Morgunblaðið - 29.10.2002, Síða 13

Morgunblaðið - 29.10.2002, Síða 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 13                ! " ! #      !                          !  $% #&  & '  (! )!  * # #) +  "," )-  #" *+ )   .     /    .) 0+     . !     1 *   +  )    "+   . !     UMSÆKJANDI, sem sótti um starf tilsjónarmanns með sambýli í Kópa- vogi, hefur krafist þriggja mánaða launa auk miskabóta vegna þeirrar meðferðar sem umsókn hans hlaut hjá bænum, en umsækjandinn gagn- rýndi það að kynhneigð hans hafði verið gerð að umtalsefni í atvinnu- viðtali vegna starfsins. Bæjarlög- maður vísar kröfum umsækjandans á bug og segir þær tilhæfulausar og órökstuddar. Í apríl síðastliðnum greindi Morg- unblaðið frá umkvörtunum umsækj- anda um stöðu umsjónarmanns með sambýli unglingspilta, sem verið var að koma á fót í Kópavogi. Hafði hann verið spurður út í kynhneigð sína í atvinnuviðtali vegna starfsins en maðurinn er samkynhneigður. Ann- ar umsækjandi var svo ráðinn í starf- ið. Nú hefur lögmaður mannsins krafist þess að bærinn bæti honum upp það tjón sem meðferð á umsókn hans hafði í för með sér. Segir í bréfi hans að kynhneigð umsækjandans hafi beinlínis orðið þess valdandi að hann hafi ekki verið valinn í starfið, þrátt fyrir að vera hæfastur sam- kvæmt gögnum um menntun og starfsreynslu. Segir lögmaðurinn meðferðina ólögmæta enda brjóti hún í bága við ákvæði mannréttinda- sáttmála Evrópu og mannréttinda- ákvæði íslensku stjórnarskrárinnar. Hafi verið kominn með vilyrði fyrir starfinu Þá segir lögmaðurinn að umbjóð- andi hans, sem þá var búsettur í Danmörku, hafi verið í sambandi við starfsmann Kópavogsbæjar vegna umsóknarinnar og talið sig hafa munnlegt vilyrði fyrir því að hann fengi starfið. Þetta hafi orðið til þess að hann ákvað að flytja til Íslands. Þegar heim var komið hafi hins veg- ar verið ákveðið að auglýsa starfið sem hann sótti síðan um eins og fyrr greinir. Fer umsækjandinn fram á þriggja mánaða laun, samtals 600 þúsund krónur og miskabætur, sem næmu 300 þúsund krónum, auk innheimtu- kostnaðar. Segir í bréfi lögmanns hans að verði ekki gengið að kröfunni verði málið rekið fyrir dómstólum. Í svarbréfi bæjarlögmanns segir að verulega sé hallað réttu máli. Ómálefnaleg og ólögmæt sjónarmið hafi ekki ráðið því að maðurinn var ekki ráðinn í starfið og fráleitt sé að hann hafi haft vilyrði fyrir því að hann yrði ráðinn. Er kröfunum því hafnað enda séu þær tilhæfulausar og órökstuddar. Í samtali við Morgunblaðið sagði Þórður Clausen Þórðarson bæjar- lögmaður að bænum hefði ekki verið stefnt fyrir dómstóla vegna málsins. Umsækjandi um starf tilsjónarmanns unglingasambýlis Krefst þriggja mánaða launa auk miskabóta Kópavogur Bærinn vísar kröfunni á bug ANDI gamallar rokktónlistar og brilljantíns sveif um ganga og stof- ur Hagaskóla í gær en þá brugðu nemendur og kennarar á leik með því að halda uppi heiðri sjötta ára- tugarins. Kvikmyndin Grease var í forgrunni, bæði hvað varðaði tón- list og fatnað auk þess sem myndin sjálf var sýnd á breiðtjaldi í skól- anum. Að sögn Dóru Sifjar Ingadóttur, sem situr í stjórn nemendafélags- ins, er Grease-dagurinn tilkominn vegna vetrarfrísins sem hefst í skól- anum í dag. „Það var bara einn dagur á milli helgarinnar og frís- ins. Þess vegna ákváðum við að gera eitthvað sniðugt af því það nennir enginn að vera í skólanum í einn dag.“ Söngkeppni í hádeginu Hún segir kennara hafa skipu- lagt uppákomur í tímum og í löngu frímínútunum hafi kvikmyndin Grease verið sýnd á breiðtjaldi í skólanum. Mikil stemmning hafi verið í skólanum og að krökkunum hafi þótt gaman að myndinni þótt hún sé komin til ára sinna. „Þeim finnst hún mjög skemmtileg og allir eru mjög ánægðir að við séum að gera eitthvað svona öðruvísi,“ segir Dóra. Auk myndasýningarinnar var efnt til karókí-keppni í hádeg- ishléinu þar sem hugaðir krakkar sungu lög úr myndinni en nem- endastjórnin lét ekki þar við sitja. „Við ákváðum að láta alla mæta í gallabuxum og hvítum bol eins og krakkana í myndinni þannig að all- ir væru eins,“ segir Dóra. „Það mættu reyndar ekki alveg allir í hvítum bol en þó nokkrir. Það er mjög skemmtilegt að allir séu eins því það verður svolítið sérstakt þannig.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Í hádeginu var keppt í karókí þar sem lögin úr Grease voru sungin. Grease-hetjur og gallabuxur Dóra Sif segir krakka í Hagaskóla hafa gaman af kvikmyndinni Grease þrátt fyrir að hún sé komin til ára sinna. Vesturbær FORMAÐUR skipulags- og bygg- inganefndar Reykjavíkur vísar á bug gagnrýni fulltrúa íbúa í Rimahverfi um að samráði við íbúa, vegna mót- unar tillögu að skipulagi Landssím- areitsins, hafi verið ábótavant. Hún segir hins vegar ljóst að samráð feli ekki í sér að gengið sé að öllum kröf- um annars aðilans. Í Morgunblaðinu á föstudag sagði Emil Arnar Kristjánsson, annar fulltrúi íbúa í samráðshópi sem kom- ið var á laggirnar vegna tillögunnar, að hann hafi komið að mótaðri tillögu þegar hópurinn kom saman. Komu til móts við athugasemdir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, for- maður skipulags- og bygginganefnd- ar, segir að ákveðnar athugasemdir hafi legið fyrir um eldri skipulagstil- lögu sem kynnt var í vor. „Við unnum með þær athugasemd- ir og vorum auðvitað með ákveðna tillögu þegar við hittum fulltrúa íbúa en hún byggðist á þegar þekktum at- hugasemdum sem við höfðum komið til móts við. Þegar við hittum þá komu þeir með athugasemdir til við- bótar sem lutu meðal annars að um- ferðarmálum. Við unnum með þær og tillagan tók breytingum í því ferli þannig að ég vil mjög eindregið vísa þessari gagnrýni á bug því hún á ekki rétt á sér.“ Í Morgunblaðinu gagnrýndi Emil enn fremur að ekki hefði verið tekið tillit til athugasemda íbúa varðandi þéttleika byggðarinnar á reitnum. „Við töldum að íbúar hefðu ýmislegt til síns máls varðandi hæð húsanna og umferðarmálin sem við tókum til- lit til,“ segir Steinunn. „Þéttleikinn byggist hins vegar á því að í nýju að- alskipulagi Reykjavíkur er gert ráð fyrir að byggja mun þéttar en gert hefur verið. Að vandlega íhuguðu máli höfum við ekki gert breytingar á íbúafjöldanum þannig að það hefur ekki verið fallist á öll sjónarmið íbú- anna. Samráðsferli felur auðvitað ekki í sér að annar aðilinn fái allt sitt fram.“ Starfshópurinn hafi lokið störfum í bili Hvað varðar framhald málsins segir Steinunn að tillagan verði væntanlega kynnt í skipulags- og bygginganefnd þar sem farið verði yfir þær athugasemdir sem fram komu á kynningarfundi síðastliðinn þriðjudag. „Væntanlega verður til- lagan síðan kynnt í hverfisráði Graf- arvogs og unnið með íbúasamtökun- um en ég lít svo á að þessi hópur sem Emil og Hallgrímur voru í hafi lokið störfum í bili.“ Aðspurð hvort tillagan verði aug- lýst segir Steinunn það ekki ljóst á þessari stundu. „Það er verið að kanna hvort þess þurfi lögfræðilega séð en skipulags- og byggingalögum er kveðið skýrt á um að það þurfi ekki að endurauglýsa tillögu nema veigamiklar breytingar hafi verið gerðar. Það má auðvitað segja að í þessu tilfelli séum við að bregðast við athugasemdum við fyrri tillögunni og koma til móts við ákveðin sjónarmið. Það má færa rök fyrir því að þess vegna þurfi ekki að auglýsa hana aft- ur enda er ekki verið að skerða neina hagsmuni núna umfram það sem var í hinni tillögunni heldur þvert á móti. En við erum að láta skoða hvernig við eigum að túlka þetta.“ Formaður skipulagsnefndar hafnar gagnrýni á samráð vegna Landssímareits Þýðir ekki að gengið sé að öllu Grafarvogur BÆJARYFIRVÖLD á Seltjarnar- nesi hafa átt í viðræðum við fyrir- tækið Stoðir um leigu á húsnæði á Eiðistorgi undir starfsemi bókasafns bæjarins. Segir bæjarstjóri að hann vonist til að flutningurinn muni efla bæði Eiðistorg og bókasafnið, gangi hann eftir. Að sögn Jónmundar Guðmarsson- ar bæjarstjóra er um að ræða hús- næði á hæðinni fyrir ofan Hagkaup á Eiðistorgi en hann segir tvær ástæð- ur fyrir því að ákveðið var að hefja viðræður við eigendur húsnæðisins um leigu á því. „Það eru ákveðin þrengsli um safnið þótt það sé ekki þannig að því sé ekki vært þar sem það er. Síðan lýstum við í núverandi meirihluta því yfir fyrir kosningar að við myndum reyna að hugsa um hagsmuni safns- ins og gera fólki betur kleift að sækja það en um leið efla mannlíf á Eiðistorgi. Þá kom upp sú hugmynd í kosningabaráttunni að við myndum leita eftir því að færa safnið á torgið með það fyrir augum að skapa meira líf á torginu sjálfu.“ Hann segir húsnæðið hafa staðið autt um nokkurt skeið. „Af og til hef- ur verið rekstur í þessu húsnæði sem ekki virðist hafa gengið sem er auð- vitað mjög leitt því þetta er í hjarta miðbæjarins hjá okkur og við höfum auðvitað áhuga á því að torgið sé lif- andi og fólk sæki þangað. Við sjáum til dæmis möguleika á að hafa þarna sambýli bókasafns og netkaffis þannig að það eru margar góðar hugmyndum í kring um þetta.“ „Ekki beint nauðsynlegt“ Aðspurður segir Jónmundur við- ræðurnar ekki hafa leitt til neinnar niðurstöðu en búið sé að setja á lagg- irnar vinnuhóp með fulltrúum Stoða og forstöðumanns bókasafnsins. „Hópurinn á að koma með tillögur um það hvernig þetta getur gert sig og við munum síðan á grundvelli þeirra hugmynda halda áfram með viðræður um verkefnið sjálft. Flest- um finnst þetta góð hugmynd en við munum ekki fara út í þetta nema okkur sé fjárhagslega stætt á því þar sem þetta er ekki beint nauðsynlegt verkefni,“ segir Jónmundur. Ræða flutning bókasafnsins Seltjarnarnes Morgunblaðið/Þorkell Bókasafnið er sem stendur til húsa á Skólabraut en það gæti breyst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.