Morgunblaðið - 19.10.2002, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 63
ÞRÁTT fyrir að Tim Burgess sé best þekkt-
ur sem söngvari bresku rokksveitarinar
Charlatans er hann einnig liðtækur plötu-
snúður eins og sást í opnunarteiti tónlist-
arhátíðarinnar Iceland Airwaves á mið-
vikudagskvöldið. Hann hefur fengist við
plötusnúðsstarfið í hléum frá árinu 1994
þegar hann spilaði á skemmtistaðnum The
Albany á Great Portland Street í
London á Heavenly Social-kvöldi.
„Ég var svo stressaður að ég gat
ekki spilað,“ segir hann um þetta
fyrsta skipti en segist þó hafa valið
plöturnar en látið annan um að
setja þær á fóninn. „Mér finnst gam-
an að hafa ástæðu til að kaupa plötur,
aðra en að upplifa tónlistina fyrir sjálfan
mig. Það er líka áhugavert að geta fylgst
með viðbrögðum fólks við tónlistinni,“ segir
hann um aukastarfið.
Leiðist auðveldlega
Tim er ekki mikið fyrir að hafa lítið í
gangi og finnst gott að grípa í plöturnar
þegar Charlatans eru ekki að vinna saman.
„Eftir langt tónleikaferðalag með hljóm-
sveitinni byrjar mér að leiðast svona viku
eftir að ég kem heim. Mér leiðist mjög auð-
veldlega,“ segir hann og hefur greinilega
ekkert á móti því að takast á við ýmiss konar
áskoranir.
Hann býr í Los Angeles með eiginkonu
sinni og líkar vel enda hefur hann haft aðset-
ur þar í nokkur ár. „Það enda allir á því að
búa þar einhvern tíma,“ segir hann og er það
vissulega satt um marga tónlistarmenn.
Hann segir jafnframt að borgin hafi upp á
mikið að bjóða. „Ég hitti fólk, sem mig hefur
alltaf langað til að hitta.“ Er hann þá ekki
ekki síst að tala um fólk úr heimi kvikmynda
og tónlistar enda er Los Angeles margrómuð
höfuðborg skemmtanaiðnaðarins. Hann seg-
ir að „draumkenndur“ eiginleiki borg-
arinnar höfði ekki síst til sín.
Charlatans á Airwaves að ári?
Charlatans hafa verið starfandi frá árinu
1989 og eiga sér dyggan aðdáendahóp hér
á landi. Þetta er þó í fyrsta skipti sem
Tim kemur til Íslands en líklega ekki
hið síðasta. „Það var haft samband
við mig upphaflega til að fá Charlat-
ans til að spila á hátíðinni en það
komust ekki allir með. Ég bauðst þá
til að koma einn í hlutverki plötu-
snúðar,“ segir hann og bætir því við
að hinir strákarnir eigi ábyggilega eftir
að öfunda hann af Íslandsferðinni og fallast
á að spila á Iceland Airwaves að ári liðnu.
Charlatans er ein af þeim hljómsveitum,
sem hafa spilað bæði rokk af gömlum meiði
og leitað í nýrri og rafrænni brunna. Einnig
söng Tim lag með Chemical Brothers fyrir
nokkrum árum. Þetta endurspeglar að
mörgu leyti tónlistarstíl hans þegar hann
snýr plötum því víða er leitað fanga. Þegar
blaðamaður sá hann snúa skífum árið 1996 í
kjallara lítillar krár í austurhluta London
var enska orðið „eclectic“ gjarnan notað til
að lýsa tónlistarstefnu hans og fleiri. Orðið
er notað til að lýsa stefnu þar sem hið besta
úr ýmsum áttum er notað og það hafa ein-
mitt Tim og fleiri gert. „Þetta orð var á sín-
um tíma nauðsynlegt til að lýsa einhverju
sem var framandi en núna er það orðið
normið. Fólk á mínum aldri og yngra hefur
alist upp við svo fjölbreytta tónlist alveg eins
og kokkar hafa núorðið mikið úrval af græn-
meti og ávöxtum,“ útskýrir hann og kemur
ekki lengur á óvart að heyra blöndu af rokki
og rafi spilaða þó hún standi enn fyrir sínu
eins og góður pottréttur.
Langaði að sjá Keikó
Tim kom hingað til lands snemma á
þriðjudagsmorgun og byrjaði á því að hvílast
eftir langt ferðalag frá vesturströnd Banda-
ríkjanna. Hann ætlar að reyna að sjá eitt-
hvað af landinu í heimsókninni, í það
minnsta skreppa í jöklaferð og dýfa sér ofan
í lónið bláa. „Mig langaði til
að sjá Keikó,“ segir hann en
hefur nú þegar frétt þau
ótíðindi að háhyrningurinn
vinalegi sé kominn til Nor-
egs. Tim ætlar einnig að
fylgjast með tónleikum á Ice-
land Airwaves en hann held-
ur af landi brott um helgina.
Tim segir að sér finnist yf-
irstandandi tónlistarhátíð
góð hugmynd. „Þá hefur fólk
ástæðu til að koma til Ís-
lands. Ég er mjög ánægður
með að vera kominn. Ég
verð að játa að fyrir mitt
leyti hefði mér annars ein-
hvern veginn ekki dottið í
hug að koma hingað,“ segir
hann og bætir því við að
hægt væri að fá innilok-
unarkennd á svona lítilli eyju
eins og Íslandi ef maður væri
með snert af ofsóknaræði.
„Ekki svo ósvipað og á Bret-
landi,“ bætir hann við.
Ekki má þó misskiljast að
Tim sé eitthvað hrokafullur
heldur er hann mjög kurteis,
einlægur og stutt er í gam-
ansemina. Prúðmennskan
virðist Bretum í blóð borin.
Ætli það sé eitthvað í teinu?
Tim er langt frá því hætt-
ur í tónlist. „Ég fer í hlut-
verk plötusnúðarins þegar
ég fæ tækifæri til,“ segir
hann en næst spilar hann í
New York síðar í október.
Engir tónleikar eru sem
stendur á döfinni hjá Char-
latans en hljómsveitin
hyggst koma saman í janúar
á næsta ári til að semja tón-
list, fara í hljóðver í júní og
gefa í kjölfarið út nýja plötu.
„Það er langt síðan að ég
komst að þeirri niðurstöðu
að ég vildi alltaf starfa við tónlist. Fyrir utan
það að ég kann ekki að gera neitt annað,
langar mig að vera tónlistarmaður,“ segir
Tim og hlær við. „Mér finnst ég ekki hafa öll
svörin ennþá og langar að búa til tónlist til
að læra og hafa áhrif. Þetta virðist kannski
ekki mikilvægt miðað við margt annað en
þetta er það sem ég vil gera í lífinu.“
Enginn loddari
Söngvari bresku hljómsveitarinnar Charlatans,
Tim Burgess, er staddur hér á landi í tilefni
af tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves.
Inga Rún Sigurðardóttir ræddi við hann um
lífið, tónlistina og Keikó.
ingarun@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Kurteis og einlægur rokkari. Söngvarinn Tim Burgess kann
vel við sig í hlutverki plötusnúðsins og finnst gaman að fylgj-
ast með viðbrögðum fólks við tónlistinni sem hann spilar.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.10.
Nýjasta meistaraverk
Pedro Almodovars
1/2HL MBL
SG DV
ÓHT Rás2
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 10.30.
Maðurinn sem getur ekki
lifað án hennar leyfir henni
ekki að lifa án hans. Hvernig flýrðu þann sem
þekkir þig best? Magnaður spennutryllir í anda
Sleeping With the Enemy.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
1/2Kvikmyndir.is
Sýnd 5.20 og 8. B.i. 14.
Sýnd kl. 6, 8,30 og 10.50. B. i. 16. .
Hljóðlát
sprenging
heimildarmynd um
Magnús Pálsson
myndlistarmann
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Ný Tegund Töffara
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16. .
Frábær spennutryllir með
Heather Graham úr
Boogie Nights og Joseph
Fiennes úr Enemy at the
Gates.
Þegar Alice kynnist draumaprinsinum kemst
hún fljótt að því að ekki er
allt sem sýnist.
FRUMSÝNING
Hverfisgötu 551 9000
ATH!
NÝJASTA
SÝNISHORNIÐ ÚR
THE TWO TOWERS
FRUMSÝNT Á
UNDAN
MYNDINNI
HJ. MBL
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. .
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 2, 8 og 10. Sýnd kl. 2, 4 og 6 með ísl. tali.
SK. RADIO-X SV Mbl
FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN Í SÖGU
HANNIBAL LECTER
FRUMSÝNING
anthony
HOPKINS
edward
NORTON
ralph
FIENNES
harvey
KEITEL
emily
WATSON
mary-louise
PARKER
philip seymour
HOFFMAN
2
VIK
UR
Á T
OPP
NUM
Í US
A