Morgunblaðið - 29.10.2002, Side 34

Morgunblaðið - 29.10.2002, Side 34
MINNINGAR 34 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Helgi Jónssonvélhönnuður fæddist í Reykjavík 24. september 1923. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu á Seltjarnarnesi 23. október síðastlið- inn. Hann var sonur hjónanna Jóns Helgasonar bólstr- arameistara, f. á Birnustöðum á Skeiðum 24. júlí 1890, d. 5. janúar 1959, og Maríu Maj- asdóttur húsfreyju, f. í Bolungarvík 7. mars 1896, d. 29. apríl 1988. Systkini Helga eru Sól- veig María starfsstúlka, f. 1922, Torfi Kristinn verkstjóri, f. 1925, Ingvar húsasmíðameistari og skipasmiður, f. 1927, Aldís tónlist- arkennari, f. 1930, d. 1982, og 1941, sonur hennar er Björn Lofts- son; Ingibjörg Bjarnardóttir lög- fræðingur, f. 15. mars 1943, maki Geir Ólafsson, börn þeirra eru Björn og Þórunn; Erla Bil Bjarn- ardóttir garðyrkjustjóri, f. 12. apr- íl 1947, börn hennar eru Guðröður Ágústsson, Valgerður Guðlaugs- dóttir og Magnús Guðlaugsson; Magnús Bjarnarson bóndi, f. 4. des- ember 1950, maki Elín Blöndal Sig- urjónsdóttir, börn hans eru Arna, Helgi, Kristín og Þór. Helgi lærði vélvirkjun í Reykja- vík og síðar tækniteiknun. Hann vann lengst af hjá Rafmagnsveit- um ríkisins, fyrst í Ólafsvík og síð- ar á teiknistofunni í Reykjavík. Helgi stundaði myndlist og tré- skurð ævilangt, var lengi nemandi við Myndlistarskólann í Reykjavík, ennfremur vann hann að friðar- málum, var virkur í félagsstarfi eldri borgara og skógrækt. Hann ólst upp í vesturbænum í Reykjavík og bjó síðustu árin á Seltjarnar- nesi. Útför Helga verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Kristbjörg fiskmats- maður, f. 1932. Helgi kvæntist 24. septem- ber 1954 Þórunni Magnúsdóttur sagn- fræðingi, f. 12. desem- ber 1920. Þau skildu. Foreldrar Þórunnar voru Magnús Jónsson, bóndi og formaður, síðast í Vestmannaeyj- um, f. 4. maí 1889, og Guðrún Jónsdóttir frá Akranesi, f. 6. apríl 1889. Dóttir Helga og Þórunnar er Guðrún Helgadóttir kennslu- fræðingur, f. 9. mars 1959, maki Helgi Thorarensen lífeðlisfræðing- ur, börn þeirra eru Jóhanna Thor- arensen og Ólafur Helgi Thoraren- sen. Börn Þórunnar af fyrra hjónabandi eru Eygló Bjarnardótt- ir meinatæknir, f. 18. september Í dag er til moldar borinn Helgi Jónsson vélhönnuður, fyrrum starfsmaður Rafmagnsveitna ríkis- ins og eins og hann sjálfur sagði gjarna: listnemi. Helgi var fæddur í Reykjavík 24. september 1923, son- ur hjónanna Jóns Helgasonar bólstrarameistara og Maríu Sólveig- ar Majasdóttur húsmóður. Helgi ólst upp í Vesturbænum í glöðum hópi sex systkina. Fjölskyldan bjó fyrst á Bráðræðisholtinu og síðar á Kaplaskjólsvegi 12 en það hús stóð til skamms tíma milli blokkanna við Meistaravellina. Líkt og gerðist um börn á þessum tíma var Helgi í sveit á sumrum bæði á Snæfellsnesi og í Ölfusinu og átti hann þaðan margar skemmtilegar minningar sem hann deildi gjarnan með börnum og barnabörnum. Foreldrar Helga voru bæði list- fengt fólk. María var vel hagmælt, og hafði ríka kímnigáfu sem Helgi tók í arf, ásamt með barnatrúnni sem hún innrætti sínum börnum. Jón, faðir Helga, stundaði bæði tón- list og myndlist. Hann lék á fiðlu og tók þátt í starfi Hljómsveitar Reykjavíkur en jafnframt var hann áhugamálari og hafði ákveðinn stíl í sínu landslagsmálverki. Jón var framúrskarandi fagmaður og teikn- ingar hans voru lengi notaðar í iðn- námi í húsgagnabólstrun. Helgi lærði vélvirkjun í vélsmiðj- unni Jötni, vann á Vélaverkstæði Björns og Halldórs og menntaði sig síðar á sviði vélsmíði og véltækni. Hann rak um tíma verkstæði en starfaði lengst af hjá Rafmagnsveit- um ríkisins. Hann var lengi starfs- maður Rafveitunnar í Ólafsvík og þar vaknaði áhugi hans á skógrækt við það að hlúa að skógarreit skammt frá stöðvarhúsinu. Síðar fór hann til starfa á teiknistofu RARIK og vann þar til starfsloka. Heimspeki, listir og stjórnmál í sinni eiginlegu merkingu voru Helga alla tíð hugleikin. Hann var róttækur í sínum stjórnmálaskoðun- um, þráði réttlátt samfélag og var alla tíð gagnrýninn á þá hugmynda- fræði sem upphefur eignarréttinn ofar manngildinu. Hann var jafn- framt friðarsinni og alþjóðasinni, andvígur allri valdbeitingu og stríðs- rekstri. Í hans lífsskoðun var ræktun lands og lýðs, markmiðið sem okkur ber að stefna að. Skógræktin var einn þáttur þessa, þar naut hann úti- vistar, sótti sér myndefni og naut þess að vinna í góðum hópi að sam- eiginlegu markmiði. Helgi var alla tíð virkur áhugamaður og ástund- andi sjónlistanna, unnandi íslenskr- ar náttúru og menningar. Hann gerði greinarmun á myndlist, hand- verki og hönnun, þótt hann stundaði allt þetta. Í myndlistinni reyndi hann að túlka fegurð og fjölbreyti- leika náttúrunnar í málverki. Hann stundaði bæði útskurð og leirlist, það lýsir afstöðu hans til viðfangs- efnisins vel að þegar hann var beð- inn að leiðbeina öðrum gerði hann það með glöðu geði en jafnan undir þeim formerkjum að hann væri sjálfur nemandi. Í listinni verður enginn fullnuma að hans mati, enda var hann sjálfur nemandi Myndlist- arskólans í Reykjavík til æviloka. Helgi var vel ritfær og skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit um sín hugðarefni. Meðal annars ritaði hann greinar um stjórnarskrá lýð- veldisins og fleira efni um stjórnmál og vald. Það er einkenni þessara rita og rökræðunnar, sem hann unni, að Helgi gerði þá kröfu til sín og sinna viðmælenda að orða hugsun sína skýrt. Honum var umhugað að hug- tök væru vel skilgreind og illa við merkingarlaust orðagjálfur. Eftir hann liggja einnig í handriti þýðing- ar á ritum um handverk og listiðnað, en þessar þýðingar voru hluti af list- náminu og hann miðlaði þeim til sinna kennara og samnemenda. Árið 1954 kvæntist Helgi Þórunni Magnúsdóttur sagnfræðingi en þau slitu samvistum. Barn þeirra er Guðrún, sem býr á Hólum í Hjalta- dal. Börn Þórunnar af fyrra hjóna- bandi þau Eygló, Ingibjörg, Erla Bil og Magnús voru Helga sem eigin börn, og hann hélt alla tíð tryggð við þau og þeirra fjölskyldur. Barna- börnin sem kveðja Helga afa eru orðin tólf talsins. Helgi var svo lánsamur að eiga vini allt frá æskuárum, samheldinn systkinahóp, afkomendur og góða vini sem honum tengdust í starfi og áhugamálum síðar á ævinni. Hann auðgaði líf þessa fólks á margan hátt, myndirnar hans eru mörgum augnayndi og hugleiðingarnar íhug- unarefni á komandi árum. Þessi vin- átta var dýrmæt og við vottum vin- um Helga samúð okkar við fráfall góðs félaga, með kærri þökk fjöl- skyldunnar fyrir auðsýndan sam- hug. Guðrún og Helgi. Við fráfall fóstra míns er mér ljúft að minnast hans fáum orðum. Hann kom inn í líf mitt er ég var á áttunda ári, er hann giftist móður minni og eignaðist þar með fjögur stjúpbörn á öllum aldri. Það hefur ábyggilega ekki verið létt verk að taka að sér svo stóran barnahóp, það höfum við systkinin skilið eftir að við urðum fullorðin. Það var svo tæpum fimm árum síðar að einkadóttirin fæddist sem alla tíð hefur verið sól- argeisli föður síns. Helgi var okkur systkinunum góður í alla staði og ekki skildi leiðir okkar þó að þau skildu, móðir okkar og hann, eftir að við vorum fullorðin og flest flutt að heiman. Hann er jafnt afi barnanna okkar allra systkinanna. Að lýsa Helga í fáum orðum er svolítið erfitt, frá mínu sjónarhorni var hann mikill grúskari, hann hefur alla tíð stundað listir og fengist við margt á því sviði. Hugsjón hans og sannfæring var að allir menn væru jafnir, en það virðist mörgum erfitt að viðurkenna. Hann hafði alla tíð sterka pólitíska sannfæringu, en hefur kannski ekki rekist vel í flokki, enda efasemdamaður og vildi kafa dýpra og rökræða hlutina. Ég verð að viðurkenna að ég deildi ekki áhuga með Helga fyrir umræðum um stjórnarskrána, trúmál og póli- tík, en aftur á móti í skógrækt og ræktun lands áttum við sameigin- legt áhugamál. Hann var ötull í skógræktarstarfi og áttum við sam- an margar góðar stundir við skóg- ræktarstörf en þar naut hann sam- veru í góðum félagsskap við að hlúa að landinu sem honum var svo kært. Teikniblokkin var aldrei langt und- an eða myndavélin til að festa augnablikið og voru skýin honum kært viðfangsefni í myndum, hvort sem var með olíu- eða vatnslitum. Erla Bil Bjarnardóttir. „Nútíminn er trunta með tóman grautarhaus …“ segir í dægurlagi og er giska góð lýsing á skoðunum vinar míns Helga. Hraðinn, rótleys- ið, græðgin, skrumið, yfirborðs- mennskan, valdahrokinn og mark- aðsdýrkunin – hin víðfeðma forheimskun – var eitur í hans bein- um og hann fyrirleit þetta allt frá dýpstu hjartarótum. Hans nótur vor aðrar: Íhugul rök- ræða, heimspekilegar vangaveltur, menning og listir – þarna var hans heimavöllur. Helgi var alþýðulistamaður af bestu gerð; stundaði listnám fram á síðustu ár; málaði með vatnslitum og olíu; skar listavel í tré og mótaði í leir; skrifaði linnulaust og þýddi; var hagmæltur vel; hélt sýningar og sótti sýningar, tónleika og menning- arviðburði af kappi. Eins og oft vill verða með frjóan huga komu hugmyndirnar og áhuga- efnin hraðar upp en úr yrði unnið. HELGI JÓNSSON Sími 562 0200 Erfisdrykkjur Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning HELGI JÓNSSON, Eiðismýri 22, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 29. október, kl. 15.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarsamtök. Börn, tengdabörn, barnabörn og systkini hins látna. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, MAGNÚS THORVALDSSON blikksmíðameistari, Kaplaskjólsvegi 39, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 31. október kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Anna Gestsdóttir, Marín Magnúsdóttir, Knud Degn Karstensen, Þorbjörg Magnúsdóttir, Kristján Jónatansson, Elín Magnúsdóttir, Pálmi Guðmundsson, Trausti Magnússon, Guðný Anna Vilhelmsdóttir, barnabörn og langafabörn. Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, sonur, afi og bróðir, JÓNAS M. GUÐMUNDSSON, Flúðaseli 50, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Seljakirkju fimmtudag- inn 31. október kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Suphan Lamai. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVERRIR HARALDSSON frá Æsustöðum í Langadal, til heimilis í Hamraborg 28, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 24. október. Jóhanna Þórarinsdóttir, börn, fósturbörn, tengdabörn og barnabörn. Útför systur okkar, mágkonu og frænku, GUÐLAUGAR ÖGMUNDSDÓTTUR frá Flatey, sem andaðist fimmtudaginn 24. október, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 31. októ- ber kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlega bent á að láta Flateyjarkirkju njóta þess. Reikningur í Búnaðarbankanum Stykkishólmi 309-13-700089. Birna Ögmundsdóttir, Birgir Magnússon, Guðmunda Ögmundsdóttir, Guðný Gerður Gunnarsdóttir, Ögmundur Gunnarsson, Gunnar Freyr Gunnarsson, Þórunn Björg Birgisdóttir, Guðlaug Halla Birgisdóttir. Ástkær bróðir okkar og frændi, BRAGI GUÐNASON, Suðurgötu 25, Sandgerði, er látinn. Systkini og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.