Morgunblaðið - 29.10.2002, Síða 26

Morgunblaðið - 29.10.2002, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. GAS, sem rússneskar sér-sveitir dældu inn í leik-húsið í Moskvu til aðsvæfa gíslatökumennina á laugardag, varð að minnsta kosti 116 gíslanna að bana, að sögn heil- brigðisyfirvalda í Moskvu. Tveir gíslanna höfðu verið skotnir til bana áður en sérsveitirnar réðust inn í leikhúsið, 58 klukkustundum eftir að tsjetsjenskir skæruliðar tóku yf- ir 800 manns í gíslingu. Flestir hinna gíslanna, sem létu lífið, voru heilsuveilir eða orðnir svo máttfarnir vegna svefnleysis, nær- ingarskorts og streitu að þeir þoldu ekki gasið, að sögn Andrejs Selts- ovskís, formanns heilbrigðisnefnd- ar Moskvu-borgar. Af þeim sem var bjargað voru 405 enn á sjúkrahúsi í gær, þeirra á meðal níu börn, og 239 hafði verið leyft að fara heim, að sögn rúss- neska heilbrigðisráðuneytisins. 145 manns voru í gjörgæslu og þar af voru 45 í lífshættu. Sú niðurstaða lækna að nær allir gíslarnir, sem létu lífið, hafi dáið af völdum gassins en ekki verið skotn- ir stangast á við fyrstu yfirlýsingar rússneskra embættismanna sem sögðu á laugardag að „sérstakar að- ferðir“ öryggissveitanna hefðu ekki valdið manntjóni. Niðurstaða læknanna og frásagnir fólks sem komst lífs af bentu til þess að gísla- tökumennirnir hefðu ekki byrjað að myrða gíslana skipulega eins og sérsveitirnar töldu áður en þeim var skipað að ráðast til inngöngu í leikhúsið. Allir gíslatökumennirnir 50 voru felldir í áhlaupinu. Nokkrir sérfræðingar sögðu að sérsveitirnar hefðu dælt of miklu gasi í loftræstingarkerfi byggingar- innar. Rússneska stjórnin neitaði að skýra frá því hvaða gas var notað og jafnvel læknarnir fengu ekki að vita það þegar þeir reyndu að bjarga gíslum sem voru fluttir með- vitundarlausir á sjúkrahús. Yfir- völd meinuðu einnig flestum gísl- anna sem lifðu af að ræða við ættingja sína og fréttamenn á sjúkrahúsunum. „Sagan endurtekur sig“ Pukur og skeytingarleysi yfir- valda um mannslíf hafa lengi ein- kennt sögu Rússlands og aðgerðir sérsveitanna á laugardag benda til þess að það hafi lítið breyst. Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti forseti Sovét- ríkjanna, neitaði því í marga daga að kjarnorkuslys hefði orðið í Tsjernobyl árið 1986 þegar geisla- virk ský bárust yfir grannríki í Evr- ópu. Stjórn Vladímírs Pútíns Rúss- landsforseta veitti einnig villandi upplýsingar í fyrstu um slysið í kjarnorkukafbátnum Kúrsk, sem sökk eftir sprengingu í tundur- skeytaklefa árið 2000, og hafnaði aðstoð annarra ríkja. Allir í kaf- bátnum, 118 manns, fórust. „Sagan endurtekur sig enn einu sinni eins og í Kúrsk-slysinu, „við getum leyst allt sjálfir“ og svo framvegis,“ sagði Borís Nemtsov, leiðtogi Bandalags hægriaflanna á rússneska þinginu. „Þeim urðu á hræðileg mistök og þess vegna koma þeir á ritskoðun, að hætti KGB.“ Nemtsov hafði farið í leikhúsið til að reyna að fá skæruliðana til að láta gíslana lausa. Hann kvaðst ætla að krefjast þess að þingið rannsak- aði aðgerðir stjórnarinnar og gagn- rýndi hana einnig fyrir að sjá ekki gíslunum fyrir fullnægjandi lækn- ismeðferð, neita að veita upplýsing- ar eða aðstoða ættingja gíslanna. Lev Federov, rússneskur um- hverfisverndarsinni og formaður Samtaka um efnaöryggi, kvaðst draga þá ályktun af þeim upplýs- ingum sem hann hefði fengið um gasið að rússnesk yfirvöld hefðu ekki meðhöndlað það rétt og hefðu því „öll þessi dauðsföll á samvisk- unni“. „Við fáum aldrei að vita ná- kvæmlega hvaða efni þetta var því við búum í landi þar sem ríkið er mikilvægara en fólkið.“ Rússneskir embættismenn sögðu fyrst að um tólf gíslar hefðu beðið bana á laugardag, síðan 67 og á laugardagskvöld var talan komin í 90. Á sunnudag var sagt að 117 manns hefðu látið lífið og tala lát- inna kann að hækka. „Fyrirgefið okkur“ Pútín fór á fund sérsveitanna, sem tóku þátt í áhlaupinu, á laug- ardag og ávarpaði þjóðina í sjón- varpi um kvöldið. Hann sagði áhlaupið „sanna að ekki er hægt að knésetja Rússland“ en viðurkenndi samt að manntjónið hefði verið mik- ið. „Okkur tókst ekki að bjarga öll- um,“ sagði hann og þagnaði andar- tak, að því er virtist til að halda ró sinni. „Fyrirgefið okkur.“ Aðrir stjórnmálaleiðtogar í Rúss- landi vörðu áhlaupið, sögðu að yf- irvöldin hefðu átt einskis annars úr- kosti vegna þess að skæruliðarnir hefðu hótað að sprengja leikhúsið í loft upp ef Rússar flyttu ekki herinn frá Tsjetsjníu. Sendiráð Bandaríkjanna og fleiri ríkja óskuðu eftir upplýsingum um gasið til að geta metið hvaða afleið- ingar það gæti haft fyrir gíslana en rússneskir embættismenn urðu ekki við beiðninni. Grátandi ætt- ingjar gíslanna þurftu að standa fyrir utan sjúkrahúsin þar sem þeim var meinað að hitta þá og yf- irvöld birtu ekki strax nöfn þeirra sem dóu. Nokkrir gíslanna sögðu að þeim hefði verið skipað að ræða ekki við fréttamenn. Á meðal gíslanna voru 75 útlend- ingar og stjórnin sagði á laugardag að enginn þeirra hefði látið lífið. Sendiráðin skýrðu frá því á sunnu- dag að fjórir útlendingar væru á meðal hinna látnu, konur frá Hol- landi, Austurríki og Hvíta-Rúss- landi og þrettán ára stúlka frá Kas- akstan. Anatolí Glazytsjev, fertugur sýn- ingarstjóri sem var á meðal gísl- anna, sagði að margir þeirra hefðu kastað upp vegna gassins. „Ég tel þetta ekki réttu leiðina til gíslana,“ sagði hann. Glazytsjev og fleiri gísla hafa fundið sterka lykt áðu misstu meðvitund. Sérfræ efnavopnum sögðu að lykti oft eins og beiskar mö bættu við að ekki væri vit slíkt gas hefði verið notað. Aðrir sérfræðingar sögð sveitirnar kynnu að hafa n kallað BZ-gas, efnavopn s Sovétríkjanna og Banda þróuðu í kalda stríðinu. Þe vakið spurningar um hvor hafi brotið Efnavopnasá sem bannar framleiðslu o slíkra vopna. Ljóst er að ef slíku gas inn í lokað rými getur ungu og heilsuveilu fólki staf hætta af því. Efnavopnasáttmálanum að að uppræta slík vopn í e fyrir öll en sérfræðinga kenna að í honum séu no svæði. Til að mynda sé h beita mjög mildum efnum CS-gasi, til að binda enda á Bandaríkjamenn og Rú haldið áfram rannsóknum efnum, sem eiga ekki að v væn en gera hermenn ófæ berjast. Markmiðið með r unum er að finna leið til óvininn, til að mynda á þ svæðum, án þess að val manntjóni meðal óbreytt ara. Þessi efni eru þó á þess að vera óheimil sa Efnavopnasáttmálanum. Kona með börn sín fyrir u Ólöglegum efnavopn- um beitt? Moskvu. The Washington Post, Los Angeles Times, AP, AFP. Rússnesk stjórnvöld hafa ekki viljað greina frá því hvers konar gas varð a.m.k. 116 gíslum að bana í leikhúsinu í Moskvu. Hefur það vakið spurningar um hvort beitt hafi verið efnavopnum, sem hafa verið bönnuð, en þýskur læknir, sem rannsakaði tvo gíslanna, kvaðst ekki hafa fundið nein merki um taugagas. ’ Við fáum aldrað vita hvers ko efni þetta var þ búum í landi þa sem ríkið er mi vægara en fólki EFTIRLEIKUR BLÓÐBAÐSINS Í MOSKVU Friðsamleg lausn á deilunni íTsjetsjníu virðist enn fjær en áður eftir gíslatöku tsjetsjenskra hryðju- verkamanna í leikhúsi í Moskvu og um- deilt áhlaup rússneskra sérsveita á hús- ið. Með kaldrifjaðri árás sinni á saklausa borgara spilltu hryðjuverkamennirnir áreiðanlega fyrir málstað þeirra, sem vilja með friðsamlegum hætti vinna að sjálfstjórn eða sjálfstæði Tsjetsjníu. Þeir, sem beita slíku ofbeldi, eiga enga samúð skilda. Því miður bera ýmsar aðgerðir – eða aðgerðaleysi – rússneskra stjórnvalda eftir gíslatökuna því heldur ekki vitni að þau vilji leggja sig fram um að finna friðsamlega lausn. Ýmislegt í framgöngu stjórnvalda hefur líka valdið efasemdum um að lýðræðið hafi skotið jafntryggi- lega rótum í Rússlandi og Pútín forseti vill vera láta. Pútín og stjórn hans stóðu vissulega frammi fyrir afar erfiðri ákvörðun þegar að því kom að velja aðferð til að reyna að frelsa gíslana í leikhúsinu. Það kom ekki til greina að láta undan hótunum hryðju- verkamannanna. Sennilega hefðu þeir heldur aldrei gefizt upp að fyrra bragði – þeir töldu sig ekki hafa neinu að tapa. Ákvörðunin um að nota svefngas til að lama baráttuþrek hryðjuverkamannanna var að sumu leyti snjöll og til þess fallin að koma í veg fyrir að allir gíslarnir fær- ust við það að hryðjuverkamennirnir sprengdu leikhúsið í loft upp. Þeir, sem stjórnuðu aðgerðinni, virðast hins vegar hafa misreiknað hrapallega áhrif gassins á gíslana, sem voru margir veikburða eftir þriggja sólarhringa mannraunir; nú er komið fram að talsvert á annað hundrað þeirra létust vegna gassins en hryðjuverkamennirnir skutu aðeins tvo. Gagnrýnt hefur verið að aðgerðir til að koma gíslunum undir læknishendur hafi verið illa skipulagðar og ekki tekið mið af aðferðunum, sem beitt var. Eftir að allt var um garð gengið, neit- uðu stjórnvöld í Moskvu að greina nokkrum manni, jafnvel læknum, frá því um hvers konar gas var að ræða og bönnuðu heimsóknir til frelsaðra gísla á sjúkrahúsum. Með þessu var annars vegar torveldað að veita fólkinu viðeig- andi læknismeðferð og hins vegar ýtt undir alls kyns getgátur um að jafnvel hefði verið um notkun ólöglegra efna að ræða, sem bryti í bága við alþjóðlegar skuldbindingar Rússa. Leyndarhyggjan og tilhneigingin til að breiða yfir óþægi- legar staðreyndir er með öðrum orðum enn allsráðandi hjá þeim, sem ráða í Kreml. Hótanir rússneskra ráðamanna í garð stjórnvalda í Danmörku minna á sov- éttímann og hafa heldur ekki verið þeim til framdráttar. Þær benda til að þeir skilji enn ekki hvernig lýðræðissamfélag virkar. Þeir fóru fram á að Danir bönn- uðu þing um málefni Tsjetsjníu, þar sem m.a. ýmsir forystumenn sjálfstæðisbar- áttu landsins eru saman komnir. Danir svöruðu því eðlilega til að stjórnarskráin leyfði þeim ekki að banna fund, sem væri ekki ógnun við frið eða allsherj- arreglu á nokkurn hátt, enda lögðu Rússar ekki fram neinar sannanir fyrir því að fulltrúar á þinginu tengdust hryðjuverkum. Fullyrðingar Rússa um „samkundu fólks, sem hefur samúð með hryðju- verkamönnum“ benda til að þeir geri engan greinarmun á hryðjuverkamönn- um, sem ráðast gegn saklausum borg- urum, og öðrum þeim, sem krefjast sjálf- stæðis Tsjetsjníu. Það boðar ekki gott fyrir hugsanlega lausn mála í héraðinu. Það skiptir máli að sýna hryðjuverka- mönnum hörku, en Rússar mega heldur ekki reyna að gera hryðjuverkamenn úr hófsömum leiðtogum Tsjetsjena. Þeir verða að geta samið við einhverja, því að Tsjetsjnía þarf ekki á meira stríði að halda – þar þarf að finna pólitíska lausn. KONUR OG FÁTÆKT Þrátt fyrir að á Íslandi ríki almennvelmegun og landið sé iðulega taliðmeð auðugustu löndum heims er hér stór hópur, sem ekki hefur nóg að bíta og brenna og verður að leita sér ásjár til að hafa til hnífs og skeiðar. Í þessum hópi eru konur áberandi eins og kom fram á árleg- um morgunfundi samtakanna UNIFEM á Íslandi í liðinni viku. Á fundinum sagði Harpa Njáls, fé- lagsfræðingur og starfsmaður Borgar- fræðaseturs, að fátækar konur væri eink- um að finna meðal atvinnulausra kvenna, kvenna, sem yrðu fyrir veikindum, kvenna, sem væru örorkulífeyrisþegar og/eða ör- orkustyrkþegar. Þessar konur byggju við þau kjör að þurfa að lifa við fátækt. Þær hefðu ekki tekjur til lágmarksframfærslu. Harpa vísaði í niðurstöður rannsóknar, sem hún gerði á seinni hluta ársins 2000. Þær hefðu sýnt að á þeim tíma hefði þessa hópa vantað um 40 þúsund krónur á mán- uði til þess að ráðstöfunartekjur dygðu til lágmarksframfærslu. Á fundinum tók einnig til máls Ragn- hildur Gunnarsdóttir í Mæðrastyrksnefnd og gagnrýndi stjórnmálamenn, sem væru duglegir að koma fram og segja að fólk hér á landi hefði það gott og hér væri ekki fá- tækt: „Ég er fulltrúi Kvenréttindafélags- ins í Mæðrastyrksnefnd og vinn á vegum nefndarinnar hvern miðvikudag við úthlut- un matargjafa. Í gær var úthlutunardagur og það komu 157 manns til þess að fá mat- argjafir. Ég fullyrði að þetta fólk hafi verið í mikilli þörf. Sumir komu þarna klukkan eitt til þess að stranda í biðröð því við opn- um ekki fyrr en klukkan tvö. Klukkan hálftvö náði biðröðin langt út á götu. Fólk- inu var auðvitað ískalt og margt af því var ekki vel klætt. Börnin komu með mæðrum sínum og stóðu þarna skjálfandi með þeim.“ Lýsing Ragnhildar hljómar eins og brot úr skáldsögu eftir Charles Dickens. Þetta er ekki sá veruleiki, sem flestir Íslending- ar búa við, og margir virðast vilja sem minnst af honum vita. Það er hins vegar staðreynd að á Íslandi býr ákveðinn hópur í gildru fátæktar og konur eru þar stór hópur. Iðulega er þar um að ræða einstæð- ar mæður, sem eiga litla möguleika á að ráða bót á sínum aðstæðum. Þeim er uppá- lagt að sinna uppeldi barnanna og vinna oft ótrúleg afrek í þeim efnum. En þeim er ekki auðveldað uppeldið. Meðlags- greiðslur eru svo lágar að stappar nærri því að vera hneyksli. Í það minnsta myndi engum detta í hug að halda fram að meðlag væri helmingur þeirrar upphæðar, sem þyrfti til að framfleyta barni. Það hlýtur að vera markmið okkar að allir hér á landi geti lifað mannsæmandi lífi. Á Íslandi hefur verið komið upp viða- miklu velferðarkerfi. Í slíku kerfi er hætt við að fólk breytist í kennitölur og númer. Einstaklingarnir víki fyrir ópersónulegri tölfræðinni. Ísland er hins vegar lítið land, en ekki milljónaþjóðfélag. Einn af kostum smæðarinnar er sá að auðvelt á að vera að koma í veg fyrir að einstaklingar verði ut- angátta í þjóðfélaginu. Þennan vanda þarf að taka föstum tökum og verður að beina sérstaklega sjónum að vanda þess stóra hóps kvenna, sem berst við fátækt á Ís- landi. Þar til það hefur verið gert mun heyrast holur hljómur þegar talað er um velmegunina á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.