Morgunblaðið - 24.11.2002, Side 19

Morgunblaðið - 24.11.2002, Side 19
fræðaskólanum á Dalvík. Nú voru þeir að reka mig úr Menntaskólan- um á Akureyri. Treystið þér yður til að taka við oss? Virðingarfyllst, NN.“ Ég las upp bréfið mér og öðrum til skemmtunar á kennarafundinum og þóttist láta greiða um það atkvæði hvort veita ætti skæruliðanum við- töku. Það var fellt með öllum greidd- um atkvæðum. Ég fór svo út á sím- stöð og sendi skeyti: „Vér treystum oss til að taka við yður. Virðingar- fyllst, skólameistari.“ Af því að ég hafði grun um að þetta yrði eitthvað skemmtilegt hafði ég mikið við. Ég fékk lánaðan Mercedes Benz glæsivagn frá öðrum hvorum, Jónatan eða Guðfinni, son- um Einars Guðs í Bolungarvík. Síð- an fékk ég vini mína í lögreglunni til að veita mótorhjólafylgd og fór út á flugvöll að taka á móti drengnum. Niður landganginn steig maður í fullum indíánaskrúða. Við heilsuð- umst virðulega og settumst síðan í aftursætið á Bensanum og keyrðum í lögreglufylgd með sírenuvæli í bæ- inn, að hætti höfðingja. Ég vísaði pilti á heimavistina hjá Hjálpræðis- hernum. Svo leið og beið. Viku seinna kom forstöðumaður Hjálpræðishersins á minn fund í öngum sínum og sagði sínar farir ekki sléttar. Indíánahöfðinginn hafði risið upp frá borðum, leyst niður um sig og sýnt á sér afturendann til að mótmæla mataræðinu sem skólapilt- um bauðst. Konu forstöðumannsins, sem var norsk, varð svo mikið um að hún fékk taugaáfall. Ég kallaði ind- íánahöfðingjann á minn fund og sagði: „Þú varst rekinn úr barnaskólan- um á Ólafsfirði. Þú varst rekinn úr gagnfræðaskólanum á Dalvík. Þú varst rekinn úr Menntaskólanum á Akureyri. Hér með ertu rekinn úr Menntaskólanum á Ísafirði.“ Eftir áramótin, þegar verið var að setja skóla eftir jólahlé, kvaddi lög- reglan dyra í Sundstræti 28, þar sem við Bryndís bjuggum, og tilkynnti að hún hefði fundið „lík“ af manni á göt- unni og hirt það upp. Á því voru ekki önnur persónuskilríki en merkimiði bundinn í beltisstað: Care of Jón Baldvin. Þetta reyndist vera ind- íánahöfðinginn. Bryndís hitaði súpu og ég braut allar reglur og gaf hon- um brennivínsstaup, til að vekja hann aftur til lífsins. Við áttum gott tal saman um nóttina og handsöluð- um að lokum samkomulag okkar: Ég myndi útvega honum pláss á togara en hann skyldi koma í land mánuði fyrir vorpróf og lesa undir próf. Þennan samning stóðu báðir við upp á punkt og prik. Drenginn útskrifaði ég að lokum sem semidúx því hann var góðum gáfum gæddur. Hann hefði getað orðið að auðnuleysingja eða jafnvel glæpamanni, þrátt fyrir góða greind, ef ekki hefði verið grip- ið í taumana. Saga hans er líka dæmi um að ekki eru allir steyptir í sama mótið og beita þarf mismunandi að- ferðum til að koma mönnum á kjöl.“ Syninum ýtt til hliðar Hannibal Valdimarsson er nokkuð fyrirferðarmikil persóna í ævisögu Jóns Baldvins en ekki var alltaf kært með þeim feðgum. Hér er gripið nið- ur í frásögninni þar sem verið er að ganga frá framboðslista Samtaka frjálslyndra og vinstri manna á Vest- fjörðum en Hannibal hafði verið leið- togi þess flokks. Ólafur sonur hans hafði þá verið orðaður við efsta sæti listans vestra. „Þegar nær dró kosningum var haldinn fundur Samtakanna á Ísa- firði. Þar mætti fjöldi manns alls staðar að af Vestfjörðum. Fyrirfram hafði verið fastmælum bundið milli helstu forsprakka Samtakanna að Ólafur yrði þar kjörinn til þess að leiða lista Samtakanna á Vestfjörð- um. Einungis átti eftir að greiða um það atkvæði. Áður en til þess kom var ég kallaður í símann. Á hinum endanum var Hannibal og hafði frá þeim tíðindum að segja að vegna ágreinings í félagsskap Samtakanna í Reykjavík hefði hann tekið þá ákvörðun að segja sig frá því fram- boði. Í staðinn fólu Samtökin í Reykjavík Magnúsi Torfa Ólafssyni og Bjarna Guðnasyni prófessor að leiða listann í Reykjavík. Ég skýrði fundarmönnum frá þessum tíðindum. Það varð uppnám á fundinum og mörgum trúum og dyggum hannibalistum varð heitt í hamsi. Þeim þótti sér renna blóðið til skyldunnar að kalla gamla Vest- fjarðagoðann heim. Það varð niður- staðan. Fundurinn samþykkti mót- atkvæðalaust að skora á Hannibal að skipa fyrsta sæti á framboðslista Samtakanna á Vestfjörðum. Hanni- bal var þá 68 ára gamall og hafði að mínu mati lokið sínu erindi í íslensk- um stjórnmálum. Hann lifði á fornri frægð. En það virtist ekki halda fyrir honum vöku að með ákvörðun sinni var hann að stjaka brott syni sínum, sem þar með hefði fengið tækifæri til að halda merki hans á lofti og þoka því eitthvað áleiðis í framtíðinni. Þegar Hannibal birtist fyrst vestra til að heyja kosningabarátt- una kom hann mér ekki fyrir sjónir sem sigursæll stjórnmálaleiðtogi, albúinn til bardaga. Þvert á móti. Hann var sýnilega beygður eftir ófarirnar í Reykjavík og bjóst allt eins við því að vera kominn í heima- hagana að loknu löngu stríði til að bera sín pólitísku bein þar sem það hófst. Jón Baldvin – Tilhugalíf, Kolbrún Bergþórsdóttir skráði. Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bókin er 504 blaðsíður að lengd að viðbættum myndasíðum. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 19 Þetta er ótrúlegt líf! Þú sest upp í flugvél, færð góða máltíð, kíkir í blöð, bók eða sjónvarp fyrir svefninn og vaknar eins og nýsleginn tú- skildingur í nýrri heimsálfu næsta dag. Við trúðum þessu varla, fyrr en við reyndum sjálf. Stórborgin Sydney er einstakt tákn nútímans í byggingum sínum og lífsstíl, þar sem óperuhúsið, byggt út í höfnina, ber af eins og stórskip undir skjannahvítum seglum, tákngervingur nútímalistar í arkitektúr og framúrstefnustofnun í listum. Þar áttum við saman kvöld með dýr- um krásum í mat, drykk og menningu, því að eftir kvöldverðinn hófst hátíðarsýning Ástralska þjóðarballettsins í samvinnu við Vestur-Ástr- alska ballettinn í tilefni af 40 og 50 ára afmæli hvors um sig. Gaman er að hafa einn af frömuðum íslenska ballettsins með í för. Annað kvöld horfðum við yfir alla borg ofan úr Sjónvarpsturni meðan við gæddum okkur á kræsingum. Við sigldum í glampandi sólskini um þessa „fegurstu höfn heims“ og beindum myndavélum óspart að fjöl- breyttri sjónlínu glæsibygginga og fegurðinni allt í kring. Ber öllum saman um, að ótrúlegt sé, hverju Ástralir hafi komið til leiðar á rúm- um 200 árum. Fá lönd ef nokkurt fara eins vel í Íslendinga og Nýja-Sjáland. Það er líkt og ást við fyrstu sýn. Við vissum að margt óvænt biði okk- ar, en reiknuðum ekki með að komast á Suðurskautslandið með umhverfi þess undraverðu safni Kelly Tarltons, sem jafnframt er neðansjávarsafn. Í þjóðminja- safninu í Auckland sáum við ótrúleg sýnishorn af list frum- byggja Ástralíu, hinna pólýnes- ísku Maori, sem við kynntumst síðar í ROTORUA, bæði skemmtun þeirra og handbragði, sem ber vott um ríka listhneigð. Á ferð okkar fram og aftur til Rotorua sáum við fegurð landsins í blómadýrð vorsins og landbúnað í sérflokki. Á ferðinni nutum við afbragðs aðbúnaðar á Sheraton Auckland og Grand Tiara, Rotorua. Kynnin af Tahiti og nágranna- eynni MOOREA taka fram allri annarri ferðareynslu hingað til hvað náttúrufeguð snertir. Eftir tæplega 5 stunda flug hingað frá Nýja-Sjálandi var tekið á móti okkur með litríkum blómsveig- um á flugvelli og skömmu síðar vorum við komin á nýtískulegt LE MERIDIEN hótelið með sundlaug og fögrum garði út að strönd, þar sem hvítur brim- garður brotnar á kóralrifi og kvölddýrðin er ólýsanlegt litaspil sólarlags yfir þúsund blómstrandi tegundum gróðurríkis, sem við vissum ekki að væri til. Þegar við vöknuðum og litum út fyrsta morguninn varð einum hjónun- um að orði: „Þetta getur ekki verið jarðneskt, við hljótum að vera í sjálfri Paradís!“ Eftir að hafa drukkið í okkur fegurð MOOREA í gær, fyrst í landi en síðan siglt um Cooks Bay og Opunohu flóa að njóta fjallasýnar í feg- ursta veðri, tókum við stefnu á litla eyðieyju, Motu, þar sem við synt- um innan um spaka fiska og síðan var efnt til grillveislu á ströndinni. „Þetta er toppur tilverunnar,“ varð sumum að orði. Nú eru 19 dagar liðnir af ferð okkar og dvölinni hér lýkur með veislu í stíl Suðurhafs- eyja á Beachcomber-hótelinu. Seint í kvöld fljúgum við til Santiago í Chile að skoða fegurstu staði Suður-Ameríku. Frá því segjum við síðar. Sendum bestu kveðjur. Þátttakendur í Hnattreisu HEIMSKLÚBBS INGÓLFS - PRIMA 20. nóv. 2002 Sólar- og sumarmegin í tilverunni! Flott og frábært, „DOWN UNDER“ í Sydney - Nýja-Sjálandi og Tahiti. Fréttabréf úr Hnattreisu Heimsklúbbsins - Prima 2002 Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564, netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is Verkalýðsfélag Vestfirðinga Verk-Vest Auglýsir eftir tillögum að félagsmerki. Hugmyndir þurfa að berast til skrifstofu félagsins, Pólgötu 2, Ísafirði fyrir 15. desember nk. Heitið er 100.000 króna verðlaunum fyrir bestu tillöguna. Áskilinn er réttur til að skipta þeirri upphæð á fleiri en eina tillögu eftir mati stjórnar félagsins. Nafn tillögumannsins berist með tillögu í lokuðu umslagi merktu „Tillaga Verk-Vest“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.