Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 32
UMRÆÐAN 32 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Prófkjör Prófkjör stjórnmálaflokkanna vegna þingkosninganna í maímánuði nk. fara fram í vetur. Af því tilefni birtir Morgunblaðið greinar fram- bjóðenda og stuðningsmanna. Þær er einnig hægt að nálgast undir liðnum prófkjör á forsíðu mbl.is. SAMFYLKINGIN hefur alla burði til að vera stjórnmálaflokkur nýrra tíma. Hún er afsprengi nýrrar hugsunar í alþjóðlegum stjórnmálum sem teygir nú anga sína inn í íslenska landsmálapólitík. Ungt fólk sem var að vakna til pólitískrar vitundar fyrir um áratug, og hefur á margan hátt aðra sýn á veruleikann, finnur sam- leið með stefnumálum Samfylkingar- innar. Þetta fólk vill beita nýrri og fordómalausri nálgun þegar kemur að því að leysa hin knýjandi verkefni dagsins í dag. Samfylkingarfólk á mínum aldri á sér þann draum að byggja upp nýtt og öflugt stjórnmála- afl sem hefur raunverulega hagsmuni raunverulegs fólks að leiðarljósi. Til að svara kalli tímans verða sam- fylkingarmenn að vera tilbúnir að kasta gömlu kreddunum fyrir róða og takast á við aðstæður nútímafólks með opnum huga. Við verðum að horfast í augu við það að undir forystu Sjálfstæðis- flokksins hafa leikreglur hinnar fjöl- þjóðlegu gróðahyggju orðið allsráð- andi í íslensku þjóðlífi. Afleiðingarnar eru m.a. þær að valdið færist smám saman úr höndum kjörinna fulltrúa fólksins í landinu til þeirra sem auð- inn eiga. Til að snúa við þessari öf- ugþróun og til að styrkja stoðir stefnu Samfylkingarinnar þurfum við nýjar lausnir nýrra tíma. Við verðum að vera reiðubúin að skoða með opnum huga uppstokkun í stjórnsýslunni með það að markmiði að auka sveigjanleika í tengslum stofnana og verkefna. Óhjákvæmilegt er að brydda upp á nýjum leiðum í skólamálum með auknum sveigjan- leika milli skólastiga og meiri teng- ingu við atvinnulífið. Rétt er að leita nýrra úrræða á alþjóðavettvangi við að leysa vanda atvinnulífs í dreifbýli. Úthýsa ber öllum öfgum, valdníðslu og eiginhagsmunum í stefnumörkun og umræðu um umhverfismál. Ég er sannfærð um að Samfylking- in mun á næstu árum hafa áhrif til góðs í íslensku samfélagi. Til þess að svo megi verða þarf sterka liðsheild með skýra framtíðarsýn sem stefnir ótrauð á háleit markmið. Ég hef þá trú að Samfylkingin sé eina íslenska stjórnmálaaflið sem er fært um að brjóta niður kerfismúra fortíðar og færa valdið aftur til fólksins. Þess vegna vil ég helga flokknum krafta mína og vona að framboð mitt í próf- kjörinu 9. nóvember verði ungu fólki hvatning til að takast á við þá ögrun og virkja þann kraft sem fólginn er í nýju stjórnmálaafli. Nýir tímar – nýjar lausnir Eftir Sigrúnu Grendal „Þetta fólk vill beita nýrri og for- dómalausri nálgun þeg- ar kemur að því að leysa hin knýjandi verk- efni dagsins í dag.“ Höfundur er formaður Félags tón- listarskólakennara og tekur þátt í prófkjöri Samfylkingar í Reykjavík. TIL að efla atvinnu- og mannlíf í Suðurkjördæminu er grundvallarat- riði að ráðast í róttækar samgöngu- bætur. Þær eru forsendur þess að það náist að efla svæðið og skapa fjöl- breyttara og öflugra atvinnulíf. Þá er ekki síður mikilvægt að auka öryggi á vegum úti. Enda eru samgönguæð- arnar í kjördæminu á meðal þeirra fjölförnustu á landinu öllu og umferð um Hellisheiði og Reykjanesbraut gríðarlega þung á köflum og hörmu- leg umferðarslys þar algeng. Lýsing Hellisheiðar og tvöföldun Reykjanesbrautar Tvöföldun Reykjanesbrautar og lýsing Hellisheiðar eru ásamt Suður- strandarvegi forsendur öflugrar at- vinnuuppbyggingar og öryggis í um- ferðinni. Koma þarf á öflugum samgöngum á milli lands og eyja með nýrri og hraðskreiðari ferju og upp- byggingu Bakkaflugvallar eða Sel- fossflugvallar. Með þessum brýnu samgöngubótum, þar sem Suður- strandarvegur tengir hið nýja svæði, væri brautin rudd til stórkostlegrar eflingar svæðisins. Nýtum nálægðina Nálægðin við höfuðborgarsvæðið, fjöldi vinsælla ferðamannastaða og orkuöflun landsins, sem á sér að miklu leyti stað í kjördæminu, gefa færi á umfangsmikilli atvinnuupp- byggingu. Sem dæmi má nefna fara u.þ.b. 90% af orkuframleiðslu lands- ins fram á Suðurlandi en mjög lítil iðnaðarframleiðsla á sér hinsvegar stað stað á Suðursvæðinu. Þessu verður að breyta. Margir staðir á Suðurnesjum og Þorlákshöfn, svo dæmi séu tekin, eru tilvaldir til upp- byggingar öflugs iðnaðar. Þá er hægt að fullyrða að þau gullnu tækifæri sem ferðamannastraumurinn á svæð- ið skapar eru fjarri því að vera að fullu nýtt. Til að nýta þessa kosti til fulls verða að koma til þær öflugu samgöngubætur sem hér eru dregn- ar fram. Þær hafa rekið á reiðanum allt of lengi og tími aðgerða runninn upp. Samgöngubætur í Suðurkjördæmi Eftir Björgvin G. Sigurðsson Höfundur er þátttakandi í flokksvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. „Koma þarf á öflugum samgöngum á milli lands og eyja með nýrri og hraðskreiðari ferju og uppbyggingu Bakkaflugvallar eða Selfossflugvallar.“ HINN 9. nóv. nk. fer fram flokksval um skipan framboðslista Samfylkingarinnar í Suðvest- urkjördæmi. Við erum svo heppin að hafa þar í boði úrvals mann- kostafólk, sem vel er til þess fallið að verða fulltrúar okk- ar á Alþingi. Þarna í hópi eru þing- mennirnir okkar þrír, sem allir hafa skilað góðu starfi á Alþingi. Þarna er að auki svo mikið mann- val að vandi er úr að velja. Ég hefði viljað sjá fleiri konur í þessum hópi, en það léttir vafa- laust mörgum valið, þegar þeir hafa í huga yfirlýsta stefnu Sam- fylkingarinnar um jafnræði kynjanna, að einungis þrjár konur eru í boði. Það fer vel á því, að kona skipi efsta sæti listans nú sem áður, ekki síst þar sem við eigum kost á jafn hæfileikaríkum baráttumanni fyrir breytingum á samfélaginu í anda jafnaðarstefnunnar og Rann- veig Guðmundsdóttir er. Hún hef- ur sýnt það og sannað að hún er réttur maður á réttum stað sem forustumaður okkar á Alþingi. Oft hef ég hlustað á mál Rann- veigar á Alþingi og öðrum mann- fundum og aldrei orðið fyrir von- brigðum með einarðlegan, heiðarlegan málflutning hennar, sem jafnan einkennist af þekkingu um það sem hún fjallar, réttlæt- istilfinningu og mannúðarsjón- armiðum jafnaðarstefnunnar. Rannveig er forustumaður sem við getum verið stolt af. Þess vegna mun ég velja Rannveigu til að skipa efsta sætið á framboðs- listanum okkar. Ég hvet aðra samfylkingarmenn í Suðvest- urkjördæmi til að gera slíkt hið sama. Rannveig í fyrsta sætið Ásthildur Ólafsdóttir skrifar: ÉG var í hópi fjölmargra sem fögnuðu þegar Ásgeir Frið- geirsson ritstjóri ákvað að gefa kost á sér í flokks- vali Samfylking- arinnar í Suðvest- urkjördæmi. Þeir sem hafa fylgst með ferli Ásgeirs allt frá mennta- skólaárunum vita að þar fer réttsýnn og úrræðagóð- ur félagsmálamaður sem kann að afla hugmyndum fylgis og koma þeim til framkvæmda. Sem fjöl- miðlamaður hefur Ásgeir sýnt að hann kann skil á gangverki ís- lensks samfélags og getur greint á milli stundarhagsmuna og framtíð- arsýnar, sérhagsmuna og al- mannaheilla. Ásgeir hefur yf- irgripsmikla þekkingu á alþjóðamálum sem kemur sér vel nú þegar meta þarf stöðu Íslands í samfélagi Evrópuþjóða. Ásgeir hefur víðtæk tengsl í öllum geir- um samfélagsins sem hann kann að nýta til lausnar á flóknum sam- félagsmálum. Ásgeir verður öflugur fulltrúi í framvarðasveit Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og mun koma góðum hlutum til leiðar sem þingmaður. Ég hvet alla til að veita Ásgeiri stuðning í flokksvalinu 9. nóv- ember nk. Styðjum Ásgeir Friðgeirsson Tryggvi Felixson framkvæmdastjóri skrifar: ÉG styð Bryndísi í 2. sætið í Reykjavík því Bryndís hefur ábyrga afstöðu til nýtingar á auðlindum landsins. Hún þekkir nauðsyn þess að nýta auðlindirnar á skynsamlegan hátt þannig að varlega sé farið með náttúru- auðæfi þjóðarinnar. Eitt af því sem Bryndís hefur lagt til er að náttúra landsins verði kerfisbundið kortlögð svo við höfum skýra mynd af að- stæðum. Einnig að lokið verði að gera rammaáætlun um þá virkj- anakosti sem við höfum. Við núver- andi aðstæður er kostnaður við um- hverfismat mikill, og ferlið mjög tímafrekt. Verst er þó að nú er ekki ljóst fyrirfram hvaða svigrúm er raunverulega fyrir hendi þegar rætt er um að nýta landgæði. Undirstaða velferðarinnar er traust efnahagslíf. Þess vegna er mikilvægt að nýta auðæfi landsins, en það verður þó að gera af varfærni og virðingu fyrir umhverfi okkar. Ég hvet allt Samfylkingarfólk í Reykjavík til að styðja Bryndísi til forystu. Bryndís Hlöðvers- dóttir í 2. sætið! Pétur Jónsson, stjórnarmaður í kjördæma- ráði Samfylkingarinnar í Reykjavík, skrifar: EKKI þarf að fara mörgum orðum um mikilvægi þess að til forystu í stjórnmálum veljist kraftmikið og staðfast fólk, sem hefur skilning á að- stæðum launafólks og ábyrga afstöðu í efnahagsmálum. Bryndís Hlöðvers- dóttir hefur vaxið mjög á ferli sínum sem þingmaður og nú síðast sem þing- flokksformaður. Ég kynntist Bryndísi þegar hún var lögfræðingur Alþýðu- sambands Íslands og hef alla tíð síðan metið hana mikils fyrir víðsýni, áreið- anleika og staðfestu. Í starfi sínu hjá Alþýðusambandinu aflaði hún sér þekkingar á aðstæðum launafólks og hún hefur sýnt þeim skilning í störf- um sínum á þingi. Ég tel mikilvægt að Samfylkingin nýti þá þekkingu í þágu almennings. Ég styð Bryndísi í 2. sæti í prófkjörinu, því ég vil sjá hana leiða lista Samfylkingarinnar í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Bryndísi til for- ystu í Reykjavík Grétar Þorsteinsson skrifar: ÞANN 9. nóvember fer fram próf- kjör Samfylkingarinnar í Reykjavík þar sem flokksfólk velur frambjóð- endur flokksins fyrir kosningarnar næsta vor. Þar er margt góðra manna á ferð og margir þeirra eiga skilið sæti á listanum. Það er mikilvægt að forystusætin verði vel skipuð, en þar sem eitt prófkjör verður viðhaft fyrir bæði kjördæmin munu tvö fyrstu sætin á listanum verða forystusæti, hvort í sínu kjör- dæminu. Ég styð Bryndísi Hlöðvers- dóttur til að leiða annað kjördæm- anna. Ég kynntist henni fyrst í starfi mínu sem formaður verkalýðsfélags, þegar hún var lögfræðingur Alþýðu- sambandsins og hef ég fylgst með störfum hennar alla tíð síðan. Bryn- dís er traust og sinnir af festu og ábyrgð því sem henni er trúað fyrir og sem þingflokksformaður Samfylk- ingarinnar hefur hún sýnt að hún er öflugur forystumaður. Ég vil sjá hana í forystu flokksins í Reykjavík og hvet flokksmenn til að gefa henni at- kvæði sitt til þess. Bryndísi í forystu í öðru kjördæm- anna Hafsteinn Númason skrifar: BRÁTT munum við Samfylking- arfólk velja okkur frambjóðendur fyrir komandi Alþingiskosningar og þá er áríðandi að vel takist til um skipan efstu sæta. Formaður flokksins gefur kost á sér í 1. sæti í sameiginlegu próf- kjöri og þar með til að leiða annan af tveimur listum Sam- fylkingarinnar í Reykjavík. Mikið er í húfi að vel takist til um skipan efsta sætis hins listans, þar þarf mann- eskju sem sýnt hefur af sér frum- kvæði og forystuhæfileika. Bryndís Hlöðversdóttir gefur kost á sér í 2. sæti sameiginlegs prófkjörs, og þar með til að leiða hinn listann. Bryndís hefur vaxið með störfum sínum á Alþingi; dugnaður, víðsýni og umhyggja fyr- ir þeim sem minna mega sín hafa einkennt hana þann tíma sem hún hefur setið á þingi. Kjör hennar til formennsku í þingflokki Samfylk- ingarinnar sýnir það traust sem hún nýtur. Það er trú mín að Bryndís sé framtíðarleiðtogi innan Samfylk- ingar og ég hvet alla til að veita henni brautargengi og kjósa hana í 2. sæti. Bryndísi í 2. sætið Haukur Már Haraldsson framhaldsskóla- kennari skrifar: VIÐ sem höfum þekkt Bryndísi Hlöðversdótt frá því að hún hóf af- skipti af stjórnmálum og bauð sig fram til þings 1995 vitum fyrir hvað hún stendur. Hún hefur getið sér gott orð á þessum tæpu tveimur kjör- tímabilum sem hún hefur starfað sem þingmaður, og er ein af öflugustu þing- mönnum sem nú sitja á Alþingi Ís- lendinga. Það er því mikið fagnaðar- efni að hún skuli nú gefa kost á sér í annað sætið hér í Reykjavík og um leið til að leiða lista Samfylking- arinnar í öðru kjördæminu. Bryndís setti sinn pólitíska feril að veði 1998 þegar við vorum að sameina vinstri- menn, þar mætti hún mikilli mót- spyrnu „lykilmanna“ í Alþýðu- bandalaginu eins og fólk eflaust man, sem endaði með að nokkrir fé- lagar okkar yfirgáfu það. Sameining vinstri manna tókst og erum við nú í fyrsta skiptið að bjóða fram í sam- einuðum flokki til Alþingis. Ég hvet því Samfylkingarfólk til að setja Bryndísi í 2. sætið í próf- kjörinu 9. nóv nk. Kjósum Bryndísi í 2. sæti Guðný Aradóttir skrifar: ÞAÐ er mikið mál að sameina stjórnmálaflokka. Margir sakna gömlu flokkanna er nú mynda Samfylk- inguna. Ef byggja á stóran og traustan flokk hljótum við að horfa fram á veginn. Samfylkingin er stór flokkur en við viljum gera hann enn stærri. Mestu skipta góð málefni sem bor- in eru fram af skynsemi og heið- arleika. Bryndís Hlöðversdóttir hefur yf- irburða þekkingu á íslensku sam- félagi. Málefni hennar mótast af hagsmunum fólksins í landinu. Bryndís setur mál öfgalaust fram. Þannig er hún talsmaður Evrópu- aðildar, en gætir einnig hagsmuna þjóðarinnar t.d. í sjávarútvegs- málum. Hún vill skynsamlega nýt- ingu auðlinda og skilur mikilvægi þess að hlúa vel að atvinnulífinu. Bryndís er mjög vel til þess fall- in að sameina þau öfl sem lögðust á eitt um að byggja stóran jafn- aðarmannaflokk. Flokk, sem hefur burði til að gegna forystuhlutverki í landsstjórninni. Ég set Bryndísi hiklaust í annað sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar. Sigur Bryndísar er sigur Sam- fylkingarinnar Fritz M. Jörgensson framkvæmdastjóri skrifar:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.