Morgunblaðið - 24.11.2002, Page 47
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 47
JARÐNESK fyrirtæki geraupp rekstur sinn í lok fjár-hagsárs, sem oftar en ekkiber saman við almanaksárið.
Þá er afkoman skoðuð, tí-
unduð í krónum og aurum, fjallað
um helstu áfanga í rekstrinum og
það sem hefur áunnist – eða tap-
ast.
„Mitt ríki er ekki af þessum
heimi,“ sagði Jesús forðum. Og
við annað tækifæri mælti hann:
„Safnið yður ekki fjársjóðum á
jörðu, þar sem mölur og ryð eyðir
og þjófar brjótast inn og stela.
Safnið yður heldur fjársjóðum á
himni, þar sem hvorki eyðir möl-
ur né ryð og þjófar brjótast ekki
inn og stela. Því hvar sem fjár-
sjóður þinn er, þar mun og hjarta
þitt vera.“
Og nú er komið að því að horfa
um öxl, svipast um á þeirri braut
sem átti upphaf sitt með fyrsta
sunnudegi í aðventu árið 2001.
Rannsaka hjartað og ávexti þess.
Hvernig skyldi uppgjör kirkju-
ársins líta út, þessa „rekstrar“
sem ekki er að öllu leyti jarð-
neskur, heldur á rætur og vöxt
annars staðar, þar sem önnur
lögmál ríkja. Vissulega telur
kirkjan að hluta til á sama hátt
og önnur fyrirtæki þessa lands,
vegna þess að hún er í þessum
heimi, en starf hennar og verk
snýst þó meira um önnur verð-
mæti sem ekki verða nema að
óverulegu leyti mæld á jarðneska
mælikvarða. Andleg gildi, hugg-
un, styrkur, nærvera í sorg og
gleði, boðun fagnaðarerindisins.
Hvernig er hægt að vigta þetta
eða meta til fjár? Árni Sigfússon,
nú bæjarstjóri í Reykjanesbæ,
mun einhvern tíma hafa sagt, að
ekki væri lesið úr ársreikningum
fyrirtækja á útfararstundum. Og
það er rétt. Á líkklæðum eru eng-
ir vasar, segir gamalt orðtak. Við
gröfina eru önnur verðmæti nær-
tækari, fjölskyldan, vinirnir og
þau bönd og tengsl sem við bind-
um og myndum á þeim sviðum
um ævina.
Erum við ánægð með störf
okkar í þágu Guðsríkisins á liðn-
um mánuðum? Eða hefði mátt
gera öðruvísi á stundum og bet-
ur?
Hjálmar Jónsson, Dóm-
kirkjuprestur, sem einmitt benti
á þetta með vasana og líkklæðin í
rómaðri prédikun 28. júlí á þessu
ári, flutti líka aðra ræðu um
áþekkt efni hálfu ári fyrr, 27. jan-
úar, og sagði þar m.a.:
[Mér] finnst allt of mikið um efnahagsmál
fjallað í okkar samfélagi. Þótt þau séu mik-
ilvæg þá er lífið meira en fæðan og klæðin.
Tilgangur lífsins er svo miklu meiri. Líf
okkar og líðan frá degi til dags ræðst ekki
af daglegri gengisþróun, verði á hlutabréf-
um og helstu vísitölum efnahagslífsins.
Engin kenniorð eru þó sögð eins oft í sjón-
varpi og Nasdaq, Dow Jones, FTSE. Erum
við með þessum vísitölufréttum að
ógleymdum lottótölunum að sanna að við
séum veiðimannaþjóðflokkur, sem ennþá
telji að skjótfenginn gróði ráði úrslitum um
líf sitt?
Eða er þetta nýtt stig efnishyggjunnar?
Þeirrar peningahyggju að ekkert sé nóg.
Og þú eigir aldrei nóg? Þá fyrst sem þú
hafir orðið meira en þú þarft til neyslu þá
fyrst fari fjármagnið vinna fyrir þig og
safna þér gróða? Og það sé óskastaðan,
sælan sem helst beri að keppa eftir? Mik-
ilvægt er það vissulega að efnahagslífið sé
öruggt og stöðugt, ekki geri ég lítið úr því,
en þar í liggur ekki öll hamingjan fólgin …
Þú ert verkamaður í víngarði Drottins
hvert sem starf þitt er í samfélaginu.
Hann býður alla velkomna að starfa í rík-
inu sínu hvenær sem er og hverjir sem þeir
eru. Allir jafnir hver svo sem forsaga
þeirra er, hverju sem þeir hafa áorkað, við
komum án verðleika en þó óendanlega dýr-
mæt. Því gildir það einu hvenær ævinnar
við skiljum þetta. Í bernskunni, á unglings-
árum, á miðjum aldri, eða þegar degi lífsins
er tekið að halla. Mestu varðar að þetta
renni upp fyrir okkur. Og þá verður lífið
stórkostlegra, veröldin bjartari og fegurri.
Þannig dafnar Guðs ríki á jörð.
Um leið og hinn kristni ein-
staklingur staldrar við á þessum
ágæta degi og íhugar verk sín
hlýtur eitt að spila þar inn í, ann-
að er óhugsandi; þetta er spurn-
ingin um hvíldardaginn. Var hann
notaður á uppbyggjandi hátt, eða
tók dagleg neyslukrafa þar yfir?
Margur held ég að roðni lítið eitt
yfir svarinu. En af því að hér er
um afar þýðingarmikið atriði að
ræða gef ég Karli Sigurbjörns-
syni biskupi lokaorðið í pælingum
mínum að þessu sinni, en í hirð-
isbréfi sínu til íslensku kirkj-
unnar segir hann m.a.:
Hvíldardagurinn er ein dýrmætust allra
Guðs gjafa. Því hefur verið haldið fram að
eitt mikilvægasta framlag Biblíunnar til
heimsmenningarinnar sé krafan um einn
hvíldardag fyrir alla, með reglulegu milli-
bili, árið um kring. Nú erum við komin vel
á veg með að glata þeim degi …
[Guðsþjónustan] hefur það að gefa sem
ómissandi er, samfélag bænar og um-
hyggju, uppbyggingu anda og sálar og
veganesti til hversdagsins. Sunnudagurinn
er dagur umhyggju fyrir eigin líkama og
sál, dagur tilbreytni og hátíðar.
Boðorð lögmálsins um hvíldardaginn er
áminning þess að maðurinn er ekki sál-
arlaus vél sem gengur í sama takti enda-
laust …
Og síðar bætir hann við:
Við skulum nota föstuna, jólaföstu, aðvent-
una … til að minnast og minna sérstaklega
á þá sem halloka fara. Fastan er áeggjan til
okkar allra að standa dyggan vörð um heill
þeirra sem standa höllum fæti í tilverunni
og að vera duglegri og djarfari að koma til
hjálpar þar sem vegið er að fólki og standa
af einurð vörð um réttindi þess og mann-
gildi. Fastan ætti að verða sérstakur bar-
áttu- og átakstími í þágu líknarþjónustu
safnaðanna og Hjálparstarfs kirkjunnar og
kristniboðs.
Gleðilegs og farsæls nýs
kirkjuárs óska ég ykkur, systur
mínar og bræður í Kristi.
Vegamót
Morgunblaðið/Þorkell
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Þá er kirkjuárinu að
ljúka, á sunnudaginn
kemur tekur nýtt við,
þegar aðventan heils-
ar. Sigurður Ægisson
lítur af því tilefni yfir
farinn veg, og spyr
hvernig kristið fólk
hefur ávaxtað pund
sitt í öðrum heimi á
síðustu 12 mán-
uðum.
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 847 5572
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur/Rif Lára Hallveig Lárusdóttir 436 6889/436 1291/848 1022
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 892683
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Þingeyri Þór Lini Sævarsson 456 8353
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
TILBOÐ ÓSKAST
Í Hyundai Starlex H-1, 9 manna
árgerð 2002 4 cyl. Turbo dieselvél
(ekinn 7200 km í ábyrgð hjá B&L frá 1. júlí 2002)
Jeep Wrangler árgerð 2002 sjálfskiptur með
leðurklæðningu (ekinn 806 mílur)
og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 26. nóvember kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA