Morgunblaðið - 29.10.2002, Page 15

Morgunblaðið - 29.10.2002, Page 15
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 15 LEIKFÉLAG Keflavíkur fær 460 þúsund króna styrk vegna leikstjóralauna. Er það hæsti styrkurinn sem menn- ingar- og safnaráð Reykja- nesbæjar samþykkti á fundi sínum fyrir skömmu. Menningar- og safnaráð fékk fjölda umsókna um styrki. Þeir styrkir sem ráðið ákvað að veita verða afhentir á fundi nefndarinnar 12. nóv- ember næstkomandi um leið og tilkynnt verður hverjir fá menningarverðlaun Reykja- nesbæjar. Karlakór Keflavíkur og Kvennakór Suðurnesja fá 200 þúsund króna styrk hvor kór vegna hefðbundins kóra- starfs. Félag myndlistar- manna fær sömuleiðis 200 þúsund, vegna námskeiða- halds. Sturlaugur Jón Björnsson og Ingi Garðar fá styrk að fjárhæð 100 þúsund vegna tónleikaferða. Sossa Björns- dóttir fær sömu fjárhæð vegna sýningarhalds. Konráð K. Björgólfsson fær 60 þús- und króna styrk vegna útgáfu á geisladiski og Gísli B. Gunnarsson fær 20 þúsund vegna sýningarhalds. Leik- félagið fær hæsta styrkinn Reykjanesbær EINSTAKLINGAR eru að byggja upp fjölþætta lista- og menningar- miðstöð í Sandgerði. Miðstöðin verður í gamla kaupfélagshúsinu sem er í kjarna bæjarins. „Þetta er gamall draumur sem rættist þegar við komum auga á þetta hús,“ segir Marta Eiríks- dóttir, leiklistarkennari Fjöl- brautaskóla Suðurnesja, um ástæðu þess að hún og maður hennar, Friðrik Þór Friðriksson rafvirki, ákváðu að setja upp lista- og menningarmiðstöðina. Marta segir að húsið hafi staðið autt í ár þegar þau festu kaup á því í þess- um tilgangi. Það hafi hins vegar verið illa farið og mikill tími farið í að gera við það. Búið er að mála gamla kaupfélagshúsið að utan, í skrautlegum litum svo það fer ekki fram hjá vegfarendum. Þau hyggjast hefja starfrækslu miðstöðvarinnar í janúar næstkom- andi. Marta segir að ýmis starfsemi verði á vegum hennar. Þar verði haldin leiklistarnámskeið, dans- námskeið, söngkennsla, leikfimi og jóga. Starfsemin er í mótun en hugmyndirnar ganga út á að þar verði fjölbreytt líkams- og sál- arrækt. Starfseminni er ætlað að ná til allra aldurshópa, allt frá ungum börnum til eldri borgara, til Sand- gerðinga og annarra Suðurnesja- manna. Þá verður boðið upp á helgarnámskeið með erlendum og innlendum gestafyrirlesurum og þau eru hugsuð fyrir alla lands- menn. Hafa Marta og Friðrik Þór tekið upp samvinnu við eigendur sumarhúsabyggðarinnar á Þór- oddsstöðum við Sandgerði um að taka við þátttakendum í gistingu, fólki sem ekki getur ekið til síns heima að kvöldi eða vill frekar gista á staðnum. „Tilgangurinn er að fá fólk til að slökkva á sjónvarpinu og tölvunni og taka þátt í að skapa eitthvað skemmtilegt í kringum sig. Og um leið er þetta forvarnarstarf fyrir börn og unglinga. Það er hægt að gera svo margt til að lífga upp á tilveruna,“ segir Marta. Þess má geta að Sandgerðisbær mun að öllum líkindum styðja við uppbygginguna með því að kaupa og setja upp hljómtæki í húsið. Samþykkt hefur verið í bæjarráði að leggja tillögu þessa efnis fyrir bæjarstjórn. Fyrirhugað er að gera samstarfssamning við eigendur miðstöðvarinnar. Með þessu vill bærinn meðal annars koma að nokkru til móts við þarfir ung- linga, 16 ára og eldri, í þjálfun framkomu og sjálfsstyrkingu hvers konar, eins og það er orðað. Hægt að gera svo margt til að lífga upp á tilveruna Gamla kaupfélagshúsið hefur fengið litríka andlitslyftingu. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Friðrik Þór Friðriksson og Marta Eiríksdóttir. Sandgerði SIGRÍÐUR Snæbjörnsdóttir telur að staðsetning í útjaðri höfuðborg- arsvæðisins skapi Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja ýmsa mögu- leika sem hún hefur hug á að nýta. Sigríður tekur við starfi fram- kvæmdastjóra stofnunarinnar 1. desember næstkomandi. Sigríður tók við starfi fram- kvæmdastjóra Heyrnar- og tal- meinastöðvar Íslands fyrir rúmu ári og segir að starfið þar hafi ver- ið mjög spennandi. Þar hafi verið mörg óleyst mál en unnið hafi verið að uppbyggingu innra starfs stofn- unarinnar. „Ég tel mig skila af mér tiltölulega góðu búi. Reksturinn hefur snúist við, öll mál komin á hreint og búið að marka stefnuna til framtíðar,“ segir Sigríður. Hún segist hafa verið í sumarfríi þegar auglýsing birtist um stöðu framkvæmdastjóra Heilbrigð- isstofnunar Suðurnesja. „Það var eitthvað við hana sem snart mig, mér fannst þetta spennandi verk- efni að takast á við og eftir að hafa hugsað málið ákvað ég að sækja um,“ segir Sigríður. Hún hefur lengi starfað sem stjórnandi á hjúkrunarsviði á stóru sjúkrahúsunum, meðal annars sem hjúkrunarforstjóri á Borgarspít- alanum og Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Segir Sigríður að þótt núverandi starf sé áhugavert hafi hún gjarn- an viljað vera í nánari tengslum við sjúklinga en þar sé unnt og talið að þekking sín og reynsla gæti nýst vel í stöðu framkvæmdastjóra Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja. Hún segir of snemmt að ræða mikið nýjar áherslur í rekstri stofnunarinnar eða breytingar. Hún horfir þó til staðsetningar stofnunarinnar í nágrenni höf- uðborgarsvæðisins og segist telja að það skapi henni sóknarfæri í heilbrigðisþjónustunni. Heilbrigð- isstofnunin rekur sjúkrahús í Keflavík, hjúkrunarheimili í Grindavík og heilsugæslustöðvar á báðum stöðum. Sigríður segist hafa áhuga á að taka þátt í að auka sam- vinnu heilsugæslustöðvarinnar og sjúkrahússins og að það gæti orðið fyrirmynd fyrir aðra. Sjálfsagt sé að nýta sér fyrirkomulag sem vel hafi reynst á sambærilegum stofn- unum erlendis. Heilbrigðisstofnunin hefur átt við fjárhagsörðugleika að etja. Sig- ríður segist ekki hafa sett sig inn í þau mál en segir að allar heilbrigð- isstofnanir búi við vissa fjárhags- erfiðleika og lýsir þeirri skoðun sinni að þeir fari væntanlega ekki batnandi. Hún segir nauðsynlegt að forgangsraða í heilbrigðisþjón- ustunni og það sé hægt að gera. „Ég efast ekki um að það þarf að fara í ýmsar skipulagsbreytingar á þessari stofnun. Ég er ekki óvön því að vinna að þeim. Við þannig vinnu koma oft upp ný sjónarhorn og svo er spurningin hvort ekki komi upp nýir tekjuöflunarmögu- leikar.“ Sigríður Snæbjörnsdóttir horfir bjartsýn til samstarfs við starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar enda segist hún vera teymismanneskja og njóta þess að starfa með góðu fólki. „Heilbrigðisþjónustan grund- vallast á fólkinu sem við hana vinn- ur. Ef vel er stutt við bakið á því fær maður það vel launað til baka,“ segir hún. Sigríður Snæbjörnsdóttir tekur við starfi framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Staðsetningin skapar sóknarfæri Keflavík Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.