Morgunblaðið - 24.11.2002, Side 1
STOFNAÐ 1913 276. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 mbl.is
Sólin skín
skært
Bubbi Morthens ræðir um nýju
skífuna Sól að morgni Fólk 56
Steinunn Ólína snýr frá
sjónvarpi í leikhúsið 10
Siglt í
heila öld
100 ár eru síðan fyrsti
vélbáturinn sigldi á miðin B2
ÁSTRÍÐUR Thorarensen, eiginkona Dav-
íðs Oddssonar, og Laura Bush, forsetafrú
Bandaríjkanna, sátu hlið við hlið í hádeg-
isverði í boði Dagmar Havlovu, eiginkonu
Vaclav Havel forseta, í Lany-höll í Tékk-
landi á fimmtudag. „Þær byrjuðu um-
svifalaust að spjalla eins og þær hefðu
þekkst í áraraðir. Þetta var í fyrsta sinn
sem þær hittust,“ segir í frétt frá AP-
fréttastofunni. Kemur fram að konurnar
gæddu sér á tékkneskum réttum, m.a. önd,
soðköku og súrkáli.
Ástríður segir að henni hafi líkað sér-
staklega vel við forsetafrúna. „Hún var svo
látlaus, elskuleg og blátt áfram. Það var
mjög skemmtilegt samtal sem ég átti við
hana,“ segir Ástríður. „Við vorum að tala
um börn og bækur og gildi þess að lesa fyr-
ir börn, lesa með börnum og segja börnum
sögur.“ Aðspurð segist hún ekki vita
hvernig samtalið þróaðist út í þessa sálma,
þær hafi rætt margt fleira en þetta hafi
verið efst á baugi.
Hádegisverðurinn var hluti af þeirri
dagskrá sem stóð mökum leiðtoga NATO-
ríkjanna til boða á meðan á fundi banda-
lagsins stóð í Prag. Ástríður segir and-
rúmsloftið mjög gott og þægilegt þegar
makar leiðtoga hinna ýmsu landa heimsins
koma saman. Það hafi komið henni mjög á
óvart fyrst eftir að hún kom inn í þennan
hóp. „Þessar konur hafa mikla reynslu í
mannlegum samskiptum, hafa hitt fjölda-
margt fólk og eru mjög elskulegar, alveg
undantekningarlaust. Það er engin að
leika neina prímadonnu, heldur eru þetta
þægilegar og elskulegar konur. Það er
gaman að spjalla við þær, þær koma úr
ólíkum áttum og hafa kynnst mörgu.“
AP
Nokkrar eiginkvennanna stilltu sér upp fyrir myndatöku þegar þær skoðuðu Prag-kastala, aðsetur forseta Tékklands. Gestgjafinn, Dag-
mar Havlova, eiginkona Vaclav Havel, er fjórða frá hægri og Ástríður Thorarensen önnur frá hægri. Við hlið Ástríðar er Anne Mette
Rasmussen, forsætisráðherrafrú Danmerkur. Lengst til vinstri er Margarida Durao Barroso sem er gift portúgalska forsætisráð-
herranum og við hlið hennar hin pólska Jolanta Kwasniewska. Viðamikil dagskrá er jafnan í boði fyrir maka þjóðarleiðtoganna.
Afslappað andrúmsloft á leiðtogafundi
Á fjalirnar
á ný
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
FJÓRIR ísraelskir sjóliðar særðust um borð í varðbáti
í gærmorgun er palestínskir öfgamenn sprengdu fiski-
bát í loft upp og urðu sjálfum sér að bana um leið.
Árásin varð gerð úti fyrir strönd Gaza og lýsti harð-
línuhópurinn Heilagt stríð Islam tilræðinu á hendur
sér. Varðbáturinn skemmdist en náði til hafnar.
Ísraelski herinn sagði að fiskibáturinn hefði sést á
siglingu í átt að ísraelskri landhelgi, en inn í hana er
palestínskum bátum og skipum bannað að fara. Hefði
lítill varðbátur verið sendur til móts við palestínska
bátinn og sáu sjóliðarnir „tvo grunsamlega menn“ um
borð. Reynt hefði verið að hrekja fiskibátinn á brott
með því að sprauta á hann vatni og skjóta aðvörunar-
skotum að honum. Einnig hefði verið reynt að ná sam-
bandi við mennina um borð, en án árangurs. Þá hefði
sprenging orðið um borð í fiskibátnum.
SJÁLFSMORÐS-
ÁRÁS Á SJÓ
Fjórir Ísraelar særðir
Jerúsalem. AFP.
ÁTTA börn í New York, sem þjást af offitu, hafa
höfðað mál á hendur skyndibitakeðjunni McDonald’s
og segja hana bera ábyrgð á því hvernig komið sé
fyrir þeim þar sem keðjan hafi ekki veitt nægar upp-
lýsingar um það heilsutjón sem geti hlotist af neyslu
matarins sem keðjan framleiðir.
Eitt barnanna, Gregory Rhymes, 15 ára, er um 180
kg. Haft er eftir móður hans að hún hafi alltaf haldið
að maturinn frá McDonald’s væri heilsusamlegur
fyrir drenginn. Annað barn neytti allra sinna mál-
tíða hjá McDonald’s í þrjú ár.
Menn í skyndibitaiðnaðinum fylgjast grannt með
málinu því talið er að falli dómur sækjendum í hag
geti það leitt til holskeflu sams konar mála og
skyndibitaframleiðendur þurfi að greiða gríðarlegar
skaðabætur, líkt og tóbaksframleiðendur hafa verið
dæmdir til að gera.
Í júlí sl. höfðaði 56 ára Bandaríkjamaður mál gegn
skyndibitakeðjunum McDonald’s, Burger King,
Wendy’s og KFC og sagði þær ábyrgar fyrir því að
hann væri 123 kg og hefði fengið mörg hjartaáföll.
Í mál við McDonald’s
vegna offituvanda
New York. AFP.
AÐILD Litháens að Atlantshafsbandalaginu (NATO)
mun „endurnæra“ bandalagið, sagði George W. Bush
Bandaríkjaforseti er hann kom í stutta heimsókn til
Litháens í gær-
morgun. Það var í
fyrsta sinn sem
Bandaríkjaforseti
heimsækir landið.
Litháen og sex öðr-
um fyrrverandi
kommúnistaríkjum
hefur verið boðin
aðild að NATO.
Bush sagðist líta á
Litháen sem tákn
um hugrekki þess fólks sem staðið hefði uppi í hárinu
á harðstjórn og krafist frelsis. Forseti Litháens,
Valdas Adamkus, kvaðst himinlifandi yfir heimsókn
Bush og tilboðinu um að ganga í NATO. Boðið „sann-
ar að við tilheyrum hinum frjálsa heimi og erum
reiðubúin að uppfylla öll skilyrði sem aðild krefst“,
sagði Adamkus.
Að lokinni heimsókninni til Litháens hélt Bush til
Rúmeníu, einnig í stutta heimsókn, en Rúmenar eru
líka meðal þeirra þjóða sem boðin hefur verið NATO-
aðild. Þar Bush flutti ávarp á Byltingartorginu í Búk-
arest sem var miðpunktur uppreisnarinnar gegn
kommúnistastjórninni í landinu 1989.
Litháar „endur-
næra“ NATO
Vilnius. AFP.
George W. Bush og Valdas Ad-
amkus ræðast við í Vilníus í gær.
ÓÞEKKT rýrnun í verslun á
Íslandi er líklega eitthvað á
fjórða milljarð króna á ári og
er þá átt við verðmæti þess
sem hverfur, vegna hnupls eða
þjófnaðar eða af öðrum orsök-
um, frá því vara fer frá fram-
leiðanda eða birgja þar til hún
fer út úr verslun.
Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka versl-
unar og þjónustu, segir að í
löndum Evrópusambandsins
sé talið að óþekkt rýrnun í
verslun sé 1,75% af veltu og
hún sé örugglega ekki minni
hér á landi. Hann spáir því að
smásöluverslun verði um 185
milljarðar króna á þessu ári.
Sigurður bendir á að rýrnun
sé eins og hver annar kostn-
aðarliður í rekstri verslunar-
innar og náist að minnka hana
sé tækifæri til að lækka vöru-
verð eða hækka laun.
Jón Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Baugs-Ísland,
telur rýrnun enn hærri í dag-
vöruverslun – en til þess flokks
telst matvara, gjafavara og
fatnaður – en þegar litið er á
smásöluverslun í heild eins og
Sigurður gerir. „Ég myndi
áætla að vörurýrnun í dag-
vöruverslun á íslenskum
markaði væri um 2,5 til 3 millj-
arðar,“ segir Jón og bætir við
að ef tölfræði úr erlendum
verslunarkeðjum er yfirfærð
má áætla að 25–30% af því séu
þjófnaður. „Hann gæti þá
numið 600–700 milljónum á
ári.“ Jón segir að reikna megi
með því að vörum að vermæti
um 300 milljónir króna stolið
hjá Baugi-Ísland á ári hverju.
Óþekkt rýrnun í versl-
un á fjórða milljarð
„Óþekkt rýrnun“/14
SVOKALLAÐAR „vina-
afgreiðslur“ eru dæmi um
þjófnað í matvöruverslunum:
Vinur starfsmanns á kassa
kemur þangað með mikið
magn vöru; t.d. að verðmæti
10 þúsunda króna, en greiðir
aðeins eitt þúsund. Starfs-
maður gætir þess að snúa
strikamerkjum öfugt til að
viðkomandi vara stimplist
ekki inn í kassann.
Vinaafgreiðslur