilsa
og hamingja, Ásgarði,
Glæsibæ, laugard. 26.
okt. kl. 13. Erindi flytja:
Tómas Helgason skýrir
frá rannsókn sinni um
samband heilsu og lífs-
gæða á efri árum og Júl-
íus Björnsson sálfræð-
ingur um svefnþörf og
svefntruflanir aldraðs
fólks. Silfurlínan er opin
á mánu- og miðviku-
dögum kl. 10–12. Skrif-
stofa félagsins er flutt að
Faxafeni 12, s. 588 2111.
Félagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Félag-
ið hefur opnað heimasíðu
www.feb.is. Upplýsingar
á skrifstofu FEB.
Gerðuberg, félagsstarf.
Myndlistarsýning
Brynju Þórðardóttur op-
in í dag og á morgun kl.
13–16. Þriðjudagur:
Perlusaumur, gler-
skurður og boccia.
Fimmtudagur: Gler-
málun og spilasalur op-
inn. Vetrardagskráin
komin. Allar uplýsingar
um starfsemina á staðn-
um og í síma 575 7720.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Fjölþjóðlegt málþing um
félagslega stöðu aldraðra
í mismunandi samfé-
lögum verður haldið í
Gullsmára, þriðjud. 22.
okt. kl. 13.15. Fyrirles-
arar frá Íslandi, Ghana,
Víetnam, Póllandi og
Mexíkó. Söngur frá Jap-
an. Skráning fyrir
mánud. 21. okt. í s.
564 5260.
Gjábakki. Í tilefni al-
þjóðaviku í Kópavogi
verður fjölþjóðlegur
dansdagur í Gjábakka 24.
okt. og hefst með dag-
skrá kl. 14. Sýndir verða
ýmsir dansar. Erindi um
dansinn í tímans rás flyt-
ur Ingibjörg Björns-
dóttir. Dagskráin er án
endurgjalds, allir vel-
komnir. Íslenskt kaffi-
hlaðborð.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Púttað á
Listatúni í dag, kl. 10.30.
Félagar úr Akranes-
félaginu koma í heimsókn
í Lionshúsið, Auðbrekku
25–27, laugard. 26. okt.
Kvöldverður og
skemmtiatriði. Veislu-
stjóri sr. Gunnar Sig-
urjónsson, Ásgeir Jó-
hannesson segir frá,
Vinabandið, Happdrætti,
dans o.fl. Húsið opnað kl.
19. Skráið ykkur sem
fyrst á þátttökulista sem
eru í félagsheimilunum.
Vesturgata 7. Þriðjud.
29. okt. kl. 13.30 verður
Sigrún Ingvarsdóttir, fé-
lagsráðgjafi með
fræðslufund. Nýtt heim-
ili-húsnæði fyrir eldri
borgara. Fyrirspurnum
svarað, kaffiveitingar,
allir velkomnir. Opið hús
föstud. 25. okt. Dag-
skráin kynnt kl. 14.30,
m.a. sýnd brot úr döns-
um og unnið að hand-
verki. Frá kl. 13 verður
handverkssala. Veislu-
kaffi, allir velkomnir.
Nýtt jóganámskeið byrj-
ar mánud. 21.okt. kl.
10.30–11.30, einnig er
kennt á miðvikudögum á
sama tíma, athugið frír
prufutími, leiðbeinandi
Hildur Björg Eydal,
skráning í s. 562 7077.
Mánud. 21. okt. kl. 13.30–
14.15 veitir lyfjafræð-
ingur ráðgjöf, og svarar
fyrirspurnum. Boðið
verður upp á blóðþrýst-
ingsmælingu, kaffiveit-
ingar á eftir, allir vel-
komnir. Þriðjud. 19. nóv.
kemur hjúkrunarfræð-
ingur og mælir bein-
þéttni. Lyfjafræðingur
fer yfir lyfjanotkun.
Fræðsla um lyf, vítamín,
steinefni og fleira. Vin-
samlega pantið tíma í s.
562 7077.
Digraneskirkja, kirkju-
starf aldraðra. Opið hús á
þriðjudag frá kl. 11, leik-
fimi, léttur málsverður,
helgistund, fræðsluþátt-
ur, kaffi. Allir velkomnir.
Gönguklúbbur Hana-nú.
Morgunganga kl. 10
laugardagsmorgna frá
Gjábakka. Krummakaffi
kl. 9. Allir velkomnir.
Félag fráskilinna og ein-
stæðra. Fundur í kvöld
kl. 21 í Konnakoti, Hverf-
isgötu 105. Nýir félagar
velkomnir. Munið göng-
una mánu- og fimmtu-
daga.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s. 530 3600.
Stuðningsfundir fyrrver-
andi reykingafólks. Fólk
sem sótt hefur námskeið
gegn reykingum í
Heilsustofnun NLFÍ í
Hveragerði, fundur í
Gerðubergi á þriðjud. kl.
17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í Sel-
tjarnarneskirkju (kjall-
ara), kl. 20.30 á fimmtu-
dögum í fræðsludeild
SÁA, Síðumúla 3–5, og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis, fund-
ir mánudaga kl. 20 á Sól-
vallagötu 12. Stuðst er
við 12 spora kerfi AA-
samtakanna.
Kattholt. Flóamarkaður í
Kattholti, Stangarhyl 2,
er opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Leið 10 og 110 ganga að
Kattholti.
Breiðfirðingafélagið.
Félagsvist á morgun kl.
14, fyrsti dagur í fjögurra
daga keppni. Kaffiveit-
ingar.
Minningarkort
Minningarkort Minning-
arsjóðs hjónanna Sigríð-
ar Jakobsdóttur og Jóns
Jónssonar á Giljum í
Mýrdal við Byggðasafnið
í Skógum fást á eft-
irtöldum stöðum: Í
Byggðasafninu hjá Þórði
Tómassyni, s. 487 8842, í
Mýrdal hjá Eyþóri Ólafs-
syni, Skeiðflöt, s.
487 1299, í Reykjavík hjá
Frímerkjahúsinu, Lauf-
ásvegi 2, s. 551 1814 og
hjá Jóni Aðalsteini Jóns-
syni, Geitastekk 9, s.
557 4977.
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvennadeild-
ar RRKÍ á sjúkrahúsum
og á skrifstofu Reykja-
víkurdeildar, Fákafeni
11, s. 568 8188.
Í dag er laugardagur 19. október,
292. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Sá sem elskar peninga, verður aldr-
ei saddur af peningum, og sá sem
elskar auðinn, hefir ekki gagn af
honum. Einnig það er hégómi.
(Préd. 5, 9.)
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur gaman afspurningakeppnum og er
örugglega ekki einn um að finnast
þær eitt skemmtilegasta sjónvarps-
eða útvarpsefni sem völ er á.
Undanfarin ár hefur verið meira
um spurningakeppnir í sjónvarpi en
útvarpi þar sem aðeins ein hefir ver-
ið haldin á ári – að undanskildri for-
keppni Gettu betur, spurninga-
keppni framhaldsskólanna – en það
er hin stórskemmtilega spurninga-
keppni fjölmiðlanna sem Rás 2 efnir
árlega til um og í kringum páskahá-
tíðina. Hvernig væri að útvarps-
stöðvarnar tækju sig nú á í þessum
efnum? Mörgum þætti t.d. kærkom-
ið ef efnt yrði til spurningakeppni
meðal grunnskólabarna eða eldri
borgara. Síðan eru sérhæfðar spurn-
ingakeppnir alltaf skemmtilegar,
keppnir sem snúa að sérsviðum, eins
og t.d. íþróttum eða menningu. Þar
væru tvær leiðir mögulegar; annars
vegar að bjóða til þátttöku þeim er
viðkomandi sérsviðum tengjast,
kunnum íþróttamönnum eða lista-
mönnum eða þá gangandi alfræði-
orðabókum, einstaklingum sem búa
yfir yfirburðaþekkingu á sviðinu.
Þannig þáttur yrði í anda gamla
„Mastermind“ sem Magnús Magn-
ússon stýrði við miklar vinsældir í
Bretlandi svo áratugum skipti. Oft-
ast nær eru spurningaþættir náttúr-
lega skemmtilegri sem sjónvarpsefni
en kostur útvarpsins fram yfir sjón-
varpið er að þar væri einmitt hægt
að hafa sérhæfðari spurningakeppn-
ir.
x x x
VINSÆLASTA spurningakeppnisjónvarpsins um þessar myndir
snýst um peninga. Þátturinn Viltu
vinna milljón er ágætur til síns brúks
en höfðar kannski ekki beint til gall-
harðra spurningakeppnisunnenda,
aðallega vegna þess hve langdreginn
þátturinn er. Ekki einasta vegna hve
lopinn er teygður framúr hófi heldur
einnig vegna þess hve léttur meiri-
hluti spurninganna í þættinum er –
en hér má ekki misskilja Víkverja
sem svo að hann sé að slá um sig
heldur er staðreyndin sú að fyrstu
spurningarnar, a.m.k. uppað 50 þús-
und kr. eru svo laufléttar að forms-
atriði eitt er að þurfa að svara þeim.
Ekkert sérdeilis áhugavert sjón-
varpsefni sem alltof langur tími fer í.
Gettu betur er náttúrlega löngu
orðinn fastur punktur í tilverunni.
Spurningakeppni með sígildu sniði
sem alltaf er gaman að fylgjast með,
sér í lagi þegar fram á sjónarsviðið
stíga mannvitsbrekkur á við bræð-
urna Ármannssyni og Stefán MR-
ing Pálsson.
Skjár einn hefur síðan sýnt þessu
sjónvarpsefni mikinn áhuga, sem er
vel. Margt hefur verið reynt og með
misjöfnum árangri en Popppunktur-
inn, sem nú stendur sem hæst, getur
auðveldlega talist best heppnaði
þátturinn af þeim öllum. Tvennt
ræður þar mestu um; annars vegar
góð hugmynd, að etja saman lands-
frægum poppurum og kanna kunn-
áttu þeirra í poppfræðunum og
hvernig þeir plumma sig í að leika
lög eftir pöntun og hinsvegar eru
stjórnendurnir, dómarinn og höf-
undur spurninga Dr. Gunni og spyr-
illinn Felix Bergsson, sniðnir í sín
hlutverk. Skemmtanagildi og ein-
faldleiki þessa þáttar sannfærir
mann endanlega um að spurninga-
keppnir eru eitt alskemmtilegasta
sjónvarpsefni sem völ er á.
Hvar er
málarinn?
ÉG fékk miða inn um
bréfalúguna frá málningar-
fyrirtækinu Fagurhús. Ég
réð mann frá þessu fyrir-
tæki í málningarvinnu hjá
mér. Hann fékk allt greitt
fyrirfram og það sem hann
gerði, gerði hann vel. Hann
hefur ekki lokið verkinu og
ekki sést lengi. Ég er búin
að reyna að hringja í hann,
en hann svarar mér ekki í
síma. Ef einhver getur gef-
ið mér einhverjar upplýs-
ingar um þetta fyrirtæki
eða hann sjálfur hefði sam-
band við mig væri það vel
þegið. Ég er í síma 553-
4502.
Pálína.
Sammála
ÉG ER sammála grein Al-
berts Jensens, Ný tegund
af rasisma, sem birtist í
Morgunblaðinu föstudag-
inn 11. október sl. Ég vona
að stjórnvöld sjái að sér og
dragi úr innflytjenda-
straumi áður en illa fer.
Aðalheiður.
Nesdekk
á Seltjarnarnesi
FYRIRTÆKIÐ Nesdekk á
Seltjarnarnesi veitir frá-
bæra þjónustu, hvort sem
skipta þarf um dekk eða
olíu. Þjónustan hjá þeim er
hröð og góð og viðmótið al-
veg einstakt. Jón Hauksson
og félagar eiga bestu þakk-
ir skildar fyrir frábæra
þjónustu.
Grétar Vilmundarson.
Trönuberjatöflurnar
HALLDÓRA sem skrifaði í
Velvakanda 16. október sl.
um Ultra Cranberry 1000
töflurnar er vinsamlegast
beðin um að hringja í Ásdísi
í síma 561-5556.
Dýrahald
Kanínur
vantar heimili
SEX kanínur fást gefins á
góð heimili. Búr fylgir ekki
með. Vinsamlegast hafið
samband í síma 566-8565.
Gott heimili fyrir
hvolp
ÓSKA eftir hvolpi, chihua-
hua eða pommerainian, á
gott heimili. Má vera blend-
ingur.
Upplýsingar hjá Maríu í
síma 867-0797 eftir kl. 13.
Kisinn minn
er týndur
SIMBI týndist úr Garða-
bænum í sumar en gæti
verið hvar sem er.
Hann er appelsínugulur,
loðinn með brún augu. Ef
einhver veit hvar hann gæti
verið vinsamlega hringið í
síma 847-6671 eða 565-
6519.
30.000 kr. fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 bitmý, 8 styggir, 9 ops,
10 velur, 11 deila, 13 sig-
ar, 15 þukls, 18 undrandi,
21 klaufdýr, 22 gangsetti,
23 sælu, 24 fyrirvarar.
LÓÐRÉTT:
2 reiðan, 3 hrífa á, 4 lang-
loka, 5 alda, 6 eldstæðis, 7
nagli, 12 nákvæm, 14 sefi,
15 gömul, 16 ferma, 17
húð, 18 bak, 19 metta, 20
sleif.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hemja, 4 fylgi, 7 losti, 8 ljóði, 9 nýt, 11 aðal, 13
eira, 14 erill, 15 hrós, 17 lögg, 20 átt, 22 urmul, 23 örlát,
24 dorga, 25 tígur
Lóðrétt: 1 helga, 2 moska, 3 alin, 4 falt, 5 ljósi, 6 ilina, 10
ýmist, 12 les, 13 ell, 15 hrund, 16 ólmur, 18 öflug, 19 gít-
ar, 20 álfa, 21 tölt.
K r o s s g á t a
VÍKVERJI var sár og
reiður er hann braut um-
ferðarlög nú fyrir nokkru.
Enga samúð hef ég með
honum því við STOP-
skiltið á að stoppa bílinn
við breiðu hvítu línuna.
Síðan að aka að gatnamót-
um, líta til hægri og vinstri
og ef enginn bíll er í nánd,
þá aka áfram.
Svo einfalt er það.
Ég ek talsvert um borg-
ina og undrast alltaf hve
margir ökumenn eins og
Víkverji hunsa stöðvunar-
skylduna. Iðulega, er ég
stoppa eins og lög gera
ráð fyrir, er flautað á mig
og ég les úr ásjónu öku-
mannsins í baksýnisspegli
mínum reiði og frekju.
Oftast eru þessir sömu
ökumenn ákaflega kæru-
lausir og latir að nota
stefnuljós, sem er óskilj-
anlegt.
Ég held að reiður Vík-
verji hefði átt að bíða í
vikutíma áður en hann
skrifaði þessar ásakanir á
hendur lögreglunni. Hún
var aðeins að gera það
sem henni ber, að fylgjast
með borgurunum, að þeir
fari að lögum. Þau eru
ekki svo fá slysin sem
hægt væri að afstýra ef við
virtum umferðarlögin.
Það er augljóst að Vík-
verji, hver svo sem hann
er, hefur ekki ekið bíl í út-
löndum, þar sem ökumenn
virða stöðvunarskyldu
umyrðalaust, enda háar
fjársektir í húfi.
Þar sem lögreglan er fá-
liðuð, væri ekki heillaráð
að fá „gamla“ fríska lög-
reglumenn jafnvel með
gömlu húfuna fínu, til að
standa vakt af og til við
STOP-skiltin og skrifa upp
þá bíla, sem virða ekki
stoppið. Það yrði örugg-
lega áhrifaríkt.
Að lokum bið ég reiðan
og sáran Víkverja vel að
lifa, aka eftir lögum og
brosa í umferðinni, jafnvel
líka til lögreglumanna og
vona að hann skrifi ekki
fleiri nöldurspistla, því
hann er sekur, hann braut
lög.
A.S.
Sár og reiður Víkverji