Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Mundu svo að opna skápinn þegar þú kemur heim í SÍS-kotið, Finnur litli, og senda mér fyrstu afborgunina fyrir draslið. Þingeyingafélagið 60 ára Stofnað af hug- sjónamönnum Þingeyingafélagið íReykjavík og ná-grenni er sextíu ára um þessar mundir og eitthvað stendur til í tilefni þess. Una María Óskars- dóttir er formaður félags- ins. – Rektu aðeins tildrög stofnunar félagsins … „Þingeyingafélagið í Reykjavík og nágrenni var stofnað hinn 24. nóvember 1942 af hugsjónamönnum og var dr. Þorkell Jóhann- esson prófessor fyrsti for- maður félagsins. Það má segja að Þingeyingar hafi eðlislæga félagshneigð og markmiðið var m.a. að verða sýslunni að gagni og það lýsir sér best í þeirri bókaútgáfu sem félagið hefur staðið fyrir. Árið 1944 hóf sögunefnd Félags Þingeyinga undirbúning að útgáfu bókar til lýsingar á Þingeyjarsýslum og kom fyrsta bindið út 1946 og er saga Þingeyinga til loka þjóðveld- isaldar eftir dr. Björn Sigfússon. Milli hafs og heiða eftir Indriða Þórkelsson kom út 1947 og Lýsing á Suður-Þingeyjarsýslu eftir Jón Sigurðsson frá Ystafelli kom út 1954 og Lýsing á Norður-Þingeyj- arsýslu eftir Gísla Guðmundsson alþingismann kom út 1959. Frek- ari útgáfu mætti nefna sem félag- ið hefur komið að t.d. Ættum Þingeyinga og Sýslu- og sóknar- lýsingum Þingeyjarsýslna. Þá hefur félagið einnig staðið fyrir því að reisa minnisvarða, um Skúla Magnússon landfógeta við Skúlagarð í Kelduneshreppi 1959 og um Jóhann Sigurjónsson skáld og stendur hann við þjóðveginn skammt frá Laxamýri og var reistur 1980.“ – Hver er yfirlýstur tilgangur félagsins? „Tilgangur félagsins er að auka kynningu meðal Þingeyinga sem búsettir eru á félagssvæðinu eða dvelja þar um lengri eða skemmri tíma og styðja og efla þingeyska menningu eftir því sem verkefni eru fyrir hendi á hverjum tíma. Félagsmenn geta þeir orðið sem fæddir eru eða uppaldir í Þingeyj- arsýslum, eiginmenn þeirra eða eiginkonur og börn, ef þeir eru búsettir á félagssvæðinu.“ – Hvernig starfar félagið og fyrir hvað stendur það? „Starf félagsins hefur undan- farin ár verið í nokkuð föstum skorðum. Fyrsta laugardag í þorra er haldið fjörugt þorrablót að þingeyskum sið þar sem dans- að er fram á rauða nótt. Allir sem vettlingi geta valdið mæta til veislunnar uppáklæddir með trog sitt fullt af norðlensku hangiketi og súrmat eins og best þekkist. Þá hefur aðventukaffið verið fastur liður þar sem lesið er upp úr bók- um eftir þingeyska höfunda, sung- ið og spjallað við hátíðlega stemmningu. Félagið hefur tekið þátt í spurningakeppni átthaga- félaganna sem félögin hafa reynt að halda úti. Þá á félagið sér ljúfan lund í Heiðmörk sem Þingeyingar undir for- ystu Benedikts Jak- obssonar ræktuðu upp. Lengi voru farnar þangað skipulagðar ferðir, sem hin síðari ár hafa fallið niður vegna lítillar þátttöku. Þá hefur félagið lengi gefið út Frétta- bréf Þingeyingafélagsins þar sem atburðir og uppákomur eru aug- lýstar.“ – Er þetta fjölmennur fé- lagsskapur? „Félagsmenn eru nú um 350 og þeim fer fjölgandi. Sú hefð hefur skapast að ef Þingeyingar hittast eru nöfn hvors um sig umsvifa- laust skrifuð niður og þeim komið til stjórnarmeðlima. Mönnum er þar mikill greiði gerður því hvaða Þingeyingur vill ekki fylgjast með og fá tækifæri til þess að tala við aðra Þingeyinga þegar góð tæki- færi gefast.“ – Hvað verður aðhafst í tilefni dagsins? „Í dag, 24. nóvember, er Þing- eyingafélagið í Reykjavík og ná- grenni 60 ára og af því tilefni ákvað stjórn félagsins að slá sam- an árlegu aðventukaffi og boða til afmælisveislu í Borgartúni 6 klukkan 14 til 16. Þetta verður vegleg veisla og glæsileg dagskrá. Reynir okkar Jónasson mætir með nikkuna og gleður gesti af sinni alkunnu snilld, Barði Frið- riksson sem var formaður félags- ins til margra ára flytur hátíðar- ræðu. Lesið verður upp úr bókum þingeyskra höfunda; Björn Hró- arsson les upp úr bókinni Djúpar rætur – hugverk þingeyskra kvenna og lesið verður upp úr bók Guðrúnar Friðgeirsdóttur frá Húsavík er nefnist: Norðanstúlka – bernskusaga. Þingeyingakórinn syngur undir stjórn Kára Frið- rikssonar frá Helgastöðum við undirleik Arngerðar Maríu Árna- dóttur frá Öndólfsstöðum og Þorri Hringsson sýnir olíumálverk úr Aðaldal. Við hvetjum alla Þingey- inga og venslamenn þeirra til að koma í afmælið.“ – Hvernig er að vera Þingeyingur í Reykja- vík? „Þingeyingar eru stoltir af því að vera Þingeyingar og þeir hafa trú á að félagsstarf gefi af sér auðuga menningu sem skapi aukna velferð. Ég held reyndar líka að það skipti máli fyrir velferð hvers og eins og samfélagsins alls að maður sé ánægður með það sem maður er hvort sem maður er héðan eða þaðan. Mikilvægast er að njóta þess að upplifa menn- ingu, eiga jákvæð samskipti við fólk og safna minningum.“ Una María Óskarsdóttir  Una María Óskarsdóttir, for- maður Þingeyingafélagsins, er fædd 19. september 1962 í Reykjavík en alin upp á Laugum í Reykjadal. Nám sitt hefur hún stundað við Barnaskóla Reyk- dæla, Héraðsskólann á Laugum, Menntaskólann við Hamrahlíð og er nú uppeldis- og menntunar- fræðingur með BA-próf frá HÍ. Starfar í félagsmálaráðuneytinu sem verkefnisstjóri nefndar um aukinn hlut kvenna í stjórn- málum. Gift Helga Birgissyni hrl. og eiga þau þrjú börn. … að eiga já- kvæð sam- skipti við fólk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.