Morgunblaðið - 24.11.2002, Síða 31

Morgunblaðið - 24.11.2002, Síða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 31 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja njóta jólanna heima og áramótanna í 25 stiga hita á Kanarí. Flug í eftirmiðdaginn þann 26. des. kl. 15.40 til Kanarí. Val um stökktu tilboð, þar sem þú færð að vita gististaðinn 3 dögum fyrir brottför, eða þú getur valið um einhvern af okkar vinsælu gististöðum. Hér nýtur þú 20-25 stiga hita og veðurblíðu við frábærar aðstæður og getur kvatt veturinn í bili á þessum vinsælasta vetraráfangastað Evrópu. Á meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann. Aðeins 28 sæti í boði Verð kr. 59.950 Verð á mann, m.v. 2 saman, stúdíó/smáhýsi, 26. des. Vikuferð. Stökktu tilboð. Flug, gisting, skattar. Staðgreitt. Áramótin á Kanarí 26. desember–2. janúar frá kr. 49.962 Verð kr. 49.962 M.v. hjón með 2 börn, íbúð/smáhýsi, 26. des. Vikuferð. Stökktu tilboð. Flug, gisting, skattar. Staðgreitt. Þökkum ótrúlegar viðtökur í vetur. Bókaðu meðan enn er laust. 19. des. – Uppselt 19. des. – Aukaflug 8 sæti 26. des. – 28 sæti 2. jan. – 31 sæti 9. jan. – Uppselt 16. jan. – 11 sæti 23. jan. – 22 sæti 30. jan. – 37 sæti 6. feb. – Uppselt 13. feb. – 19 sæti 20. feb. – Uppselt 27. feb. – 19 sæti 6. mars – 29 sæti 2.388kr Eyðimerkur d ö g u n eftir Waris Dirie Mögnuð saga! femin.is *Samkvæmt sölukönnun Morgunblaðsins 21. nóv. 2002 “ “ 40% afsláttur verð áður 3.980 kr 3. sæti Ævisögur og endurminningar hagkaup.is 30-40% afsláttur Yfir 400 bókatitlar Ótal bókatilboð ÞAÐ er ekki oft að kammertónlist eftir Mahler heyrist á tónleikum hér, – enda var Mahler iðnari við bæði stærri og smærri form tónlist- ar. Á tónleikum Kammermús- íkklúbbsins í Bústaðakirkju í kvöld kl. 20 verður þó leikinn Kvartett- þáttur eftir Mahler fyrir píanó, fiðlu, víólu og selló í flutningi Önnu Áslaugar Ragnarsdóttur, Laufeyjar Sigurðardóttur, Þórunnar Óskar Marinósdóttur og Richards Talk- owskys. Hávarður Tryggvason bassaleikari bætist í hópinn í öðrum verkum efnisskrárinnar, Kvintett í es-moll opus 87 eftir Johann Nep- omuk Hummel og Silungskvintetti Schuberts. Anna Áslaug segir að Kvart- ettþáttur Mahlers sé eini kvart- ettinn hans. „Hann byrjaði reyndar á öðrum, en það varð ekkert meira en tuttugu taktar. Það er giskað á að þetta hafi verið samið um 1876, þegar Mahler var sextán ára, en mér finnst verkið alls ekki bera keim af því að vera barnabrek, hann hlýtur að hafa verið miklu þroskaðri en venjulegur sextán ára unglingur. Á stöku stað finnur maður mahler- ískan frumleika, en annars ber verk- ið líka keim af verkum eldri tón- skálda, eins og Bruckner, Schubert og fleirum. Þetta er mjög fallegt verk en ekki oft spilað. Þetta er eina kammerverk hans sem ég veit um, – alla vega það eina með píanói.“ Anna Áslaug segir að í dag sé far- ið að spila verk Hummels æ oftar, en til langs tíma voru þau sjaldheyrð. „Hann samdi mikið fyrir píanó, í það minnsta þrjá píanókonserta og pí- anósónötur og önnur píanóverk, – meðal annars fyrir fjórhentan leik. Hann var mikill píanóleikari sjálfur, og allt talsvert virtúósískt sem hann samdi fyrir hljóðfærið. Hann hefur greinilega notið þess hvað hann var góður píanóleikari sjálfur. Það er oft sagt að hann hafi verið einhvers konar tengiliður milli Mozarts og Chopins hvað píanóstílinn áhrærir; hann var vissulega nútímalegri en Mozart, en einhvers konar forveri Chopins. Það er til dæmis mikið af tónstigum og brotnum hljómaröðum í verkum hans. Þessi kvartett er mjög skemmtilegur og afar for- vitnilegur.“ Anna Áslaug Ragnarsdóttir er bú- sett í Þýskalandi, en kemur núorðið þónokkuð oft heim til Íslands til að spila með íslenskum tónlistar- mönnum. Í Þýskalandi hefur hún líka verið að spila með íslenskum söngvurum. „Ég ætla að sjá til hvað verður úr þessum spilaheimsóknum mínum hingað og hvort það teygist eitthvað úr þeim; – ég vona það. Þetta er mjög gaman.“ Mahler- kvartett í Bústaða- kirkju Morgunblaðið/Jim Smart Hávarður Tryggvason, Richard Talkowsky, Laufey Sigurðardóttir, Anna Áslaug Ragnarsdóttir og Þórunn Ósk Marinósdóttir. HLJÓMEYKI og Kammerkór Austurlands flytja tvö ný tónverk í Eskifjarðarkirkju í dag, sunnu- dag, kl. 16 en þau voru frumflutt á Ísafirði með Kammerkórnum á Ísafirði í byrjun nóvember. Verkin heita Fimm vísur um nóttina eftir Stefán Arason, við ljóð Sigurðar Óskars Pálssonar, og Namáríë eftir Jónas Tómas- son, við texta R.R. Tolkien. Bæði verkin eru samin að beiðni Hljómeykis, en Hljómeyki fékk styrk úr Menningarborgarsjóði til að kaupa og frumflytja tónverk eftir tónskáld úti á landi og frum- flytja þau í heimabyggð tónskáld- anna ásamt heimamönnum. Þá verða einnig flutt önnur verk íslenskra og erlendra tónskálda. Ný verk á Eskifirði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.