Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 7
Útibú Eignast‡ring Eignafjármögnun Fyrirtækjasvi› Marka›svi›skipti
www.isb.is Vertu me› allt á hreinu!
Íslandsbanki-Eignast‡ring, sem á›ur var VÍB, stendur fyrir árlegum haustfundi
um fjármál einstaklinga á Grand Hótel Reykjavík, í kvöld kl. 20–22.
Húsi› ver›ur opna› kl. 19.30.
fiátttaka er ókeypis en sætafjöldi takmarka›ur.
Fjárfesting 2003
Haustfundur Íslandsbanka-Eignast‡ringar
Ávarp
Valur Valsson, forstjóri Íslandsbanka
Eignastýring við hefðbundnar aðstæður og óvenjulegar
Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri Íslandsbanka-Eignastýringar
Síðustu þrjú ár hafa verið óvenjuleg á alþjóðlegum hlutabréfa-
markaði. Leita þarf aftur um 70 ár til að finna hliðstæðu.
Það er mikilvægt að reyna að átta sig á því hvað hefur breyst
og hvað ekki og hvernig best er að bera sig að við eignastýringu
við núverandi aðstæður.
Hvernig finnur þú þína fjárfestingarstefnu?
Jóhann Ómarsson, forstöðumaður Einkabankaþjónustu
Er fjárfestingarstefna þín rétt? Hvað er gott að hafa í huga
og hversu oft má endurskoða stefnuna? Hvaða tæki er hægt
að nota við ákvörðun á fjárfestingarstefnu?
Kaffihlé
„Ekki sleppa bensíngjöfinni“
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri ALVÍB
Ávöxtun síðustu þrjú árin hefur verið lág hjá innlendum og
erlendum lífeyrissjóðum vegna lækkunar á verði hlutabréfa.
Til þess að tryggja góða langtímaávöxtun borgar sig að
„sleppa ekki bensíngjöfinni“, kaupa áfram hlutabréf og nú
á lægra verði.
Fundarstjóri verður Margrét Sveinsdóttir,
forstöðumaður hjá Íslandsbanka-Eignastýringu.
Dagskrá
Bo›i› ver›ur upp á kaffiveitingar.
Skráning fer fram á vef Íslandsbanka, www.isb.is
og hjá fljónustuveri Íslandsbanka í síma 440 4000.
TVEIR milljarðar 365 milljónir og
200 þúsund sekúndur, eða 75 ár,
voru á sunnudag síðan Úrsmiðafélag
Íslands var stofnað. Úrsmiðir eltast
við sekúndur allan sinn starfsferil en
Frank Úlfar Michelsen, formaður fé-
lagsins, segir að nákvæmni, þolin-
mæði og metnaður séu helstu kostir
úrsmiða.
Það má svo sannarlega segja að
Frank sé úrsmíðin í blóð borin en
faðir hans og afi, sem báðir hétu
sama nafni, Frank Michelsen, voru
einnig úrsmiðir. „Ég ólst eiginlega
upp á vinnustofunni hjá föður mínum
og fékk mikinn áhuga á úrsmíðinni
sem enn er til staðar,“ segir Frank.
Fjórði ættliðurinn á leiðinni
Sjálfur á hann á þrjá syni, sá elsti
heitir Frank en áhugasvið hans ligg-
ur annars staðar. „Annar heitir Ró-
bert, hann hefur allt sem þarf til að
verða góður úrsmiður og er kominn
á samning hjá mér. Fjórði ættliður-
inn er því á leiðinni, en hann heitir
reyndar ekki Frank,“ segir Frank og
hlær. Aðspurður hvað heillar við úr-
smíðina segir Frank að nákvæmnin,
„þessi fínmekkanismi“ sé svo
heillandi. „Það er bara eitt það
skemmtilegasta sem ég geri að vinna
með vandað úr, það er mjög gef-
andi,“ segir hann.
Úrsmíðin er með elstu starfs-
greinum sem enn er unnið við, en
fagið varð til á 13. öld þegar fyrstu
gangverksklukkurnar voru smíðað-
ar. Segir Frank að fyrsti úrsmiður-
inn, Þorgrímur Tómasson, hafi hafið
störf hér á landi í byrjun 19. aldar.
Frá upphafi sé vitað um 131 úrsmið
sem hefur lokið námi í greininni en í
dag eru um 44 úrsmiðir í félaginu,
þar af margir sem hafa látið af störf-
um sökum aldurs.
„Það er framtíð í úrsmíði og þá
sérstaklega í úrsmíði vandaðra úra,
en þetta verður aldrei fjölmenn
stétt,“ segir Frank. Hann segir að
það sé nóg að gera í viðgerðum vand-
aðra úra, hann fái úr í viðgerð sem
kosti 2–3 milljónir króna. Einnig
komi fólk með gömul úr í viðgerð,
fermingarúr foreldranna eða úr frá
afa og ömmu. „Oft eru þetta úr frá
18. öld sem hafa gengið á þriðju öld.
Þau koma enn inn í viðgerðir, fólk
notar þetta ekki daglega, en úr eru
oft það eina sem er til frá forfeðr-
unum.“
Morgunblaðið/Kristinn
Frank sæmir Axel Eiríksson, forseta samtaka úrsmiða á Norðurlöndum,
gullmerki Úrsmiðafélags Íslands fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og
fagsins. Úrsmiðir héldu upp á 75 ára afmæli félagsins í húsakynnum Sam-
taka iðnaðarins á laugardag þar sem mikið var um dýrðir.
75 ár voru á sunnudag frá stofnun Úrsmiðafélags Íslands
Nákvæmni og þolinmæði
helstu kostir úrsmiða
STARFSMENN Læknavakt-
arinnar í Smáranum í Kópa-
vogi hafa orðið varir við
nokkra aukningu í aðsókn í
kjölfar þess að dregið hefur
verið úr þjónustu barna-
læknavaktarinnar í Domus
Medica, að sögn Böðvars
Arnar Sigurjónssonar læknis.
„Hingað kemur mikið af
börnum en við höfum þó ekki
orðið vör við marktæka fjölg-
un. Börn eru velkomin til
okkar,“ segir Böðvar Örn.
Utan hefðbundins vinnu-
tíma geta foreldrar veikra
barna leitað á nokkra staði.
Læknavaktin í Smáranum er
opin frá kl. 17 alla virka daga
til kl. 23.30. Eftir það bjóða
læknarnir upp á vitjanaþjón-
ustu til klukkan 8 á morgn-
ana. Um helgar er afgreiðslan
opin frá kl. 9–23.30 og er vitj-
anaþjónusta allan sólarhring-
inn um helgar.
Þá er vakt utan dagvinnu-
tíma á heilsugæslustöðvunum
í Reykjavík, Seltjarnarnesi,
Kópavogi og Mosfellsbæ. Á
heilsugæslustöðinni í Grafar-
vogi frá kl. 18–19 samkvæmt
tímapöntun, í heilsugæslu-
stöðinni Miðbæ kl. 17–19
samkvæmt tímapöntunum,
heilsugæslustöðinni í Lág-
múla frá kl. 17–19 fyrir alla
sem skráðir eru á stöðina og
alla íbúa hverfisins sem ekki
hafa heimilislækni og á
heilsugæslustöðinni á Sel-
tjarnarnesi frá kl. 17–18:30
fyrir íbúa hverfisins. Á
heilsugæslustöðinni í Mos-
fellsbær er sólarhringsvakt
alla daga ársins.
Samdráttur hjá
Domus Medica
Foreldrar
veikra
barna geta
leitað annað