Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 4
Morgunblaðið/Kristinn Pétur Már Ólafsson, útgáfustjóri Vöku-Helgafells, og Davíð Oddsson kynntu bókina á blaðamannafundi í Iðnó. Davíð segir að sögurnar í nýútkomnu smásagnasafni sínu séu mjög ólíkar. Sum atvik og persónur eigi sér stoð í raunveruleikanum. „En ég tek fram að þetta eru sögur, þótt maður noti eitthvað af því sem maður hefur upplifað þá breytir maður þessu öllu saman og færir mjög í stílinn.“ ÖNNUR bók Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra og rithöfundar, smásagnasafnið Stolið frá höfundi stafrófsins, kom út í gær. Bókin hefur að geyma átta smásögur sem Davíð segir allar mjög ólíkar, sum- ar þeirra byggist á raunverulegum atburðum en aðrar séu hreinn heilaspuni. Fyrri bók Davíðs, smá- sagnasafnið Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, kom út árið 1997, rit- höfundurinn segist telja nýju bók- ina betri. Bókin var kynnt á blaðamanna- fundi í Iðnó í gær, en þar gerist einmitt ein sagan Flugan á veggn- um verður kringluleit. Hún er byggð á atburðum úr leikhúsinu en Davíð vann þar sem leikhúsritari árin 1970–72. „Konan mín segir að ég sé svo lyginn þegar ég segi sögu að það sé allt í lagi fyrir hana að heyra hana í þrítugasta sinn, því ég breyti henni alltaf óviljandi. Það er ekkert af þessu nákvæmlega rétt náttúrlega,“ segir Davíð glett- inn. Aðspurður hvort atvik eða per- sónur í bókinni byggist á raunveru- leikanum segir forsætisráðherra að Kohl kanslari og Clinton Banda- ríkjaforseti komi við sögu, og þeir eigi sér vissulega stoð í raunveru- leikanum. „En ég tek fram að þetta eru sögur, þótt maður noti eitthvað af því sem maður hefur upplifað þá breytir maður þessu öllu saman og færir mjög í stílinn.“ Í sögunni sem gerist í leikhúsinu komi t.d. fyrir þekktar persónur, sem þó séu ekki nafngreindar og í fleiri sögum megi finna slíkar persónur. „Svo koma fyrir persónur sem ég nauða- þekki, en fáir aðrir. Það er sitt af hverju tagi í þessari bók.“ Davíð segist ekki eiga von á því að bókin eigi eftir að valda póli- tískum úlfaþyt. „Það er ekkert lengur sem veldur úlfaþyt, heim- urinn er orðinn svo breyttur.“ Hann segir að honum þætti skemmtilegt ef bókin ylli bók- menntalegum úlfaþyt „en ég set mig ekki á svo háan stall að ég ætl- ist til þess. Ég hefði gaman af því en ég held það verði ekki. Aðal- atriðið er að bókin fái að lifa sínu lífi.“ Fær hugmyndir í flug- vélum og á Alþingi Davíð segir skriftirnar vera aukastarf. Hann skrifi hjá sér hug- myndir t.d. í flugvélum „og niðri á þingi, ef það er eitthvað sem er ekki mjög skemmtilegt, sem er nú ekki oft,“ segir Davíð og hlær. Sumar hugmyndirnar verði aldrei barn í brók, en síðar taki hann fram hugmyndir og byrji að vinna úr þeim. „Sérstaklega ef maður er búinn að átta sig á endinum, þá er hitt eiginlega í lagi. Það er end- irinn sem á að skoðast í upphafi, sérstaklega í smásögum. Það er ekkert verra en smásaga sem ekki endar. Það er allt í lagi þó að 400 síðna bók endi ekki, þá eru menn svo fegnir að hún skuli vera búin, en smásaga þarf að enda með af- gerandi hætti,“ segir Davíð. Hann segist sækja innblástur í reynslu sína, m.a. frá æskuárunum og störfum sem hann hafi gegnt í gegnum tíðina. „Eina söguna dreymdi mig, það var svo und- arlegt og ég skrifaði hana strax niður.“ Davíð segir að það hafi líka komið fyrir í fyrri bókinni. Hann hafi vaknað með sögu í kollinum, ekið beinustu leið upp í sumar- bústað þar sem hvorki er sími né rafmagn. „Svo var allt orðið vit- laust og löggan kom því þá hafði ég gleymt því að ég átti mörg við- töl í stjórnarráðinu, þetta var á virkum degi. Ég var svo heltekinn af sögunni, ég má nú eiginlega ekki segja frá þessu, að ég rauk af stað og skrifaði hana niður.“ Þann- ig hafi hann týnst í hálfan dag eins og Agatha Christie týndist í fjóra mánuði. Segist Davíð ekki líkjast þeirri góðu frú að öðru leyti. Forsætisráðherra- starfið betur borgað Davíð segir að hann sé einnig með stærra bókmenntaverk í smíð- um, það hafi þó gengið illa að klára það því hann nái ekki samfellu í skrifunum og að einbeita sér að því í langan tíma því alltaf þurfi að sinna öðrum verkum. Ekkert starf sé hins vegar svo viðamikið að menn geti ekki fundið skjól til að klára sögu sem sé 10, 20 eða 30 blaðsíður að lengd. Aðspurður hvort það sé skemmtilegra að vera forsætisráð- herra eða rithöfundur segir Davíð hlæjandi að forsætisráðherrastarf- ið sé betur borgað. „Þetta er nátt- úrlega áhugamál, sumir raða frí- merkjum og það er alltaf gaman að planta trjám. Að vera forsætisráð- herra hefur sína góðu daga, en ég held að það sé ekki ætlast til þess að það sé endilega skemmtilegt. Manni er ekki borgað fyir það. Það hafa allir gott af því, bæði menn sem gegna tímabundnu starfi eins og ég gegni og allir aðrir, að gera eitthvað annað og kúpla sig frá. Hvað svo sem það er, að hitta gamla vini og segja sögur. Ég segi mikið sögur, ég er alveg ferlegur með það. Það getur eig- inlega aldrei neinn fundur byrjað hjá mér í ráðuneytinu án þess að ég segi einhverja sögu. Ég held að það séu allir orðnir voða þreyttir sem eru búnir að vera lengi hjá mér í ríkisstjórn. Þetta er árátta og hefur verið með mér frá fyrstu tíð,“ segir Davíð. Davíð Oddsson á ekki von á að nýútkomið smásagnasafn sitt valdi pólitískum úlfaþyt Árátta frá fyrstu tíð að segja sögur FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Frá 28. nóvember og fram til jóla verður boðið upp á jólahlaðborð með sænsku ívafi hjá Hótel Eldhestum. Gisting innifain í verði ef pantað er fyrir hópa. Þægilegt umhverfi utan við skarkala borgarinnar Jólahlaðborð Borðapantanir í síma 480 4800 með sænsku ívafi Góð ráðstefnu- og fundaraðstaða fyrir starfsmannahópinn. FJÖLDI FÓLKS beið eftir að raftækjaverslunin Expert við Skútuvog væri opnuð í gær- morgun og var löng biðröð meðfram húsinu öllu. En allur hópurinn komst þó inn í versl- unina um síðir. Meðal þess sem fólk hafði greinilega hug á að eignast var Play Station 2- leikjatölva og hvarf leikjatölvu- staflinn á myndinni eins og dögg fyrir sólu og fengu raunar færri en vildu. Annir við opnun Experts Morgunblaðið/Kristinn PÁLL Gunnar Pálsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, segir að það þurfi að leita aftur til ár- anna 1996 til 1997 til að finna jafn- mikið atvinnuleysi meðal fé- lagsmanna VR og nú. „Í ársbyrjun í fyrra voru 499 félagsmenn atvinnu- lausir en í byrjun þessa árs voru þeir 973,“ segir hann. Hann segir að at- vinnuleysið hafi verið mest í júlímán- uði á þessu ári en þá var 1.021 at- vinnulaus. Nú sé þessi tala hins vegar komin niður í 828. Það þýðir að rúm- lega 4% félagsmanna eru atvinnu- laus, en í félaginu eru um 20.000 manns. Samkvæmt vinnumarkaðsrann- sókn Hagstofunnar í nóvember er um 3,2% atvinnuleysi í landinu. Páll Gunnar segir muninn milli landsins alls og VR skýrast af því að um 60 til 70% félagsmanna séu konur, en und- anfarin ár hefur atvinnuleysi mælst meira meðal kvenna en karla. Páll Gunnar tekur fram að hann vonist til þess að botninum hafi verið náð. „Atvinnuleysið mun þó sennilega aukast hjá okkur næstu vikur, sökum árstíðarbundinnar sveiflu, og fram í janúar nk., en ástandið ætti síðan að lagast aftur með vorinu.“ Hann kveðst ekki verða var við að atvinnu- leysi sé meira meðal eins hóps um- fram annan; atvinnuleysið bitni m.ö.o. jafnt á langskólagengnum sem og þeim sem einungis hafi hlotið grunn- menntun. Náði hámarki í ágúst Garðar Vilhjálmsson, fulltrúi hjá stéttarfélaginu Eflingu, segir að at- vinnuleysi meðal félagsmanna hafi aukist á þessu ári. „Í upphafi þessa árs voru um 300 til 400 félagsmenn atvinnulausir,“ segir hann og bætir því við að atvinnuleysið hafi náði hámarki í ágústmánuði. Þá voru 719 félagsmenn án vinnu. Þeir voru hins vegar komnir niður í 600 í september og fram til þessa dags. Um 15 til 16.000 manns eru fé- lagsmenn í Eflingu, að sögn Garðars. Ástandið ætti að lagast með vorinu Um 4% félaga í Verzlunarmanna- félagi Reykjavíkur án atvinnu LÖGREGLAN í Reykjavík handtók í gærmorgun par sem grunað er um aðild að ráninu í verslun 11–11 við Skúlagötu í Reykjavík á föstudagskvöld. Ræningjarnir komust á brott með á annað hundrað þúsund krónur úr peninga- kössum verslunarinnar og var parið yfirheyrt hjá rannsókn- arlögreglunni eftir handtök- una. Enn er óupplýst rán sem framið var á þriðjudagskvöldið í Olís-stöðinni við Skúlagötu og eins hvort það tengist ráninu í fyrrakvöld. Par í yfir- heyrslu vegna ráns í 11–11 BÖRKUR NK og Beitir NK komu til í Neskaupstaðar í gærmorgun með samtals um 350 tonn af góðri síld sem veiddist í Héraðsflóa. „Þetta er síld af stærstu gerð og hún hentar vel í vinnslu til manneldis,“ sagði Haraldur Jörgensen, verkstjóri í síldar- verkuninni, en til þessa hefur síldin verið blönduð og mikið af smásíld í aflanum. „Síld af stærstu gerð“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.