Morgunblaðið - 29.10.2002, Qupperneq 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 17
Málning
fyrir vandláta
Bindoplast 7 10 lítrar
TILBOÐ
kr. 5.900,-
HJÓLSÖG 5704R
0 = 190 mm, 1200 W
TILBOÐSVERÐ
16.000.00
Vilhelmsson stjórnarmaður í Þormóði
ramma-Sæbergi hf. er stjórnarfor-
maður Afls fjárfestingarfélags hf.
Þá seldi Þormóður rammi-Sæberg
hf. í gær öll eigin hlutbréf félagsins,
fyrir rúmar 4,9 milljónir að nafnvirði.
Bréfin voru seld á genginu 4,8 og er
markaðsvirði hlutarins því um 23,5
milljónir króna.
AFL fjárfestingarfélag hf. keypti fyr-
ir helgihlutafé í Þormóði ramma-Sæ-
bergi fyrir tæpar 22,5 milljónir króna
að nafnverði á verðinu 5,01 eða fyrir
112,6 milljónir króna. Eignarhlutur
Alfs fjárfestingarfélags í Þormóði
ramma eftir viðskiptin nemur um 490
milljónum króna að nafnverði eða um
43% af hlutafé félagsins. Þorsteinn
Afl eykur hlut sinn í
Þormóði ramma-Sæbergi
LENA Sommestad, umhverf-
isráðherra Svíþjóðar, segir að
koma verði í veg fyrir að Ís-
lendingar hefji hvalveiðar.
Eins og kunnugt er var aðild-
arumsókn Íslendinga að Al-
þjóðahvalveiðiráðinu sam-
þykkt á fundi ráðsins fyrir
skömmu og greiddu Svíar
m.a. atkvæði með aðild Ís-
lands. Í fyrirvara við umsókn
sína skuldbinda Íslendingar
sig til að hefja ekki hvalveiðar
í atvinnuskyni fyrr en í fyrsta
lagi árið 2006. Sænsk stjórn-
völd hafa haldið því fram að
Svíar hafi greitt Íslendingum
atkvæði sitt fyrir mistök og
Sommestad segir að stefna
Svía sé enn sú sama, ekki eigi
að heimila einu ríki að hefja
hvalveiðar og hlutverk
sænskra stjórnvalda sé að
koma í veg fyrir það. Haft er
eftir talsmanni sænska um-
hverfismálaráðuneytisins að
Svíar muni þrýsta á Íslend-
inga að draga til baka fyr-
irvarann við hvalveiðibannið
og, ef nauðsyn krefur, muni
Svíar þrýsta á um að greidd
verði atkvæði um fyrirvarann
á næsta fundi Alþjóðahval-
veiðiráðsins.
Svíar vilja
koma í
veg fyrir
hvalveiðar
SÖLUHAGNAÐUR vegna sölu á
stórum eignarhlut í Vátrygginga-
félagi Íslands hafði mikil áhrif á
afkomu Landsbanka Íslands í níu
mánaða uppgjöri, eins og fjallað
var um í Morgunblaðinu á laug-
ardag. Söluhagnaðurinn var liðlega
900 milljónir króna, sem er nær
helmingur af hagnaði bankans fyr-
ir skatta á fyrstu níu mánuðum
ársins. Sé aðeins litið á þriðja
fjórðung ársins sneri þessi sala
tapi fyrir skatta í hagnað, en hagn-
aður þess fjórðungs fyrir skatta
var 755 milljónir króna. Arðsemi
fyrstu níu mánaða ársins var innan
þeirra markmiða sem bankinn hef-
ur sett sér, en án sölu á hlutabréf-
unum í VÍS hefði bankinn ekki náð
þeim markmiðum sínum.
Haukur Þór Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs
Landsbankans, segir að áform hafi
verið um að minnka hlut bankans í
VÍS og því hafi bankinn gert ráð
fyrir einhverjum söluhagnaði
vegna VÍS í áætlunum sínum. Ætl-
unin hafi þó ekki verið að selja
jafnstóran hlut og gert hafi verið
og því sé söluhagnaðurinn meiri en
samkvæmt áætlunum.
Haukur Þór segir að skýring-
arnar á lakari afkomu en áætlanir
hafi gert ráð fyrir þegar söluhagn-
aður af VÍS sé undanskilinn, séu
aðallega af tvennum toga. Annars
vegar hafi meira verið lagt í af-
skriftareikning útlána en ætlað
hafi verið, en það stafi af því að
ákveðnar atvinnugreinar hafi átt í
erfiðleikum. Landsbankinn hafi
ákveðið að sýna varfærni með því
að færa frekar meira en minna inn
á afskriftareikning. Framlag á af-
skriftareikning á fyrstu níu mán-
uðum þessa árs nam 1.930 millj-
ónum króna, sem er rúmum 400
milljónum króna hærra framlag en
á sama tímabili í fyrra.
Tap vegna gengis tækni-
og hugbúnaðarfyrirtækja
Hins vegar hafi bankinn orðið
fyrir tapi vegna gengis fyrirtækja í
hugbúnaðar- og tæknigeira. Við-
snúningur hafi þó orðið hjá
ákveðnum fyrirtækjum í þessum
geirum frá níu mánaða uppgjöri og
ef bætt gengi haldist komi það
fram sem hagnaður á þessum
fjórðungi í ársuppgjöri. Haukur
Þór segir að þarna sé bæði um að
ræða skráð fyrirtæki og óskráð og
nefnir Íslandssíma og Íslenska
hugbúnaðarsjóðinn sem dæmi, en
þau séu bæði skráð í Kauphöll Ís-
lands og hafi lækkað á fyrstu níu
mánuðum ársins. Hann segir að þó
að tekin hafi verið ákvörðun um að
lækka óskráðu hlutabréfin vegna
varúðarsjónarmiða, þýði það ekki
endilega að verðmætið sé tapað og
að síðar kunni að koma hagnaður
út úr þessum eignum. Gengistap af
hlutabréfum nam 513 milljónum
króna á fystu níu mánuðum þessa
árs, en 1.610 milljónum króna á
sama tímabili í fyrra.
Afkomuviðvörun ástæðulaus
Aðspurður hvort hann telji að
ástæða hefði verið til að draga
áhrifin af sölu VÍS betur fram í af-
komutilkynningu vegna níu mán-
aða uppgjörs bankans segir Hauk-
ur Þór að færa megi rök fyrir því
en þó hafi verið greint frá áhrif-
unum.
Þegar Haukur Þór er spurður að
því hvort hann telji að ástæða
hefði verið til að senda út afkomu-
viðvörun fyrst bankinn náði ekki
arðsemismarkmiðum sínum nema
vegna sölunnar á VÍS segir hann
að fara eigi sparlega í afkomuvið-
varanir. Þær eigi aðeins að nota ef
það verða veruleg frávik frá op-
inberum markmiðum og því hafi
ekki verið tilefni til þess.
Afskriftareikningur
útlána og tæknigeiri
Skýringar á afkomu LÍ á fyrstu 9 mánuðum ársins
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111