Morgunblaðið - 19.10.2002, Page 59

Morgunblaðið - 19.10.2002, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 59 DAGBÓK 75 ÁRA afmæli. Hjónin Jakobína Anna og Karl Olsen halda uppá 75 ára af-mæli sitt á morgun, sunnudag. Í tilefni dagsins er kunningjum, vinum og vandamönnum boðið að mæta til veislu í Stapanum, Njarðvík, sunnudaginn 20. október, frá klukkan 15 til 18. Mjög gaman væri ef þið mynduð gleðjast með okk- ur. Jakobína Anna og Karl Olsen. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VOG Afmælisbörn dagsins: Forvitni þín leiðir þig oft á skemmtilega stigu og þótt ævintýraþráin sé rík, er raunsæið með í för. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það eru ýmsar breytingar sem þig langar til að ná fram. Láttu aðra um sín mál og snúðu þér að öðru á með- an. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það á ekki alltaf við að treysta á guð og lukkuna. Allir hlutir kosta sitt en það er forgangsröðin sem skipt- ir máli. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þér finnst þú þurfa meiri tíma til að gaumgæfa málin og átt ekki að hika við að taka þér nægan umþóttun- artíma. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Taktu vel á móti gömlum vini, sem birtist óvænt. Haltu ótrauður þínu striki en láttu ekki velgengnina stíga þér til höfuðs. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Vandi fylgir vegsemd hverri og svo er einnig um stöðu- hækkanir á vinnustað. Hafðu það hugfast áður en þú gengur að samninga- borði. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú þarft að gæta þess að grípa ekki til of ódýrra bragða til að koma málstað þínum á framfæri. Varfærni er kostur. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þér sárna ummæli sem falla í samtali innan fjölskyld- unnar. Ekki þreyta vinnu- félagana með endalausum sögum af einkahögum þín- um. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ert með óþarflega miklar áhyggjur af fjárhagnum en hann er ekki eins slæmur og þú heldur. Sýndu því þol- inmæði og stattu storminn af þér. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Farðu þér hægt í persónu- legum málum. En mundu, að þótt rök séu sterk vopna, skal ávallt hafa aðgát í nær- veru sálar. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Láttu draumórana ekki ná þannig tökum á þér að þú hafir ekki hugann við vinn- una. Sinntu sjálfum þér. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Of miklar upplýsingar gætu flækt málin og komið í veg fyrir að þú finnir réttu lausnina. Spilaðu málin eftir eyranu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú þarft að berjast fyrir málstað þínum af meira krafti. Tileinkaðu þér því aðrar og árangursríkari að- ferðir. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT Gekk eg í gljúfr ið dökkva, gein veltiflug steina við hjörgæði hríðar hlunns úrsvölum munni. Fast lá framan að brjósti flugstraumur í sal Naumu; heldr kom á herðar skáldi hörð fjón Braga kvónar. Ljótr kom mér í móti mellu vinr úr helli; hann fékkst heldr að sönnu harðfengr við mig lengi. Harðeggjað lét eg höggvið heftisax af skefti; Gangs klauf brjóst og bringu bjartr gunnlogi svarta. Grettir Ásmundarson Árnað heilla 90 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 19. október, er níræð Guðbjörg Magnea Franklínsdóttir frá Litla-Fjarðarhorni í Kolla- firði, Strandasýslu, nú búsett í Skálarhlíð í Siglufirði. Hún tekur á móti gestum á afmæl- isdaginn milli kl. 15 og 18 í Safnaðarheimili Seljakirkju, Hagaseli 40, Reykjavík. 40 ÁRA afmæli. AlfaKristjánsdóttir bókasafns- og upplýsinga- fræðingur er fertug í dag, laugardaginn 19. október. Afmælisbarnið og eiginmað- ur hennar Sigmar Þormar, fagna tímamótunum með fjölskyldu og vinum í Tafl- félagssalnum í Hamraborg. 90 ÁRA afmæli. FrúBjörg Steindórs- dóttir, Grænumýri 7, Akur- eyri, verður níræð mánu- daginn 21. október, hún dvelur nú að Seli, F.S.A. Hún verður að heiman á af- mælisdaginn. ALLTAF er erfitt að meta slemmuhorfur eftir opnun mótherja á veikum tveimur. Hér opnar vestur á veikum tveimur í tígli og NS göslast í vafasama slemmu: Vestur gefur; NS á hættu. Norður ♠ ÁG93 ♥ 53 ♦ Á102 ♣D865 Vestur Austur ♠ 42 ♠ 108765 ♥ 82 ♥ 964 ♦ KDG987 ♦ 64 ♣G104 ♣Á93 Suður ♠ KD ♥ ÁKDG107 ♦ 53 ♣K72 Vestur Norður Austur Suður 2 tíglar Pass Pass 3 hjörtu Pass 4 tíglar Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass Vestur kemur út tígul- kóng. Sér lesandinn leið að tólf slögum? Þetta væri einfalt með öðru útspili, en nú er stíflan í spaðanum vandamál og ekki um annað að ræða en taka á tígulás og renna nið- ur trompunum. Miðað við sagnir er austur líklegur til að halda á laufás og ef hann er líka með spaðavaldið gæti hann lent í vandræð- um. Þetta er staðan þegar eitt tromp er eftir: Norður ♠ ÁG93 ♥ – ♦ – ♣D86 Vestur Austur ♠ 42 ♠ 10876 ♥ – ♥ – ♦ DG ♦ – ♣G104 ♣Á93 Suður ♠ KD ♥ 7 ♦ 5 ♣K72 Austur neyðist til að hanga á spaðatíunni fjórðu og þremur laufum. Sagn- hafi spilar síðasta tromp- inu og hendir laufi úr borði. Austur gerir slíkt hið sama. Þá tekur suður KD í spaða og spilar laufkóng! Það er sama hvað austur gerir, sagnhafi fær alltaf tvo slagi í viðbót á ÁG í spaða. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 c6 4. Bc4 d5 5. exd5 b5 6. Bb3 b4 7. Ra4 cxd5 8. Be3 Rf6 9. Dd2 Rc6 10. Rc5 a5 11. Ba4 Dc7 12. Re2 0-0 13. 0-0 e6 14. f3 Rd7 15. Rxd7 Bxd7 16. Kh1 Re5 17. Bxd7 Rc4 18. Dd3 Dxd7 19. Bc1 Hfc8 20. b3 Rd6 21. a3 Db5 22. Dd2 Rf5 23. Bb2 bxa3 24. Bxa3 a4 25. bxa4 Hxa4 26. c3 Hca8 27. Hab1 Dc4 28. Bc5 Ha2 29. Hb2 Hxb2 30. Dxb2 h5 31. Hc1 Ha2 32. Db8+ Kh7 33. Rg3 Staðan kom upp í fyrri hluta Íslandsmóts skák- félaga sem lauk fyrir skömmu í glæsilegum húsa- kynnum B&L. Svart hafði Ylon Schwartz (2.244) gegn Kristjáni Guð- mundssyni (2.272). 33. ...Dxc3! 34. Hg1 Rxg3+ 35. hxg3 Bxd4 36. Bxd4 Dxd4 37. Df4 Dxf4 38. gxf4 Ha4 39. g3 Ha2?! 39. ...h4 hefði tryggt sigurinn fljótt og örugglega. Í fram- haldinu er staðan einnig unnin en eingöngu eftir langt þóf. 40. Hb1 Kg7 41. Kg1 Kf6 42. Hb7 d4 43. Hd7 Hd2 44. Kf1 d3 45. Kg1 Kg7 46. Hd8 Hd1+ 47. Kf2 d2 48. Kg2 f6 49. Hd7+ Kh6 50. Hd6 e5 51. fxe5 fxe5 52. Hd5 Kg7 53. Hd6 Kf7 54. Hd5 Ke6 55. Hd8 Kf5 56. Hf8+ Ke6 57. Hd8 g5 58. Hd3 g4 59. Hd8 gxf3+ 60. Kxf3 Hf1+ 61. Ke2 d1=D+ 62. Hxd1 Hxd1 63. Kxd1 Kf5 64. Ke2 Kg4 65. Kf2 e4 og hvítur gafst upp. Staðan í þriðju deild eftir fjórar um- ferðir er þessi: 1. Selfoss 16 v. 2. Hrókurinn 15,5 v. 3. Dal- vík 12,5 v. 4.-5. TS og SA-c 12 v. 6.-7. TR-g og Austurland 9,5 v. 8. TR-d 9 v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. 70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 19. október, verður sjötugur Gísli Jósefsson málara- meistari, Flétturima 13, Reykjavík. Hann tekur á móti vinum og vandamönn- um í dag á milli kl. 16 og 19 á Engjateigi 3, Reykjavík, austurenda. Árnað heilla MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Opið mánudaga—föstudaga frá kl. 12-18 og laugardaga frá kl. 11-15 Skólavörðustíg 2 – sími 544 8880. Nú kólnar! Glæsilegt úrval minkapelsa Stærðir 36 - 52 Einnig fóðraðir gallajakkar m/skinni ÁSKORUN HUGLJÓMUNAR Enlightenment Intensive Í Bláfjöllum 31. október-3. nóvember. Hver er ég? Markmiðið er að þátttakandinn upplifi beint grundvallar sannindi um eigið sjálf, lífið eða aðra. Er það kallað hugljómun. Sjá www.enlightenmentintensive.net Fáðu sendan bækling. guffa72@hotmail.com. Leiðbeinandi: Guðfinna Svavarsdóttir. Upplýsingar og skráning í síma 562 0037 og 869 9293. Lokadagur til skráningar er 28. október. Afmælisþakkir Mínar innilegustu þakkir færi ég öllum þeim, sem heimsóttu mig, sendu mér símskeyti, færðu mér gjafir og blóm og glöddu mig á 85 ára afmæli mínu þann 5. október síðastliðinn. Sérstakar þakkir færi ég syni mínum, sem gerði mér daginn ánægjulegan. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Magnúsdóttir, Hjallabraut 33, Hafnarfirði. Auðbrekku 14, Kópavogi. Símar 544 5560 og 820 5562, www.yogastudio.is Hentar þeim sem vilja læra að nýta sér ilmkjarnaolíur á fyrirbyggj- andi hátt og í baráttunni við ýmsa almenna kvilla. Ítarleg kennslu- mappa, Oshadhi ilmkjarnaolíur, grunnolía og blöndunarbúnaður fylgir námskeiðinu. Nánari upplýsingar er að finna á www.yogastudio.is. Leiðbeinandi: Lísa B. Hjaltested. Kennt 25. og 26. okt. (fös. kl. 19:30-22.00 og lau. kl. 14:30-17.00) ilmkjarnaolíunámskeið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.