Morgunblaðið - 24.11.2002, Side 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 49
RAÐGREIÐSLUR
Útsöluverð
5% aukaafsláttur m.v. staðgreiðslu
Sími 861 4883
á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum
á Grand Hóteli, Sigtúni, Reykjavík
SÍÐASTA SÖLUSÝNING
FYRIR JÓL
í dag, sunnudag
24. nóvember, kl. 13-19
Verðdæmi Stærð Verð áður nú staðgreitt
Balutch bænamottur ca 80x145 cm 12-16.000 8.900
Pakistönsk „sófaborðsstærð“ 125x175-200 cm 43.900 28.400
Pakistönsk „borðstofustærð“ 219x308 cm 125.500 89.300
Rauður Afghan ca 200x280 cm 90.000 64.100
og margar gerðir af afghönskum og pakistönskum teppum.
Fyrirtæki til sölu:
Rekstrarleiga með kauprétti. Við höfum verið að þróa nýjan valkost fyrir
seljendur og kaupendur sem virðist henta mörgum vel. Gerður er fimm
ára samningur um leigu á rekstri með ákveðinni leiguupphæð á mánuði,
með tilteknum tryggingum. Jafnframt er samið um að leigutaki geti
hvenær sem er á leigutímanum keypt reksturinn á tilteknu verði og ef
hann nýtir þann rétt, gengur helmingur þeirrar leigu sem greidd hefur
verið upp í kaupverðið. Nánari upplýsingar um þennan valkost er að
finna á www.husid.is.
Rótgróin snyrtistofa í verslunarkjarna. Verð 3 m. kr.
Bílaverkstæði í Hafnarfirði. Gott húsnæði og vel tækjum búið. Mjög
mikið að gera. Hentugt fyrir 3-4 starfsmenn.
Veitingastaðurinn Tex-Mex á Langholtsvegi er fáanlegur á rekstrarleigu
með kauprétti. Góður rekstur og pottþétt dæmi fyrir duglegt fólk.
Dagsöluturn við Laugaveg. Fallegur og snyrtilegur staður. Verð aðeins
3,8 m. kr.
Lítil málmsteypa. Hentar vel fyrir grafískan hönnuð á landsbyggðinni.
Járn & lykkjur ehf. Vel tæknivætt framleiðslufyrirtæki sem þjónar bygg-
ingariðnaðinum. Sameining eða sameign kemur vel til greina.
Rekstrarleiga með kauprétti. Þekkt myndbandasjoppa í Breiðholti með
góða veltu. Gott tækifæri fyrir byrjendur sem eiga ekki mikla peninga.
Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. 10 starfsmenn. Gott tæki-
færi fyrir fyrirtæki í svipaðri starfsemi.
Framköllunarþjónusta í miðbænum. Góð tæki. Frábær staðsetning.
Dagsöluturn í atvinnuhverfi með áherslu á léttar veitingar. Lítil en vax-
andi velta og miklir möguleikar.
Rótgróin deild úr heildverslun með búsáhöld. Sala 10,2 m. kr. á ári,
framlegð 5 m. kr.
Höfum ýmis góð sameiningartækifæri fyrir stærri fyrirtæki.
Rótgróið veitingahús við Bláa lónið. Góður og vaxandi rekstur í eigin
húsnæði á þessum fjölsóttasta ferðamannastað landsins.
Lagerhótel — búslóðageymsla. Ársvelta 10 m. kr. Gott tækifæri fyrir
sameiningu við annan rekstur. Möguleiki á miklum akstri.
Verslunin Litla-Brú, Höfn í Hornafirði. Blóma- og gjafavöruverslun í eigin
húsnæði á besta stað í bænum. Auðvelt að breyta í annan rekstur, t.d.
kaffihús. Auðveld kaup.
Hlíðakjör. Rótgróin matvörusjoppa með ágæta afkomu. Ársvelta 36 m.
kr. Góð greiðslukjör fyrir trausta aðila.
Þekkt lítil heildverslun með jurtabaðvörur og gjafavörur. Tilvalið sem við-
bót við annan rekstur.
Rekstrarleiga með kauprétti. Þekktur suðrænn veitingastaður til leigu.
Fullbúinn og í fullum rekstri. 100 sæti. Gott tækifæri fyrir duglegt fólk.
Langar þig í eigin rekstur? Höfum til sölu nokkur lítil en góð fyrirtæki
sem auðvelt er að byrja á. Jafnvel auðveldara en þú heldur.
Lítið fyrirtæki sem rekur 9 leikjakassa í sjoppum. Auðveldur rekstur í
aukavinnu.
Fullbúin naglaverksmiðja með nýjum tækjum sem passar í lítið húsnæði
eða jafnvel bílskúr. Hentar vel til flutnings út á land. Verð aðeins 3,5 m.
kr.
Sérhæft fyrirtæki sem setur lakkvörn á bíla. Gott einkaumboð, tæki og
lager. Hentugt fyrir tvo menn.
Lítill iðnrekstur til sölu. Mjög hentugur fyrir verndaðan vinnustað. 4—6
störf.
H-búðin Garðatorgi. Rótgróin fataverslun með eigin innflutning.
Skemmtilegt tækifæri fyrir tvær samhentar konur.
Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100—1000 m. kr.
Lítil en þekkt smurbrauðsstofa og veisluþjónusta með góð tæki og mikla
möguleika.
Stór austurlenskur veitingastaður í miðbænum. Mikil velta, góður
hagnaður.
Þekkt íþróttavöruverslun. Ársvelta 25-30 m. kr. Auðveld kaup.
Lítil verslun og verkstæði með reiðtygi og aðrar hestavörur. Gott fyrir
laghentan hestamann.
Kaffi- og veitingahúsið Vivaldi, Borgarnesi. Auðveld kaup. Skipti mögul.
Skoðið nýja heimasíðu fyrirtækjadeildar
með ítarlegri söluskrá og gagnlegum fróðleik:
www.husid.is
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658
Er lögheimili yðar
rétt skráð í þjóðskrá?
Nú er unnið að frágangi íbúaskrár 1. desember. Mikilvægt er
að lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá.
Hvað er lögheimili?
Samkvæmt lögheimilislögum er lögheimili sá staður, þar sem
maður hefur fasta búsetu.
Hvað er föst búseta?
Föst búseta er sá staður þar sem maður hefur bækistöð sína,
dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína
og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að lögheimili manns skal
jafnan vera þar sem hann býr á hverjum tíma.
Hvenær og hvar skal tilkynna flutning?
Breytingu á fastri búsetu á að tilkynna innan 7 daga frá
flutningi til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til.
Ennfremur má tilkynna flutning beint til Hagstofu Íslands -
Þjóskrá eða lögregluvarðstofu í Reykjavík. Eyðublað vegna
flutningstilkynninga er að finna á slóðinni
www.hagstofa.is/deildir/theydubl.htm.
Hagstofa Íslands - Þjóðskrá
Skuggasund 3, 150 Reykjavík,
sími 560 9800, bréfasími 562 3312.
-heilunar- og hugleiðslunámskeið ætlað
þeim sem eru að takast á við sjúkdóma og
eru tilbúnir að leggja eitthvað af mörkum
fyrir sig.
• Viðurkenndar aðferðir til að bæta árangur
jafnhliða öðrum meðferðum.
• Þetta gæti gert gæfumuninn fyrir þig.
• Þátttakendur fá allir einkatíma fyrir og eftir námskeið.
Dags.: Kvöldnámskeið 27.-30. nóv., dagnámskeið 3.-5. des.
Upplýsingar og skráning í s. 553 3934, milli kl. 10.00
og 12.00 virka daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari
Reiki
alltaf á föstudögum
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Fylkir þarf
sjálft að greiða 185.000 krónur í bæt-
ur til drengs sem slasaðist þegar hann
var við leik við áramótabrennu félags-
ins á nýársdag 1997. Ragnar Baldurs-
son héraðsdómslögmaður, sem hefur
gætt hagsmuna drengsins, segir að
slík upphæð geti varla haft mikil áhrif
á rekstur íþróttafélagsins.
Hæstiréttur dæmdi félagið til að
greiða drengnum rúmlega 660.000
krónur í bætur og 600.000 í máls-
kostnað. Ragnar segir að nánast allur
þessi kostnaður falli á Sjóvá-Almenn-
ar sem sé tryggingafélag Fylkis.
Íþróttafélagið þurfi að greiða
sjálfsábyrgð, 185.000 krónur. Í Morg-
unblaðinu á laugardag fyrir viku segir
Birgir Finnbogason, formaður aðal-
stjórnar Fylkis, að þessi dómur sé
stór biti fyrir félagið að kyngja. Í máli
hans kom ekki fram að tryggingar-
félagið bætti tjónið að langmestu
leyti.
Ragnar segir að foreldrar drengs-
ins hafi ákveðið að stefna ekki Fylki
fyrr en eftir að Sjóvá-Almennar lýstu
því yfir að tryggingarnar myndu að
langmestu leyti bæta tjónið, teldi
dómurinn að íþróttafélagið væri
skaðabótaskylt. Því komi yfirlýsingar
Birgis Finnbogasonar talsvert á óvart
því varla geti 185.000 krónur verið
stór biti fyrir félagið miðað við hversu
umfangsmikil starfsemi þess sé.
Í samtali í síðustu viku sagði Birgir
að hvorki hann né aðrir í aðalstjórn
Fylkis hefðu vitað að félagið yrði að-
eins að greiða sjálfsábyrgð, fyrr en á
miðvikudag. Aðalstjórn félagsins
verði að greiða bæturnar og hún hafi
takmarkaða möguleika til fjáröflunar.
Lögmaður drengs sem slasaðist við brennu
Bæturnar geta varla
haft mikil áhrif