Morgunblaðið - 29.10.2002, Qupperneq 16
LANDIÐ
16 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsendur!
Pantið fyrir kl. 16
á mánudögum!
Sérrit um bækur fylgir Morgunblaðinu
hvern miðvikudag fram að jólum.
Allir nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
í síma 569 1111 eða augl@mbl.is
Meðal efnis eru viðtöl við
höfunda, fréttir og gagnrýni
um nýjar bækur.
RÆKTUNARSAMBAND Flóa og
Skeiða vinnur nú við tilraunaborun
eftir heitu og köldu vatni á Brekku-
bæ á Hellnum. Borunin hófst fyrir
rúmri viku og er búið að bora eina
tilraunaholu og unnið við aðra.
Farið er í gegnum mörg jarðlög
en laus yfirborðslög hafa almennt
valdið vandamálum við borun á
Snæfellsnesi. Önnur holan var bor-
uð niðri við sjávarmál og skilar um
10 sekúndulítrum af köldu vatni. Er
mikill fengur að vatninu, því allt frá
því byggð hófst á Hellnum hefur
vatnsöflun verið eitt helsta vanda-
mál íbúanna. Í gegnum tíðina var
notast við yfirborðsvatn eða vatn úr
Maríulindinni allt fram til ársins
1793 er Ásgrímur Hellnaklerkur lét
grafa brunn í fjörunni sem notaður
var til ársins 1962. Þá var lögð
vatnsleiðsla til Hellna frá upptökum
Dagverðarár en það er um 7 km
leið. Sú leiðsla er orðin gömul og
þarf endurnýjunar við. Með þessum
nýja vatnsfundi á Hellnum horfa
menn m.a. björtum augum til betri
brunavarna á svæðinu auk þess sem
þarna er komið nægt neysluvatn
fyrir væntanlega byggð í plássinu,
sem samkvæmt aðalskipulagi verð-
ur töluverð.
Hin holan er boruð ofar í landi
Brekkubæjar og er yfirborð hennar
í 40 metra hæð yfir sjávarmáli.
Efsta lagið þar undir er móberg og
undir því er kargahraunlagastafli
allt niður í sjötíu og einn metra.
Kargalögin eru einn til níu metrar á
þykkt og mettuð af köldu vatni, sem
væntanlega hefur komið úr jöklin-
um í aldanna rás. Skilar hún einnig
um 10 sekúndulítrum af vatni sem
fannst á 39,5 metra dýpi. Fóðra hef-
ur þurft báðar holurnar niður að
gamla berglaginu sem er undir
kargalaginu en borunin hefur að
öðru leyti gengið mjög vel.
Loksins kalt
vatn á Hellnum
Hellnar
Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann
Starfsmenn Ræktunarsambands Flóa og Skeiða, Ólafur R. Sigfússon,
Johnny Símonarson og Sveinbjörn Jóhannsson, við jarðborinn Trölla.
DAÐI Guðbjörnsson myndlist-
armaður sýnir nú í neðri salnum í
Tryggvasafni í Neskaupstað. Sýn-
ingin er eins konar yfirlitssýning
þar sem Daði sýnir verk síðustu
fimm ára. „Þetta er svona dæmi-
gerður Daði,“ segir listamaðurinn,
„samt er örlítið sjóþema út af
tengslum við Magna.“ En Magni
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Tryggvasafns, var skipstjóri til
margra ára.
Nýjasta verkið heitir: „Margt býr
í þokunni“ og var það sérstaklega
unnið fyrir sýninguna. Verkið vísar
í hina alræmdu Austfjarðaþoku
sem stundum liggur yfir fjörð-
unum. Sýning á verkum Daða mun
standa í þrjár til fjórar vikur.
Sýning Daða er önnur sýningin í
Tryggvasafni á árinu en í sumar
stóð yfir sumarsýning á verkum
Tryggva Ólafssonar. Að sögn
Magna er fyrirhugað að halda fimm
sýningar á þessu ári og verður sú
næsta opnuð í efri sal safnsins um
næstu helgi. Þar er um að ræða
nýja sýningu á verkum Tryggva.
Þá er gert ráð fyrir að listamenn af
fjörðunum verði með sölusýningu á
verkum sínum fyrir jól, en fimmta
sýningin er ekki alveg frágengin.
Morgunblaðið/Kristín
Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Daði Guðbjörnsson
listamaður og Magni Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tryggvasafns.
Dæmigerður Daði
Neskaupstaður
NÝLEGA var tekin fyrsta skóflu-
stungan að stækkun leikskólans
Krílakots í Ólafsvík. Aðdragandi að
stækkun leikskólans er sá að hinn 11.
júní sl. bar Ásbörn Óttarsson, forseti
bæjarstjórnar, upp tillögu þess efnis
að ráðist verði í stækkun leikskólans
og var tillagan samþykkt samhljóða.
Samið var við arkitektastofuna
Arkþing um hönnun stækkunarinnar
og á haustmánuðum var verkið boðið
út. Þegar tilboðin voru opnuð kom í
ljós að átta aðilar buðu í verkið og var
Trésmiðja Guðmundar Friðrikssonar
ehf. í Grundarfirði með lægsta tilboð-
ið, það hljóðaði upp á 26.603.663 kr.
Kostnaðaráætlun þessa verkþáttar
mun hafa hljóðað upp á rúmar 30
milljónir.
Reiknað er með að heildarbygging-
arkostnaður verði rúmar 32 milljónir.
Guðrún Karlsdóttir, fyrrverandi
leikskólastjóri Krílakots, tók skóflu-
stunguna eftir að Kristinn Jónasson
bæjarstjóri flutti ávarp. Að skóflu-
stungunni lokinni sungu leikskóla-
börnin lagið „Í leikskóla er gaman“
fyrir viðstadda.
Eldri bygging leikskólans er um
264 fermetrar og er nýbyggingin 148
fermetrar svo að um verulega stækk-
un á húsnæðinu er að ræða, auk þess
sem farið verður í endurbætur á
eldra húsnæði samhliða nýbygging-
unni, m.a. verður sett nýtt þak á allt
húsið.
Í dag eru 67 börn í leikskólanum og
skipta þau á milli sín 42 plássum með
því að sum eru aðeins hálfan daginn
en nokkur þeirra sem eru hálfan dag-
inn eru á biðlista eftir heilsdagsplássi
og mun þeirri þörf verða fullnægt
með stækkuninni. Eftir stækkun
verður leikskólinn með pláss fyrir 60
börn í heilsdagsvistun. Verklok eru
áætluð 15. apríl 2003.
Morgunblaðið/Alfons
Guðrún Karlsdóttir, fyrrverandi leikskólastjóri, tók skóflustunguna og Kristinn Jónasson bæjarstjóri flutti ávarp.
Krílakot stækkað
Ólafsvík
DANSKENNSLA var haldin í Grundarfirði á
dögunum. Um 90 krakkar á leikskóla- og
grunnskólaaldri nýttu sér tækifærið og stigu
dansspor. Kenndir voru helstu dansar, bæði
nýir og gamlir dansar. Námskeiðið stóð í sjö
daga og var kennt klukkutíma í senn. Síðan var
árangurinn sýndur og ekki var annað að sjá en
að krakkarnir hefðu haft af þessu gagn og gam-
an. Leiðbeinendur voru Ásrún Kristjánsdóttir
og Hanna Steinunn Steingrímsdóttir dans-
kennarar.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Yngstu nemendurnir sýna það sem þeir hafa lært.
Margir í
danskennslu
Grundarfjörður