Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 41
FYRIR mörgum árum var ég tværvikur á spítala og fyrir kom að ég
átti bágt með svefn á næturna vegna
óþæginda. Nótt eina var ég á rjátli í
náttslopp og varð
gengið fram í setu-
stofu og fór þar að
skoða blöð og horfa
á bílljósin á Hring-
brautinni skera
ljósrákir í nóttina.
„Ert þú ekki
blaðakona, ættuð
að vestan,“ segir þá
rödd úr einu horni setustofunnar.
Þar var kominn eldri maður á hvítum
léreftsjakka og horfði á mig spyrjandi.
„Jú, einmitt,“ svaraði ég og velti fyrir
mér hvort ég ætti þarna orðastað við of-
stækisfullan ættfræðing. Svo reyndist
ekki vera.
„Ég er sonur mannsins sem komst af
þegar hann afi þinn drukknaði í Ísa-
fjarðardjúpi,“ sagði maðurinn.
Þessi atburður gerðist 1923, fyrir
réttum 79 árum. Bátur afa míns fór nið-
ur í slæmu veðri og drukknuðu allir
skipverjar nema þessi eini – faðir
mannsins sem sat þarna í setustofunni á
spítalanum.
Hvers vegna skyldi ég segja frá
þessu hér? Jú, sagan sem maðurinn á
léreftsjakkanum sagði mér kemur æði
oft upp í huga mér þegar ég heyri
áfallahjálp nefnda.
Þegar maðurinn sem af komst úr sjó-
slysinu 1923 var kominn í land eftir mik-
ið volk og lífshættu, var hann eftir
skamma stund drifinn aftur út á sjó til
þess að vísa mönnum í landi á netin sem
ella hefðu glatast þar sem hann var sá
eini sem vissi nú hvar þau höfðu verið
lögð. Honum tókst að vísa á netin en eft-
ir það var honum öllum lokið, hann fékk
lungnabólgu og við tók tvísýn barátta
fyrir lífi hans.
„Og veistu hvert farið var með hann
föður minn helsjúkan?“ spurði maður-
inn á léreftsjakkanum.
„Nei, svaraði ég.
„Heim til hennar ömmu þinnar, sem
þá um nóttina hafði misst manninn sinn
í sjóinn frá tveimur kornungum börn-
um og mörgum stjúpbörnum. Þar í stof-
unni var búið um föður minn og okkur
móður mína og svo skiptust þær á að
vaka við sjúkrabeð hans, mamma mín
og amma þín. Í hálfan mánuð var tví-
sýnt um líf hans. Allan þann tíma vöktu
konurnar tvær til skiptis. Auk þess
sinnti amma þín börnunum öllum og
öðru sem gera þurfti. Hún hafði mikið
þrek sú kona,“ sagði maðurinn að lok-
um.
Ég veit ekki hvort hann vissi að
amma mín hafði þegar þetta gerðist
misst fyrri mann sinn í sjóinn og sex
börn af þeim níu sem henni fæddust.
Við amma vorum saman á heimili þar
til ég var 12 ára. Ekki man ég til þess að
hún amma mín, Sigríður Jensdóttir hét
hún, léti hugfallast á hverju sem gekk,
hvorki í veikindum né öðrum erfiðleik-
um. Hún var glaðlynd og hláturmild
þrátt fyrir allan þann missi sem hún
hafði orðið fyrir og sönglaði gjarnan
fyrir munni sér.
Mér verður stundum hugsað til
ömmu og allra þeirra kvenna og karla
sem tókst að þreyja hér þorrann og
góuna langt fram á síðustu öld án þess
að hafa svo mikið sem heyrt áfallahjálp
nefnda. Þrátt fyrir það tókst þessu fólki
að koma börnum sínum upp, lifa sjálft
af alls konar erfiðleika og eiga samt
drjúgan skerf af lífsgleði til að miðla
öðrum.
En eitt átti þetta fólk upp til hópa.
Það átti vini og skyldfólk. Til þess leitaði
það þegar hart var í heimi. Samhjálpin
mildaði sorgina, dýpkvaði gleðina og
styrkti vináttuna. Áfallahjálp sérfræð-
inga er vafalaust mjög góð þegar veru-
lega illa horfir. En í mörgum tilvikum er
sálusorgun hinna nákomnu kannski allt
eins heilladrjúg og sérfræðingahjálpin.
Að minnsta kosti eitt hafa vinirnir fram
yfir sérfræðingana – þeir eru samfylgd-
armenn í gegnum lífið – hverfa ekki á
braut þegar þeir hafa lokið störfum.
Þá má heldur ekki gleyma setning-
unni: Drottinn leggur líkn með þraut.
Án þess að ég sé að lasta áfallahjálp
þá læðist stundum að mér sá grunur að
hún geti verið ofnotuð. Fólk hefur hæfi-
leika til að komast af sjálfsdáðum yfir
ýmis áföll og erfiðleika og kannski er
manni hollt að treysta nokkuð á sjálfan
sig í þeim efnum. Líkaminn er sagður
framleiða eigin verkjastillandi efni ef
hann fær tækifæri til þess – kannski að
sálin hafi samskonar möguleika?
Þjóðlífsþankar/Er áfallahjálp kannski ofnotuð?
Líkn með þraut
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
808,3 fm heil húseign á besta
stað við Laugaveg. Húsið er kjall-
ari, þrjár hæðir og ris auk bak-
húss og er til afhendingar nú
þegar í núverandi ástandi, þ.e.
skemmt eftir bruna. Miklir mögul.
að innrétta íbúðir á efri hæðum
og í bakhúsi. Allar uppl. á skrif-
stofu Miðborgar eða í síma 820 2399 Þorlákur. 3721
Laugavegur - heil húseign
eftir brunatjón
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Leitum að góðri byggingalóð undir einbýlishús á Reykjavíkur-
svæðinu. Óskasvæði Garðbær, Kópavogur, annað kemur til
greina. Verðhugmynd allt að 12-14 millj.
Upplýsingar veitir Bárður Tryggvason, sölustjóri
í síma 896 5221 eða á skrifstofunni.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á bardur@valholl.is.
Lóð óskast til kaups
Jörð með fullvirðisrétti og í rekstri austur á landi
Höfum í einkasölu jörðina Gautavík í Djúpavogshreppi sem selst í fullum
rekstri með tækjum og framleiðslurétti.
Gautavík var einn elsti verslunarstaður á Austurlandi og liggur í Beru-
firði norðanverðum. Jörðin selst með 207 ærgildum, útihúsum, íbúðar-
húsi og ýmsum hlunnindum. Á jörðinni eru góð útihús og mjög góð
tækjageymsla/verkstæði með gryfju. Íbúðarhúsið er 116,5 fm, klætt að
utan og einangrað 1988.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteigna- og
skipasölu Austurlands í síma 470 2200.
EINSTAKLEGA SPENNANDI OG GLÆSI-
LEGAR 120 FM íBÚÐIR MEÐ SÉRINN-
GANGI Í ÞESSU GLÆSILEGA HVERFI Í
GRAFARHOLTINU. AFHENDING FLJÓT-
LEGA.
Fjórar penthouse með stórfenglegu útsýni
og ein á miðhæð eftir þ.a. ein sem hægt
verður að flytja í fyrir jól. Möguleiki að
skoða fullbúna íbúð.
Sölumenn Bakka verða á staðnum
með bæklinga og teikningar,
milli kl. 14-16 í dag.
Verið velkomin.
Fasteignasalan Bakki, s. 533 4004, Skeifan 4, Reykjavík.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
Maríubaugur 97-103
Árni Valdimarsson,
löggfastsali.
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
VALDÍS SÝNIR Í DAG SUNNUDAG
FRÁ KL. 14 - 16
105,3 fm íbúð á 2. hæð með stórum suð-
ursvölum. Íbúðin er búin vönduðum og
góðum innréttingum. Parket á gólfum.
Mikið skápapláss. Sér baðh. innaf hjóna-
herb. VERIÐ VELKOMIN AÐ KOMA OG
SKOÐA. V. 15,9 m. 3651
Opið hús
Básbryggja 7 - íbúð á 2. hæð