Morgunblaðið - 29.10.2002, Page 43

Morgunblaðið - 29.10.2002, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 43 DAGBÓK SPIL dagsins er leikrit í tveimur þáttum. Í þeim fyrri vinnur suður sex tígla gegn „eðlilegri“ vörn, en eftir hlé þarf hann að glíma við yfirnáttúrulegan and- stæðing í austursætinu. Norður ♠ D8765 ♥ Á942 ♦ 6532 ♣– Vestur Austur ♠ G932 ♠ Á104 ♥ 5 ♥ D876 ♦ 1087 ♦ 9 ♣DG1098 ♣Á7654 Suður ♠ K ♥ KG103 ♦ ÁKDG4 ♣K32 Vestur kemur út með einspilið í hjarta gegn sex tíglum suðurs. Sagnhafi lætur lítið hjarta úr blind- um og austur hugsar sig um í nokkra stund, en fylgir svo með smáspili og suður fær slaginn á tíuna. Nú tekur lesandinn við. Samgangurinn leyfir ekki laufstungur í borði og því verður suður að byrja á því að taka þrisvar tromp. Áætlunin er fyrst og fremst að fríspila spaðann. Eftir að hafa tekið þrjá efstu í tígli spilar suður spaðakóng. Hafi austur lært að „ásar séu til að drepa kónga“ mun hann væntanlega taka slaginn. En þá lendir hann í miklum vanda. Ef hann spilar spaða um hæl fær sagnhafi aukainnkomu í borð sem dugir honum til að fría spaðann og nýta hann. Sama er upp á ten- ingnum ef austur spilar hjarta, enda vaknar þá nía blinds til lífsins. Og lauf- ásinn (eða lítið lauf) gefur slag á kónginn og þá þarf sagnhafi ekkert á spaðan- um að halda. Sem sagt – spilið er sjálfunnið ef aust- ur tekur með spaðaás. En ef hann dúkkar? Hvað er þá til ráða? Þú færð eina mínútu til að hugsa um það. Sagnhafi svarar í sömu mynt – hann spilar hjarta- gosa og lætur hann rúlla yfir til austurs! Ef austur drepur myndast innkoma á hjartaníu í borði og þá verður hægt að trompa nið- ur spaðaásinn og nýta drottninguna. Glæsilegt, en austur er kominn í æfingu og dúkkar aftur! Nú er tjaldið dregið fyrir og hlé gert til morguns. Þann tíma getur lesandinn notað til að velta fyrir sér hvernig sagnhafi eigi að bregðast við þessum óvænta mótleik austurs. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT STORMUR Ég elska þig, stormur, sem geisar um grund og gleðiþyt vekur í blaðstyrkum lund, en gráfeysknu kvistina bugar og brýtur og bjarkirnar treystir um leið og þú þýtur. Þú skefur burt fannir af foldu og hól, þú feykir burt skýjum frá ylbjartri sól, og neistann upp blæs þú og bálar upp loga og bryddir með glitskrúði úthöf og voga. Þú þenur út seglin og byrðinginn ber og birtandi, andhreinn um jörðina fer; þú loftilla, dáðlausa lognmollu hrekur og lífsanda starfandi hvervetna vekur. - - - Hannes Hafstein Hlutavelta 1. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. g3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. Bg2 Rb6 6. Rf3 Rc6 7. 0–0 Be7 8. b3 0–0 9. Bb2 f5 10. d3 Bf6 11. Hb1 Be6 12. e3 Hf7 13. De2 Hd7 14. Hfd1 De7 15. Hd2 Had8 16. Hbd1 g5 17. h3 Dg7 18. d4 e4 19. Rh2 Rd5 20. f3 exf3 21. Bxf3 Rce7 22. Rxd5 Bxd5 23. Kh1 Dh6 24. Kg2 Kh8 25. g4 Rg6 26. Bxd5 Hxd5 27. gxf5 Rh4+ 28. Kh1 Rxf5 29. Df3 Bg7 30. Rg4 De6 31. e4 Staðan kom upp í fyrri hluta Íslands- móts Skákfélaga sem fór fram í húsa- kynnum B&L. Björn Þorsteinsson (2.200) hafði svart gegn Guðmundi Daðasyni (1.690). 31... Dxe4! 32. Dxe4 Rg3+ 33. Kg2 Rxe4 34. He2 Rd6 35. Re3 He8 36. Kf3 Ha5 37. a4 Rf5 38. Bc3 Rh4+ 39. Kf2 Ha6 40. Rd5 Hxe2+ 41. Kxe2 He6+ 42. Kd3 c6 43. Re3 Rg6 44. Rg2 Kg8 45. b4 Hd6 46. Hf1 Re5+ 47. Ke4 Rc4 48. Hf2 Rb6 49. a5 Rd5 50. Bb2 Rxb4 51. Hf5 h6 52. Hc5 He6+ 53. Kf5 Hf6+ 54. Ke4 Hf2 55. Bc3 Ra6 og hvítur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake SPORÐDREKI Afmælisbörn dagsins: Þú átt auðvelt með að laða aðra til samstarfs við þig og úthald til þess að fylgja málunum eftir. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Vertu ekki of ákafur í að koma máli þínu á framfæri því það gæti farið illa í menn ef þú beitir þrýstingi. Þú gæt- ir heilmikið lært af því að heyra álit annarra. Naut (20. apríl - 20. maí)  Gættu þess að stökkva ekki upp á nef þér af minnsta til- efni, en talaðu hreint út, því það eru aðrir en þú, sem þurfa að endurskoða sín mál. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Notaðu nú tækifærið og jafn- aðu ágreining þinn við gaml- an vin. Sýndu lipurð og sann- girni umfram allt. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ættir að leita ráða hjá þér eldra fólki sem hefur meiri reynslu á ákveðnu sviði. Skoðirðu stöðu þína frá öðr- um sjónarhóli muntu skilja málið betur. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú átt gott með að koma fyrir þig orði og skalt nú viðra gamlar hugmyndir við félaga þinn. Þú hefur það hugrekki sem til þarf. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú átt erfitt með að einbeita þér að hlutunum og dettur auðveldlega í dagdrauma. Þú hefðir gott af því að komast eitthvað afsíðis og spekúlera í hlutunum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú þarft að standa á rétti þín- um en gæta þess um leið að gera ekki meira úr hlutunum en nauðsyn krefur. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Reyndu ekki að byrgja til- finningar þínar inni. Það er allt í lagi að skipta skapi, en nauðsyn að hreinsa andrúms- loftið strax og halda svo áfram. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Daður kemur þér í vanda í dag þótt þú hafir leynt gaman af. Haltu samt þínu striki. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Látið það ekki skemma fyrir ykkur daginn þótt hann fari eitthvað skringilega af stað. Vertu bara þú sjálfur, því þannig ertu besta fyrirmynd- in. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú ert úthaldsgóður og það kemur sér vel núna þegar þú ert beðinn um að taka að þér hin ýmsu verkefni. Njóttu ár- angursins og haltu svo ótrauður áfram. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Hálfnað er verk, þá hafið er. Ekki sópa þeim undir teppið heldur gefðu þér tíma til þess að fara í gegnum þau og finna lausn á þeim. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. BALTIC WOOD parket í miklu úrvali Verðdæmi: Eik Unique 14mm 3ja stafa Tilboð kr. 2.790,- m2 Kringlunni, sími 553 2888 Glæsilet úrval af fallegum skóm á alla fjölskylduna Tölvuþjálfun Windows Word Internet Excel Það er aldrei of seint að byrja! 60 stunda námskeið þar sem þátttakendur kynnast grundvallarþáttum tölvuvinnslu og fá hagnýta þjálfun. Vönduð kennslubók innifalin í verði. Innritun stendur yfir. Fjárfestu í framtíðinni! BÍLDSHÖFÐI 18, SÍMI 5671466 Loksins, loksins á netinu Elsta fyrirtækið á landinu sem eingöngu selur fyrirtæki er loksins komið á netið. Heimsækið okkur á Fyrirtaeki.is Þarft þú að kaupa þér atvinnu? Vilt þú verða sjálfstæður án þess að eiga það á hættu að fá uppsagnarbréf fyrirvaralaust og eiga sjálfur það sem eftir verður? Þarft þú að selja? Skráðu fyrirtækið hjá okkur, það kostar þig ekkert en það gæti selst. Hafðu samband. Allar upplýsingar í fullum trúnaði. Þannig vinnum við. Erum með úrval fyrirtækja á skrá á hverjum tíma. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. Einar Örn Reynisson, lögg. fasteignasali. 400 fm á 22 millj. mjög vel staðsett, til sölu eða leigu. Mjög gott lagerhúsnæði - verslunaraðstaða, skrifstofur. Laust strax. Uppl. í síma 898 8577 og 551 7678 Þessar ungu stúlkur héldu á dögunum hlutaveltu til styrkt- ar Rauða krossinum og söfnuðu 5.469 kr. Þær heita (fyrir aftan, frá vinstri): Regína Bergdís Erlingsdóttir, Ingibjörg Elín Gísladóttir, Aleksandra Rós Jankovic (fyrir framan, frá vinstri) Elísa Sóldís Sigurðardóttir og Hildur Erla Gísladóttir. Á myndina vantar Guðrúnu Sóleyju Sigurð- ardóttur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þessir duglegu krakkar héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu kr. 5.040. Þau eru Helga Kristín Einarsdóttir, Elísabet Charlotta Ásgeirsdóttir og Sigurður Örn Einarsson. Á myndina vantar Álfheiði Erlu Guðmunds- dóttur. Það er alveg rétt það sem stóð í blaðinu um nýja krem- ið. Appelsínu- húðin mín er al- veg horfin … Með morgunkaffinu MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.