Morgunblaðið - 29.10.2002, Síða 23

Morgunblaðið - 29.10.2002, Síða 23
Morgunblaðið/Golli Þau spila með Orkester Norden í kvöld. F.v.: Anna Hugadóttir, Gunnhildur Daðadóttir, Ari Þór Vilhjálmsson og Greta Salóme Stefánsdóttir. HÁTÍÐARATHÖFN í tilefni af 50 ára afmæli Norðurlandaráðs verður í Helsinki í dag og er hún í tengslum við ársþingið sem stendur þar yfir. Þjóðhöfðingjar allra Norður- landanna fimm verða viðstaddir dag- skrána í Finnsku þjóðaróperunni. Í kvöld verða fern verðlaun afhent: Bókmenntaverðlaun Norðurlanda- ráðs hlýtur Lars Saaby Christensen fyrir Hálfbróðurinn. Tónlistarverð- laun ársins hreppir færeyska tón- skáldið Sunleif Rasmussen fyrir Sin- fóníu nr. 1. Arne Næss hlýtur náttúru- og umhverfisverðlaun ráðs- ins fyrir skarpar athuganir á tengslum nútímamannsins við nátt- úruna. Loks verður verðlaunahafi norrænu kvikmyndaverðlaunanna kynntur á sjálfri athöfninni. Á hátíðinni flytja Sigurður Flosa- son og Pétur Grétarsson verk sitt, Raddir þjóða, en það er byggt á spuna út frá gömlum íslenskum hljóðritunum. Á hátíðinni flytur Orkester Nord- en líka þrjú lög en þess má geta að konsertmeistarinn í ár og í fyrra er Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari. Þrír aðrir Íslendingar eru í hljóm- sveitinni: Anna Hugadóttir víóluleik- ari og Gréta Salóme Stefánsdóttir og Gunnhildur Daðadóttir fiðluleikarar. Hljómsveitin er árlega skipuð 90 til 100 ungmennum af Norðurlöndum á aldrinum 15–25 ára. Stjórnandi hljómsveitarinnar í kvöld er Esa- Pekka Salonen. Hátíðinni verður sjónvarpað beint kl. 19.30 í Ríkissjónvarpinu. Í kvöld verða einnig haldnir hip- hop-tónleikar fyrir unga áheyrendur í Nosturi í Helsinki, með þátttöku listamanna frá öllum Norðurlöndun- um. Frá Íslandi mæta til leiks XXX Rottweilerhundar. Afmæli Norður- landaráðs fagnað LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 23 SEYLUBRAUT 1 - NJARÐVÍK FASTEIGNASALA BRYNJÓLFS JÓNSSONAR EHF. Barónsstíg 5, 101 Reykjavík, Sími 511 1555 netfang: brynjolfurjonsson@simnet.is Til sölu eru húseignir glugga- og hurðaverksmiðju BYKO, áður Ramma, Seylubraut 1 í Njarðvík. Eignin er alls um 4.500 fm að gólffleti. Verksmiðju- húsið sjálft er ca 3.800 fm að grunnfleti og með mikilli lofthæð. Góð lýsing. Sérstaklega styrkt gólfplata. Sprinkler-eldvarnarkerfi. Loftræsting með hita og rakastillingum. Eignin hentar mjög vel til margvíslegra nota, þar á meðal sem verksmiðjuhús, vörugeymsla eða íþróttahús. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITTAR Á SKRIFSTOFUNNI. ÞAÐ var fjölmennur hópur leikara og aðstandenda sem kom saman til fyrsta samlesturs á nýjum söngleik, Með fullri reisn, sem er jólaverk- efni Þjóðleikhússins á yfirstand- andi leikári. Með fullri reisn er nýr bandarísk- ur söngleikur eftir Terrence McNally og David Yazbek. Hann byggist á kvikmyndinni The Full Monty. Gunni er atvinnulaus og frá- skilinn, og ef honum tekst ekki að afla fjár til að borga meðlagið verð- ur honum meinað að umgangast son sinn. Þá fær hann fáránlega, geggjaða... og frábæra hugmynd! Ásamt fimm félögum sínum leggur hann upp í léttklikkað ævintýri. Leikendur eru Atli Rafn Sigurð- arson, Baldur Trausti Hreinsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Edda Heiðrún Back- man, Halldóra Björnsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Kjartan Guðjónsson, Margrét Eir Hjartardóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Randver Þorláks- son, Rúnar Freyr Gíslason, Sigríður Þorvaldsdóttir, Valdimar Örn Flyg- enring, Vigdís Gunnarsdóttir, Vig- dís Hrefna Pálsdóttir, Alexander Briem og fleiri. Karl Ágúst Úlfsson þýðir og staðfærir söngleikinn Karl Ágúst Úlfsson hefur þýtt og staðfært söngleikinn, um lýsingu sjá Björn Bergsteinn Guðmundsson og Páll Ragnarsson, tónlistarstjórn er í höndum Jóhanns G. Jóhanns- sonar, Filippía Elísdóttir sér um búninga og höfundur leikmyndar er Vytautas Narbutas. Leikstjóri og danshöfundur er Kenn Oldfield. Morgunblaðið/Jim Smart Leikarar og aðrir aðstandendur söngleiksins Með fullri reisn stilla sér upp fyrir ljósmyndara á fyrsta samlestrinum. Æfingar hafnar á Með fullri reisn Leiklestur á leikriti Nínu Bjarkar Árnadóttur, Hvað sögðu englarnir, verður í húsnæði leiklistardeildar LHÍ, Sölvhólsgötu 13 kl. 20. Flytj- endur eru nemendur 2. árs leiklist- ardeildar ásamt Helgu Jónsdóttur, Rúnari Guðbrandssyni og Tinnu Gunnlaugsdóttur. Hvað sögðu englarnir var frumsýnt á Litla sviði Þjóðleikhússins í október 1979 í leikstjórn Stefáns Bald- urssonar, en þær Tinna og Helga voru meðal leikara í þeirri sýningu. Þetta er ljóðrænt verk um átök ungra elskenda, Steins og Brynju, við mótlæti og spillingu þjóðfélagsins. Aðgangur er ókeypis. Súfistinn, bókabúð Máls og menn- ingar Lesið verður úr nýútkomnum bókum kl. 20 og hefur dagskráin yf- irskriftina Heima og heiman. Krist- ján Þórður Hrafnsson les úr bók sinni Hugsanir annarra, Gerður Kristný les úr bók sinni Ég veit þú kemur – Þjóðhátíð í Vestmanna- eyjum, Björn Th. Björnsson les úr þýðingu sinni á bók Francisco Mir- anda Hundrað nætur í Höfn. Einnig verður lesið upp úr Bréf Vestur- Íslendinga II eftir Böðvar Guð- mundsson og Heima og heiman eftir Erlend Guðmundsson. Penninn - Eymundsson, Austur- stræti Sigurður Pálsson les upp úr nýju bókinni sinni Næturstaður kl. 12.30. Söngskólin Dómus Vox, Skúla- götu 30 Tékkneskt listafólk flytur hjarðsöngva og gyðingatónlist kl. 21. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.