Morgunblaðið - 24.11.2002, Síða 50

Morgunblaðið - 24.11.2002, Síða 50
DAGBÓK 50 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Víkverji skrifar... VÍKVERJI ætlaði varla að trúaaugum sínum, og fyrst og fremst nefi, um daginn þegar hann steig upp í leigubíl sem hann hafði pantað hjá BSR. Víkverji var 3–4 mínútur á leiðinni út úr húsinu, þang- að sem hann hafði pantað bílinn. Þeg- ar út var komið blasti við nokkuð und- arleg sjón. Leigubílstjórinn sat í mestu makindum sínum í bílstjóra- sætinu og reykti sígarettu. Hann hef- ur greinilega ætlað að fá það mesta út úr þessari örstuttu stund sem hann þurfti að bíða eftir Víkverja. Það skal reyndar tekið fram, bíl- stjóranum til tekna, að hann hélt síg- arettunni fyrir utan gluggann og reyndi að blása eiturbláum reyknum út. Víkverji veit þó vel, þar sem hann prófaði að reykja sem unglingur, að þó maður reyki út um glugga kemst fnykurinn alltaf inn. Það ættu allir sem reykja að vita og þar sem þetta er algengt minni í unglingamyndum ætti þessi fróðleikur að teljast til al- mennrar þekkingar. Víkverji ákvað þó að láta þetta ekki á sig fá og settist í aftursætið. Eins og fjölmargir landsmenn hefur Víkverji átt við einhverja kveflumbru að stríða alla vikuna. Reykurinn, sem vissulega mátti merkja í aftursæti bílsins, fór illa í viðkvæman háls Víkverja og fékk hann því mikið hóstakast stuttu eftir að ökuferðin hófst. Hann ákvað að rétt væri að segja sína skoðun, láta ekki allt yfir sig ganga. Farið kostaði jú um þúsund krónur og það er hægt að gera margt skemmtilegra fyrir þann pening en sitja í reykjarkófi í aftursæti og hósta upp lungum og lifur. „Ég hefði nú vilj- að reyklausan bíl,“ hóstaði Víkverji loks upp úr sér. „Þú verður þá bara að biðja um það næst,“ sagði bílstjórinn önugur. x x x VÍKVERJI skilur vel að það hljótiað vera erfitt að vera reyking- armaður í dag, þegar ekki má reykja á öllum kaffihúsum, bannað er að reykja í kvikmyndahúsum og flugvél- um auk þess sem sígarettupakkinn kostar hátt í 500 krónur. Honum finnst þó engin ástæða að menn í þjónustustarfi, eins og leigubílstjórar, verði önugir þegar viðskiptavinir láta í ljós óánægju sína með að vera látnir vaða reyk. Víkverji svaraði því að bragði að hann gerði sér ekki grein fyrir því að það þyrfti að taka fram hvort maður vildi reyklausan eða bíl sem mætti reykja í. Hann héldi að það væri liðin tíð að það væri talið eðilegt að blása reyk framan í kúnnann. Langt er t.d. síðan gjaldkerar bankanna fengu að reykja við vinnu sína. Þar sem innan- lands- og millilandaflug væri orðið reyklaust hlyti það sama að ganga yf- ir leigubílana. Að þar ferðuðust allir á reyklausu farrými. Fyrst menn geti haldið sér reyklausum á leiðinni yfir Atlantshafið, hljóti þeir að geta gert það í 10 mínútna bíltúr í Reykjavík. x x x EKKI er langt síðan fréttir vorufluttar af því að leigubílstjórar mættu ekki bera á sig of mikinn rak- spíra eða önnur ilmefni, ættu að þvo hárið reglulega, skipta um sokka og nota svitasprey, allt svo kúnnanum liði betur. Svo virðist a.m.k. sem um- ræddur leigubílstjóri hafi ekki heyrt af þessum reglum. Bætur almanna- trygginga MIÐVIKUDAGINN 20. nóvember var birt tafla í Morgunblaðinu yfir hækk- un bóta almannatrygginga. Þar er ekki farið með réttar tölur. Ellilífeyrir er nú 19.990 en ekki 19.000 eins og sagt er. Geir H. Haarde segir bætur hækka sem svarar 8–14 þús. á mánuði. Eftir mínum út- reikningi mundu mínar bætur hækka innan við 5 þús. krónur. Ég er með fulla tekjutryggingu og heimilisuppbót. Frá Trygggingastofnun fæ ég nú 70.796 kr. Af því er tekið í skatt 8.823 krónur. Þannig að eftir verða 61.973 kr. Þetta er smánarleg hækkun og verður strax tekin til baka með hækkun á þjónustu og vörum. 100 þús. kr. skattfríar er lágmarksupphæð til að fólk geti lifað án þess að þurfa að standa í biðröð og betla lífsnauðsynjar. Nefndin sem samdi um þessar smánarbætur með Þórarinn V. Þórarinsson í fararbroddi, var hún ekki á góðum launum? Ein reið og hissa. Fátæktar- síbyljan ÉG hlusta oft á útvarp Sögu og þar er margt at- hyglisvert til umræðu en þó ofbýður mér stundum sjálfsvorkunnar og fátækt- arsíbyljan á þeim bæ. Eða þegar maðurinn úr „Svörtu loftunum“ og sama fólkið hringir inn oft á dag með sama svartsýnishjalið. Þá er gott að skipta á gömlu gufuna sem hefur farið batnandi undanfarið. Að lokum vil ég þakka Sigmund teiknara fyrir stórgóðar skopmyndir í Morgunblaðinu. Gott er að til er fólk sem lyftir manni lundina í öllu svartnættinu. Eldri borgari. Þakklæti ÉG vil koma á framfæri þakklæti mínu til Alex- eisergev sem býr á Klapp- arstíg, en hann fann skart- gripapoka sem ég týndi og kom honum til skila. Sigurpáll Grímsson. Tapað/fundið Pennaveski týndist PENNAVESKI týndist á milli Tónlistaraskólans í Hafnarfirði og Safnaðar- heimilis Fríkirkjunnar, ein- hvers staðar á Strandgöt- unni. Þetta pennaveski er með tau-„ljónshaus“ og ljósbrúnt. Finnandi hafi samband við Írisi í síma 847 7391. Skólataska og úlpa týndust SKÓLATASKA og rauð úlpa týndust við Garðheima sl. fimmtudag. Finnandi hafi samband í s. 587 3789. Dýrahald Mikki er týndur MIKKI er grár og hvítur fress, eyrnamerktur og með bláa ól. Hann týndist í Rimahverfi sl. þriðjudag. Fólk í hverfinu er beðið að athuga skúra og geymslur. Þeir sem gætu gefið upp- lýsingar hafi samband í síma 865 9969. Kanínur og mús fást gefins KANÍNUR og kanínuung- ar fást gefins. Einnig fæst ein mús gefins. Upplýsing- ar í síma 867 0797 eftir 13. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 káka, 4 hörfar, 7 lævís, 8 gungum, 9 ílát, 11 fram- kvæma, 13 drepa, 14 vesl- ast upp, 15 nabbi, 17 svöl, 20 elska, 22 stólarnir, 23 fiskar, 24 fyrir innan, 25 núa. LÓÐRÉTT: 1 valur, 2 búin til, 3 bæta við, 4 skarkali, 5 drengja, 6 langloka, 10 byrðingur- inn, 12 keyra, 13 hrygg- ur, 15 rass, 16 dáin, 18 sterk, 19 móka, 20 flanar, 21 heiti. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 reytingur, 8 undin, 9 fagur, 10 iðn, 11 dýrin, 13 aurar, 15 barns, 18 fauti, 21 tel, 22 tigni, 23 auðug, 24 mannskaði. Lóðrétt: 2 eldur, 3 túnin, 4 nefna, 5 uggur, 6 pund, 7 frír, 12 inn, 14 una, 15 biti, 16 ragna, 17 stinn, 18 flakk, 19 urðuð, 20 Inga. K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag er Selfoss væntanlegt. Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un félagsvist kl. 14, á þriðjudag samsöngur kl. 14, stjórnandi Kári Frið- riksson. Jólahlaðborð verður 6. desember. Húsið opnað kl. 17. Gest- ur kvöldsins Þórunn Sveinbjörnsdóttir vara- formaður Eflingar. Mar- grét E. Jónsdóttir syng- ur við undirleik Karls Olgeirssonar, börn frá Suzuki-skólanum leika á fiðlur, Ásgeir Ásgeirsson leikur á gítar. Allir hjart- anlega velkomnir. Skráning í afgreiðslu. Árskógar 4. Á morgun kl. 9–12 opin handa- vinnustofa, kl. 11 boccia, kl. 13–16.30 opin smíða- stofa/útskurður, opin handavinnustofa, kl. 13.30 félagsvist, kl. 16 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–12 búta- saumur, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–11 samveru- stund, kl. 13.30–14.30 söngur við píanóið, kl. 13–16 bútasaumur. Uppl. í s. 568 5052. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bókasafn- ið, kl. 15–16 bókaspjall, kl. 17–19 æfing kór eldri borgara í Damos. Laug- ard: kl. 10–12 bókband, línudans kl. 11. Inn- kaupaferð í Kringluna 28. nóv. kl. 13. Miðasala hafin í jólahlaðborð 12. des. Uppl. í síma 586 8014. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á morgun kl. 20.30. Fótaaðgerða- stofan opin frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á morgun kl. 16.30–18, s. 554 1226. Félagsstarfið, Lönguhlíð 3. Á morgun kl. 8 böðun, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 9 myndlist, kl. 10–12 versl- unin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, framhald. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Á morgun kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–12 myndlist, kl. 10– 13 opin verslunin, kl. 11– 11.30 leikfimi, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið, Dalbraut 27. Á morgun Kl. 9–16 handavinnustofan opin, kl. 9–12 myndlist, kl. 13– 16 körfugerð, kl. 11– 11.30 leikfimi, kl. 13–16 spilað, kl. 10–13 versl- unin opin. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Á morg- un, mánudag, púttað í Hraunseli kl. 10. Tré- skurður kl. 13 og fé- lagsvist kl. 13.30. Á þriðjudag: Handavinna kl. 13.30, brids kl. 13.30, púttað kl. 13 og kl. 14. Opið hús fim. 28. nóv. Nokkrir rithöfundar lesa úr verkum sínum. Kaffi- veitingar. Dansleikur í Hraunseli föstud. 29. nóv. kl. 20.30. Caprí tríó leikur fyrir dansi. Nám- skeið í mótun á leir verða alla föstudaga kl. 13–16, laus pláss. Billjardstofan opin alla virka daga kl. 13–16. Skráning og allar uppl. í Hraunseli í síma 555-0142. Félagsstarfið, Furu- gerði 1. Dansleikur þriðjudaginn 26. nóv. kl. 19.30. Hljómsveitin Í góðum gír leikur fyrir dansi. Veitingar. Allir velkomnir. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Á morgun böð- un kl. 9–12, opin handa- vinnustofan kl. 9–16.30, félagsvist kl. 14, hár- greiðslustofan opin 9–14. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er lokuð vegna breytinga í Glæsibæ. Basar Söng- félags FEB verður í dag, sunnudag, kl. 13 í Ás- garði, Glæsibæ. Dans- leikur í kvöld kl. 20. Caprí-tríó leikur. Mánu- dagur: Brids kl. 13. Línudanskennsla fyrir byrjendur kl. 18. Dans- kennsla Sigvalda, framh., kl. 19 og byrj- endur kl. 20.30. Þriðjudagur: Skák kl. 13 og alkort kl. 13.30. Almennur félagsfundur með þingmönnum Reykjavíkur laugardag- inn 30. nóvember í Ás- garði, Glæsibæ, kl. 13.30. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Gerðuberg, félagsstarf. Í dag myndlistarsýning Árna Sighvatssonar opin kl. 13–16. Á morgun, mánudag, kl. 9–16.30 vinnustofur opnar. Kl. 9.30 sund- og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug. Frá hádegi spilasalur op- inn. Kl. 15.14 dans hjá Sigvalda. Fimmtudaginn 28. nóvember er „kyn- slóðir saman í Breið- holti“. Félagsvist kl. 13.15 í samstarfi við Fellaskóla. Allir vel- komnir. Allar uppl. á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum kl. 9–17, kl. 10.45, hæg leik- fimi (stólaleikfimi), kl. 9.30 gler- og postulíns- málun, kl. 13 skák og lomber, kl. 20 skapandi skrif. Laxness-dagur í Gjábakka fimmtudaginn 28. nóv. Gullsmári, Gullsmára 13. Á morgun kl. 9 vefn- aður, kl. 9.05 leikfimi kl. 9.55 róleg stólaleikfimi, kl. 10 ganga, kl. 13 brids, kl. 20.30 félagsvist. Hraunbær 105. Á morg- un kl. 9 postlínsmálun, perlusaumur og fótaað- gerð, kl. 10 bænastund, kl. 13.30 sögustund og spjall, kl. 13 hárgreiðsla. Jólafagnaður. Föstudag- inn 6. desember jólahlað- borð. Húsið opnað kl. 18 með fordrykk. Ræðu- maður: Dagur B. Egg- ertsson læknir og borg- arfulltrúi. Nemendur úr Ártúnsskóla syngja nokkur lög. Sigríður Skarphéðinsdóttir les jólasögu. Hugvekja: séra Sigrún Óskarsdóttir. Gradualekór Árbæj- arsóknar syngur. Verð: 2.700. Skráning á skrif- stofu fyrir 4. des. Takið með ykkur gesti. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. 9 böðun og föndur, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 13 spilað, kl 13.30 ganga, fótaaðgerð- ir. Allir velkomnir. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Fimmud: Kl. 10, aðra hverja viku, púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug á þriðju- dag kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30. Uppl. í s. 5454 500. Norðurbrún 1. Á morg- un kl. 10–11 ganga, kl. 9– 15 fótaaðgerð, kl. 9–12 myndlist, kl. 9–16 opin handavinnustofa. Þriðju- daginn 26. nóv. kl. 14 les Viðar Hreinsson upp úr bók sinni um ævi Steph- ans G. Stephanssonar. Nýtt jóganámskeið hefst 26. nóv. kl. 14. Nánari uppl. í síma 568 6960. Vesturgata 7. Á morgun kl. 9–16 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15–12 postulínsmálning, kl. 9.15–15.30 alm. handa- vinna, kl. 9.30–10.30 boccia, kl. 10.30–11.30 jóga, kl. 12.15–13.15 danskennsla, kl. 13–16 kóræfing. Lyfjafræð- ingur á staðnum kl. 13 fyrsta og þriðja hvern mánudag. Vitatorg. Á morgun kl. 8.45 smíði, kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 bók- band, bútasaumur og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir og boccia, kl. 13 handmennt, gler- bræðsla og spilað. Háteigskirkja, eldri borgarar, mánudaga fé- lagsvist kl. 13–15, kaffi. Gullsmárabrids. Brids að Gullsmára 13 mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45, spil hefst kl. 13. Félag eldri borgara, Suðurnesjum. Bingó í Selinu, Vallarbraut 4, Njarðvík, öll mánudags- kvöld kl. 20. Kvenfélag Kópavogs. Basar-vinnukvöldin eru á mánudögum kl. 20 í sal okkar í Hamraborg 10. Reykjavíkurdeild SÍBS verður með félagsvist í húsnæði Múlalundar, vinnustofu SÍBS, í Há- túni 10C, 26. nóvember. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Mæting kl. 19.45. Byrjað að spila kl. 20. Húsinu lokað kl. 20. ITC Harpa. Næsti fund- ur þriðjudaginn 26. nóv. kl. 20 í Borgartúni 22. Gestir velkomnir. Öldungaráð Hauka. Al- mennur félagsfundur verður nk. miðvikudag, 27. nóv., kl. 20 á Ásvöll- um. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Í dag er sunnudagur 24. nóvember, 328. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Sá sem ætlar að finna líf sitt, týnir því, og sá sem týnir lífi sínu mín vegna, finnur það. (Matt. 10, 39.) HINN 2. apríl árið 2000 gerðust Íslendingar aðilar að CITES-samningnum. CITES stendur fyrir milli- ríkjasáttmála um viðskipti með dýr og jurtir í útrým- ingarhættu. Síðan þá hefur verið lögð fram tillaga, um vernd rjúpnastofnsins gegn ofveiði og algert bann við sölu rjúpunnar. Veiðitími mun verða stytt- ur um helming þ.e. aðeins mun verða leyfilegt að veiða í nóvember næstu fimm árin og bannsvæði veiða stækkuð í kringum höfuðborgarsvæðið. Með þessu erum við ekki eingöngu að vernda rjúpnastofninn, heldur einnig stofn fálkans. Íslendingar bera ábyrgð á einum stærsta fálkastofni í Evrópu og af- koma hans er algerlega háð rjúpunni. Á Íslandi eru 50–60 þúsund rjúpur seldar ár- lega. Undirrituð við- urkennir að hún hafi borðað rjúpu á jólunum frá því hún man eftir sér, en nú verðum við að vega og meta hvort er mik- ilvægara, einstök íslensk náttúra eða einstök árleg máltíð. Ef tillagan nær fram að ganga verða allir að leggjast á eitt svo ná megi sem bestum árangri. Þeir sem ennþá vilja miða geta miðað á vágesti eins og ref og mink en það mun flýta enn frekar fyrir stækkun stofnsins. Líffræðingar úti í heimi beina augum sínum að einstakri íslenskri nátt- úru. Höldum henni einstakri, á endanum græða allir. Brynhildur Stefánsdóttir, nemi í UK. Kaupum ekki rjúpu fyrir jólin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.