Morgunblaðið - 24.11.2002, Síða 10

Morgunblaðið - 24.11.2002, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ L EIKKONAN Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er snúin til baka í leikhúsið eftir tveggja ára fjarvist, þar sem hún reynd- ar nýtti tímann til að færa sig enn nær þjóðinni í vikulegum skömmtum á laugardags- kvöldum í Milli himins og jarð- ar. Í haust hefur hún leikið í þeim franska leik Lífið þrisvar sinnum og framundan eru æfingar á breskum farsa Allir á svið í leikstjórn Gísla Rúnars Jónssonar. – Hvers vegna tókstu þér frí frá leikhúsinu? „Ég útskrifaðist úr leiklistarskóla í London vorið 1990 og vann alveg sleitulaust í tíu ár, því ég hef átt því láni að fagna að fá alveg nóg að gera og mörg hlutverk; þannig var allt eins og best varð á kosið. En kannski verður maður fyrir vikið eins og ofalinn köttur þegar maður nýtur slíks meðbyrs. Það var einfaldlega kominn í mig hálfgerður leiði og talsverð þreyta og mig lang- aði að prófa eitthvað nýtt. Ég sagði þjóðleik- hússtjóra frá þessu og hann hafði skilning á því.“ Að svíkja sjálfan sig og aðra Ferill Steinunnar Ólínu þessi tíu ár er fyrst og fremst í Þjóðleikhúsinu. Hún fór þar á samn- ing haustið 1993 en árin þar á undan eftir út- skrift var hún engu að síður í fullu starfi við leik- húsið. „Ég var reyndar hálfan vetur að leika norður á Akureyri og lék í tveimur sýningum í Borgarleikhúsinu og eitthvað með Alþýðuleik- húsinu og fleiri hópum.“ Hlutverkin eru orðin nálægt 50 á þessum ára- tug ef allt er talið því sjónvarpshlutverk eru orð- in þó nokkur, t.a.m. sú vinsæla þáttaröð Sigla himinfley. „En ég hef lítið leikið í kvikmyndum. Mig langar að gera meira af því.“ – Ertu viss um að ofeldi hafi verið eina ástæð- an fyrir leiða þínum í leikhúsinu? „Nei, en það kemur upp sú staða þegar mað- ur er í of mörgum hlutverkum að manni finnst maður ekki geta gert hlutina nógu vel. Að leika fjögur, jafnvel fimm hlutverk á vetri er mjög mikið. Óskastaðan væri að leika tvö, jafnvel þrjú, hlutverk á ári en leikarar neyðast til að vinna djöfulinn ráðalausan til að hafa í sig og á. Þetta veldur svo því að manni finnst maður vinna undir getu. Það var svosem nógu gaman að skrópa í skólanum í gamla daga en það er dá- lítið önnur og óþægilegri tilfinning að finnast maður vera að svíkja sjálfan sig og aðra.“ – Ertu ekki að tala um þetta margþekkta fyr- irbæri þegar sagt er um leikara að þeir séu að festast í ákveðinni skúffu, eða farnir að treysta um of á tæknina? „Jú, jú. Þetta snýst um það hafa ekki tíma eða tækifæri til að endurnýja sig.“ – En er þetta ekki bara ágætt? Að vera komin í þá stöðu að vera álitin gera hlutina vel. Allir eru sammála um það. „Áttu við þegar maður er farinn að lesa reglu- lega í krítikinni að maður hafi „leikið vel að vanda“. Þá hugsar maður „Andsk … endar lífið hér? Ég er þrítug og „góð að vanda“!“ Æfa sig frammi fyrir alþjóð –Varstu kannski búin að tryggja þér Á milli himins og jarðar áður en þú slepptir Þjóðleik- húsinu? „Nei, það var ekki þannig. Það lá að vísu í loftinu en ekkert var ákveðið. Þegar mér var svo boðið að stjórna svona magasínskemmti- þætti þótti mér þetta alveg fráleit hugmynd. Að taka við af Hemma Gunn og öllu sem því fylgdi. Sérstaklega var ég undrandi á því að algjörlega óvanri sjónvarpsmanneskju skyldi vera treyst til að gera þetta.“ – Fékkstu tíma til undirbúa þig? „Ég hafði sumarið til að venjast hugmyndinni og síðan gerðum við einn prufuþátt sem var svo á endanum sendur út. Það er auðvitað umhugs- unarefni að dýrasti þáttur innlendrar dag- skrárgerðar í ríkissjónvarpinu sé gerður þannig að stjórnandinn sé heilan vetur að æfa sig frammi fyrir alþjóð. Það er auðvitað ekki sama svigrúm hér og erlendis þar sem svona þættir eru keyrðir í marga mánuði áður en þeir fara loksins í loftið. Það hefði verið talsverður munur að fá einhverja skólun áður en allt fór í gang. Með meiri aðstoð og betri tíma er margt sem ég hefði viljað gera öðruvísi.“ – Sem leikkona ertu vön því að æfa hlutverkið vikum saman áður en afurðin er borin á borð fyrir áhorfendur. Þarna fékkstu lítinn und- irbúning og hafðir ekkert hlutverk annað en sjálfa þig. Hvarflaði aldrei að þér að búa til per- sónu fyrir þáttinn. Persónu sem þú gætir skýlt þér á bak við? „Ég skal ekki neita því að sú hugmynd kom upp en ég gaf það frá mér. Upphaflega var líka lagt talsvert að mér að koma sjálf fram í þátt- unum sem skemmtikraftur, syngja og fara með gamanmál, en eftir því sem nær dró varð ég smám saman alveg afhuga því. Ég vildi helst vera sem ósýnilegust. Ég var reyndar einu sinni spurð af nokkrum börnum út á götu hvort ég væri sú sem léki Steinunni Ólínu í sjónvarpinu. Ég svaraði því auðvitað játandi. Mér hefur alltaf fundist frekar óþægilegt að koma fram í eigin persónu og gert frekar lítið af því. Þetta veittist mér ekki mjög auðvelt, ég skal viðurkenna það. Þó ég sé fædd blaðurskjóða og eigi auðvelt með að spjalla við fólk þá átti ég ekki sérlega auðvelt með að taka viðtöl í þáttunum. Það fannst mér erfiðast. Allt annað sem viðkom dagskrárgerðinni þótti mér hins vegar mjög skemmtilegt, t.d. að skrifa leikatriðin um mæðg- urnar og atriðin fyrir Eggert Þorleifsson, Bryn- hildi Guðjónsdóttur, Stein Ármann, Ásu Hlín Svavarsdóttur og Sigurð Sigurjónsson. Þetta skrifuðum við Margrét Örnólfsdóttir, æsku- vinkona mín, allt í sameiningu og vorum snöggar að því! Það er auðvitað broslegt að bera sig sam- an við þáttastjórnendur eins og t.d. Jay Leno sem er með nokkra tugi höfunda sem skrifa brandarana upp í hann og upptökustjórarnir skipta líka einhverjum tugum. Þarna vorum við Magga bara tvær að hittast eldsnemma á morgnana, misóléttar, og reyndum að halda uppi klukkutíma þætti einu sinni í viku.“ Óttinn við að fá ekki hlutverk – Fannst þér vera þín í sjónvarpinu gera þig þekktari en tíu ára ferill í leikhúsinu? „Jú, sjónvarpið er ótrúlega sterkur miðill og allt í einu finnur maður fyrir allt öðruvísi við- brögðum í umhverfinu en áður. Það er tvennt ólíkt, leikhúsið eða sjónvarpið að þessu leyti.“ – Veltirðu því einhvern tíma fyrir þér að nær- vera þín í sjónvarpinu gæti skemmt fyrir þér sem leikkonu? Að persóna þín yrði of fyrirferð- armikil í hugum fólks? „Ég hafði ekki áhyggjur af því. Ég veit hins vegar að fullt af öðru fólki hefur haft áhyggjur af því fyrir mína hönd. Ég minnist þess t.d. ekki að Spaugstofumenn hafi liðið fyrir að vera í sjónvarpinu vikulega á hverju kvöldi í tíu ár. Aftur á móti hugsaði ég þegar ég ákvað að taka mér frí frá Þjóðleikhúsinu að kannski fengi ég ekkert að leika aftur. Það er óttinn sem allir leikarar lifa með á hverjum degi; verður þetta hlutverk það síðasta sem ég leik? Og í hvert skipti er maður sannfærður um að svo verði. Sama hversu vel gengur. Þetta er sennilega bara hluti af leikarasálinni. Svona er hún.“ – Varstu kannski ekki viss um hvort þú myndir snúa aftur í leikhúsið þegar þú fórst í frí? „Nei, og ég vona að ég verði aldrei viss um að leikhúsið sé endastöðin.“ – Var þetta ekki stór ákvörðun að fara í leyfi frá Þjóðleikhúsinu? Átti hún sér ekki langan að- draganda? „Jú, ég verð að viðurkenna það. Ég vildi hvíla mig á leikhúsinu.“ – Þú stendur á þrítugu þegar þú ferð í frí og ert þá búin að leika samfellt í tíu ár þegar jafn- aldrar þínir í leikhúsinu eru margir hverjir rétt að stíga fyrstu sporin á ferlinum. Byrjaðir þú of snemma eða eru íslenskir leikarar að útskrifast of gamlir? „Mér finnst að eigi að taka fólk inn í leiklist- arskóla á einstaklingsgrundvelli og ekki miða við menntun eða aldur. Mér finnst fráleitt að hafa leikaranám á háskólastigi, nema ef vera skyldi að það yrði til kjarabóta fyrir stéttina. Það geta ekki allir orðið leikarar. Að vera leikari Allir vegir færir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hélt utan til leiklistarnáms 17 ára gömul. Hún lék í Þjóðleikhúsinu í 10 ár samfleytt þar til hún söðlaði um og tók að sér stjórn skemmtiþáttarins Milli himins og jarðar í sjónvarpinu. Hún er nú komin af stað aftur í Þjóðleikhúsinu en hefur ýmis járn í eldinum eins og Hávar Sigurjónsson komst að er hann hitti hana á dögunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.