Morgunblaðið - 19.10.2002, Page 62

Morgunblaðið - 19.10.2002, Page 62
62 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ FRÆBBBLARNIR leika á tónleik- um á Barnum í kvöld en söngvari sveitarinnar er Valgarður Guð- jónsson. Auk þess að vera söngv- ari víðfrægrar pönksveitar er hann framkvæmdastjóri hugbún- aðarfyrirtækisins Kuggs. Athygli vekur að Fræbbblarnir ætla að koma fram tvisvar á tón- leikunum í kvöld. Nýtt efni verður leikið í upphafi tónleikadagskrár um hálfellefuleytið og þremur tímum síðar stíga þeir aftur á svið og leika þá bæði nýtt og gamalt efni. „Við gerðum þetta á Vídalín í vor og það svínvirkaði. Margir vilja heyra þetta gamla efni en við erum þreyttir á að vera alltaf að hjakka á því og langar líka að koma nýju efni að,“ segir Valgarður og bætir því við að fólk sé líka rólegra í upp- hafi kvölds og frekar tilbúið til að hlusta á eitthvað nýtt. Fræbbblarnir eru sem stendur að safna efni á nýja plötu. Á dag- skrá í kvöld verða fimm eða sex glæný lög og 10–12 sem hafa orðið til á síðustu tveimur árum auk eldra efnisins. Fræbbblarnir stíga ekki einir á svið í kvöld því einnig koma fram hljómsveitirnar Súkkat, Suð og Palindrome. Þetta er þó ekki í eina skiptið sem Fræbbblarnir koma við sögu þessa helgina því Rokk í Reykja- vík, kvikmynd Friðriks Þórs Frið- rikssonar frá árinu 1982, verður sýnd í Háskólabíói klukkan 15:45 á morgun. Til upprifjunar eða fræðslu má geta þess að Fræbbblarnir tóku einmitt hið al- ræmda lag „Í nótt“ í myndinni en texti lagsins þykir eftirminnilegur svo ekki sé meira sagt. Hvernig hefurðu það í dag? Eiginlega alveg sérstaklega gott. Hvað ertu með í vösunum? Veski, síma, lykla, penna, smá- aura, kveikjara, smávindlakassa og gítarneglur. Er mjólkurglasið hálftómt eða hálffullt? Fer eftir því hvort verið er að hella í það eða drekka úr því, annars hálffullt. Ef þú værir ekki fram- kvæmdastjóri og söngvari hvað vild- irðu þá helst vera? Ætli það væri ekki kvikmyndaleikstjóri. Hefurðu tárast í bíói? Nei. Var reyndar gráti næst þegar félagarnir vildu ekki labba út af Grease í miðri sýningu. Hverjir voru fyrstu tón- leikarnir sem þú fórst á? Procol Harum í Háskólabíói. Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér? Ætli Laddi fái ekki titilinn þegar hann ofleikur sem mest. Hver er þinn helsti veikleiki? Ég þyki alveg rosalega linur og eftirgefanlegur í hvers kyns samningum. Finndu fimm orð sem lýsa per- sónuleika þínum vel. Úff … skipulag, drífandi, væru- kær, rökhugsun, heiðarlegur, kannski einhver óskhyggja í þessu? Bítlarnir eða Rolling Stones? Erfitt, hvorir tveggja eiga slatta af góðum lögum, a.m.k. framan af, og alveg heilan helling af vondu efni, en sennilega Stones ef ég verð að velja. En ætti spurningin ekki að vera Sex Pistols eða Ramones? Placebo eða Greenday? Hver var síðasta bók sem þú last tvisvar? Les aldrei bækur tvisvar, jú, sennilega las ég Liar eftir Stephen Fry tvisvar. Hvaða lag kveikir blossann? Ekkert. Ekki einu sinni „Í nótt“. Hvaða plötu keyptirðu síðast? XXX Rottweiler- hunda minnir mig, annars sjá unglingarnir að- allega um plötukaup á heimilinu. Hvert er þitt mesta prakk- arastrik? Geri aldrei svoleið- is. Jú, kannski fyrstu hljómleikar Fræbbblanna. Hver er furðulegasti matur sem þú hefur bragðað? Bragða helst aldrei neitt sem lít- ur furðulega út, kannski svið? Hverju sérðu mest eftir í lífinu? Man ekki eftir neinu, tímasóun að vera að velta svoleiðis fyrir sér. Trúir þú á líf eftir dauðann? Nei. Grét næstum því á Grease SOS SPURT & SVARAÐ Valgarður Guðjónsson ÞAÐ var fyrir rúmum tveimur árum sem söngkonan Urður Hákonardótt- ir, sem kallar sig Earth, slóst í lið með þeim Gus Gus- limum Birgi Þórarins- syni (Bigga veiru), Magnúsi Guðmunds- syni (Buckmaster) og Stephani Stephensen (President Bongo). Þá var gamla Gus Gus við það að skipta um ham, meðlimir hurfu á braut og við tók gagnger skipu- lagsbreyting. Sveitin tók nú á sig meðfæri- lega stærð og stefnan var sett á dansvæna tæknó/hústónlist. Nýjasta breiðskíf- an, Attention, kom út fyrir stuttu og túr um Bandaríkin er einnig nýlokið. Urður og fé- lagar eru nú að gíra sig upp í frekari átök og áhugasamir geta barið band- ið augum í kvöld, en þá leikur það á stórtónleikum Airwaves í Laugar- dalshöll. „Við byrjuðum að vinna plötuna fyrir tveimur árum,“ upplýsir Urður. „Það gekk svo mikið á í sveitinni á þessum tíma, meðlimir að fara og svona, þannig að ég varð ekki al- mennilega virk strax.“ Hún lýsir samstarfi sveitarinnar sem afslöppuðu. „Platan varð eiginlega ósjálfrátt til upp úr djömmum í hljóðverinu okkar. Það var ekkert sest niður og dregnar upp áætlanir.“ Gus Gus lagðist nokkurn veginn niður eftir aðra breiðskífuna, This is Normal, sem út kom 1999. Þar tók sveitin ákveðin skref í markaðsvænni áttir, með nokkuð vafasömum niður- stöðum eftir á að hyggja. „Ég held að eftir This is Normal hafi hlutirnir farið að verða svolítið erfiðir,“ segir Urður. „Það tók nokk- ur ár að koma þeim í lag aftur. En í dag eru allir mjög sáttir.“ Síðastliðin ár hafa Gus Gus-félagar gert nokkuð af því að ferðast út og standa fyrir plötusnúðasettum. Fyrsti „alvöru- túrinn“ var svo um Bandaríkin í sept- ember og lætur Urður vel af honum. „Fyrir fyrstu tónleikana þurfti ég nánast að taka verkjalyf við stressi. En fljótlega fór þetta að rúlla eðlilega og þetta var mjög skemmtilegt. Mér finnst mjög gaman að fá viðbrögð við því sem maður er að gera hjá áhorfendum.“ Gus Gus er orðin nokkuð þekkt stærð er- lendis og á sér aðdá- endahópa víða um ver- öld. Urður varð vör við þetta þegar hún var í Bandaríkjunum. „Ég er auðvitað ný- komin inn í þetta og mér fannst skrýtið að fólk var að biðja mig eiginhandarárit- un! Mér fannst fyndið að vera sett skyndilega á stall, – þegar maður kannski er að skúra gólf hérna heima þegar maður á ekki pening. Mér fannst þetta svolítið súrrealískt.“ Hún segist hlakka til kvöldsins í kvöld en þetta verða stærstu tón- leikar hennar til þessa. „Við erum öll á sviðinu þegar við spilum á tónleikum. President Bongo kemur líka sterkur inn sem söngvari og deilir með mér ábyrgðinni í fram- línunni.“ Hún segir að lokum að umsvifin hjá sveitinni verði vonandi mikil í vet- ur. „Ég held að samvinna okkar fyrir næstu plötu verði miklu meiri en hún var núna, en við þekktumst auðvitað lítið þegar Attention var unnin. Ég á líklega eftir að verða frekari þegar við byrjum á næstu plötu. Okkur langar að gera nýja plötu sem fyrst og erum þegar farin að pæla í henni.“ Takið eftir! Urður kann því vel að syngja með Gus Gus. Nýtt efni frá Gus Gus Morgunblaðið/Þorkell arnart@mbl.is Miðasala opnar kl. 13.30 Frá John Woo leikstjóra Face Off og MI:2 Sannsöguleg stórmynd um mögnuð stríðsátök. Missið ekki af þessari! Nicholas Cage hefur aldrei verið betri! Sýnd kl. 8 og 10.50. B.i. 16. HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS 3, 5.30, 8 og 10.30. 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. „DREPFYNDIN“ ÞÞ. FBL Yfir 16.000 manns! Einn óvæntasti spennutryllir ársins! Sýnd 2.50.. B.i. 14. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. .Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 2. með ísl. tali. Sýnd kl. 2, 4 og 6. með ísl. tali.  HL Mbl 1/2Kvikmyndir.is FRUMSÝNING Það verður skorað af krafti. Besta breska gamanmyndin síðan “Bridget Jones’s Diary”. Gamanmynd sem sólar þig upp úr skónum. Sat tvær vikur í fyrsta sæti í Bretlandi. Sýnd kl. 4. með ísl. tali. Sýnd kl. 4. með ísl. tali.  HL Mbl Sýnd kl. 5.50 og 8. B. i. 16. Sýnd kl. 10.10. B.i. 16 ára. Maðurinn sem getur ekki lifað án hennar leyfir henni ekki að lifa án hans. Hvernig flýrðu þann sem þekkir þig best? Magnaður spennutryllir í anda Sleeping With the Enemy. Einn óvæntasti spennutryllir ársins! 1/2Kvikmyndir.is FRUMSÝNING FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN Í SÖGU HANNIBAL LECTER anthony HOPKINS edward NORTON ralph FIENNES harvey KEITEL emily WATSON mary-louise PARKER philip seymour HOFFMAN 2 VIK UR Á T OPP NUM Í US A Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B. i. 16.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.