Morgunblaðið - 24.11.2002, Page 30

Morgunblaðið - 24.11.2002, Page 30
LISTIR 30 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Jón Engilberts Verið velkomin að skoða verkin í Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14 - 16, í dag kl. 12.00 - 17.00. Boðin verða upp um 150 verk, þar á meðal fjölmörg verk gömlu meistaranna. Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is Rauðarárstíg 14-16 sími 551 0400 LISTMUNAUPPBOÐ verður haldið í kvöld kl. 19.00 á Hótel Sögu, Súlnasal. F YRIR ári kom út nýstárleg skáld- saga, Hann nærist á góðum minningum, eftir Matthías Jo- hannessen, þar sem höfundurinn gerði eftirminnilega tilraun til að takast á við sannleika þess sammannlega veruleika sem í skáldskapnum felst, þann „skáldskap sem veruleikinn er ofinn úr“, eins og þar var komist að orði. Þó dagbókarsagan, Vatnaskil, sem hann sendir frá sér nú standi fyllilega fyrir sínu sem sjálfstætt skáldverk, kallast hún í raun á við þá fyrri og endur- speglar viðfangsefni hennar, ekki síst hið óræða „úthaf minninga“ sem þar er tekist á við. Í Vatnaskilum – dagbókarsögu, er áhersl- an þó ekki síður lögð á ferðalag um úthaf menningarinnar en minninganna, enda er sjálfur titillinn vísbending um að þótt bæk- urnar eigi upptök sín á sama „vatnasvæði“, eru á milli þeirra formleg og efnisleg skil er deila þeim hvorri í sinn farveginn. Eins og í Hann nærist á góðum minningum, segir Í Vatnaskilum af skáldi sem lítur yfir farinn veg. Í þetta sinn leitar hann ekki á vit minninga tengdum fjölskyldu sinni og upp- runa sem einstaklings, heldur ákveður hann að eiga samræður við þau brot er hann hefur skráð í dagbókina sína – við hugleiðingar sínar um hinn ytri heim. Úr þessum samræðum verður til mikill könnunarleiðangur á þeirri menningarlegu arfleifð sem skáldið hefur mótast af og unnið úr í lífi sínu og höfund- arverki um hálfrar aldar skeið. Um leið felur verkið í sér rannsókn á þróun hugmyndasögu mannsins í gegnum tíðina sem og á tengslum helstu heimspekinga og hugsuða vestrænnar menningar við bókmenntir hans eigin sam- tíma. Form verksins er afar lausbeislað, skáldið „blaðar“ fram og til baka í þeim minningum er dagbókin geymir án þess að lesandinn sé nokkru sinni leiddur inn í línulega framvindu tímans í lífshlaupi skáldsins. Í þeirri dagbók sem lesandinn kynnist ræður einungis hugs- anaflæðið ferðinni óháð tíma sem rúmi, en af og til er flæðið þó rofið með brotum úr „núinu“ – ritunartíma verksins. Formið afhjúpar því einkar vel brotakennt eðli samtíma skáldsins, og kallast á við lífshlaup hans sem „fleytt [hef- ur] kerlingar á þessum lognhvíta spegli sem við köllum líf“ (bls. 14). Hann uppgötvar að það sem skipti hann máli í dagbókinni endur fyrir löngu skiptir hann ekki máli lengur og því læðist sá grunur að honum að stafirnir sem hún hefur að geyma séu „vitnisburður um blekkingu“ (bls. 15). Sú blekking – eða skáld- skapur – verður forsenda „samræðna“ hans við dagbókina. Á milli þess sem aðalsögupersónan „kynnist sjálfum sér“ í gegnum dagbókina, er lesand- inn leiddur inn í hversdagsleg samskipti skáldsins og konu hans sem vinnur á elliheim- ili, þeim stað sem skáldið óttast meira en ann- að. Skáldið segist vera hætt að leggja sig eftir fréttum af dægurþrasi þjóðlífsins, en sögurn- ar sem kona hans segir honum af elliheimilinu koma í þeirra stað, þær verða þær stórfréttir mannlegs veruleika er myndar einskonar bak- grunn fyrir þann yfirgripsmikla hugmynda- heim er dagbækurnar spanna. Sögurnar hverfast um ástarlíf og jafnvel kynóra fólksins á elliheimilinu þar sem kynhvötin – neistinn sem er kveikjan að mannskepnunni jafnvel þegar hylkið er nánast ónýtt – er dregin fram í andstæðum sem að lokum verða táknrænar fyrir hringrás lífsins; „þetta líf sem á rætur í jörðinni, en leitar til himins“ (bls. 15). Þar sem skáldið hefur uppgötvað þá blekk- ingu sem allir textar búa yfir, getur það í krafti sköpunarferlisins haldið öllum þráðum innri og ytri veruleika í hendi sér við ritun „dagbókarsögunnar“. Afstæði sannleikans vegur því þungt í verkinu, enda sannleikurinn fyrst og fremst fólginn í skilningi einstaklings- ins á samhengi sögunnar, hvort sem hún er mannkynssaga, dagbókarsaga eða skáldsaga. Sú saga sem sögð er í Vatnaskilum hverfist því bæði um sköpunarferli skáldskaparins og sköpunarverkið í víðari skilningi, þar sem vís- indum, heimspeki og mannlegu lífi er gert jafnhátt undir höfði. Skáldið sjálft verður að lokum sá snertiflöt- ur er leiðir til samruna skáldskaparins og sköpunarverksins, en það af- hjúpast með afar ljóðrænum hætti þegar dagbókarsamræð- urnar tvinnast saman við það persónulega uppgjör er á sér stað í huga uppáhaldspersón- unnar hans, Elínar, á sögusviði elliheimilisins. Skáldið er þá „hætt að hafa áhyggjur af sköp- unarverkinu“ (bls. 34), hefur sætt sig við að skilningurinn er afstæður, svo alltaf „þegar talað var um himingeiminn, veröld- ina, sköpunina, upphaf hennar og endalok fannst honum hann upplifa nýtt ljóð; skáldskap“ (bls. 34). Í samsömun hans, túlk- un og skilningi á öðrum skáldum finnur hann tilgang síns eigin lífs í því verki sem hann er að skrifa. Hann samsamar sig Dante, enda vísanir í rit hans eins og rauður þráður í gegnum verkið, bendir á að „þó Dante hafi ekki verið guð þá var hann guðlegt skáld og sem slíkur er hann góður leiðsögumaður um torfærur ýtrustu hugsunar mannsins“ (bls. 78). Vatnaskil býr því yfir afar margslungnum skilningi á sköpun skálda og sköpunarverki al- mættisins, hvort heldur sem það er skilgreint út frá vísindalegum eða guðspekilegum sjón- arhóli. Hugmyndir um einstaklinginn og tengsl hans við eilífðina eru því aldrei langt undan. Eilífðin, sem mannskepnan hefur í raun upphugsað í tilraun til að henda reiður á tilgangi tilverunnar, er tákngerð í Elínu sem hann hefur þó aldrei hitt. Elín smýgur inn í „vitund hans og ímyndunarafl“ (bls. 81) þar til að lokum hann yrkir tvö ljóð á göngu um vest- urbæinn (bls. 368). Hið fyrra er eins og mynd- hverfing fyrir líf hennar en það síðara vísar til samsvörunar þess lífs í alheiminum: Eins og fiðrildi hverfi úr púpu laufmaðksins, þannig brýst sólin úr brothættu skurni morgunsins Og: Þessi dagur er spælegg á svartri pönnu morgungyðjunnar og rauðan miðlægt auga jökulhvítunnar. Áður en yfir lýkur áttar skáldið sig þó á táknrænu hlutverki þessarar ókunnu konu í dagbókarsögu hans sjálfs. Er Elín, piparmey og persónugervingur einmanalegrar vegferð- ar einstaklingsins, deyr, varpa þessi ljóð hans ljósi á það samhengi sem skáldið skynjar í um- hverfi hennar á hinstu stundu. Það er „eins og hvítt eggjaskurn og glitrandi sólin strauk morgunslétt vötn af augum hennar. Brostnum augum hennar. Og skurnið brotnar og rauðan hverfur í jökulinn eins og Sá Gamli sé að efna í nýjan bakstur“. (Bls. 423.) Elín hefur hlotið uppreisn sína í samruna við almættið og skáld- skapinn. Endalok hennar eru eins og „pars pro toto“ eða fyrirboði þeirra endaloka heims- ins sem vísindin segja óumflýjanleg og við get- um með engu móti skynjað nema í gegnum dauðleika okkar sjálfra. Óttinn við elliheimilið víkur fyrir sátt; dagbókin sigrar dauðann (bls. 189) því það er fyrir tilstilli skáldskaparins, eða þess myndmáls er felst í ljóðinu, að skáldið uppgötvar að sólin er knýr kunnuglegan heim- inn áfram, verður „fyrst risastór og eldrauður hnöttur, þegar hún hæfi að syngja sitt síðasta“ (bls. 34). Endalok sólarinnar eru með öðrum orðum hin sömu og einstaklingsins. Tilraun aðalsögupersónu dagbókarsögunn- ar til þess að „þreifa sig eftir ævinni“ (bls. 7) er því fyrst og fremst tilraun til að gera þeim frumkrafti sem felst í skapandi ferli skáld- skaparins skil. Jafnframt verða Vatnaskil að hugleiðingu um sjálfsmynd skáldsins, ekki endilega Matthíasar sem höfundar þessa margslungna verks, heldur fremur sjálfs- mynd allra skálda í gegnum tíðina – skálda sem hafa notað hugsanir sínar sem herklæði (bls. 282). Lesandinn fær í þessu verki að kynnast hugsunum skáldsins, sem Matthías líkir við hundslausan fjárhirði er þarf „sífelld- lega einn að reka safnið saman“ (180), allt frá því þær kvikna og þar til „allir sauðirnir, allar hugsanir skáldsins eru komnar í hús“ (bls. 180) sem fullgerð verk, t.d. í formi ljóða er að lokum verða að litlu safni í bókarlok. Vatnaskil – dagbókarsaga er því með sönnu einskonar tilbrigði við það margradda stef sem hljómaði í bók Matthíasar frá fyrra ári; verkið er kunnuglegt en um leið framandi þar sem efnt er til nýrrar glímu við hina sameig- inlegu arfleifð. Efniviðurinn, sem er bæði mjög „bóklegur“ og ótrúlega umfangsmikill, er þrátt fyrir allt einnig hnitmiðaður, ekki síst þar sem gerð er tilraun til að setja íslenskan bókmenntaarf í samhengi við hugmyndafræði og menningarsögu umheimsins. Matthías vís- ar á einum stað til þess hversu góðar vegg- hleðslur föður Halldórs Laxness voru, og leið- ir að því líkur að þaðan hafi Halldór erft handverk sitt. Með þeirri hreinskiptu og hug- myndaríku umræðu um skáldskapinn og til- urð hans sem birtist í þessum tveimur bókum hefur Matthías bætt steini í þá vegghleðslu er myndar burðarvirki íslenskra bókmennta. Samruni skáldskapar og sköpunarverksins Fríða Björk Ingvarsdóttir Morgunblaðið/Einar FalurMatthías Johannessen SKÁLDSAGA Vatnaskil – dagbókarsaga Vaka-Helgafell, Reykjavík 2002, 484 bls. MATTHÍAS JOHANNESSEN FÉLAG íslenskra hljómlistarmanna og Félag íslenskra tónlistarmanna gengust í fyrradag fyrir málþingi undir yfirskriftinni Tónlistarhús- ið – framtíðarsýn tónlistarflytjenda. Framsöguerindi fluttu: Egill Ólafsson, söngv- ari og tónlistarmaður, Joseph Ognibene, 1. hornleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Gunn- ar Hrafnsson, bassaleikari, Björn Th. Árnason, formaður FÍH, Sesselja Kristjánsdóttir, óperu- söngvari og Nína Margrét Grímsdóttir, píanó- leikari. Gestur málþingsins var Þórunn Sigurð- ardóttir, stjórnandi Listahátíðar. Fundarstjóri var Margrét Bóasdóttir, formaður FÍT. Að sögn Björns Th. Árnasonar og Margrétar Bóasdóttur var málþingið mjög fjölsótt og ríkti mikill samhugur og einurð og voru umræður og fyrirspurnir í lok málþingsins mjög líflegar. Umræður þátttakenda endurspegluðust í fjór- um ályktunum sem samþykktar voru í fundar- lok, en þær eru svohljóðandi: 1. Tónlistarfólk fylkir sér að baki þeirrar rétt- mætu kröfu að Tónlistarhúsið verði byggt til að hýsa tónlistina fyrst og fremst. Nauðsynlegt er að Tónlistarhúsið njóti listrænnar stjórnar með fulltrúum fagfólks, þannig að allir tónlistarhóp- ar og einstaklingar eigi aðgang að húsinu. 2. Tónlistarfólk lýsir þeim eindregna vilja að ríki og borg standi að og tryggi rekstur Tónlist- arhússins, eins og þessir aðilar standa að rekstri annarra opinberra menningarstofnana, svo sem Þjóðarbókhlöðu, Þjóðleikhúss, listasafna, leik- húss og Laugardalshallar. 3. Tónlistarfólk skorar á stjórnvöld að endur- skoða áætlaðan sætafjölda, með það í huga að sæti í aðalsal verði 1.500–1.700 framan við svið. Það mun auka notagildi hússins til muna og mæta enn frekar þörfum tónleikahaldara eins og Listahátíðar og fleiri aðila. 4. Tónlistarfólk leggur til að framtíðarhús- næði Íslensku óperunnar verði í minni tónlist- arsal Tónlistarhússins. Málþingið var allt hljóðritað og er stefnt að gerð útvarpsþáttar um það. Einnig munu fram- söguerindi og útdráttur úr umræðum ásamt þeim ályktunum sem samþykktar voru verða sendar ráðamönnum ríkis og borgar. Vilja Íslensku óperuna í minni sal Tónlistarhússins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.