Morgunblaðið - 29.10.2002, Side 18

Morgunblaðið - 29.10.2002, Side 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 18 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ                ! " ! 2+  #   / " +  )-  ,    " # $ %"            45"     &    )! . * /+  #  4"5  6" 1   +  )   * *,      + " +   )-  ,  ! #5 7) 4. +  #    * "   !     * *,     5  +  #5 7) BONUS Stores Inc., sem er að meiri- hluta í eigu Baugs Group hf., tapaði rúmum 1,1 milljarði króna á fyrri helmingi rekstrarárs Baugs sem lauk í ágúst. Baugur Group á um 55% í félaginu og er hlutdeild fyrirtæk- isins í tapinu 614 milljónir króna, sem er um 750 milljónum lakari af- koma en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Í tilkynningu frá Baugi kemur fram að endurmat á birgðum, sem nemi um 478 milljónum króna, sé helsta ástæða lakari afkomu. Endur- matið varð til þess að framlegð lækk- aði úr 30,7% á fyrsta ársfjórðungi í 15,4% á öðrum ársfjórðungi. Þá nam gjaldfærður kostnaður vegna lokun- ar óarðbærra verslana og annarra umbreytinga í rekstri 268 milljónum. Spáð 750 milljóna kr. tapi Annar rekstrarkostnaður Bonus Stores hækkar því í 18,6% af tekjum á öðrum ársfjórðungi úr 10,8% á fyrsta ársfjórðungi. Í Morgunkorni Íslandsbanka kemur fram að afkomuspá Greiningar bankans fyrir annan ársfjórðung hafi gert ráð fyrir 28% framlegð af rekstri Bonus Stor- es og 270 milljóna króna hagnaði fyr- ir afskriftir (EBITDA) fyrir sam- stæðuna. Í ljósi afkomu Bonus Stores spáir Greining ÍSB nú að tap samstæðunnar fyrir afskriftir verði um 750 milljónir króna. Nýjar áætlanir fyrir Bonus Stores miða að því að rekstur félagsins skili hagnaði á næsta rekstrarári. Til að ná því markmiði hefur í fyrsta lagi 45 verslunum með neikvæða EBITDA- framlegð verið lokað. Í öðru lagi verða verslanir Bonus Stores í Flór- ída seldar en félaginu hefur þegar borist tilboð sem nú er til skoðunar. Í þriðja lagi er verið að endursemja við lánardrottna félagsins um lánalínur út á birgðir. Í fjórða lagi er ráðgert að breyta 200 Bills Dollar Stores verslunum í Bonus Stores. Þegar hefur um 100 verslunum verið breytt í Bonus Stores og hefur það skilað 15–20% söluaukningu. Hlutafé aukið Í fimmta lagi eru áform um að auka hlutafé Bonus Stores Inc. um 9 milljónir dollara á næstu vikum og er nú útlit fyrir að Baugur verði þátt- takandi í aukningunni. Baugur mun birta uppgjör fyrir annan fjórðung rekstrarársins á morgun. Gengi Baugs í Kauphöll Íslands lækkaði um 8% í gær, úr 10,10 í 9,3. Tap hjá Bonus Stores Verslanir seldar og öðrum lokað STARFSMENN Vátryggingafélags Íslands hf. héldu kveðjuhóf fyrir forstjóra félagsins, Axel Gíslason síðastliðinn föstudag. Axel mun hætta sem forstjóri félagsins þann 1. nóvember nk. er Finnur Ingólfs- son tekur við sem forstjóri. Axel mun þó starfa áfram fyrir VÍS út þetta ár meðal annars að verk- efnum sem tengjast endurtrygg- ingum erlendis. Axel hefur verið forstjóri VÍS frá stofnun félagsins í janúar 1989. Hann var ráðinn til Samvinnu- trygginga á árinu 1988 og meðal fyrstu verkefna var að skoða möguleika á að gjörbreyta rekstri félagsins. Í janúar 1989 samein- aðist félagið síðan Brunabótafélagi Íslands og eins og áður sagði hef- ur Axel verið forstjóri sameinaðs félags frá upphafi. Axel segir að auðvitað sé eft- irsjá nú þegar hann lætur af störf- um, eftir að hafa unnið með stórum og góðum hópi starfs- manna í langan tíma en um leið tilhlökkun að takast á við ný verk- efni. Hann segist vera stoltur af því hvað Vátryggingafélag Íslands hafi vaxið á þessum tæpum 14 ár- um og sé orðið myndarlegt og öfl- ugt félag. Aðspurður segir Axel að hann hafi ekki ákveðið hvað hann taki sér fyrir hendur þegar hann hætti störfum hjá VÍS. Það sé eitthvað sem tíminn muni leiða í ljós, fyrst ætli hann að einbeita sér að þeim verkefnum sem hann hefur tekið að sér að ljúka. Starfsmenn VÍS kveðja Axel Gíslason Morgunblaðið/Árni Sæberg EVRÓPUSAMBANDIÐ mun að öll- um líkindum leggja til bann við þorsk-, ýsu- og lýsuveiðum í Norð- ursjó, Skagerrak, Írlandshafi og vest- ur af Skotlandi á næsta ári. Franz Fischler, yfirmaður sjávar- útvegsmála hjá ESB, hefur sagt að hann muni taka ákvörðun um hvort af veiðibanninu verður hinn 11. nóvem- ber nk. eftir að hann hefur farið yfir gögn Alþjóðahafrannsóknaráðsins sem hefur lagt til að þorskveiðum verði hætt á næsta ári en einnig veið- um á ýsu og lýsu, enda komi töluvert af þorski sem meðafli í þeim veiðum. Fischler segir ólíklegt að fram- kvæmdastjórn sambandsins muni komast að annarri niðurstöðu. Evr- ópusambandið hefur ítrekað varað við versnandi ástandi fiskistofnanna en framkvæmdastjórnin hefur sjaldnast farið að ráðleggingum fiski- fræðinga við ákvörðun heildarkvóta. Þorskkvóti sambandsins var þó skor- inn niður um 55% á síðasta ári en Fischler segir ástand stofnsins jafn- vel enn verra en þá var talið. ESB beri því skylda til að banna veiðarnar og vernda þannig fiskiðnaðinn í sam- bandslöndunum. Ljóst er að árs veiðibann mun hafa veruleg áhrif í strandhéruðum í Bret- landi, Írlandi, Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi og Belgíu, en Fischler hefur gagnrýnt yfirvöld í þessum löndum fyrir að hafa látið aðvaranir fiskifræðinga eins og vind um eyru þjóta á undanförnum árum. Ný gögn sýni fram á þorskstofninn sé ofveidd- ur, auk þess sem ekki sé tilkynnt um hluta aflans og hann seldur í erlend- um höfnum. Afli á undanförnum ár- um hafi því verið meiri en komi fram í skýrslum. Ákvörðun sænskra stjórnvölda um einhliða bann við þorskveiðum í Eystrasalti á næsta ári hefur vakið hörð viðbrögð sænskra sjómanna og hefur Fischler varað sjávarútvegs- ráðherra ESB við að taka hagsmuni fiskiðnaðarins fram yfir ráðleggingar vísindamanna, enda gæti það haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar. ESB leggur líklega til veiðibann DR. RICHARD Keegan, sérfræð- ingur á sviði framleiðslustjórnun- ar, er staddur hér á landi við nám- skeiða- og fyrirlestrahald. Dr. Keegan er verkfræðingur og hefur m.a. ritað bókina „World Class Manufacturing“ (Framleiðsla á heimsmælikvarða) og fjalla fyrir- lestrar hans um það efni. Í gær hélt hann fyrirlestur hjá Marel, en í morgun hélt hann til Akureyrar og hélt morgunverðarfund með fulltrúum 30 akureyrskra fyrir- tækja. Í dag heldur hann einnig fyrirlestur hjá Háskólanum á Ak- ureyri. Í kynningu á námskeiði Keegans segir að stefnt sé að því að ávinn- ingur þátttakenda verði þríþættur. Í fyrsta lagi yfirsýn yfir aðferðir „World Class Manufacturing“, í öðru lagi þekking á einstökum að- ferðum og í þriðja lagi þekking á reynslu annarra fyrirtækja af notkun aðferðarinnar. Fyrir- lestrar um framleiðslu ÁÆTLUÐ samlegðaráhrif af sam- runa Kaupþings og JP Nordiska í Svíþjóð eru á bilinu 45 til 100 milljónir sænskar krónur á ári, eða frá rúm- lega 400 milljónum íslenskra króna í tæplega einn milljarð íslenskra króna, samkvæmt skráningar- og út- boðslýsingu sem gefin hefur verið út í tengslum við yfirtökutilboð Kaup- þings til hluthafa í JP Nordiska. Gert er ráð fyrir að samlegðaráhrifin komi aðallega fram í auknum tekjum, en einnig er gert ráð fyrir verulegum sparnaði í yfirstjórn þegar samruninn er að fullu genginn í gegn. Þá segir í skráningarlýsingunni að kostnaður vegna umbreytinga á fyrirtækjunum í tengslum við samrunann verði sem svarar um 200–300 milljónum ís- lenskra króna. Óskráðar eignir fyrir 5,5 milljarða króna Kaupþing á eignarhluti sem eru bókfærðir á meira en 500 milljónir króna í fimm óskráðum fyrirtækjum. Í skráningarlýsingunni segir að eign- irnar séu metnar á kaupverði eða markaðsverði, eftir því hvort sé lægra. Heildarverð óskráðra eigna í bókum Kaupþings er 5,5 milljarðar króna og fjögur stærstu fyrirtækin voru metin á 65% af þeirri fjárhæð, eða um 3,6 milljarða króna. Kaupþing á 40% hlut í Fasteigna- félaginu Stoðum hf., sem er stærsta fasteignafélag landsins eftir samruna við Þyrpingu hf. fyrr á þessu ári. Heildareignir Stoða eru meira en 20 milljarðar króna. Vífilfell hf. er að fjórðungi í eigu Kaupþings eftir yfirtöku Kaupþings og annarra fjárfesta á síðasta ári. Velta Vífilfells var um 4 milljarðar króna í fyrra. Kaupþing á 12,1% í breska fyrir- tækinu Karen Millen Holdings Ltd., sem framleiðir og selur tískufatnað fyrir konur. Karen Millen rekur 80 verslanir í 14 löndum undir eigin vörumerkjum og velti í fyrra 67 millj- ónum punda, eða sem nemur um 9 milljörðum króna. Kaupþing á 35,7% í bandarísku verslunarkeðjunni Bonus Stores Inc., en velta hennar er um 200 milljónir dala á ári, eða um 18 milljarðar króna. Baugur á 55% í Bonus Stores og sendi Baugur frá sér tilkynningu í gær vegna lakari afkomu Bonus Stores en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. JP Nordiska fimmta stærst í Svíþjóð Í skráningarlýsingunni eru birtar upplýsingar um umfang JP Nordiska, að Aragon meðtöldu, en þau samein- uðust á þessu ári, á sænska markaðn- um. JP Nordiska er fimmta stærsta fyrirtækið í kauphöllinni í Stokkhólmi mælt í viðskiptamagni. JP Nordiska er með 6,12% viðskipta, en stærsta fyrirtækið, Carnegie, er með 9,65% viðskiptanna. Einnig er í skráningarlýsingunni að finna upplýsingar um umfang Kaupþings á íslenska markaðnum. 28% viðskipta í Kauphöll Íslands á fyrri hluta ársins fóru í gegnum Kaupþing, sem var stærst. Næstur kom Landsbankinn með 21%, þá Ís- landsbanki með 20% og Búnaðar- banki með 17%. Sameining Kaupþings og JP Nordiska Samlegðaráhrif 400 til 1.000 milljónir króna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.