Morgunblaðið - 29.10.2002, Síða 39

Morgunblaðið - 29.10.2002, Síða 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 39 Heimahlynning með opið hús Heimahlynning verður með sam- verustund fyrir aðstandendur í kvöld, þriðjudagskvöldið 29. októ- ber, kl. 20–22 í húsi Krabbameins- félags Íslands, Skógarhlíð 8. Haukur Ingi Jónasson sálgreinir ræðir um viðbrögð við sorg og missi. Kaffi og meðlæti á boðstólum. Fyrirlestur og aðalfundur Þórhall- ur Heimisson prestur heldur fyr- irlestur er nefnist „Turbo-fjöl- skyldan“ í sal Hvaleyrarskóla, Hafnarfirði, í tengslum við aðalfund foreldrafélagsins, í dag, þriðjudag- inn 29. október, kl. 20. Foreldra- félagið selur kaffi og meðlæti gegn vægu gjaldi. Í DAG Þátttaka fatlaðra barna í leik- skólastarfi FFA – fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur – stendur að fyrirlestraröð þar sem íslenskir fræðimenn kynna rannsóknir sínar á lífi og starfi fatlaðra barna og ungmenna. Á morgun miðvikudag- inn 30. október, kl. 20, mun Elsa Sigríður Jónsdóttir kynna MA rit- gerð sína í uppeldis- og mennt- unarfræðum við Háskóla Íslands. Elsa Sigríður á þroskaheftan son og er lektor við KHÍ. Fyrirlest- urinn verður haldinn í húsnæði Landssamtakanna Þroskahjálpar, Suðurlandsbraut 22. Fyrirlesarar kynna í stuttu máli hugmyndir og/eða niðurstöður af rannsóknum sínum og síðan gefst fundarmönnum tækifæri til þess að ræða umræðuefni kvöldsins. Að- gangur er ókeypis – kaffiveitingar gegn vægu gjaldi. Fyrirlestur í lagadeild HÍ Yuri Reshetov flytur fyrirlestur í stofu L-101 í Lögbergi á vegum laga- deildar Háskóla Íslands, miðviku- daginn 30. október kl. 12.15. Yuri Reshetov er varaformaður Félags Sameinuðu þjóðanna í Rússlandi og fyrrverandi sendiherra Rússlands á Íslandi. Í fyrirlestrinum, sem flutt- ur verður á íslensku, verður fjallar um Rússland og Sameinuðu þjóð- irnar. Að fyrirlestrinum loknum mun hann svara fyrirspurnum frá áheyrendum um Rússland og al- þjóðleg málefni. Fyrirlesturinn er opinn lögfræð- ingum, laganemum og öðrum þeim sem áhuga hafa á efninu. Lífssögur fólks með þroska- hömlun Guðrún V. Stefánsdóttir flytur erindið Lífssögur fólks með þroskahömlun, miðvikudaginn, 30. október kl. 12 – 13, í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands og er allir velkomnir. Fyrirlesturinn fjallar um sögu fólks með þroskahömlun á Íslandi frá 1930 til loka 20. aldar og byggist á doktorsrannsókn sem hófst árið 2000 og stendur enn yfir. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvernig fólk með þroska- hömlun upplifir líf sitt, þær breyt- ingar sem orðið hafa á aðstæðum þess og hvernig fólkið hefur tekist á við þær aðstæður sem því voru búnar á hverjum tíma. Áhrif atvinnumissis á líðan fólks Kærleiksþjónustusvið Biskupsstofu stendur fyrir fræðslu- og umræðu- fundi í Hallgrímskirkju, miðviku- daginn 30. október kl. 13.30, um at- vinnumissi – áhrif hans á líðan fólks og hvernig skynsamlegt er að bregðast við. Allir velkomnir. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti. Hvað er eðlileg gleymska? Hana-nú í Kópavogi heldur fyrsta spjallkvöld vetrarins á morgun, miðvikudaginn 30. október, í Gjá- bakka kl. 20 – 21.30. Smári Pálsson taugasálfræðingur á Landakoti svarar spurningunni: Hvað er eðli- leg gleymska og hvað ekki? Allir velkomnir. Nýjar leiðir í íslensku atvinnulífi Ráðstefna um nýjar leiðir í íslensku atvinnulífi verður haldin á vegum Viðskipta- og hagfræðideildar Há- skóla Íslands 30. október kl. 13 – 16.30 í stofu 101 í Odda. Fræðimað- ur á sviði nýsköpunarkerfa, Bo Carlsson heldur halda fyrirlestur á ráðstefnunni um nýsköpun og tæknikerfi. Þá munu meist- aranemar kynna niðurstöður rann- sókna sinna um umsköpun í sjávar- útvegi, vöxt lyfjaiðnaðar á Íslandi, íslenska dægurtónlist og um ís- lenska kvikmyndavorið. Allir vel- komnir og aðgangur ókeypis. Rabbfundur stuðningshóps um eggjastokkakrabbamein Stuðn- ingshópur kvenna sem fengið hafa krabbamein í eggjastokka halda rabbfund í húsi Krabbameins- félagsins að Skógarhlíð 8 í Reykja- vík miðvikudaginn 30. október kl. 17. Gestur fundarins verður Sólveig Karvelsdóttir alþjóðafulltrúi Kenn- araháskóla Íslands. Konur sem fengið hafa krabbamein í eggja- stokka eru hvattar til að mæta. Á MORGUN Rannveig Guðmundsdóttir hefur opnað heimasíðu. Slóðin á síðuna er: http://huginn.althingi.is/rannveig. Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, tónlistarkennari, formaður Félags tónlistarskólakennara og frambjóð- andi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík 9. nóvember hefur opnað heimasíðu. Slóðin á síðuna er www.sigrungrendal.is. Þar er að finna upplýsingar um helstu stefnu- mál Sigrúnar, greinar eftir hana, viðtal um helstu áherslur, upplýs- ingar um feril Sigrúnar Grendal og fleira tengt prófkjörinu. Sigrún sæk- ist eftir 5. – 6. sæti í prófkjörinu. Í DAG STJÓRNMÁL LAUGARDAGINN 26. október sl. var ekið á bifreiðina AP-380, sem er grá Toyota Corolla-fólksbifreið, þar sem hún stóð á bifreiðastæði sunnan við Egilshöll í Grafarvogi. Atvikið varð á milli kl. 11:55 og 13:05. Sá er tjóninu olli fór á brott. Bifreiðin AP-380 skemmdist á vinstra framhorni. Skorað er á þann sem ók á bílinn að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 569- 9020, svo og vitni að atvikinu, ef ein- hver hafa verið. Lýst eftir vitnum HELGIN var frekar ró- leg þrátt fyrir að töluvert hafi verið tilkynnt um innbrot og þjófnaði. Um helgina var tilkynnt um 24 innbrot, 20 þjófnaði og 16 sinnum um eignaspjöll en í nokkrum tilfellum var stungið á hjólbarða. Þar var maður að fara upp stiga til að komast upp á vinnupall í 2,65 m hæð. Stiginn rann undan manninum með þeim afleiðingum að hann féll niður. Hann meiddist á hendi og mjöðm og var fluttur á Slysadeild með sjúkrabifreið. Um klukkustund síðar var maður að rífa niður vinnu- palla við Suðurlandsbraut sem hrundu niður og lenti maðurinn við það á járngrind og slasaðist. Hann var fluttur á slysadeild. Á föstudagskvöldið eftir miðnætti var lögreglan með umferðarátak gegn ölvunarakstri og var stöðvuð umferð sem fór um Sæbraut. Alls voru stöðvuð um 200 ökutæki. Nokk- uð var um að ökumenn væru ekki með ökuskírteini meðferðis. Einn reyndist réttindalaus og einn hafði neytt lítilsháttar af áfengi en reyndist undir mörkum er öndunarsýni var tekið. Laust fyrir kl. 9 á laugardagsmorg- un var tilkynnt um eld í sjónvarpi í íbúð í Skaftahlíð. Eftir þrjár mínútur var lögregla og slökkvilið komið á staðinn og voru íbúar þá komnir út úr íbúðinni. Þeir höfðu óvart læst á eftir sér og urðu slökkviliðsmenn að brjóta sér leið inn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en miklar skemmdir urðu á íbúðinni bæði af völdum sóts, hita og reyks. Einnig urðu reyk- skemmdir í sameign. Íbúarnir fóru á Slysadeild til læknisskoðunar. Á sunnudagskvöld var nítján ára ökumaður stöðvaður á Vesturlands- vegi við Elliðárnar eftir að hafa mælst á 127 km hraða en þarna er nú leyfður 80 km hraði. Ökumaðurinn notaði ekki öryggisbelti. Úr dagbók lögreglunnar 25.–28. október Einn af 200 hafði neytt áfengis lifun tímarit um heimili og lífsstíl númer sex 2002 Listaverk eignað öðrum Listaverk Jóns B.K. Ransu var ranglega eignað Ingu Þóreyju Jó- hannsdóttir í myndatexta á laugar- dag. En þau eru bæði meðal þátttak- enda á sýningu Gullpensilsins í Listasafni Reykjanesbæjar. Beðist er velvirðingar á mistökun- um. Rangt föðurnafn Rangt var farið með föðurnafn Ragnhildar Guðmundsdóttur í frétt frá morgunfundi UNIFEM á bls 12 í Morgunblaðinu föstudaginn 25. október. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Rangur myndatexti Þau leiðu mistök urðu að rangur myndatexti var birtur með grein Einars Gunnlaugssonar Í heimsókn hjá Postulunum 12. Réttur mynda- texti er: Í vínkjallara hins 300 ára gamla veitingastaðar 12 Apostoli í Veróna, frá vinstri Unnur Stephen- sen, Einar Gunnlaugsson, Antonío Gioco, og Þóra Sigurðardóttir. Ant- onio heldur á bókinni um Ísland sem honum var færð að gjöf, en hún er með ítölskum texta. Til vinstri er gengið niður í neðri kjallara sem sýnir rústir af rómversku hofi frá því 50 árum eftir Krist en þessar rústir fundust fyrir nokkrum árum þegar verið var að lagfæra gatna- og lagna- kerfið í götunni. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.