Morgunblaðið - 29.10.2002, Page 41
Laugavegi 63 Vitastígsmegin
20% afsláttur
af öllum vörum
verslunarinnar
í 4 daga
Silkitré (inni og úti), silkiblóm,
pottablóm, blómaker,
glervasar og skreytingar.
RÝMUM FYRIR
JÓLAVÖRUNNI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 41
ÍSLENSKAR TENGIGRINDUR
VATNSVIRKINN ehf.
Ármúla 21 · Sími 533 2020
www.vatnsvirkinn.is
Heildsala - Smásala
Fyrir 90 m2 hús miðað við 75-35°C hitaveitu,
70-30°C hringrásarkerfi og 30% frostlög.
Samsett: 99.600 krónur
Ósamsett: 93.026 krónur
Íslenskar tengigrindur fyrir íslenskar aðstæður
Fyrir allt að 50 m2 miðað við 75-35°C hitaveitu,
70-30°C hringrásarkerfi og 30% frostlög.
Samsett: 70.997 krónur
Ósamsett: 66.067 krónur
Auðvelt er að breyta afstöðu tengistúta, t.d. eftir þörfum Orkuveitu Reykjavíkur.
Tengigrindurnar eru sérstaklega fyrirferðarlitlar, einungis 65 cm á breidd og 75 cm á hæð.
ÓLYMPÍUMÓTIÐ í skák, hið 35.
í röðinni, hófst í Bled í Slóveníu á
föstudaginn og tvær fyrstu umferð-
irnar voru tefldar um helgina. Ís-
lendingar senda lið til keppni í báð-
um flokkum, þ.e. opnum flokki og
kvennaflokki. Í opna flokknum
mættu 133 lið til leiks og er ís-
lenska liðið í 43. sæti í styrkleika-
röðinni. Í kvennaflokki tefla 90 lið
og þar eru íslensku skákkonurnar í
75. sæti samkvæmt alþjóðlegum
Elo-skákstigum. Aldrei áður hafa
jafnmörg lið teflt á Ólympíumótinu
í skák.
Mótið hófst á því, að forseti Evr-
ópska skáksambandsins lék fyrsta
leik mótsins fyrir Guðfríði Lilju
Grétarsdóttur í viðureign Íslend-
inga og heimamanna, A-liðs Slóven-
íu. Fréttamenn hópuðust í tugatali í
kringum borð kvennaliðsins til að
fylgjast með og ná myndum af við-
burðinum og ein þeirra prýddi síð-
an forsíðuna á heimasíðu mótsins.
Íslensku liðin fóru vel af stað.
Karlaliðið mætti Barein í fyrstu
umferð og sigraði 3½–½. Jón Garð-
ar Viðarsson náði jafntefli eftir að
hafa haft tapaða stöðu. Fyrir ís-
lenska karlaliðið tefldu þeir Helgi
Áss Grétarsson, Þröstur Þórhalls-
son, Stefán Kristjánsson og Jón
Garðar Viðarsson. Stórmeistararnir
Hannes Hlífar og Helgi Ólafsson
hvíldu.
Kvennaliðið stóð sig betur en bú-
ast mátti við gegn sterku A-liði
Slóvena. Slóvenar sigruðu 2–1 og
það var Harpa sem sigraði alþjóð-
lega kvennameistarann Darja
Kups, en hún er með 2.224 Elo-stig.
Auk Hörpu var kvennaliðið skipað
þeim Guðfríði Lilju og Aldísi Rún
Lárusdóttur.
Meðal helstu tíðinda af öðrum
liðum má nefna, að Rússland sigr-
aði Costa Rica 3½–½. Þeir Alex-
ander Grischuk, Alexander Khalif-
man og Peter Svidler sigruðu í
sínum viðureignum. Alexander
Morozevich, einn sterkasti skák-
maður heims, varð hins vegar að
sætta sig við jafntefli gegn 14 ára
andstæðingi sínum, Alejandro
Ramirez. Garry Kasparov og Evg-
eny Bareev hvíldu. Ungverjaland
með Peter Leko og Judit Polgar í
fararbroddi sigraði Venesúela 4–0.
Hið öfluga ísraelska lið missti niður
hálfan vinning gegn liði sem er
skipað heyrnarskertum skákmönn-
um. Lev Psakhis gerði jafnteflið.
Í annarri umferð mættu Íslend-
ingar einu sterkasta landsliði heims
í opnum flokki. Armenar eru í ní-
unda sæti í styrkleikaröðinni á
mótinu, svo ekki var búist við hag-
stæðum úrslitum. Íslenska liðið
stóð sig hins vegar framar vonum
og tapaði með minnsta mun,
1½–2½. Hannes Hlífar Stefánsson
gerði jafntefli við einn sterkasta
stórmeistara heims, Vladimir
Akopian (2.689), og Helgi Áss Grét-
arsson sigraði svo glæsilega í sinni
skák gegn Gabriel Sargissian, en
hann er með 2.568 skákstig. Þröst-
ur Þórhallsson tapaði sinni skák
eftir að hafa haft betra í miðtaflinu.
Stefán Kristjánsson tapaði einnig
sinni skák, en hann var með gjör-
unnið tafl á tímabili.
Kvennaliðið stóð sig einnig vel í
annarri umferð og sigraði Jamaíku
með 2½ vinningi gegn ½. Úrslitin
hefðu allt eins getað orðið 3–0, en
Harpa Ingólfsdóttir missti sigur-
vænlega stöðu niður í jafntefli. Hún
hefur því fengið 1½ vinning í tveim-
ur fyrstu umferðunum. Þær Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir og Aldís
Rún Lárusdóttir sigruðu í sínum
skákum.
Hið firnasterka lið Rússa trónir á
toppnum í opnum flokki með sjö
vinninga eftir fyrstu tvær umferð-
irnar, en Ungverjaland, Pólland,
Rúmenía, Georgía, Slóvakía, Króat-
ía, Makedónía, Grikkland og Kaz-
akhstan eru einnig með sjö vinn-
inga, en lægri á stigum.
Bandaríkin, Úkraína, Frakkland,
Indónesía, Júgóslavía, Moldóva og
Argentína eru næst með 6½ vinn-
ing. Rússar eru einnig efstir í
kvennaflokki.
Í þriðju umferð mæta Íslending-
ar Paragvæ í opnum flokki og
kvennaliðið mætir Filippseyingum.
Því miður misheppnuðust beinar
útsendingar á skákum fyrstu um-
ferðanna og fréttaflutningur af
mótinu er allur í molum.
Jón Viktor sigraði í undan-
rásum Atskákmóts Íslands
Á sunnudag lauk undanrásum
fyrir Íslandsmótið í atskák 2003.
Sex efstu menn unnu sér rétt til
þátttöku í úrslitakeppninni sem fer
fram í lok janúar. Mótið var sterkt
og spennandi. Arnar Gunnarsson
tók strax forystu og hélt henni allt
þar til í síðustu umferð er hann
tapaði fyrir Sævari Bjarnasyni. Á
meðan vann Jón Viktor Gunnarsson
sína skák og náði þar með toppsæt-
inu. Úrslit mótsins urðu þessi:
1. Jón Viktor Gunnarsson 7½ v. af 9
2. Arnar Erwin Gunnarsson 7 v.
3. Davíð Kjartansson 6 v.
4. Magnús Örn Úlfarsson 5½ v.
5. Bragi Þorfinnsson 5 v. (41 st.)
6. Bergsteinn Einarsson 5 (37,5 st., 40,5 st.)
7. Sigurður P. Steindórss. 5 (37,5 st., 39 st.)
8. Sævar Bjarnason 5 v. (32,5 st.)
o.s.frv.
Keppendur voru 14.
Íslendingar byrja vel
á Ólympíumótinu
Daði Örn Jónsson
SKÁK
Bled, Slóveníu
35. ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ
25. okt. – 10. nóv. 2002
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 ReykjavíkSkólavörðustíg 21, sími 551 4050.
Viskustykki
Til í níu mynstrum
Þegar líkaminn þarf
meira en lystin leyfir
Útsölustaðir apótek landsins
og Heilsuhúsið
Við orku- og próteinskorti