Morgunblaðið - 29.10.2002, Side 21
HUNDAR verða ljúfir og afslapp-
aðir þegar þeir hlýða á klassíska
tónlist, en fara að spangóla þegar
þeir heyra þungarokk, að sögn
dýraatferlisfræðinga, undir stjórn
Deborah Wells við Queen’s-
háskóla í Belfast á Norður-
Írlandi, sem létu fimmtíu hunda
hlýða á fjórar gerðir af hljóðum.
Hundarnir fengu í fyrsta lagi að
heyra venjulega popptónlist, m.a.
Britney Spears og Robbie Will-
iams, í öðru lagi safndisk með
klassískri tónlist, í þriðja lagi um-
ræðuþátt í útvarpi, þar sem aðeins
heyrðust mannsraddir, og í fjórða
lagi hlýddu hundarnir á disk með
þungarokkssveitinni Metallica.
Hundarnir urðu órólegir og geltu
mikið undir þungarokkinu en ró-
uðust og margir þeirra lögðust
fram á lappir sínar er þeir fengu
að heyra klassíkina. Popptónlist
og mannsrödd virtust lítil áhrif
hafa á hegðun þeirra.
Greint er frá niðurstöðum þess-
arar rannsóknar í breska tímarit-
inu Animal Welfare. Fyrri rann-
sóknir hafa gefið vísbendingar um
að klassísk tónlist auki eggjafram-
leiðslu í hænum og nytina í kúm,
en talið er að þetta sé í fyrsta sinn
sem áhrifin á hunda eru athuguð.
Wells tjáði AFP að niðurstöðurnar
sýndu að æskilegt væri að leika
klassíska tónlist í umhverfi fólks.
„Það er vitað, að klassísk tónlist
dregur úr streitu og pirringi, létt-
ir lundina og bætir frammistöðu á
sumum sviðum,“ sagði Wells. „Það
er því svo sannarlega tilefni til að
nota klassíska tónlist í umhverfi
sem getur verið streituvaldandi,
eins og til dæmis á biðstofum
tannlækna og sjúkrahúsa og á
flugvöllum.“
Hundar elska
klassíska tónlist
París. AFP.
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 21
BANDARÍSKIR fjölmiðlar
greindu frá því í gær, að þar-
lend lögregluyfirvöld telji líkur
á því að John Lee Malvo, 17
ára, hafi skotið Lindu Franklin
til bana 14. október, en Malvo
er annar leyniskyttnanna
tveggja sem myrtu tíu manns
og særðu þrjá í grennd við
Washington-borg. Eykur þetta
líkurnar á að krafist verði
dauðadóms yfir báðum. Hin
leyniskyttan, John Allen Mu-
hammad, er 41 árs. Þeir hafa
báðir verið ákærðir fyrir morð í
Maryland-ríki, þar sem þeir
myrtu sex manns, en yfirvöld í
nágrannaríkinu Virginíu, þar
sem þrír voru myrtir, leggja nú
áherslu á að þau geti tryggt að
bæði Muhammad og Malvo
hljóti dauðadóma.
31 fórst
í óveðri
BJÖRGUNARMENN voru í
gær í óða önn að hreinsa tré og
annað brak af þjóðvegum og
járnbrautarteinum eftir að
mikið óveður gekk yfir Evrópu
um helgina, með þeim afleið-
ingum að 31 lét lífið og hundruð
þúsunda voru án rafmagns.
Átta manns létust í Þýskalandi,
sjö á Bretlandi og fjórir í Hol-
landi. Einnig urðu dauðsföll af
völdum veðursins í Frakklandi,
Belgíu, Póllandi, Svíþjóð og
Danmörku.
Hraunflóð
frá Etnu
HRAUN flæddi niður hlíðar
Etnu á Sikiley í gær, og úr gíg
eldfjallsins risu þykk öskuský,
annan daginn í röð. Var hraun-
straumurinn kominn niður í um
1.500 m hæð, en enn voru engir
mannabústaðir í fjallshlíðunum
í hættu. Stærsta flugvellinum á
austurhluta eyjarinnar var lok-
að í gær, og var mörgum flug-
vélum beint til Palermo í stað-
inn.
Lítil kjörsókn
í Kosovo
SVO virðist sem þátttaka í
kosningum í Kosovo-héraði um
helgina hafi verið lítil, eða að-
eins um 20%, og að flestir sem
greiddu atkvæði hafi stutt
harðlínusinna sem efast um að
serbneskir og albanskir íbúar
héraðsins geti búið þar saman í
sátt og samlyndi. Kosovo-búar
af albönskum uppruna vilja að
héraðið verði sjálfstætt ríki, en
íbúar af serbneskum uppruna
vilja að það tilheyri áfram
Júgóslavíu. Endanleg úrslit
kosninganna munu ekki liggja
fyrir fyrr en síðar í vikunni.
Hungursneyð
vofir yfir
MJÖG alvarlegt ástand er yf-
irvofandi í Angóla, þrátt fyrir
að hartnær þriggja áratuga
borgarastríði í landinu sé lokið,
að því er fram kemur í skýrslu
sem Þróunarhjálp Sameinuðu
þjóðanna birti í gær. Bændur,
sem hafi orðið að yfirgefa jarðir
sína vegna stríðsins, séu nú að
snúa aftur, auk annars flótta-
fólks, en skorti bæði útsæði og
tól og tæki til að geta hafið bú-
skap á ný.
STUTT
Báðir
kunna að fá
dauðadóm
TIL mikilla átaka kom í gær er
indónesíski klerkurinn Abu Bakar
Bashir var fluttur af sjúkrahúsi í
borginni Solo til yfirheyrslu í höf-
uðborginni, Jakarta. Er hann grun-
aður um að vera leiðtogi Jemaah
Islamiyah-hryðjuverkasamtak-
anna.
Um 150 manns létu grjóti rigna
yfir lögregluna þegar Bashir var
sóttur á sjúkrahúsið en hún svaraði
fyrir sig með því að berja á þeim
með stöfum. Slösuðust fjórir lög-
reglumenn nokkuð og 12 mótmæl-
endur, þar af tveir alvarlega.
Stjórnvöld í Singapore og Malas-
íu segja, að Bashir sé einn helsti
hryðjuverkaleiðtoginn í Indónesíu
og eru samtök hans sögð starfa ná-
ið með al-Qaeda, hryðjuverkasam-
tökum Osama bin Ladens. Grunar
marga, að samtök hans beri ábyrgð
á hryðjuverkinu á Bali, sem varð
190 manns að bana.
Bashi neitar öllum tengslum við
Jemaah Islamiyah en hefur fallist á
að svara spurningum um sprengju-
herferð fyrir tveimur árum og
meint samsæri um að drepa Mega-
wati Sukarnoputri áður en hún
varð forseti.
Suðaustur-Asía undir
stjórn bókstafstrúaðra
Susilo Bambang Yudhoyoyno, ör-
yggismálaráðherra Indónesíu,
sagði í gær, að hryðjuverkið á Bali
væri liður í umfangsmiklu samsæri
hryðjuverkamanna um að valda
upplausn í landinu. Sagði hann, að
baráttan gegn hryðjuverkum yrði
nú hert um allan helming og tekin
upp náin samvinna við önnur ríki.
Þrettán félagar í Jemaah Islam-
iyah, sem hugðust gera árásir á
vestræn skotmörk í Singapore,
voru handteknir þar í desember og
að þeirra sögn er Bashir leiðtoginn.
Sé það markmiðið að koma öllu í
bál og brand í Indónesíu, Brunei,
Malasíu, Singapore og Suður-Fil-
ippseyjum og sameina síðan þessi
lönd undir stjórn bókstafstrúaðra
múslíma.
Indónesískur klerkur, grunaður um
hryðjuverk, færður til yfirheyrslu
Reuters
Til mikilla átaka kom með lögreglunni og stuðningsmönnum múslímska
klerksins Abu Bakar Bashirs, er hann var færður til yfirheyrslu.
Blóðug átök
við stuðn-
ingsmenn
Solo. AFP.